Tíminn - 17.02.1953, Síða 8
„ERLEJVT YFIRL1T“ í DAG:
Nýjar Gyðingaofsóknir
87. árgangur.
Reykjavík,
17. febrúar 1953.
38. blað.
Gullfaxi flytur vörur til Grœnlands:
Frostið yfir 40 stig - ekki
hægt að stöðva hreyflana
Flugvélin Gullfaxi bíður þess albúinn á Reykjavíkurflug-
velli að fljúga norður til eins nvrzta flugvallar i veröldinni,
Meistaravíkur á austurströnd Grænlands. Slíkt flutninga-
flug er þó ekki heiglum hent um hávetur svo Iangt norður.
TVT
Björns Jóhannessonar:
Of dýrt aö nota fljót-
andi ammoníak-áburð
Góð tillög í Hol-
landssöfnunina
um helgina
Á sunnudaginn og í gær
tók Rauði krossinri á móti
26405 krónum úr Reykjavík
í Hollandssöfnunina. Þá
hafa einnig verið sendar
14335 krónur frá Selfossi og
næstu byggðarlögunum og
hefir þeim peningum verið
safnað á tveimur eða þrem-
ur dögum.
Þá hefir bændaskólinn á
Hvanneyri, nemendur, kenn-
arar og starfsfólk, sent gjaf-
ir og sömuleiðis tvær fjöl-
skyJdur á Suðurlandi, önnur
í Árnessýslu og hin í Rangár-
vallasýslu.
Barna-„púður” með
arsenik varð 152
ungbömum að bana
í réttarrannsókn í Rennes
í Frakklandi er nú ljóst orð-
ið, að 152 ungbörn hafa lát-
iö lífið og 752 orðið alvarlega
sjúk af völdum „púðurs“ eða
húðdufts, sem notað hefir
verið og framleitt í verk-
smiðju í Bordeaux. Rann-
sóknarnefnd hefir fjallað
um málið og kveðið upp þann
úrskurð, að höfða sk.uli mál
fyrir morð á hendur fram-
leiðandanum.
Barna-„púður“ þetta var
ný framleiðsluvara og selt
mikið magn af henni um allt
vestanvert Frakkland. Árang
urinn varð sá, að læknar á
fæðingardeildum urðu að
kljást við mjög illvíga húð-
sjúkdóma á börnunum. Efna-
rannsókn púðursins sýndi
svo, að það hafði inni að
halda allt of mikið magn af
arseniki.
Skemmtun Fram-
sóknarfél. kvenna
Framsóknarfélag kyenna
í Reykjavík heldur skenimt
un í þjóðleikhúskjallaran-
um á fimmtudagskvöldið
kemur kl. 8,30 síðd. Hefst
samkoman með Framsókn-
arvist og síðan verða veitt
verðlaun. Auk þess verður
til skemmtunar bögglaupp-
boð og fleira. Allir vinir fé-
lagsins, karlar og konur,
eru beðnir að koma mcð
böggla á uppboðið. Nánar
verður sagt frá skemmtun-
inni síðar.
Flugvélin er búin að bíða
nokkra daga eftir flugveðri
norður. Fyrst í stað gat hún
ekki farið vegna þess að þokur
voru svo miklar á flugvöllum
hér, að þeir voru meira og
minna lokaðir í þrjá sólar-
hringa.
í gær var hins vegar kom-
ið ágætt flugveður hér, en þá
var hríð og grimmur vetur
norður í Meistaravík.
40 stiga frost, —
allir hreyflar í gangi.
Meistaravík er nyrzti flug-
völlur á austurströnd Græn-
iands og lítið notaður að vetr
arlagi, ekki sízt vegna þess,
hve snjóþungt er norður þar
og oft slæm veður, en dagur
stuttur í skammdeginu.
Undanfarna daga hefir ver
íð yfir 40 stiga frost í Meist-
aravík, svo að ekki þykir vog
andi að stöðva flugvélahreyfl
ana í slíkum kulda. Væri þá
hætta á því, að þeir kæmust
ekki í gang með góðu móti.
Þarf þvi að afhlaða vélina þar
í þessum kulda, án þess að
stöðva hreyflana.
í Meistaravík er búið að
•andirbúa komu vélarinnar,
flugbraut hefir verið rudd þar
I og bíða menn nú óþreyjufull
ir eftir vélarkomunni.
j Til Meistaravíkur er meira
[ en þriggja stunda flug hér
' um bil beint í norður frá ís-
1 landi.
I__________________________
Stúdentar andvígir
íþróttasky 1 dunni
Úrslit atkvæðagreiðslunn-
ar í háskólanum um íþrótta-
skylduna urðu þau, að með
íþróttaskyldunni greiddu 58
atkvæði, eða 14% af greidd-
um atkvæðum, en gegn
henni 345, eða um 85%
greiddra atkv. 6 seðlar voru
auðir og 1 ógildur. Er því
augljóst, að mikill meirihluti
stúdenta við háskólann er á
móti íþróttaskyldunni, sem
er 80 stundir fyrir hvert próf,
sem talið er hluti af kandi-
datsprófi. Samkvæmt reglu-
gerðinni á að ljúka kvöðum
íþróttaskyldunnar á tveim
fyrstu kennsluárunum.
Hjónavígsla á
vatnaskíðum
Fyrir nokkru fór heilög at-
höfn fram á vatnsskiðum við
baðströnd í Flórída. Virðuleg
ur prestur gaf þar saman
hjón. En í miðri athöfninni
tókst svo slysalega til, að brúð
hjónin stungust í sjóinn, svo
að endurtaka varð athöfnina,
er presturinn ig brúðhjónin
voru komin á þurrt land.
Kommúnistar
misstu talsvert
fylgi
Stjórnarkosningu í verka-
mannafélaginu Dagsbrún er Rjörn Jóhannesson hefir samið skýrslu um tilraunir þær,
nú lokið, og munu atkvæði sem hann hefir gert um dreifingu fljótandi ammoniaks.
hafa fallið þannig, að Iisti Fór hann á sínum tíma vestur um haf til þess að kynna Sér
kommúnista fékk 1192 at- hvernig dreifing þessa áburðarefnis væri þar framkvæmd.
kvæði og hefir því misst 66 Fékk hann þar áhöld og efni til dreifingarinnar.
atkvæði frá'því í fyrra, en I
íicti AihvSVnfinkksmannn ! Ammoníakið var látið á tap og sennilega því meira
fékk 606 atkvæði Er það stálhylki, sem komið var fyr- sem veturnir eru hlýrri.
nær tvöfalt meira en í fyrra.’ir 1 jeppabifreið, en frá hylk-
Þá var einnig í kjöri Iisti inu var gúmmíslanga í Heilðarniðurstaða.
Sjálfstæðismanna, er fékk 1 straumhraðamæli og þaðan
hátt á fjórða hundrað at-
kvæði.
Kcsningaþátttakan er
því mun minni nú en þá, og
virðist sem Sjálfstæðismenn
ingunni.
I skýrslu Björns Jóhann-
essonar um tilraunlmar seg-
ir siðan: „Heildarniðurs'taða
þessara athugana verður þá
þessi: Enda þótt framkvæm-
anlegt sé aö bera fljötandi
í þrjá hnífa, sem ristu niður
í jarðveginn. Fylgdi og út-
búnaður til þess að tempra
rennslið, og lítill valti fylgdi
á eftir hnífnum. Var með
hafi lítinn þátt tekið í kosn- 'Þessum útbúnaði borið á tvo ammoníak i íslenzk túri, virö
tdraunabietti a Korpulfs-. ist ekki sennilegt, að það
staðatum. Lét ráðsmaðurinn ði fjárhagslega hagkýæmt
þar, Stefán Pálmason, í te með þvl að tiltölulega miklu
ymsa fynrgreiðslu og aðstoð,;fjá ni ði að verja til
en Pétur Snæland jarnsmiða; flutnings. og dreifingartækja
^ !a?an °givegna hins skamma áburðar-
smíðaði dreifmgartækin. Var'tim
með þeim hægt að dæla am-'
moníakinu í fimm sentimetra
dýpt, án verulegk eínistaps.
Síðar voru tilraunir gerðar á
Sámsstöðum. -
Norðmenn vilja fá
hollenzkar stúlkur
í sveitirnar
I Noregi er nú uppi um það
hreyfing að fá hollenzkar
stúlkur til þess að flytjast
þangað og setjast að í sveit-
um. Norðmenn telja nauð-
syn á því að mannfjölgun
Þarf dýr tæki.
Ammoníakáburði er erfið-
ara að dreifa en öðrum köfn-
verði í sveitum landsins, og, una.refnisáburöi. T-il þess að
hugur þeirra beinist mest að'
Hollandi.
í Hollandi er fólk orðið
fleira en landrými er fyrir,
fólk þar er ákaflega spar-
sa;mt„ nýtið og atorkusamt
og ræktunarmenning á háu
stigi, svo að það væri fengur
að því að fá þetta fólk inn í
landið, segja Norðmenn þeir,
sem beita sér fyrir þessu.
Nauðsyn þessa innflutn-
ings rökstyðja formælendur
hans meðal annars með því,
að víða i norskum sveitum sé
nú svo fátt kvenna, að til
vandræða horfi, og algengt
að karlmenn hokri þar einir,
hús og heimili drabbist nið-
ur af vanhirðu og efnilegir
menn verði að sérvitringum í
einveru og þrotlausu amstri.
flytja ammoníak út um sveit
ir og koma því í jöröina þarf
dýr tæki, kunnáttu og gætni.
Þessi tæki eru svo dýr, að
riki eða búnaðarsamtök yrðu
að starfrækja þau. Þótt fljót-
andi ammoníak sé ódýrara og
efnaríkasti áburðurinn.getur
svo farið, að dreifingarkostn-
aður yrði svo mikill, að á-
burður í pokum reyndist ó-
dýrari.
Skamraur áburðártími.
Eitt af því, sem er þrándur
í götu, er hve skammur á-
burðartíminn yrði. Ekki yrði
hægt að bera á nema nokkr-
ar vikur á vorin, þegar frost
er farið úr jörðu^en tilraunir
með haustdreifingu hafa
sýnt, að þá á sér stað efna-
Ammcníak á áveitur.
Ekki er þó með öllu útilok-
að, að fljótandi ammoníak-
áburður geti haít' riókkra
þýðingu fyrir ^okkjmE^ þá
við það átt, hvort ekki Tfiuni
mega leysa ammoníakiö upp
í áveituvatni, og- gáetí vérið
ómaksvert að athuga, hvort
slíkt svaraði kostnaði á ein-
hverjum af áveitum landsins.
Hefir þessi aðferð vcrið not-
uö með árangri erlendis.
Ár í Árnesþingi flæða
víða úr farvegum sínum
Frá fréttaritara Tímans á Selfossi.
Mikil rigning hefir verið austan fjalls og vatnavextir, svo
að ár hafa sums staðar hlaupið úr farvegum sínum, þar
sem jakastíflur hafa myndazt og flætt yfir flatlendi. —
Skemmdir hafa þó ekki orðið af þessum sökum.
Ölfusá varð í gær með því
mesta, er hún verður, nema
þegar um stórflóð er að ræða.
Jakaburður var ekki mikill í
ánní, en þó myndaðist í
henni stífla neðan við Kald-
aðarnes.
Mikið flóð við Kaldaðarnes.
Vegna þessarar stíflu hefir
Ölfusá flætt þarna vítt yfir.
Náði hafsjórinn í gær allt
upp að flugvellinum við Kald
aðarnes og yfir öll engjalönd
neðan Kaldaðarness og upp
á Eyrarbakkaengjar. Allar
lægðir i sandgræðslugirðing-
unni austan Kaldaðarness
voru einnig fullar af vatni
og á smákafla á veginum
milli Kaldaðarness og Sand-
víkur var hnédjúpt vatn.
Jakar á veginum.
í Stóru-Laxá hefir mynd-
azt jakastífla í fyrrinótt, og
þegar hún sprakk flæddi
yfir veginn austan frá Sól-
eyjarbakka í Hrunamanna-
hreppi langleiðina að Birt-
ir.gahoiti. Var svo mikið af
jökum þar á veginum í gær-
morgun, að mjólkurbílstjór-
inn varð að aka utan vegar-
ins á kafla.
Hlaup í Kálfá.
Þá hefir Kálfá í Gnúpverja
hreppi flætt úr farvegi sín-
um móts við Hof, og eins hjá
Ásum. En engar skemmdir
hafa orðið af þessu.
Daglegar kvöldbæn-
ir á föstunni í
Hallgrímskirkju
Fólk getur koinið í
hversdagsfötum
Á föstunni verða kvöldbæn
ir í Hallgrímskirkju alla daga
nema á miðvikudögum, en þá
er föstuguðsþjónusta.
Kvöldbænir hafa verið í
Hallgrímskirkjunni á * föst-
unni undanfarna vetur og
hafa þær átt miklum vin-
sældum að fagna og yfirléitt
verið vel sóttar, að því er séra
Jakob Jónsson sóknarprestur
skýrði blaðinu frá í gær.
Er hér um að ræða stutt-
ar helgiathafnir, sem taka
ekki nema 20 mínútúr. Er les
inn ritningarkafli og vers úr
passíusálmunum. Við kvöld-
bænirnar starfa sjálfboðalið-
ar frá söfnuðinum að söng
og orgelleik, en guðfræðinem
ar úr háskólanum lesa.:
Séra Jakob sagði, að bæn-
irnar væru hafðar klukkan
átta að kvöldinú, ‘ til' þésé" að
fólk gæti áð Óðru léý't'í "notáð
kvöldin eins og það' vill.!;Get-
ur fólk komið til kvöldbæn-
arinnar í hversdagsfötunum;
ef því er að skjptli^áLleið-
inni að eða frá vinnu.
Helgiathafnir þessar á
föstunni í Hallgrimikirkju
eru að öðrum þræði í minn-
ingu séra Hallgríms Péturs-
sonar, jafnframt því, sem
fólk fær þar tækifæri til að
komast í daglegt samband við
kirkjuna um föstuna.