Tíminn - 02.09.1953, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, miffvikudaginn 2. september 1953.
197. blað.
í Síam deyja þrír menn hvern
dag af biti eiturslangnanna
Ef það á einhvern tíma eftir aS koma fyrir þig að vera
bitinn af einni af Síams-kóbraslöngunum, sem okkur er
kennt í skólunum að heiti gleraugnaslöngur, þá mundu eft-
ir hinum þrem ráðum, sem kvenlæknirinn dr. S. P. Aksara,
sem er slöngu- og efnarannsóknasérfræðingur, hefir gefið.
Fyrsta, skerðu djúpan skurð í sárið þar sem slangan beit
þig, og bittu síðan liandklæði eða einhverju öðru eins fljótt
og mögulegt er, fyrir ofan sárið og bittu fast. Annað, reyndu
að fá móteiturssprautu eins fljótt og mögulegt er, á næsta
sjúkrahús eða hjá lækni. Þriðja flýttu þér að skrifa erfða-
skrá þína, því að mikil líkindi eru til þess, að þú verðir dá-
inn eftir tvo tíma.
Læknirinn veit hvað gildir
í þessum málum og Aksara
hefir reynsluna. Hún vinnur
nefnilega á slöngubúi i
Bankok, en þar er unnið við
það að taka eitrið úr kirtl-
um slangnanna og síðan er
unnið úr því móteitur við
slöngubitum.
Skakkt handtak
sama og dauðinn.
Fyrir nokkru henti það á
búgarði þessum, að einn
mannanna er sinnti slöngun
um, varð fyrir biti tveggja
metra langrar kóbra-slöngu.
Hann hafði ekki tekiö um
slönguna á réttum stað og
ætlaði að kippa hendinni að
sér aftur, og slangan hjó
hann með leifturhraða. —
Manninum barst hjálp undir
eins, en slangan hafði náö
góðu taki, og spýtti hinum
banvæna vökva inn í blóðið.
Allt var gert, sem hugsast
gat, til að bjarga mannin-
um, en hann var dáinn eftir
tæpan klukkutíma.
Köfnun, hjartaslög.
í Síam finnst aragrúi af
eitruðum slöngum. Það er
jafn mikil hætta á að verða
fyrir árásum þeirra í húsa-
görðum í Bangkok eins og i
hinum viðáttumiklu skógum
með mýrum og fúafenjum í
suðri, norðri, austri og vestri.
Fimm tegundir þeirra eru þó
grimmastar og þær tegundir
finnast í þúsundatali bæði á
iandi og í vöntum og sjó.
Allt slöngueitur verkar
á blóðið, en kóbraeitrið verk
ar einnig á taugakerfið, þann
ig, að fórnardýrið deyr mjög
fljótlega af köfnun eða
hjartaslagi.
•MltllUllllUK
iii' •iimiiiiMiii
iiuimniuiiP !
MYNDSR
Tvö samvaiiu
i Stjörnubíó sýnir nú bandarísku
myndina Tvö samvalin. Leika þau
Edmond O’Brien og Lizabeth Scott
aðalhlutverkin. Myndin er dálag- |
j legur reyfari í þessum vanalega j
j stíl, þar sem einn reynir að komast j
yfir annars fé. Uppgjör verður svo
í lokin eins og venjulega. Að vísu
er leikur aðalleikaranna prýðilegur (
og þau gera það, sem af þeim er J
ætlazt, en það nægir ekki til að j
bjarga myndinni frá því að vera '
léleg.
Ríkisútvarpið
Sinfóníuhljómsveitin ( j
Hljómleikar i|
í Þj óðleikhúsinu á fimmtudagskvöld kl. 8,30.
Stjórnandi: Jóhann Tryggvason.
Einleikari: Þórunn Jóhannsdóttir.
Viðfangsefni:
Beethoven: Promeþeifsforleikur.
Beethoven: Píanókonsert nr. 2 í B-dúr.
Mozart: Sinfónía f G-molI.
Aðgöngumiðar i Þj óðleikhúsinu við venjulegu verði.
Ekki endurtekið.
Tveir slöngubúgarðar.
Það eru aðeins til tveir
slöngubúgarðar í öllum heim
Útvarpib
Utvarpið í dag:
Pastir liðir eins og venjulega.
19.00 Tómstundaþáttur barna og
unglinga (Jón Pálsson).
19.30 Tónleikar: Óperulög (plötur).
20.30 Útvaipssagan: „Flóðið mikla“,
eftlr Louis Bromfield; XIX.
21.00 Einsöngur: Else Brems syng-
ur (plötur).
21.20 Erindi: Inn milli fjallanna
(Rósberg G. Snædal rithöf.).
21.45 Tónleikar (plötur): LitU svíta
fyrir kammerhljómsveit eftir
Pranz Schreker.
22.10 Dans- og dægurlög: Harry
James og hljómsveit hans.
22.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.20 fslenzk tónlist: Lög eftir
Jónas Tómasson og Kristin
Ingvarsson (plötur).
20,40 Þýtt og endursagt (Hersteinn
Pálsson ritstjóri).
21,05 Tónleikar (plötur).
21.20 Frá útlöndum (Þórarinn Þór
arinsson ritstjóri).
21,35 Sinfóniskir tónleikar (plötur)
22,CO Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Framhald sinfónisku tónleik
anna.
22,50 Dagskrárlok.
inum, og annar er sá, sem dr.
Aksara veiiir forstöðu. Hún
lætur tappa eitrið úr kirtl-
1 um slangnanna einu sinni í
; viku. Á hverjum föstudags-
morgni á siaginu kl. 10, fara
(tveir menn niður í slöngu-
' garðinn. Hægt og rólega tína
• þeir þær slöngur upp, sem
ieiga að gefa eitur þann dag.
Jverkið er afar hættulegt, en
mennirnir eru svo rólegir, að
það er engu líka en að þeir
væru að fást við meinlausa
áia.
Taugarnar mega ekki
svíkja eitt augnablik.
Báðir mennirnir eru í hné
háum gúmmístígvélum inn-
an undir buxnaskálmunum
og ganga hægt og ákveðið
meðal slangnanna. Liggi ein
hver slangan þannig, að ekki
er hægt að ná taki á haus
hennar, stiga þeir ofan á hal
ann á henni, en við það reis-
ir hún upp hausinn viðbúin
að bíta. En það héfði hún
ekki átt að gera, því að á-
rangurinn veröur í hvert ein
asta skipti, að hún er gripin.
Liggi slangan i hnút, er verra
! að eiga við hana. Þá réttir
■ maðurinn hendina í áttina
' til hennar, en um leið og
hún reynir að höggva, kipp-
ir ha.nn höndinni til baka
með miklum flýti. Slangan
heggur út í loftið, og meðan
hún er að sáfna kröftum til
næsta höggs, er hún gripin
sterkri hendi. Þeir, sem fást
við slöngurnar, verða að
vera algjörlega óhræddir og
öruggir. Sá maður, sem ein-
hvern tíma hefir verið bitinn
. að aldrei þykir öruggt að
jlega yfir það, og vegna þess
' a ðaldrei þykir öruggt að
j taugar hans bili ekki á hættu
1 legu augnabliki, fær bitinn
jmaður aldrei vinnu við svona
staði.
Mjólkursopi eftir
eiturgjöfina.
Höfði slöngunnar er hald-
lð niður að glerskál, sem ann
ar maðurinn heldur á. Hann
kreistir með tveimur fingr-
um um eiturkirtlana og slang
an opnar giniö eftir litla
stund og eitrið rennur niður
í skálina. síðan stingur hann
gúmmíslöngu,* fylltri með
mjólk, niður í hálsinn á dýr-
inu, sem lokar augunum og
teygar mjólkina. Að mjólkur
gjöfinni aflokinni, er slöng-
unni kastað í poll, og sú
næsta tekin.
Þrjú mannslíf dagiega.
Það eru margar slöngur í
Síam og því ástæða til að
I fara varlega þar, ef fólk vill
komast hjá kvalafullum
dauða. Þrjár manneskjur
deyja á hverjum degi af
slöngubiti, og mörgum tug-
um er bjargað daglega með
móteitri. Danskur forstjóri
segir, að hann geti hvergi
verið óhultur fyrir slöngum.
Hann bjó í miðri borginni
Bankapi og hafði þar stóran
húsagarð. Eitt kvold hafði
■ hann gesti, og er þeir voru
að kveðja, birtist einn, sem
ekki hafði verið boðinn. Það
var stór gleraugnaslanga, sem
var komin upp stigann á í-
búð hans og var að skríða
inn forstofuna. Slangan fékk
skjótan dauðdaga, en eftir
það gekk forstjórinn aldrei
um garðinn eftir- að fór að
skyggja, án þess að hafa vasa
ljós með sér.
Hættan er alls staðar.
Það eru margar hræðileg-
ar slöngusögur sagðar í Sí-'
am. Margir sjá slöngur hvernj
einasta dag, aðrir bjargast á'.
undraverðan hátt frá dauða j
af völdum slangnanna. Fjölda
margir hafa aldrei séð þessi ■
hættulegu kvikindi, en það
| er ekki öruggt að kvikindin
Jhafi ekki séð þá. Slöngurn- j
jar geta leynzt í háum trjám,'
ji lágum runnum og jafnvel
'í grasinu. Og ef ólán á að
henda, þarf maður ekki ann
að en að koma við trjágrein!
í myrkri, til þess að vera'
bitinn banvænlega af slöngu.
Tómötnin fieygt
(Framhald af 1. síðu).
flytja inn gegndarlaust út-
lenda ávexti í svo stórum
stíl, að þeir skemmast og
liffgfja undir skemmdum
vegna of mikils framboðs og
verður að fleygja á sama* 1
tíma nær því helming af (
tómataframleiðslu lands- (
manna sjálfra, sem gr«>ður- 1
húsamenn hafa kostað til
miklu eifiði til að rækta.
íslandsmótið
í kvöld kl. 7,30 leika
Vaiur —
Víkingur
ÚKSLIT í B-RIÐLI.
Dómari: Haraldur Gíslason.
MÓTANEFNDIN.
♦
I
TILKYNNING frá
Reykjaskóla í Hrútafiröi
Kennsla í 3. deild (landsprófsdeild) hefst 15. okt.,
en i 1. og 2. deild 25. október. Dvalarkostnaður (fæði
og húsnæði) nam s. 1. vetur kr. 550.00 á mánuði fyrir
stúlkur og kr. 590.00 fyrir pilta.
Látið ekki dragast úr þessu að senda umsókn, ef
þér hyggið á skólavist.
GUÐMUNDUR GÍSLASON
skólastjóri
t
Kona féíbroínar
(Fraœhald af 1. siðu).
konunni til Þingvalla, svo
hægt væri að sækja hana
þangað og koma henni í
sjúkrahús til Reykjavikur til
frekari aögerða. Tóku þeir
bræðurnir það ráð að búa
um konuna sem þægilegast í
bát og róa henni yfir vatnið
til Þingvalla. Gekk sú för að
óskum og var konan siðan
flutt til Reykjavikur.
Barnaskóli Hafnarfjaröar
Börn, sem voru í 1. og 2. bekkjum s. 1. vetur, mæti
í skólanum föstudaginn 4. sept. kl. 11 f. h. — Börn
fædd árið 1946 mæti sama dag kl. 2 e. h.
i Tilkynna ber um öll börn, sem verða skólaskyld
I á þessu ári (fædd 1946), ef þau mæta ekki á tilteknum
4 tíma. — Viðtalstími skóiastjóra kl. 10—12. Sími 9185.
I SKÓLASTJÓRI.
I
UVWW.VWAVJVJWAWAWAWAV/ r.VV.*.V\W,VAV.W
! í Öllum vinum og vandamönnum þakka ég hjartanlega ^
dýrmæta gripi, blóm og árnaðaróskir á sextugsafmæli
£ mínu 26. ágúst s. 1. — Og konur í Leirár- og Melasveit!
Beztu, hjartans þakkir fyrir stórhöfðinglegar gjafir.
I; Heill og heiður sé ykkur öllum. Signi ykkur blessuð
f sól.
Salvör Jörundardóttir, ljósmóðir. ■.
'UWVVVVWWVrtAJVWVWWWVW.fiJVWVWVVWVWWVVVVVWWVWI