Tíminn - 29.04.1953, Qupperneq 8
„ERÍEVT YFlRLtT“ Í DAG
Clare Rooth Luce
87. árgangur.
Reykjavík,
29. apríl 1953.
. 95. blað.
Illlllllll1111111111111111111111llllllllllllllllllllllll
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiKiiimiiiiiiiiM
Myndir þessar voru teknar í gær er undirritiðir voru samningar um smíði fyrsta stái
skipsins. Á myndinni til vinstri er Hjálmar R. Bárðarson, skipaverkfræðingur að skoða
teikningu sína að skipinu ásamt liafnarstjcra, en á hinni myndinni eru samningarnir
undirritaðir af þeim Sveini Guðmundssyni og Benedikt Gröndal, forstjórum Stálsmiðj-
nnrw og Valgeir Bj jrrssyni áa?--a’‘stjó','«i
Getti íslendingar bnlðlegu snitðuð sjálfir sín stærstu skip?
Smíði fyrsta stálskipsins
tímamót í sögu eyþjóðar
$t«nlsmiðjan teknr að sér smíði á stórumj
dráttarbát úr stáli fyrir Reykjavíkurhöfn ]
í gær fór fram í húsakynnum Stálsmiðjunnar h. f. eftir-
minnilegur atburður, sem vonandi verður síðar meir tal-
inn marka nokkur tímamót í atvinnusögu eyþjóðarinnar,
sem ísland byggir. Voru þá undirritaðir samningar um
smíði fyrsta stálskipsins, sem byggt er hér á landi.
Er hér um að ræða smíði
á dráttarbát fyrir Reykjavík
urhöfn, sem Stálsmiðjan hef
lr tekið að sér að smíða hér
i Reykjavík eftir teikningum
Hjálmars R. Bárðarsonar,
skipaverkfræðings. En hann
verður jafnframt yfirmaður
skipasmíðinnar.
í tilefni af þessum sögu-
lega atburði hafði Stálsmiðj
an boö inni í gærdag og voru
þar samankomnir fulltrúar
frá bæjarstjórn, hafnarstjóri
og framkvæmdastjórar og for
ystumenn Héðins, Hamars og
Stálsmiðjunnar, sem segja
má, að vinni saman að þessu
myndarlega verkefni.
Mikilsvert tækifæri.
Benedikt Gröndal forstjóri
skýrði nokkuð frá aðdrag-
andanum að því, að í þetta
verk er ráðizt og rakti þá þýð-
ingu, sem framkvæmd þessi
hefir fyrir járniðnaðinn á ís-
landi.
Þá tók til máls Valgeir
Björnsson hafnarstjóri og
lýsti því, hvernig hann hefði
leitað fyrir sér erlendis um
Júgóslavar lögleiða
trúfrelsi
Júgóslavneska þingið hefir
iögleitt trúfrelsi í Júgóslavíu.
En jafnframt samþykkti það
bann við trúarbragðakennslu
í rikisskólum í landinu.
Hörð deila hefir að undan-
förnu átt sér stað milli stjórn
arvaldanna annars vegar og
kaþólsku kirkj unnar hins
vegar, og hefir hvorugur að-
ilinn viljað sveigja undan.
kaup á vönduðum dráttarbát
fyrir Reykjavíkurhöfn og
síðan, hvernig það hefði orð-
ið að samkomulagi, að farið
var að gera áætlanir um smíði
slíks skips hér með þeim
árangri, sem fram kom við
andirskriftaborðið í gær.
Samkeppnisfært verð að kalla.
Hafnarstjóri sagði, að svo
mætti heita, að verð skipsins,
eins og það er áætlað hér
6.433 þús. kr., sé mikið til
samkeppnisfært við það, sem!
hagkvæmast hefir boðizt er
lendis. Þó gæti svo farið, að!
skipið yrði hér 8—10% dýr-
ara. Vinnulaun eru áætluð
2.752 þús. kr. eða nær því
helmingur af byggingarverð-
inu.
Dráttarbáturinn er byggður
með það fyrir augum, að hann
geti fullnægt hinum margvís
legu þörfum hafnarinnar.
Hann á að geta tekið upp
þung bclfæri, dregið stór skip
og tekið fast í spottann. í
skipinu verða sjúkrarúm, svo
að hægt sé að sækja sjúkl-
inga um borð í önnur skip og
loks er miðað við að sjóhæfni
dráttarbátsins verði slík, að
horium sé fært í flestan sjó,
ef svo mætti að orði komast.
íslendingar eru vandanum
vaxnir.
Hjálmar R. Bárðarson,
skipaverkfræðingur, sem haft
hefir veg og vanda að teikn-
ingu dráttarbátsins og skipu-
(Framhald á 7. síðu).
| Útbreiðslufundur á Akranesi
| næstkomandi sunnudag |
Á sunnudaginn kemur heldur S. U. F. almennan út- §
| breiðslufund á Akranesi. Hefst fundurinn kl. 2 e. h. og i
| verður hann haldinn í Templarahúsinu á Akranesi. I
Frá S. U. F. mæta á fundinum: Hannes Jónsson, fé- |
i lagsfræðingur, Jón Skaftason, lögfræðingur, Jón |
| Snæbjörnsson, verzlunarmaður og Sveáin Skorri Hösk- 1
§ uldsson, stud. mag.
Ennfremur mætir á fundinum frambjóðandi Fram- i
I sóknarflokksins í Borgarfjarðarsýslu, Haukur Jörunds- 1
| son, kennari á Hvanneyri. |
I Með fundi þessum hefja ungir Fi’amsóknarmenn |
i kosningabaráttuna í Bcrgarfirði, og eru þeir staðráðnir |
\ í að gera sigur Framsóknarflokksins þar sem mestan. f
■111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111**1111111111111111111111111111111111111111iii11111111111111111111111111111111
Uppreisnarmenn boöa
stjórnarmyndun í Laos
Uppreisnarmenn, sem enn sækja hratt fram í Laos, hafa
boðað myndun nýrrar stjórnar af hálfu nppeeisnarmtmna
í fylkinu. Hafa þeir tilkynnt, að forsætisráðherra verði bróð-
ir manns þess, sem verið hefir forsætisráðherrá. í Laos-
fylki undir vernd Frakka. Er hann prins aö nafnbót.
1 . . . -'p'z'..:. pcrprV
Uppreisnarmenn voru í gær
aðeins tuttugu kílómetra frá
höfuðborginni, og var talið,
að þeir myndu hefja árásir á
hana innan tveggja daga. Þá
hafa uppreisnarmenn tekið
virkisbæ, þar sem franskt
setulið var til varnar, og veit
íranska herstjórnin ekkert
um afdrif Frakka þeirra, er
þar voru.
Spáði falli höfuð-
borgarinnar.
Herstjórnin franska býst
við mjög hörðum bardögum
og hefir fyrirskipað hersveit-
um sínum, sem setu hafa í
víggirtum bæjum í Laos, að
hörfa ekki, heldur verjast til
siðasta manns. Þrátt fyrir
þetta er ekki líklegt, að Frakk
ar geti stöðvað uppreisnar-
menn fyrst um sinn, og talið
er víst, að höfuðborgin verði
ekki varin nema skamma
hríð.
Verða þrívíddarmyndir sýndar í
kvikmyndahúsum hér að ári liðnu?
Það er nú ráðandi skoðun
hjá forráðamönnum kvik-
myndahúsa að ekki líði á
löngu þar til farið verður
að sýna þrívíddar-kvikmynd
ir hér, í staðinn fyrrr ,flötu‘
kvikmyndirnar, sem við sjá-
um nú. Ekki er mjög langt
cíðan farið var að gera til-
raunir með þrívíddarmvnd-
ir og fylgir þeim mikill sýn-
inearútbúnaður og dýr, eins
og alltaf vill’verða þegar
einhverjar nýjungar eru í
uppsiglingu.
Vegur upp á móti
sjónvarpi.
Kvikmyndaframleiðendur
horfa nú fram á nýja gróða-
tíma, en eins og kunnugt er,
þá var sjónvarpið orðið þeim
hættulegur keppinautur, þótt
af eðlilegum ástæðum slíks
hafi ekki gætt hérlendis. Hins
vegar mun það hafa áhrif
hér engu að síður, þar sem í
ráði er að snúa sér að töku
á þrívíddarmyndum. Verðum
við því að fylgjast með, hvort
heldur okkur líkar betur eða
ver. Þrívíddarmyndin nýtur
mikilla vinsælda og er þessi
áfangi í kvikmyndagerð ekki
talinn ómerkari en sá áfangi
sem náðist, begar hljómmynd
in kom til sösunnar. Sjá kvik
myndaframleiðendur fram á
bað, að siónvarpið muni lúta
í lægra haldi fyrir bessari
nýju tækni, og fannst sumum
þeirra mál til komið.
Að ári liðnu hér.
Blaðið hafði spurnir af
þessu máli hjá manni, sem
er öllum hnútum kunnugur,
og bjóst hann fastlega við
því, að varla liði nema ár,
þar til kvikmyndahúsaeigend
ur hér yrðu nauðugir viijugir
að fylgjast með straumnum
og taka upp sýningar á þrí-
víddarmyndum, þar sem kvik
myndaverkból væru nú al-
mennt að búa sig undir að
taka þrívíddarmyndir í stór-
um stíl. Mundi þó aðalskrið-
urinn ekki komast á þetta
mál fytr en með haustinu, en
mörg kvikmyndafélög hafa
K'st bví yfir, að þá hefji bau
töku brívíddarmynda í stór-
um stíl.
Mikill kostnaður.
Eins og málum er nú háttað
er mikill kostnaður því sam-
fara að koma fyrir sýningar-
tækjum þrívíddarmyndar.
Yrðu bæði að vera fleiri sýn-
ingarvélar en nú er, og þrjú
minni kvikmyndahús yrðu
tjöld. Yrði þetta til þess, að
að leggj a niður starfsemi sína
og aðgangseyrir myndi hækka
stórkostlega. Kemur þetta af
(Framhald á 7. síSu).
Rússar og Kínverj-
ar sækja stórvelda-
Molótoff, útánríkisráðherra
Rússa, og Sjú En-læ, utan-
ríkisráðherra Kínýerja' hafa
sent friðarhreyfingunni yf-
iriýsingu, þár sem þeir tj á
sig fyrir hönd' þjóða sinna
reiðubúna ,til.þ,ess ,að efna til
íimmveldara&ktéfnu - i um á-
greiningsmái { Ireiminum, í
því skyni að ±)ar:veí-Ölfeéí’þ'yr
fimm-velda-sáttmáli’ til láesn
ar deilunump^ 777;*,’Cli-
Molótoff íýsti yáðstj ó'r'rtiha
fúsa til þess að stíga slíkt
skref, og Siú En-læ lét svo
ummælt, að þjóðir heims
ættu að geta lifað í sátt og
friði, þótt þær hyggu vjð-'á-
lík stjórnarkerfi.-: /.ct??
Norræni suraarká-
23. júní-
Norræni sumarháskölinn
verður haldinn í sumar í
Sigtuna í Sviþjóð. Stendur
nann yfir í tvær vikur, 23.
j júní til 7. júlí. Þeir, sem hafa
hug á því að sækja skólann,
eru beðnir að snúa sér til
einhvers úr stjórn íslands-
! deildar sumarháskólans,, en
|hún er skipuð eftirtöldum
mönnum: Ólafi Björnssyni,
hagfræðingi, Syeiiij, Ásgeirs-
syni, hagfræðingi og Hösk-
uldi Ólafssyni, ^tud. jiír. Um-
sóknir um þáttlðku ýérða að
berast fyrir 3. maí. t Þeir, sem
j tekið hafa þáttrí! nánrshring
þeim, sem startræktur hefir
verið á vegúm ísla.ndsdeild-
ar sumarháskólans, ganga
fyrir um styrki, sem......fást
kynnu til fararinnar.