Tíminn - 23.05.1953, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.05.1953, Blaðsíða 1
Ritetjórl: Þórarinn Þórarinaaon Fréttaritstjórl: Jón Belgason étgefandl: Frussóknarílokkurtnn ► Skrifstofur 1 Edduhúsl Fréttaaímar: 81302 og 81303 AfgreiSslusiml 2323 Auglýslngasíml 81300 PrentsmlSJan Edda 37. árgangur. Reykjavík, laugardaginu 33. maí 1953. 114. UaS. Koss í kaupbæti Valur Gústafsson, Arndis Bjórnsuottir og líí.t vlc-ur Björns- son í Koss í kaupbæti, sem verður sýndur á annan í hvíta- sunnu klukkan 15. Tívólé verður opnað á annan dag hvítasunnu í ágúsíinánuði í fyrra urðu cigendaskipti að Tívólí, skemmtigarði Reykjavíkur. íþróttafélag Reykjavíkur keypti þá garðinn og fékk þannig umráð yfir stóru svæði. sem ligg ur aö landspildunni, þar sem félagsheimili þess er búinn staður. Iþróttafélag Reykjavíkur á' kvað að reka sjálft skemmti- garðinn, og hefir það ráðið Sigurð Magnússon til þess að hafa á hendi framkvæmda- stjórn. Hefir í vor verið unn- ið að endurbótum í garðin-1 um, skemmtitæki máluð og' endurbætt og ný fengin, og Parísarhjól á að setja upp í byrjun næsta mánaðar. Handa yngstu gestunum. Það er nýbreytni, að komið hefir verið fyrir leiktækjum handa yngstu gestunum, sölt um, rólum, rennibrautum, hringpalli og bátarólum, og mega börnin nota þessi tæki án sérstaks endurgjalds, enda þótt sérstök barna- gæzla verði höfð við þau.. Skemmtanalíf í sumar. Garðstjórnin hefir ákveðið að fá í sumar innlenda og erlenda menn tii þess að skemmta í garðinum, og mörg félög hafa í hyggju að efna þar til sérstakra skemmt ana. Opnað verður á annan dag hvítasunnu, og þá mun Karlakór Réykjavíkur syngja þar, Lúðrasveit Reykjavíkur leika og ýmsir þekktir lista- menn skemmta. Garðurinn verðu.r opnaður framvegis á laugardbgum og sunnudögum klukkan tvö og aðra daga klukkan átta. AÖ gangseyri hefir vérið lækkað ur niður í brjá*- krónur fyrir fullorðna og eina krónu fyr- ir börn. Er það ætlun íþrótta félags Reykjavikur að gera garðinn að boðlegum úti- skemmtistað í höfuðborg- inni. Togari kom inn með loftskeyta- manninn dauðvona Á miðvikudag kl. 6 kom tog arinn Marz til ísafjarðar með loftskeytamanninn, Gunnar Símonarson helsjúk an og andaðist hann í sjúkra húsi ísafjarðar þá um nótt- ina. Gunnar hafði á miðviku- daginn fundizt meövitundar- laus á skipinu, en fáum mín- útum áður hafði hann rætt við skipstjóra, og var þá al- heill. Mun hann hafa fengið slag, og var úrskurður lækn- is að hjartabilun hefði verið banamsin hans. Gunnar var aðeins 29 ára að aldri, og lætur eftir sig konu og fjögur börn, 3—9 ára að aldri. Ko'na hans, Elín Runólfsdóttir, var stödd vest ur á Sandi við jarðarför fÖS- ur sírs, er hsnni barst hel- fregnin. Kosningaskr if stof - Dóttir Stephans G. gestur ríkisstjórn- arinnar Meðal Vestur-íslending- anna, sem koma til íslands 9. júní í sumar, er frú Rósa Benediktsson, dóttir Steph- ans G. Stephanssonar skálds. Segir í fréttatilkynn ingu frá fcrsætisráðuneyt- inu, að hún verði gestur rík- Isstjórnarinnar, meðan hún dvelst hér á landi. Lítil veiði í Hvítá í fyrstu lögninni Á miðvikudaginn voru laxanetin lögð í Hvítá í Borg arfirði í fyrsta skipti á þessu sumri. Veiði var þó lítil, og fengust aðeiirs 2—3 laxar, enda hefir verið kalt, svo að lítið er í ánni, og auk þess smástreymt. Netin voru tekin upp í gær kvöldi, eins og jafnan er gert um helgar, og telja bændur á laxveiðijörðunum við Hvit á, að ekki verði um teljandi veiði að ræða fyrr kemur fram um miðja næsta viku og straumur fer stækkandi. Blaðið kernur næst út á miðvikudaginn Þar eð laugardagurinn fyr- ir hvítasunnu .er samnings- bundinn frídagur prentara, kemur Tíminn næst út á mið vikudaginn kemur. Orðsending til Mbl. I Morgunblaðinu, þriðju- ; daginn 5. maí s. 1. stendur ( þessi klausa á æskulýðssíð- unni, þrykkt með feitu letri: ! „Þá skal hér til viðbótar , lient á þá staðreynd, að sjóð þurrðir fara mjög ört vax- , andi innan kaupfélaganna og á síðasta ári urðu 3 stór- felldar sjóðþurrðir hjá kaup félögunum í Stykkishólmi, Höfn í Hornafirði og á Hell- issandi.“ I i Það leikur ekki á tveim tungum, hvað hefir gerzt,1 þegar sjóðþurrðir verða hjá bókhaldsskyldum fyrirtækj um. Þeir menn, sem gegna '■ þar gjaldkerastörfum, verða að horfast í augu við þá stað ; reynd að standa afhjúpaðir ógæfumenn frammi fyrir samborgurum sínum. Og samkvæmt landslögum eiga | þeir að fá vist á Skólavörðu- stíg 9, upp á vatn og brauð, í ákveðinn fjölda mánaða, allt eftir því, hversu miklar fjárfúlgur þeir hafa dregið úr þeim sjóðum, sem þeir áttu að varöveita. Ég undirritaður hef um nokkurt skeið verið gjald- keri í Kaupfélagi Austur- Skaftfellinga í Höfn í Horna firði. Ég hef greitt úr sjóðn um vinnulaun til verka- manna.er unnið hafa hjá fyrirtækinu, greitt póstkröf ur vegna verzlunarinnar, af hent viðskiptavinum félags- ins peninga, --- og móttek ið fá þeim peninga, — í við- skiptareikninga og innláns- deild. Mér er ekki kunnugt um, að í kassanum hafi orðið sjóðþurrð; kom því mjög á óvart, er Morgunblaðið upp- Landsleikur milli íslands og Austurríkis í knattspyrnu Verður liáður í Heykjavík mánud. 29. jiiní an í er opin virka daga frá kl. 10 10. Kjörskráin liggur frammi. Kærufrestur vegna kjörskrár er útrunninn 6. júní n.k. Þeir, sem flutt hafa á milli kjördæma á kjörtímabilinu, eru sérstaklega hvattir til þessa að athuga, hvort þeir séu á kjörskrá. Ivnattspyrnusamband ís- lands hefir að undanförnu staðið í sambandi við Al- þjóðaknattspyrnusamband- ið — FIF — til að fá leyfi til að heyja landsleik í knattspyrnu við Austurríki. Svar hefir nú borizt frá sam bandinu og gefur það sam- þykki sitt fyrir þessum leik. Mun austurríska liðið kcma hingað síðast í júní og verð ur hinn opinberi landsleik- ur háður mánudaginn 29. júní — daginn eftir kosn- ingarnar. Einnig mun liðið keppa hér tvo til þrjá leiki aðra. Áður hafði verið ákveðið, að hingað kæmi úrvalslið austurrískra áhugamanna — landsliðið, sem kemur, verður eingöngu skipað á- hugamönnum, en vegna óska beggja landanan verð- ur nú opinber landsleikur í sambandi við heimsóknina. Sennilegt er að austurríska liðið verði að mestu skipað þeim leikmönnum, er kepptu fyrir Austurríki á síð ustu Olympíuleikum. Liðið vann þá Finna með 4—3, en ■trjpaði fyrir Svíum, þrátt fyrir nokkra yfirburði. Höfðu þeir mark fyrir er 5 mín. voru eftir, en Svíar jöfnuðu þá, og skoruðu að- eins síðar sigurmark. Þess má geta, að íslenzk- ir knattspyrnumenn munu heyja tvo aðra landsleiki í sumar og verða þeir á er- lendri grund, við Norðmenn og Dani. íslandsmótið í knattspyrnu hefst 6. júní og verður því hraðað eins og kcstur er, til þess að lands- liðið fái sem mestan tíma til samæfinga.. lýsir: „að ^tórfelld sjéð- þurrð hafi á síðasta ári orð- ið hjá kaupfélaginu í Höfn í Hornafirði.“ Ég tel þetta alvarlega að- dróttun gegn mér persónu- lega. Sé þessi frásögn Morg unblaðsins sannleikanum samkvæm, þá hef ég brugð- izt því trausti, sem atvinnu veitandi minn sýndi mér, er hann fól mér umsjón með sjóðnum. Og sé ég sekur, þá er ég reiðubúinn að með- taka réttláta hegningu; — mun ekki senda náðunar- beiðni til dómsmálaráð- herrans. En það er sanngirnis- krafa, að Morgunblaðið, sem virðist búa yfir leyndri þekk ingu á málinu, leggi sönn- unargögnin fyrir glæpnum í hendur réttvísinnar. Hér nægja því ekki neinar raka- lausar dylgjur um menn og málefni; — það verður að birta rökin umbúðalaus, greina skilmerkilega frá heimildum. Þangað til verða ritsnáp- ar æskulýðssíðu umrædds blaðs lýstir lygarar og mann orðsþjófar. Höfn I Hornafirði, 15. maí 1953. Sigurjón Jónsson, frá Þorgeirsstöðum. Miklir flutningar yfir Fagradal Frá fréttaritara Tím- ans á Reyðarfirði. Miklir flutningar eru yfir Fagradal um þessar mundir og er vegurinn orðinn sæmi- legur, en klaki þó ekki farinn úr, þar sem hæst er. Áburður inn er fyrirferðarmestur af flutningnum. Flugferðir eru tiðar milli Reykjavíkur og Reyðarfjarð- ar um þessar mundir. í fyrra dag og á miðvikudaginn komu tvær flugvélar á dag með farþega, póst og flutning til Reyðarfjarðar. Margir þeir, er stundað hafa vinnu í verstöðvum í vetur eru að koma heim til sumarstarf- anna. Vestmannaeyjaferð F.U.F. í dag Þátttakendur í Vest- mannaeyjaferð F.U.F. f Reykjavík eru beðnir að mæta við afgreiðslu Flug- félags íslands á Reykjavík- urflugvelli laust fyrir kl. 4 e. h. í dag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.