Tíminn - 11.12.1953, Side 4

Tíminn - 11.12.1953, Side 4
4 TÍMINN, föstudaginn 11. desember 1953. 252. blaff. t tOHKS Þorvaldur Skúlason fyrr og nú í fyrrahaust féllu blöðin af greinum trjánna og stofnarn ir stóðu auðir vetrarlangt. Nú blómgaðist skógurinn snemma og laufið barst mikið á: sterkgræn blöð fyrst en brún og rauð, er hallaði mót vetri. Síðan visnuðu þau smátt og smátt. Og að ári gerist hinn sami leikur — nýtt lauf, nýtt yfirbragð, en sömu gömlu stofnarnir. Þannig hefir listin líka vax ið. Állar góðar myndir hvíla á sömu stofnum, bæði gamál- harðnaðar og nýþornaðar. Tímabil og skólar listsögunn- ar eru eins og laufbreiöur, sem þjóta upp að liðnum vetri, ein eftir aðra í rás tím- ans. Á íslandi hefir lítið verið málaö, ef miðað er við stærri þjóðir og ríkari lönd. Samt er svo kcrnið, að nú grillir í hæstu toppana á lítilli spildu: Arngrím Gíslason og hans máta — raunsæismanninn Þórarin B. Þorláksson — landslagsdýrkendurna Ás- grím, Jón, Kjarval, Gunnlaug Scheving, — og málarana Svavar Guðnason og Þorvald Skúlason. Þeir öftustu eru komnir yfir múr, sem löngum var talinn skilja að listina og tómið. Þangað hafa þeir dregið sér vistir úr gamla forðabúrinu. Svavar er bundinn landi sinu og náttúran er honum stöð- ugur aflgjafi, þótt hann hafi stigið óhikað inn í plastískan heim. Þorvaldur aftur á móti hafnar afdráttarlaust bæði mótífi og stemningu, í nýj- ustu myndunum. Fróðlegt er að rekja slóð hans úr skóla fram að þessum degi. Elztu myndir bera þess merki, að mótífið hefir aldrei verið honum sérlegá hjart- fólgið, heldur bakhjarl til að hafa einhvern. Og mér er ekki grunlaust um, að snertingin við sál moldarinnar hafi verið honum jafn lítils virði þá og hún er nú. Er þetta hugsan- legt? Getur það verið, að ung- ur maður, sem snýr sér í al- vöru að listini, vaxandi upp í þessu stórskorna landi, skríði ekki inn í jarðvegsglufurnar áður en hann fer að hugsa aö ráði um vandamál lístarinn- ar? Margt bendir til þess. Ef við skoðum myndir Þorvald- ar frá fyrstu árum og það bet- ur en með einu augnakasti, er engin löngun fjær okkur en sú að þjóta út og minnast við náttúruna, gjóta augun- um til fjallanna og teyga hreina loftið eftir regnskúr um haust. Litla skógarmynd- in í Listasafninu beinir ekki huganum til annarra landa og „guli skúrinn" í Markúsar- deildinni er engin lýsing á lífi við höfn, hvorki nú né nokk- urn tíma fyrr. Hann er þrótt- mikil bygging í litum, reist af einstakri alúð og djúpri til- finningu fyrir þessum hlut, sem kallaður er: málverk. Samt eru þær náttúruverk á einn hátt. Þær eru gerðar af manni, sem vinnur án mik- ils lærdóms og þekkingar og spretta fram úr iðrum eins og heitur hver, sem eftir er að beizla og beygja undir veldi hugans. Fyrst eftir að Þorvald ur er kominn suður í lönd, fer hann að gera sér verulega grein fyrir því, hvern hlut hugsunin á í málverkinu. Sú uppgötvun leiðir af sér margs konar rannsóknir og hugdect- ur. Málarinn tínir fram hvert korn, reynir þol þess og styrk, veltir því fyrir sér og tengir það öðrum eindum á ýmsa vegu. Síðai^fer hann aftur að' horfa á heildina í alvöru, ekki 1 einungis í einni mynd, sem hann er að skapa, heldur öllu ’ er hann snertir á framvegis. Hann grefur sér göng per- sónulegrar reynslu. i Á lcreppuárunum og allt fram til gullglýjunnar miklu ’ drupu úr pensli Þorvaldar | margar myndir, sem byggð- ust á þessum vinnubrögðum. Sumar litlar og indælar, aðrar 1 rismiklar, þungar og stórar í broti. Allar með óyggjandi merkj um skaparans. Svona liðu þessi ár í frjóu starfi. Lit- urinn varð fyllri og dýpri og sprengdi af sér ótal höít unz hámarki var náð ---------------- eða, þar til nýtt líf kviknaði. Ég dreg ekki dul á það, að kóbraskeiðið er magrasti bit- inn í list Þorvaldar. Ekki vegna þess, að hann hafi ekki gert góðar og uppbyggilegar myndir á þeim tíma — „Vor“ er t. d. skínandi listaverk — heldur af hinu, að sú hneigð er varla annað en stundarleit í striti hvers dugandi lista- manns. Það liggur í eðli henn- ar að vera vaxtarskeið og til- rauna einkum fyrir þá, sem staöið hafa föstum fótum í heimi ytri fyrirmynda. Og nú er hann kominn út úr hreinsunareldinum inn í nýja veröld, sem er full af gömlum sannindum: hina plastísku, búinn að hefja sig upp á sama svið og áður var ríki hans. Kyrröin er orðin á- berandi, stillingin yfirgnæf- andi. Líklega hlýtur hann ekki miklar vinsældir fyrir þessi verk. Það virðist löngum hafa verið örlög nýbyggja í listum að hljóta lof eftir dauð ann, en tæplega nokkra upp- örfun í lífi. Um slíkt er ekki að fást. Ef til vill er venju- legum áhorfanda ofvaxið að fylgjast með sveiflum og hreyfingum, þótt ekki sé nema einnar persónu, sjá gamla hluti fá nýja merkingu, þegar þeir stínga upp koll- inum úr jarðvegi, er áður lá handan við sjóndeildarhring- inn. í höndum Þorvaldar og annarra afbragðsmálara breytast hyrningar í stærð- fræðibókum, hringir í vélum í lifandi form og beinu strik- in í vinnuteikningunum þenj - ast út og mýkjast upp fyrir áhrif gróandi litar. Éindirn- ar renna saman og þjóta upp eins og planta, sem rís hærra og hærra yfir sléttuna. H. MiatllHllllllllllllllll IIII llllllllllllllUllffllMUllllf 1111111» 3 s ! Orðsending | | til þeirra sem eru að f Ibyggja hús. Samstæður | |þýzkur rafbúnaður: 1 Eofar | Tenglar | Samrofar | Krónurofar : Rör og dósir f. flestum | Istærðum og gerðum. | Véla og raftækjaverzlunin | 1 Tryggvag. 23 — Sími 81279 I Miiiiiiiiiiiiiitiiiimiiimtiifiiiiiiiiiiiiiin'ifiiiiiifiiiiiiiiii NlllllllllllÍllltlllllllllinillllllfllllllllllllllllllMIIIIIMIIIII I Ungt kærustupar | dálítið vant sveitastörf- í um, óskar eftir góðri vist 1 ú sveitabæ. Ráðningar- | tími og kaup eftir sam- | komulagi. Tilboðum sé 1 skilað fyrir áramót á af- I greiðslu blaðsins, merkt: I Samvizkusemi. NYIAR NORÐRA Ævisöguþættir og sagnir Eöffvars Magnússonar á Laugarvatni Jafnframt því að vera merk ævisaga hins umsvifamikla stórbónda, er gaf jörð sína til þess að hrinda fram stórú máli, þá er þetta samfara því saga þess mesta framfara- tímabils, sem birzt hefir í íslenzku þjóðlífi til sjávar og sveitar. Verður mörgum hugJeikið að fá tækifæri til að ganga undir hönd Böðvars á Laugarvatni, sjá og heyra umrót heillar aldar líða yfir jörðina hans, heimasveitina, héraðið, landið og þjóðlíf þess. Hetjur hversdagslífsins Skrásett hefir Hannes J. Magnússon skólastjóri. Sérstæð bók. Eins konar myndasafn úr lífi alþýðunnar. Þú heyrir raddir mannanna, sem plægja, sá og uppskera, sem leggja stein viö stein í byggingu framtíðarinnar, sem ryðja vegina og byggja brýrnar, sem fæða og ala nýjar kynslóðir handa framtíðinni.' Upp af svitadropum þessa fólks hafa vaxið þau lífsgrös menningar, tækni og þæg- inda. sem við búum við í dag. Vegur var yfir eftir Sigurð Magnússon kennara Höfundur þessarar bókar er fyrir löngu þjóðkunnur vegna ágætra útvarpserinda og snjallra greina. Hér segir hann m. a. frá hópferðum Islendinga til Norðurlanda, kynnum af veiðimönnum á austurströnd Grænlands. Hann lýsir bardaga í Bangkok, hann strandar norður í ísháfi, er handtekinn í Síam, stendur við dauðans dyr í Kína, fer til selja í Noregi o. m. fl. Bóiidirsn á SfóruvölSum Ævisöguþættir Páls H. Jónssonar, Stóruvöllum skráðir eftir sögn hans sjálfs og öðrum heimildum af Jóni Sigurðs- syni i Yztafelii. Páll H. Jónsson, sem nú er orðinn 93 ára að aldri, lýsir í bók þessari viöburðaríkri ævi og segir merka sögu nærri heillar aldar, sem er í senn sérstæð og athyglisverð og lýsir, baráttu og þreki þess fólks, sem byggt hefir einn sérstæðasta dal þessa lands, Bárðardal, í jaðri Ódáðahrauns, þar sem tröll og útilegumenn hafa lifað sitt fegursta í bióotrú íslendinga. Prek í Guðmundur G. Hagalín skrásetti í þessari bók birtast sannar sögur af konum og körlum, sem lent hafa í miklum þrautum og þrekraunum. Hjá þeim koma fram þeir eðliskostir íslendinga, sem um aldir hafa reynzt þeim vopn og verjur í striði við haroa háttúrú og við öfl erlendrar og innlendrar kúgunar. Þessir kostir eru óbilandi þrek og þrautsegja, óbilug túmennska og trú á hulin máttarvöld. Þetta er efnismikil bók, þrungin hrífandi atburðum og átakanlegum, sem seint munu e-leymast. Hrakningar og heiðavegír, 3. Skráð hafa Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson Þrátt fyrir marglofaða tækni nútímans fara menn sér’ enn að voða á heiðarvegum og öræfum þessa lands. Bókin' flytur fjölmarga örlagaþrungna þætti af fangbrögðum ís- !! lendinga viö hina harðráðu og svipulu náttúru landsins.j! Kjarni hinna þjóöiegu spakmæla að „enginn ræður sínum; næturstað“ gengur sem rauður þráður gegnum bókina.!, Þetta er þj óðleg bók í beztu merkingu þeirra orða. Bemii í skóða Ýmsir þeirra, sem lesið hafa Benna-bækurnar hafa látið í ljós þá ósk við höfundinn, W. E. Johns, höfuðsmann, að hann segði eitthvað frá unglingsárum Benna. Hefir höf. orðiö við þeirri beiöni og segir í bók þessari frá skólaárum Benna. Ævintýrin elta hann á röndum þá eins og síðar á lífsleiðinni. Það gerast alltaf óvæntir atburðir og spenn- andi í návist Benna. Merkttr foœkur og athiiglisverðar Sérstœðar bœhur oy skemmtilegar • < *■ KÓLA Göngur og réttir, 5. b!nöi Bragi Sigurjónsson bjó til prentunar Með þessu bindi lýkur stærsta og sérstæðasta heimiiöar- ritinu um íslenzka þjóðhætti. Alls er ritsafnio orðið 1.432 bls. að stærð. Göngur og réttir njóta sívaxandi vinsælda enda geymir ritið merkar heimildir um einn hugstæðasta þátt í búskaparsögu þjóðarinnar um aldaraðir, hætti og siði feðra vorra, örnefni á afréttum og lýsingar á ýihsúltt landsvæðum, auk fjölda mynda hvaðanæva, af lándinu. VINSÆLUSTU BÆKUR ARSINS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.