Tíminn - 15.10.1953, Side 5
233. blað.
TÍMINN, fimmtudaginn 15. október 1953.
5
FimmtizéS. 15. ©fcí.
Innheimta stór-
eignaskattsins
Fjármálaráðherra svaraði
í gær í sameinuðu þingi
nokkrum fyrirspurnum frá
Gylfa Þ. Gíslasyni um inn-
heimtu stóreignaskattsins. í
svörum sínum gaf ráðherr-
ann ýmsar athyglisverðar
upplýsingar, sem rétt þykir
að rifja hér upp í aðaldrátt-
um.
Stóreignaskatturinn var
ákveðinn í lögunum um
gengisbreytinguna, er sam-
þykkt voru veturinn 1950.
Samkvæmt lögunum skyldi
áiagningu skattsins lokið' fyr
ir febrúarlok 1951, en henni
var lokið nokkru fyrr og til-
kynningar um það sendar til
gjaídenda. Fengu þeir síðan
aö sjálfsögöu nokkurn kæru
frest og í samræmi við kær-
ur þurfti að reikna skattinn
upp 1 ýmsum tilfellum aftur.
Því verki var lokið í október
1951 og var skatturinn þá til
búinn til innheimtu.
Alls nam stóreignaskattur
inn, sem lagður var á endan
iega samkvæmt útreikningi
viðkomandi skattayfirvalda,
um 49,2 millj. kr. Búiö er nú
að innheimta um 41.8 millj.
kr. Má það teljast mjög sæmi
legt, þegar þess er gætt, að
ýmsir gjaldendur hafa tafið
fyrir innheimtu með mála-
ferlum og margir aðilar ann
ast innheimtuna, eða allir
sýslumenn og bæjarfógetar
landsins, og eru þeir að sjálf
sögðu misduglegir, eins og
aðrir menn. Hefir fjármála-
ráðherrann gengið fast eftir
þvi, að innheimtunni væri
hraöað.
Langf æstir gj aldendur
hafa notað sér þá heimild
laganna, a§ greiða skattinn
með fasteignum, enda mun
það líka í flestum tilfellum
óhagstætt, þar sem eignir
eru metnar lægra til skatts
en raunverulegt verðmæti
þeirra er. Niðurstaðan hefir
líka orðið sú, að aðeins rúm
600 þús. kr. af skattupphæð-
inni allri hafa verið greidd-
ar með fasteignum.
í sambandi við þetta á-
kvæði laganna,hafa blöð eins
og Þjóðviljinn, Mánudags-
blaðið og ' Frj áls þj óð notað
það til árása á fjánnálaráð-
herra, að tekin hefir verið
upp í skattinn eign, sem
reyndist verðlaus, af félagi
því, sem framleiðir Coca-
Cola og Björn Ólafsson fyrrv.
menntamálaráðherra er rið-
inn við. Hafa blöð þessi hald
ið því fram, að fjármálaráð-
herra hafi ekki haft leyfi til
þessa.
f greinargerð sinni á Al-
þingi i gær, sýndi ráðherr-
ann fram á, að honum hefði
verið skylt samkvæmt lögum
að taka þessa eign upp í skatt
inn. Lögin mæltu ótvírætt
svo fyrir um, að ríkissjóði
bæri að taka upp í greiðslu
á skattinum hverja þá fast-
eign, sem metin hefði verið
til skatts, og bæri að taka
hana á því verði, sem hún
hefði verið metin við stór-
eignaskattsálagninguna. Nán
ari málsatvik væru þessi:
Umrætt fyrirtæki hefði
ERLENT YFIRLIT:
EARL WARREN
Skandinavi 11 si, sem skipar mi forsætl
í hæstarétti Hantlarífejanna
Þa3 féll fyrir nokkru í hlut Eis-
enhowers forseta að skipa mann í
annað virðulegasta embætti -Banda
ríkjanna, forsetaembættið í hæsta-
rétti. Sá maður, sem það embætti
skipar, þarf ekki aðeins að full-
. nægja þeim virðuleika, sem em-
j bættinu fylgir, heldur þarf einn-
j ig að hafá í ríkum mæli þá hæfi-
leika, sem krafist er af góðum dóm
j ara: glögga dómgreind, réttsýni,
; öfgaleysi og sjálfstæði. Hann þarf
! og að véra árvakur og laginn verk-
stjóri, þar sem á honum hvílir að
i stjórna störfum réttarins.
! Dómar blaðanna — bæði amer-
: ískra og annarra — _ eru yfirleitt
! á þann veg, að val EisenhoWers á
I hinum nýja forseta hæstaréttar
i hafi tekizt vel, en fyrir valinu varð
! Earl Waren, ríkisstjóri í Kali-
I forníu, er á annan óratug hefir
, verið í fremstu röð amerískra
’ stjórnmálamanna.
Það er að vísu talið, að mestu
hægri mennirnir í flokki Eisenhow
1 ers séu miður ánægðir yfir skipun
'Warrens. en þeir treystast þó ekki
til að láta það mikið uppi. Að sjálf
sögðu hefðu þeir heldur kosið, að
fyrir valinu hefði orðið einhver
maður úr þeirra hópi. Hinir frjáls-
lyndari fepublikanar eru hins veg-
ar vel ánægðir og einnig velílestir
i demokratar. Meðal þeirra, sem
1 hafa farið viðurkenningarorðum
um Warren eftir að Eisenhower
skipaði hann forseta hæstaréttar
er Stevenson, forsetaefni demo-
krata í seinustu forsetakosningum.
I
Skandinavi í báðar ættir.
I Sumir. blaðamenn, er rakið hafa
æviferil hins nýja hæstaréttarfor-
seta nýlega, hafa komizt svo að
orði, að saga hans hefjist, þegar
Norðmáðurinn Mathias Warren og
sænska stúlkan Chrystal Hedlund
hittust fyrir 70 árum síðan og
stofnuðu með sér hjónaband. Bæði
voru þau fædd á Norðurlöndum,
Mathias í Noregi og Chrystal í Sví-
þjóð, og því norræn í báðar ættir.
Faðir Mathiasar var Halvar Varr-
an, er flúttist frá Noregi með fjöl-
. skyldu sína og tók sér bólfestu í
[ Kaliforníu. Þar stundaði hann
smíðar, en Mathias varð verkstjóri
hjá járnbrautarfélaginu Southern
Pacific.
I Earl Warren er fæddui' 19. marz
1891. Hahn byrjaði ungur að vinria
fyrir sér sem blaðsöludrengur,
sendisvéinn, afgreiðslumaður, o. s.
frv. Fyrir áeggjan foreldra sinna
gekk hann menntaveginn. Hann
lauk fyrst gagnfræðaskólanámi og
síðan laganámi við ríkisháskólann
; í Kalifoi'úiu. Hann þótti skemmti-
legur skólafélagi, en var ekki nema
í meöallagi iðinn við námið. Hann
var íþróttamaður góðui' og tók
þátt í áfiihörgum opinberum knatt-
leikjum.rí skólahljómsveitinni lék
hann á- klarinet.
f Að laganáminu loknu, starfaði
hann á málflutningsskrifstofu í
San Francisco um þriggja ára
skeið. Honum fannst málflutning-
urinn leiðinlegur í fyrstu. Árið 1917
var hann skráðui' sem óbreyttur
hermaður í herinn, en brautski'áð-
ur sem liðsforingi tveimur árum
seinna. Hann gerðist þá starfsmað
ur laganefndar fylkisþingsins í
Kaliforníu og hefir verið í opin-
berri þjónustu alla tíð síðan.
Ötull saksóknari.
| Árið 1925 varð Warren saksókn-
ari í Alamedahéraðinu, en það nær
m. a. yfir borgirnar Oakland, Berke'
ley og Alameda. Því starfi gegndi
hann til ársins 1939. Hann vann
sér mikið frægðarorð í því starfi.
Honum tókst að fá upplýst nær
öll morðmál, sem áttu sér stað í
umdæmi hans, auk þess sem hann
! afhjúpaði margvíslega fjárbralls-
stai'fsemi og fékk allmarga hátt-
setta opinbera starfsmenn dæmda
fyrir mútur og sviksemi. Meðal
þeirra var borgarstjórinn í Ala-
meda. Fyrir þetta starf sitt varð
Warren frægur um alla Kaliforn-
íu og raunar víðar. Sjálfur segist
hann enga ánægju hafa haft af
starfinu, heldur hafi honum jafn-
vel þótt miður að eiga þátt í því að
menn væru dæmdir, þótt hann
vissi að það væri rétt og nauðsyn-
legt. Skaplyndi sitt sé þannig, að
hann vilji helzt engum mein gera,
en hjá slíku verði hins vegar ekki
komizt, ef halda eigi uppi lögum
og reglum og fyrir þeirri skyldu
verði menn að beygja sig.
Þótt Warren væri sigursæll í
baráttu sinni við glæpamennina,
fór það á annan veg fyrir föður
| hans. Hann var rændur og myrtur
j á heimili sínu í Los Angeles 1938
; og hefir það morðmál ekki verið
1 upplýst.
Vinsæll ríkisstjóri.
Árið 1938 var Warren kosinn rík-
issaksóknari í Kaliforníu og tók
hann við því starfi næsta ár. Árið
1942 völdu republikanir hann sem
ríkisstjóraefni sitt, en ríkisstjóri
var þá-demokratinn Culbert Olson.
Warreh vann kosninguna. Árið
1946 ýar hann endurkjörinn ríkis-
stjóiií og var þá studdur bæði af
republikönum og demckrötum. Hef
ir það ekki komið áður fyrir í Kali-
forníú, að báðir flokkarnir hafi
stuttjjsama ríkisstjóraefnið. Árið
1950 jýar Warren kosinn ríkisstjóri
í þriðja sinn og var þá James. Rosé-
velt, .sonur Roosevelt forseta, að-
alkepþinautur hans. Warren vann
glæsílegan sigur, fékk rösklega
einni" milljón atkvæða meira en
James!
War'ren hefir þótt ágætur ríkis-
stjóri, eins og kosningasigrar hans
benda til. Hann hefir þótt heið-
arlegitv og röggsamur stjórnandi,
kært yfir skattálagningunni,
þar sein húseign, sem niö-
urrifsskylda hvíldi á,
hefði verið metin of hátt.
Hvorki- skattsjóri eða ríkis-
skattanefnd vildu þó fallast
á að lækka þetta mat. Fyrir
tækið .svaraöi þá með því að
láta þann hluta eignarinn-
ar, sem mesta niöurrifskvöð
in hvíldi á, upp í skattinn.
Samkvæmt framangreindum
ákvæðum stóreignaskatts-
laganna bar ríkissjóði að
taka við henni, þótt verð-
leysi hennar væri fyrirsjá-
anlegt.- Var þetta sammála
álit þeirra lögfræðinga, sem
til var leitað. Nokkru eftir, að
ríkið tók við eigninni, fyrir-
skipaði Reykjavíkurbær nið-
urrif á „eigninni. Kostnaður
ríkisins: við niðurrifið nam 22
þús. kr., en ríkið var búið að
hafa af henni 17 þús. kr.
tekjur. Raunverulegt tap
þess var þvi öll viðkomandi
skattupphæð og 5 þús. kr. að
aukií
Þáð-sézt glöggt'á þvf, -sem
hér liefir verið talið, að fjár-
málaráðherra ber ekki sök á
því, hvernig hér hefir tiltek-
ist. Sé um sök að ræöa,er hún
hjá öðrum aðilum og þá
sennilega fyrst og fremst hjá
löggjafanum, sem ekki hefir
sett nauðsynlegan varnar-
garð gegn því, að umrædd á-
kvæði yrðu ekki misnotuð.
Það sást líka bezt á fram-
komu „Þj óðvarnar-
manna“ á þingi í gær, hve
ómögulegt er að halda uppi
ádeilum á fjármálaráðherra
í þessu máli. Bergur Sigur-
björnsson gafst upp eftir að
hafa lialdið eina ræöu og
ráöherrann hafði afhjúpað
firrur hans, en sá þingmaður
flokksins, sem vitrari er,
Gils Guðmundsson, forðað-
ist að láta nokkuð til sín
heyra.
EARL WARREN
er hefir bætt stjórnarfarið á ýms-
| an hátt. Hann hefir reynzt frjáls-
[ lyndur í skoðunum og beitt sér
i fyrir mörgum félagslegum umbót-
um, t. d. auknum tryggingum,
1 bættu skólahaldi, bættri aðbúð
j verkamanna o. s. frv. Hann hefir
reynt að koma á sjúkratryggingum,
en ekki fengið því framgengt.
I Árið 1944 átti Warren kost á því
' að vera varaforsetaefni republik-
' ana, en hafnaði því. Hins vegar
’ tók hann því boði 1948, en repu-
blikanir biöu þá ósigur, eins og
kunnugt er. Á síðastl. ári gaf hann
kost á sér sem forsetaefni, en mun
þó sennilega ekki hafa hugsað sér
meira en að verða varaforsetaefni
með Eisenhower. Félagi hans frá
j Kaliforníu, Nixon, reyndist hon-
um hins vegar hlutskarpari og
mun Warren ekki hafa verið neitt
ánægður yfir því. Hann tók sára-
iítinn þátt í kosningabaráttunni,
: en bæði Truman og Stevenson
kepptust um að hæla honum. M.a.
sagði Truman á kosningafundi í
Kaliforníu, að Warren væri vinur
! sinn og Nixon væri ekki einu sinni
þess verður að leysa skóþveng
* hans, þótt republikanar teldu hann
j betra varaforsetaefni.
Ýmislegt um Warren.
j Hæfileikum Earls Warrens er
venjulega þannig lýst, að hann sé
drengur góður, réttsýnn og sam-
vizkusamur, frjálslyndur og góð-
viljaður, einbeittur og ötull og laus
við alia öfga. Hins vegar sé hann
enginn afburða gáfumaður. Kost-
ir hans hafi hjálpazt til um að gera
hann að einum bezta ríkisstjóra í
Band^ríkjunum á síðari árum.
Benda megi að vísu á ríkisstjóra,
er séu að visu leyti mikilhæfari en
hann, en engan, sem samræmi bet-
ur þá hæfileika, er gera menn að
farsælum stjórnendum.
í framkomu sinni er Warren
sagður góöur íulltrúi hins venju-
lega Bandaríkjamanns. Hann er
glaðvær í viðmóti og vingjarnleg-
ur. Hann er óspar á bros og hlát-
ur. Hann er hár vexti og samsvar-
ar sér vel og hefir mikið og karl-
mannlegt andlitsfall. Hann er fjöl-
skyldumaður mikill. Hann giftist
ekkju af sænskum ættum fyrir 28
árum síðan og á með henni tvo
CFramh. a 6. siðut.
Aðalfundur Guð-
spekifélags íslands
Var haldinn dagan 4. og 5.
þ. m. Fyrri daginn voru kosn
ingar og önnur aðalfundar-
störf. Tveir menn áttu að
ganga úr stjórninni, þeir
Ingólfur Bjarnason og Guð-
jón Baldvinsson, en voru báð
ir endurkosnir. Stj órnina
skipa þvi nú Grétar Fells,
sem var endurkosinn forseti,
Þorlákur Ófeigsson, Guðrún
Indriðad., Ing. Bjarnason og
Guðjón Baldvinsson. Að
kvöldi mánudags, 5. þ. m.,
var minningarfundur um C.
Jinarajadassa, en hann var
einu sinni forseti allheimfé-
lagsskapar Guðspekisinna.
Gretar Fells flutti erindi um
hann, en frú Anna Magnús-
dóttir lék á slaghörpu og
Ingvar Jónasson á fiðlu.
Fundurinn var fjölsóttur.
Enn um kartöflu-
innflutning
Vegna endurtekinna ádeilna
Mbl. út af innflutningi á kart
öflum tók undirritaður sam-
an stutta grein og dró fram
sjónarmið þess, sem á var
deilt. En jafnhliða var minnzt
á kartöfluinnflutning á ann-
arra vegum en Grænmetis-
verzlunarinnar og enda fleiri
vörur, sem varða hag garð-
ræktarmanna. Enn var talið,
að ástæða væri að líta nánar
á innflutning á fleiri vörum
en kartöflum og ekki myndi
færzt undan því, er stundir
líða, ef Mbl. óskar þess.
Mbl. hefir reiðst þessum at
hugasemdum og skrifar skæt
ing um höfund þeirra í sunnu
dagsspjalli sínu 11. þ. m. Er
það raunar alþekkt, að þegar
rökin þrjóta, er gripið til
ljótra crða um andstæðinginn.
Er Mbl. látið óáreitt með þessa
fjólurækt sína.
Hitt má oft deila um á eft
ir, hvort eitt og annað hefði
mátt betur fara. Við, sem
vinnum við Grænmetisverzl-
unina, erum því miður ekki
gæddir þeim hæfileikum, að
sjá óorðna hluti langt fram
í tímann. Ekki heldur hvern
ig tíðarfar verður næstu vik
urnar.
Það skal fúslega játað, að
ekki væri ónýtt að hafa þessa
gáfu. Það má einnig játa, að
hægt hefði verið að spara stór
fé í áburðarkaupum s. 1. vor,
ef menn hefðu séð fyrir,
hversu ágætt sumar var í
vændum. — Hver vill deila á
bændur fyrir að bera mikið
á, þótt ýmsir þeirra hafi beint
skaðast á því, — og fengið
verri hey?
Vill Mbl. hefja ádeiluna?
Ritstjóri Mbl. leiðir hjá sér
að ræða um innflutning á
kartöflum til neyzlu á Kefla-
víkurflugvelli og til veiði- og
kaupskipaflotans. Er kannske
brotalöm í áhuga blaðsins?
Fullyrða má þó, að allir kart
öfluframleiðendur myndu
fagna því, ef þetta stóra blað
beitti áhrifum sínum til að
allir íslendingar borðuðu ís-
lenzkar kartöflur.
Enn síður vill Mbl. ræða um
innflutning á öðru, sem á var
minnzt, svo sem appelsínum,
banönum, vínberjum o. fl. Er
það skiljanleg hógværð og
blaðinu virt til vorkunnar.
Hitt er því vorkunnarlaust, að
skilja síðustu málsgreinina
um athugun á ýmsum inn-
flutningi öðrum en kartöfl-
um. Þetta boð stendur enn og
er einkennileg blaðamennska,
að látast ekki skilja mælt
mál.
Björn Guðmundsson.
ABmennur
kirkjufundur
Sá 10. í röðinni verður hald
inn í Reyjavík, hefst föstu-*
dagskvöldið 16. október og
stendur til mánudagskvöld.
19. okt. n. k.
Fyrsta málið verður ríki
og kirkja, málshefjendur þar
Gísli Sveinsson fyrrv. sendi-
herra og Árni Árnason hér->
aðslæknir, Akranesi.
Annað málið verður krist-
indómur og kennslumál.
Verða þar málshefjendur
Jónas Jónsson fyrv. ráðherra,
Ástráður Sigursteindórsson
gagnfræðjaskólakennari og
(Framn. á 6. bS5u.) ,