Tíminn - 18.04.1953, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.04.1953, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Skrifstofur i Edduhúsi Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 37. árgangur. Reykjavík, laugardaginn 18. apríl 1953. 87. bla3. Fanney veiddi síld í vörpu á Selvogsbanka í fyrrinótt Horfui* á að takast megi vetrarsíWvetðl. Slæðingur af síld við Suðurlaadtð Fanney kom af síldveiðum í gær og Iandaði 45 síldar- tunnum á Akranesi í gærdag, en hélt síðan til Reykjavíkur, þar sem gera þarf við aðra síldarvörpuna sem skipið notar við veiðitilraunirnar. Blaðamaður frá Tímanum fór í gær- dag um borð í Fanney og hafði tal af skipverjum. Síldin, sem veiddist að þessu sinni var á Selvogs- banka og er þar töluverð síld. Er hún mjög dreifð og gjarnan nærri botninum á daginn, en hnappar sig held- ur saman að næturþeli. Er þá tíltækilegast að veiða. Síldin sem veiddist í fyrri- nótt fékkst í Akranesvörpuna sem reyndist nokkuð vel en er þó of stórriðin til að halda síldinni. Tapast veiði vegna þessa og nokkuð af veiðinni ánetjast í vörpunni og veld- ur sjómönnum töfum og erf- iðleikum, sem ekki yrðu, ef varpan væri smáriðnari. Nýr sænskur sendiherra Sendiherra Svíþjóðar, herra Leif Öhrvall, afhenti í dag forseta íslands trúnaðarbréf sitt viö hátiðlega athöfn að Bessastöðum, að viðstöddum utanríkisráðherra. Að athöfninni lokinni sátu sendiherra og frú hans há- degisverðarboð forsetahjón- anna, ásamt nokkrum öðrum gestum. (Frétt frá forsetaritara). 57 félagsheimili voru byggð með ríkisstyrk Á síðastliðnum þremur árum hefir miklu fé verið varið af hinu opinbcra til styrktar félagsheimilum. Samkvæmt lögunum um félagsheimilasjóð1 annast fræffslumálastjóri og íþróttanefnd ríkisins stjórn sjóðsins og íþróttafulltrúi er framkvæmdastjóri þeirra í þeim málum. Þurfa ekki lengur ferðaleyfi Loftleiðir hafa nú öðlazt réttindi til þess að flytja far- þega, sem þurfa að fara í gegnum Bandaríkin, án þess að þeir þurfi að afla sér bandarískra ferðaleyfa af þeim sökum. Vegna þessa leyfis geta Loftleiðir nú boö- ið hagstæð kjör í flugferðum til Kanada, enda hefir félag- ið gert samning við kanad- íska flugfélagið um flutning farþega frá New York til Kanada. Geta Loftleiðir selt farseðla til framhaldsflugs til flestra staða í Norður- og Suður-Ameríku. Farþegar, sem ætla til Kanada eða Suður-Ameríku, án dvalar í Bandaríkjunum,| þurfa að kynna sér ýmsarj reglur, sem að þessu lúta, og geta aflað sér vitneskju um, slíkt í afgreiðslu Loftleiða. i Smærri vörpur fyrir minni skip. Að öðru leyti reynist varp- an vel og telja menn, að hér sé um gott veiðarfæri að ræða, þegar nauðsynlegar breytingar hafa verið gerðar Líklegt er, að gera þurfi mis- munandi stærðir af vörp- unni, eftir stærð bátanna og vélarafli. Varpa sú, sem Fanney notar, er nokkuð stór, mda skipið öflugt. Flotvörpurnar eru tvær. Fanney hefir líka aðra flotvörpu til síldveiðanna.1 Er það varpa, sem Gunnar Böðvarsson verkfræðingur hefir látið gera að fyrirlagi sinu, og talin er líkleg til árangurs. Er hægt að stilla dýpt hennar í sjónum með- anlogað er eins og Akranes- vörpuna. | Þessi varpa rifnaði, þegar reyna átti hana nærri botni og var komið með hana inn til viðgerðar í gær, og verður hún reynd aftur. Víða vetrarsíld. Síldin, sem veiddist á Sel- vogsbanka í fyrrinótt, var fryst á Akranesi Hún er mis jöfn að stærð og fitumagni, en þó ekki ólíklegt að það bezta úr henni sé allt af því söltunarhæft. Á heimleiðinni sáu skip- verjar í fisksjá sinni tölu- verða síld út af Grindavík, en einna mesta síld hefir Fanney mælt í vetur undan Dyrhólaey. (Framhald á 7. sí3u> Styrkir til háskóia- náms í Þýzkalandi Sambandslýðveldið Þýzka- land hefir, samkvæmt tilkynn ingu frá sendiráöinu í Reykja vik, ákveðið að veita tveimur íslendingum styrk til háskóla náms í Þýzkalandi háskóla- árið 1953—’54 og nemur styrkl urinn 3.000 þýzkum mörkumi til hvors miðað við níu mán- i a^a dvöl frá 1. nóvember n. k.! að telja. Styrkþegar ráða því sjálfir við hvaða háskólaþeirj nema, en skilyrði er, að þeir kunni vel þýzka tungu og geti lagt fram sönnunargögn fyr- ir hæfni sinni til vísinda- starfa, þ. e. námsvottorð og meðmæli prófessora sinna. Auk þess er lögð áherzla á, að umsækjendur hafi þegar staðizt háskólapróf eða verið a. m. k. fjögur misseri við há- skólanám. Að öðru jöfnu ganga þeir fyrir, sem ætla að búa sig undir að ljúka dokt- orsprófi. Þeir, sem íynnu að hafa hug á að hljóta styrki þessa, sendi umsóknir um þá til menntamálaráðuneytisins fyr ir 15. maí n. k. Mögnuð inflúensa á Sauðárkróki Frá fréttaritara Tímana á Sauðárkrók. Siðustu viku hefir inflú- ensa magnazt mjög á Sauð- árkróki og er nú fjöldi fólks í kaupstaðnum með hana. Má heita, að einn eða fleiri séu með inflúensu í flestum hús- um. Hins vegar er veikin væg. Fyrstu lömbin af nýja stofninum eru fædd A tímabilinu hafa leitað til sjóðsins aðilar um byggingu 142 félagsheimila Tekjur sjóðsins, sem eru af skemmt- anaskatti, námu sem hér segir: Árið 1948 1.239 þús. kr., 1949 1.162 þús. kr„ árið 1950 1.073 þús. kr , árið 1951 1.091 þús. kr„ og loks upp í hluta skemmtanaskattsins 1952, 775 þúsund krónur. Á þessum árum hefir verið úthlutað styrkjum til 57 fé- lagsheimila og námu styrk- irnir rösklega fimm milljón- um króna. Kostnaðarverð þessara félagsheimila er ann ars áætlað rúmar 14 milljón- ir króna. Þeim félagsheimili, sem tek in hafa verið í notkun og styrk hafa fengið úr sjóðn- um, hefir verið sett skipu- lagsskrá. í þriggja ára skýrslu íþrótta nefndar, en þangað eru þess- ar upplýsingar sóttar, er um það getið að um 90% af þeim íslendingum, sem fæddir eru 1931—1939 muni vera synd- ir Hefir sundkunnáttu farið mikið fram meðal lands- manna síðustu árin, enda þótt aðsókn að sundlaugum og sundhöllum virðist ekki hafa vaxið að sama skapi. Bezt kom árangur sund- skyldunnar fram í samnor- rænu sundkeppninni 1951. Fræðslukvikmyndir ura uppeldi í Tjarnarbíó Barnaverndarfélag Reykja- víkur sýnir nokkrar fræðslu- kvikmyndir um uppeldi kl. 2 i dag í Tjarnarbíó. Aðgangur er ókeypis. Myndirnar fjalla um uppeldishlutverk móður- innar, sýna hversu mikilvægt það er og hvernig mæður gera örlagaríkar villur, í góðri trú að þær séu að tryggja heill barnsins. Fyrsta myndin sýnir, hversu mjög andlegur þroski ung- barnsins er háður móðurlegri umhyggju. Munurinn á fjöl- skyldubörnum og munaðar- leysingjum kemur átakanlega fram. Önnur og þriðja mynd sýna sálræna bresti fullorð- inna, sem orsakazt hafa af röngu uppeldi. Móðurum- hyggjan, svo nauðsynleg sem hún er, getur leitt til öfga, sem verða barninu til tjóns. í myndunum kemur einnig fram, hvernig nútíma lækn- ar leiðrétta slíka skapgerðar- galla. Fjórða myndin sýnir (Framh á 2. stðu). Komu til hafnar í gær til aö hlusta á Devold Frá fréttaritara Tímans a SelfossL Fyrstu lömbin af hinum Rýja, þingeyska fjárstofni í Árnessýslu eru fædd. 2. apr- il átti gimbur hjá Kristjáni Eysteinssyni, bónda á Hjarð arbóli, nýbýli í Ölíusi, hvítt gimbrarlamb, og 14. apríl fékk einn af elztu fjárbænd um í Árnesþingi, Sigurður Ólafsson í Ásgarði, fyrsfa lambið, hvítt hrútlamb. Unga kynslóðin hlakkar til. Það mun ekki of sagt, að bæði ungir og gamlir hlakki til þess, er sauðburðurinn hefst fyrir alvöru og aftur sést lambfé i haga í sveit- unum austan fjalls En mest er þó tilhlökkunin meðal ungu kynslóðarinnar, og margur ungur snáðinn fylg- ist vandlega með því, hve- nær þess er von, að gimbr- arnar fari að bera. Kann- ske fæðist grá gimbur eða golsótt, og að minnsta kosti er það spennandi að bíða þess, hvort verður ekki. Allir, sem átt hafa bernsku- ár sín í sveit þekkja slíka cftirvæntingu, og það má geta þess nærri, hvort hún er minni, þegar nýr fjár- stofn er kominn í hérað. íslenzka sjómenn fýsti mjög að heyra fyrirlestur- inn, sem hinn norski vís- indamaður, dr. Finn Devold, flutti í háskólanum í gær- kvöldi og kenningar þær og niðurstöður um göngu síld- arinnar og ástand sjávarins, er hann hafði að flytja, cnda um að tefla stórkost- legt hagsmunamál sjó- mannastéttarinnar og lands manna allra að vita sem gleggst skil á öllu, er lýtur að lífsskilyrðum í sjónum, fiskigöngum og lögmálum þeim, er þeim ráða Blaðið veit jafnvel dæmi þess, að skip kom til hafnar í gær, svo að áhöfnin gæti hlvtt á fyrirlestur Devolds. IVTá af því nokkuð marka á- huga skipsmanna á þessum málum. Mjög var einnig fjölmennt í háskólann, og var húsfyll- ir, er dr. Devold flutti er- indi sitt, og var hlýtt á mál hans af mikiiii athygli. Var sýnt, að mörgum þótti hann aufúsugestur þinn mesti. Fiskur genginn í í, en erfitt um beitu Fiskur er nú kominn í Skagafjörð og genginn inn undir sanda, en illt með beitu. Loðna veiðist oft við sand- ana um þennan tíma árs og fram á vor, en loðnuveiði hef ir nú gengið treglega. Þó hefir nokkuð fengizt af loðnu tvisvar eða þrisvar sinnum, og hefir fiskazt sæmi lega, þegar unnt hefir verið að hafa loðnu til beitu, og eru líkur á dágóðum afla, ef nóg væri beitan. Vísitalan Kauplagsnefnd hefir reikn að út vísitölu framfærsiu- kostnaðar í Reykjavík hinn 1. apríl s. 1. og reyndist hún vera 156 stig.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.