Tíminn - 05.05.1953, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.05.1953, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, þriSjudaginn 5. maí 1953. 99. blaðV ÞJÓÐLEIKHUSIÐ KOSS I KAUPBÆTI Þjóðleikhúsið frumsýndi bandaríska leikritið Koss í kaupbæti á miðvikudaginn í Eyrri viku. Húsið var þéttskip að áhorfendum, sem virtust skemmta sér hið bezta, þótt ekki sé mikið um fyndni í teikritinu, og alls ekki nóg, •ef. miðað er við það sem gam- anleik eingöngu. En prýði- legur leikur bætir það upp, því svo virðist, sem í hverju rúmi séu leikendur, sem not- færa sér alla möguleika til nins ýtrasta, og fyrir það verð ar hann nokkuð gamansam- ar á köflum. Höfundur leikritsins er Englendingur, sem hefir ver- ið langdvölum í Bandaríkj- anum og ætti því að þekkja gjörla háttu þeirra, að minnsta kosti hinna betur •efnuðu. í Koss í kaupbæti er greint frá fjölskyldu lögfræð ings, er samanstendur af hjónunum, dóttur þeirra angri, að mig minnir að verða sextán ára og syni þeirra, sem er í hernum. Leik arinn er látinn gerast á stríðs árunum. Inn í þetta blandast nágrannakritur, því að dótt- ;ír nágrannanna, sem er nokkru eldri en dóttir lög- fræðingsins, hefir selt kossa •á hátíð, sem haldin er til | styrktar striðsrekstrinum, á- samt dóttur lögfræðingsins Archer. Það er því skoðun Archerhjónanna, að stúlkan hafi spillandi áhrif á dótt- urina. Kemur nú sonurinn í orlof, elskandi dóttur ná- grannanna út af lífinu og þau giftast halda því samt leyndu en Corliss Archer, dóttirin, er gerð að trúnað- armanni í þessu giftingar- máli bróðurs síns og vinkon- unnar. Ungi liðsforinginn fer að stríða á ný, en í fyll- ingu tímans kemur í ljós, að eiginkona hans er kona ekki einsömul. Gerir því Corliss tíðar farir, ásamt henni, til íæðingarlæknis og sprettur af því misskilningur. Allt þetta hlýtur þó góðan endi að lokum. Ekki kann undirritaður að henda reiður á því, hve leikur þessi er raunsær frá höfund- arins hendi, eða hvort slík „hystería" grípur millistétt- arfólk, ef dóttir þeirra ung er grunuð um óléttu. En feikn má það líða, ef svo er. Ekki er heldur hægt að segja um það, hvort hér er um að ræða i rétta mynd af bandarískri fjölskyldu. Verður því, eins og áður getur, að hlusta eftir grininu eingöngu og láta ann að liggja á milli hluta, en samkvæmt upplýsingum í leikslcrá um höfundinn, er ekki annað hægt að álíta, en hann sé heimamaður í því, sem hann skrifar um í Koss i kaupbæti og gefur það leikn um nokkra undirstöðu og nauðsynlega. Leikstjóri er Haraldur Björnsson, leikur hann jafn- :íramt Harry Archer lögfræð- :ing. Leikur Haraldar er mjög góður, eins og næstum alltaf, og skiptir þá ekki máli, hvort textinn er í þynnra lagi eða þungstreyminn. Haraldur virðist alltaf hafa lag á því að gera sér ljósa þá mögu leika, sem fyrir hendi eru. Gerir síðan áhlaup sitt og hefir fullan heiður að leiks- lokum, og er það mikil íþrótt. Refur bóndi hefir kvatt sér hljóðs ( Næstu stökur skýra sig sjálfar og fer með stökur sínar að venju: og taki þeir til sín, sem eigá;- „Fyrst ég ekkert fyrir stafni hef, Sízt til nokkurs sóma telst finnst mér rétt að skrifa lítið bréf. sagnaiandsins konum • Stökur kveð ég alltaf við og við blíðu að vilja Veita helzt ! vilji heyra baðstofunnar lið. | Vesturheimskingjonum. Hinir ungu og efnilegu leikarar, Ólafur Mixa og Valur Gúst- afsson, sem Raymond og Dexter í Koss í kaupbæti. Leikstjórn hans er með þeim tökum tekin, að heldur fátæk legt verk, eins og þessi leikur, heiV.r yfir ‘sér þróttmitíinn blæ og hressilegan, og tölu- verðan og ákjósanlegan hraða. Arndís B j örnsdóttir leikur konu lögfræðingsins og fer hún prýðilega með hlutverk sitt. Einkum er lgikur henn- ar trúlegur, þe^ar hún sem móðir, hefir sætt sig við fall dótturinnar. Segir hún þá að lokum, eftir að þau hjónin hafa látið þetta áfail næst- um jafngilda ragnarökum: „Ég vildi að það yrði telpa.“ Herdís Þorvaldsdóttir leik- ur Corliss dóttur þeirra. Leik- ur hennar er mjög aðlaðandi, samhæfður og án nökkurrar snurðu. Hefir hún góð og eft- irtektarverð tök á úngu stúlk unni. Ólafur Mixa leikur Ray- mond, son Pringelhjónanna. Leikur hans er um margt hinn prýðilegasti. Að visu má segja, að hann sé of bund- inn föstum tiivikum, en létt- leiki hans á sviðinu, öryggi og að því er virðist hin litla hugmynd' Iians um það að hann sé aö leika, gefur von- ir um mjög góðan lsikara, þegar tfmar líða. Valur Gústafsson leikur Dexter, son Franklínhjón- anna, og er hið sama að segja um leik hans, að hann er mjög eftirtektarverður. Er það ánægjulegt að sjá báða þessa ungu leikara örugga á sviði nú strax, áður en slag- urinn er hafinn fyrir alvöru, og verða þeir áreiðanlega lið- tækir í betra lagi síðar meir. Sigríður Hagalín leikur Mildred, dóttur Pringelhjón- anna. Sigríður er góður efni- viður. Framkoma hennar á sviðinu er mjög aðlaðandi. i Aðrir leikendur eru: Róbert Arnfinnsson leikur Jenny, liðsforingja í flughernum, Valur Gíslason leikur George Archer, flotaforingja. Emilía Jonasdóttir leikur Louise þjónustustúlku. Gestur Páls- son leikur Robert Pringle, Anna Guðmundsdóttir leikur Dorothy konu hans. Valdimar Helgason Ieikur William Franklín verkfræðing. Þóra Borg leikur Mary konu hans, Rúrik Haraldsson leikur Jimmy Earhart hermann og Klemens Jónsson leikur Will- ard húsamálara. Konráð Pétursson hefir gert leiktjöldin. Sverrir Thor- oddsen býddi leikritið. Indriði G. Þorsteinsson. Fyrst er þá stutt orðsending til Benjamíns Sigvaldasonar. Honum þakka ég heimboðið og fyrirheit um tókargjöf. En hann virðist hafa misskilið stöku mína, sem eigi var í háði kveðin. Endurtek ég það, sem ég hefi áður sagt og segi eins og Pílatus forðum: „Það, sem ég hefi skrifað, það hefi ég skrifað". En | þ. e. að í kveri hans eru ýmsar , smellnar stökur og vel gerðar, þótt máske einstökum hörundssárum smásálum þyki kenna þar sums staðar nokkurrar bersögli, en upp yfir slíkt tel ég mig hafinn. Ég hefi iíka lesið eftir Benjamín: Gunnars rímur Húsabæarkappa. sem eru vel kveðnar, en hvorugt þetta rit á ég, þar sem þau hafa ekki verið seld í bókabúðum. Ég las þau bæði, þar sem ég var gest komandi úti á landi fyr í vetur. Ég þakka líka Benjamín fyrir fræða störf hans og hef ég lesið ýmsar sagnir hans með ánægju. Sjálfur hefi ég ofurlítið fengizt við slíkt m. a. vísnasöfnun með það eitt fyr ir augum að varðveita slik verðmæti frá glötun. Suður fara senn ég má, svala minni fróðleiksþrá. Fljótt ég hvata ferðum þá Flókagötu 13 á. Og veri svo Benjamín blessaður. Svo koma hér nokkrar stökur aðrar. ; Eftirfarandi vísa þarf ekki skýring ! ar við: I Ljóðin geta hugann hresst, hann svo fljúgi víða. Því er dægradvölin bezt dýra stöku að smíða. Alltof margar eru því enn á villigötúih. Þjóðrækni ei þekkist í þeirra ástarhvötum. Svo er hér ein vísa kveðin til kunningja: Aldrei færðu orðstý hjá ungum silkihlínum. Fæðist afturfótum á flest úr munni þínum. Svo kemur hér staka, sem kveðin var degi fyrir fimmtugsafmæli vi.n ar míns, en aldrei send: I Fylgd þér veiti farsældin fyrir enga borgun. Fyrst þú ert í fyrsta sinn fimmtugur á morgun. Eftir ferðalag mitt eitt var ég spurður að því, hvað ég hefði séð í ferðinni. Svar mitt var þetta: Fjölda ég leit af fé og kúm, — fákum veitti gætur. Líka sá ég fullt af frúm en fáar heimasætur. Vcrzlunarfyrirtæki eitt áuglýstt með götuauglýsingum eftir stárfs- manni og var umsóknarfresturinn útrunninn 30. febrúar það ár. Þá urðu eftirfarandi hendingar til: Auglýst sést til umsóknar einfalt starfið verzlunar. Á þessu frestur þrotinn'vár 30. febrúar. Lýkur svo kveðskap Refs bónda í dag. Starkaður. Fyrirliggjandi: Þjóðarráðstefna gegn her í landi verður 5—7 maí í samkomusal mjólkurstöðvarinnar I Reykjavík. Ráðstefrian verður sett kl. 6 síðd í dag þriðjudag. Húsið verðtir opnað kl. 5. Auk kosinna full trúa eru velkcmnlr á láöstefnuna meðan húsrúm leyfir allir beir. sem bera merki afídspyrnuhreyfing- arinnar: Siifurmerkið Þveræingur. Merkið fæst v;ð inngangiim. Undirbúningsnefndin Nethæls-nylonsokkar Svartir nylonsokkar Hearfield nylonsokkar Karlmannasokkar (gerfisilki) Léreft Flónel (röndótt) Ullargabardine Taft Morie Rayon-kj ólaefni, margar gerðir Ullarkjólatau, 11 litir Nylon-kj ólatau Fataefni Rayon-cheviot Rayon-spun kjólaefni Nylonpils og undirkjólar Amerískar „style“ peysur Modelbelti Hverfilita slæður Herra-bindi Pilsstrengir Hvítar blúndur Hvít og svört teygja (8cord) Plastic-efni Stímur og leggingar Varalitur — Naglalakk — Púður Rakvélablöð Greiður Hárkambar Kúlupennar og fyllingar Plastic fatahengi Plastic sápuskálar Hárspennur Reykjarpípur Cígarettumunnstykki Munnhörpur Snyrtipokar Baðsápa Myndasápa Pottasleikjur Títuprj ónabox Plastic-glös Saumaskrín Plastic-bollabakkar Tennisboltar Hattaprjónar Hárfílt Sparibyssur Badmintonboltar Vekjaraklukkur o. m. fl. Væntanlegt: Rayon gabardine m. litir Nyjlon-karlmannaskyrtur Nylónsokkar með svört- um hæl og blúnduhæl Perlon sokkar Gluggatjaldaefni Barna-rayon undirföt Rayon-náttkj ólar Drengja- og herra- prjónabindi Káputau o. m. fl. \t l íslenzk-erlenda verzlunarfélagið h.f. Garðastræti 2.--Sími 5333. Vtitntð ötullega að átbreiðslu T í M AIV S

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.