Tíminn - 02.09.1953, Blaðsíða 1
Skriístofur I Edduhúsl
- - ----— --— -------—'
Ritstjóri:
Mrarian Þórarinsson
Útgefandi:
Pramsóknarflokkurinn
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
11. árgangur
Reykjavík, miðvikudaginn 2. september 1953.
197. blað.
Fleygja varð nær helmingi
tóraataframleiðslunnar í júlí
Mik 't! á útlemlum ávöxium.
Allgóð rekneíaveiði
austur í hafi
Frá fréttaritara Tímans
á Seyðisfirði.
Á mánudagsr.óttina var all
góS reknetavelSi hjá báturi-;
um, sem eru á veiðum austur
af landi. en minni i • fyrri- j
nótt. Valþór fékk þá á ann-;
að hundrað tunnur. Vilborg j
kom í fyrradag inn til Seyð- j
Isfjarðar með 400 uppsalt-:
aðar tunnur eftir nokkrar j
lagnir, og Hvítá í gær með
216 uppsaltaðar tunnur. Önn !
ur skip hafa ekki komið hing
að inn með síld enn.
Skipin veiða síldina helzt
um 200 míiur austur í hafi
og salta um borö. Nokkrir
fleiri bátar eru að búast á
reknetaveiðar austur i haf.
Sagt frá Gríiasvöín
um á fundi Jökla-
rannsóknar f élagsins
Jöklarannsóknafélag ís-
lands efnir til furidar í Tjarn
arlcaffi annað kvöld og riefst
fundurinn kl. 8,30.
Þar mun Sigurður Þórar-
Insson jarðfræðingur, sem nú
er á förum til stokkhólms,
segja frá för til Grímsvatna
og sýna litskuggamyndir frá
Vatnajökli. :
n «nnii»iií3ii. iijppskeran stéð sem liæst
ev fyrir, að mikill innflutningur ávaxta í júlímánuði
bafi spait svo sö’!u íslenzkra gróðurhúsaafurða, að afkoma
þeirra, scm þarn atvinnuveg stunda, verði mcð lakasta móti
; siux.ar. Ji.límdnuður er sá árstími, sem mestur hluti fram-
leiðslunnar kemur úr gróðurhúsunum cj verður ónýtur, ef
elcki er hægt að selja jafnóðum.
Blaðið hefir öruggar heim
ildir fyrir því, að i júlímán-
uði varð að fleygja nær því
helm.'ngi af tómatframleiðsl
unni vegna þess, að ekki var
hægt að koma henni í verS.
Munu afföllin hjá inörgum
tómataframleiðendum í
þeim mánuði verða um helm
ingur.
Minni framleiðsla í ágúst.
Á ágúst verður útkoman að
visu miklu betri, hvað tómat
ana snertir, en þá er líka veru
lega tekið að draga úr fram-
leiðslunni, sem er langsam-
lega mest í júlí. Nú þegar
tómataframleiðslan minnkar,
eru hinir útlendu ávextir held
ur ekki lengur á boðstólum
til að keppa við þá.
Garðyrkjubændur búast
við töluverðum afföllum af
grænmeti í haust vegna þess
live allt grænmeti hefir
sprottið mikið og nppskeran
því meiri en nokkru sinni
fyrr. íslendingar nota miklu
minna af grænmeti en marg
ar aðrar þjóðir. Fullyrða má
þó, að nú sé vart völ á ódýr
ari fæðu en grænmeti. Til
dæmis er útsöluverðið í smá
söluverzlunum á hvítkáli
ekki orðið nema kr. 2,80 kg.
Taka þarf tillit til
innlendu framleiðslunnar.
Sumarið á íslandi er stutt
og því ekki langur tími af
ávinu, sem hægt er að neyta
hins nýja grænmetis. En
fólk þarf að þekkja sinn vitj
unartíma í þessu efni og
nota mikið af þessari hollu
fæðu, sem nú er tiltölulega
ódýran og auðfengnari en
nokkru sinni fyrr.
Gróðurhúsamenn og garð-
yrkjubændur eru mjög
óánægðir með þá skipan í inn
flutningsmálum, að ekki skuli
tekið tillit til hins stutta sum
ars okkar og þess, hvenær inn
Ténctir ávextir og grænmeti
er á markaðnum.
Telja þeir, að ínnflutningi
eigi fyrst og fremst að beina
á þá tíma, þegar gróðurhúsa
afurðir eru eklri á markaði
hér. Þykir mörgum það lé-
legur þjóðarbúskapur að
(Fi'amhald á 2. sf5ul
Varð undir veg-
þjöppu og lézt
af meiðslum
96 ára Færeyingur við slátt
Sláltumennirnir hér að oían eru
Færeyingar, íeðgar á Sandi í Suður
ey. Gamii maíarinn '|}jmar á
myndinni heitir Rasmussen og er
96 ára að aldri, en sonur hans er
61 árs. Takið eftir orfunum þeirra.
Faðirinn notar gamalt færeyskfc
orf, sem líkist töluvert íslenzka orf
inu, en sonurinn hefir tekið upp
nýrri gerð færeyskra orfa, sem
ekki liggur á handlegg, heldur er
með tveimur handföngum. Ras-
ruussen famli er hress og gengur
að slætti og öðrum verkum hvern
dag. Hann er skýrleiksmaður, og
þegar menn vilja fá að heyra kjarn
-góða gamla færeysku, er til hans
leitað. íslendingar skilja hann
miklu betur en yngri kynslóðina
i Færeyjum, sem talar dönsku-
spilltara mál. M.ynd þessa tók
Kjartan Þcrsteinsson bílstjóri í
Reykjavik, en hann var nýlega á
ferð í Færeyjum hjá tengdafólki
sínu. Kjartan sést hér til hliðar í
þjóðbúninL i Færeyinga.
Kona fótbrotnar við
veiðar í Þingvallavatni
Lfeknir í nnlægum sumarhústað bjó una
sl. lögregluþjónn fínnst
örendur í fjöru í
Bétíarkrufning, sens gerS var á líkinu í
gser, Iicstdfr til sið inaðuritin hafl drukknaH
Ungur lögregluþjónn, Karl Stefánsson úr Hafnarfirðt,
hvarf í Njarðvíkum síðastliðið laugardagskvöld. í gærmorgun
fannst Fk hans í fjörunni rétt hjá hósinu, þar sem hann
hélt til syðra, og hafði hann drukknað. Jón Guömundsson,
lögreg-IiifuUtrúi í Ilafnarfirði, skýrir svo frá þessuin atburði.
Karl, sem var starfandi lög
regluþjónn í Hafnarfirði,
hafði verið i sumarleyfi að
undanförnu og ætlaði að
vinna við gæzlustörf suður á
Keflavikurflugvelli nokkurn
tíma af sumarleyíi sínu. Var
hann byrjaður á þeirri vinnu
fyrir helgina.
Kom af verði.
Um klukkan átta á laugar-
dagskvöldið lauk liann vakt-
stöðu sinni og hélt heim aá
húsi því, er hann hélt til í
syðra í Innri-Nj arðvíkum’.
Hitti hann þar sambýlismann
sinn að máli á níunda tíman
um og ræddu þeir lengi sam
an, enda voru þeir gamalkunn
ir og gömul vinátta þeirra í
milli.
Sagðist ætla heim.
Þcgar samtali þeirra lauk,
hafði Karl orð á því, að
hann þyrfti að skceppa i
urraiiíhald a 7 aifiu* I
ingafélaganna bandarísku á
Keílavíkurflugvelli lézt klukk
an 5,25 í morgun, þriðjudag-
inn 1. september, vegna
meiðsla, er hann hlaut, er
hann varð undir vegþjöppu
kvöldið áöur. Maðurinn, sem
fyrir slysinu varð, var Banda
ríkjamaður, og stjórnaði sjálf
ur vegþjöppunni.
Slysiö varð með þeim
hætti, að maöurinn hrasaði
fyrir vegþjöppu, sem var á
ferð og varð undir henni. —
Hafði maðurinn rétt áður
stöðvað þjöppuna og var að
síiga úr vélamannssætinu.er
hann rak fótinn óviljandi í
ctöng þá, er setur þjöppuna
af stað, með þeim afleiðing-
um, að hann datt fyrir valt-
arinn undir þjöppunni.
Maður, sem starfaö hafði
með hinum látna, stöðvaði
þjöppuna, er hann sá hvern-
ig komið var. Sá, er fyrir slys
inu varð hét Robert H. Arm-
strong. Lézt hann vegna blæð
inga innvortis og hafði
mj aðmagrind mannsins
brotnað.
líTOtið. líonan flutt yflr Þingvallavatn
Frá fréttaritara Tímans í Þingvallasveit.
Það slys varð í fyrradag við Þingvallavatn, að kona, sem
var aö veiða við vatnið, féll og fótbrotnaði. Önnnr kona var
nieð henni við veiðarnar og gerði hún aðvart um slysið. —
Konunni var komið til Reykjavíkur.
Slysið mun hafa orðið með
þeim hætti, að konunni varð
gengið yfir vota og hála
klðpp. Varð her.ni fótaskort
ur á klöppinni og fél.1, en
kom svo illa niður, að hún
fótbrotnaði.
Útlit fyrir að karfa
deilan sé að leysast
Hjálp sótt.
í sumarbústað þarna
skammt frá dvaldi lögreglu
stjórinn í Reykjavík um
þessar mundir og var bróð-
ir hans, sem er læknir í
Vestmannaeyjum, þar
með honum. Eór hin kon-
an til þeirra og brugðu þeir
skjótt við til hjálpar. Bjó
læknirinn til bráðabirgða
um fótbrotið.
Róið með konuna
yfir vatnið.
Þegar búið haíði- verið um
brotið, var eftir að koma
(Framhalót & 2. slOu>.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið aflaði sér i gær-
kvöldi, teija útgerðarmenn,
aö horfur séu á að deilan um
karfaverðið til frystihúsanna
sé aö leysast. Samningaum-
leitanir slóðu ennþá yfir í
gær og horfði þá vel i sam-
kðmulagsátt, þótt ekki yrði
endanlega gengið frá samn-
ingum.
Má þvi búast við aö loks
fari að styttast i þsssari ó-
heppilegu deilu og skipin
geti fariö á veiðar til áSS
sækja þann fisk, sem búið er
ai semja um sölu á.