Tíminn - 23.12.1953, Síða 4
6
TÍMINN, miffvikudaginn 23. desember 1953.
292. blað.
Ljóðaþýðingar eru lífsundur
Handan uin 3iöf, — SjógaþýSingar
eftir Hclga Ilálfdánarson
Islenzkar bókmenntir eiga
mikið að þakka þýðendum er-
lendra ljóða. Hin frábæfra
snilli, sem kemur fram hjá
séra Jóni Þorlákssyni í þýð-
ingum á rismiklum stórvirkj-
um skáldanna Miltons og
Klopstocks, hafði bein og
blessunarrík áhrif á óviðjafn-
anlega formsnilli Jónasar
Hallgrímssonar, og bein áhrif
frá þýðingum séra Jóns verða
séð á ljóðum fleiri hinna
beztu íslenzkra skálda á 19.
öld. Þýðingar Steingríms Thor
steinssonar og Matthíasar
Jochumssonar urðu og unaðs
brunnur upprennandi skáld-
um og öðrum bókelskum ís-
lendingum, og Ijóðaþýðingar
Magnúsar Ásgeirssonar hafa
orðið íslenzkum skáldum sein
ustu áratuga drjúgar til
happasælla áhrifa og átt sinn
rika þátt í að viðhalda hylli
Ijóðlistarinanr hjá íslenzkri
alþýðu á óskáldlegri skark-
öld jassins og kynsósaðra
slagara. En auk þessara þýð-
enda eru hér margir ónefndir
sem hafa frjóvgað íslenzkar
bókmenntir og unnið að vexti
og viðgangi Ijóðhyllinnar
meðal æsku íslands, fyrr og
síðar.
Nú er komin bók frá ljóða-
þýðanda, sem þegar verður
að skipa á bekk með þeim,
sem mest og bezt hafa að
þvi unnið í urtagarði ís-
lenzkra bókmennta, að gróð-
ursetja erlend lífgrös. Sá heit
ir Helgi Hálfdánarson, pró-
fasts á Sauðárkróki, Guðjóns-
sonar, prests, Hálfdánarson-
ar. Er Helgi lyfjasali og lyfja-
byrlari norður í Húsavík. Bók
Helga heitir Handan um höf,
og hefir Mál og menning gefið
hana út.
Bókin er rúmar hundrað
blaðsíður og síðurnar stórar
og þéttietraðar Ijóðum.
Fremst í bókinni er efnisyfir-
lit, þar sem greint er frá nöfn
um höfunda og heitum
kvæða, en aftast eru athuga-
semdir og skýringar á sjö
smáleturssíðum. En þarna á
milli eru níutíu síður snilld-
arljóða frá ýmsum löndum
heims. Og það er fljótsagt, þó
að seinlegt mundi að gera
grein fyrir þeirri snilli, sem
felst í kvæðum þessarar bók-
ar, að á flestum blaðsíðun-
um eru ljóð, sem að fágun
og anda sanna lesandanum,
að ljóðperlur eru lífsundur,
0 *
Helgi Ilálfdánarson
svo sem blómið, er allt í einu
skýtur upp kolli, þá er sólin
glitrar vorfölva jörð á mild-
um maídegi. Flest eru kvæð-
in frá Englandi og Austur-
löndum. Þarna eru margar
af hinum ódauðlegu sonnett-
um Shakespears, auk nokk-
urra anharra ljóða eftir þenn
an undramann, sem var jafn
dásamlegur snillingur á smá-
jljóð viðkvæmustu geðhrifa og
,á hina tröllauknustu drama-
, tík, og þarna eru mörg kvæði
eftir þrjá hina óforgengileg-
ustu töframenn 19. aldarinn-
ar í enskum ljóðheimi, Keats,
Shelley og Wordsworth, og
við lestur þeirra kvæða minn
ist ég þess, þegar við tveir
sveinsstaular, fákunnandi í
enskri tungu, sátum fyrir
tuttugu og fimm árum með
litlar úrvalsútgáfur á ljóðum
þessara meistara og reyndum
að stafa okkur fram úr þeim,
fullir lotningar fyrir þeirri
snilli og andagift, sem van-
þekking okkar huldi okkur
ávallt annað veifið.— svo sem
þá er ský dregur fyrir sólu.
Meðal hinna austrænu líf-
grasa þessarar bókar, ber
mestan ilm og ljóma af Ru-
bajat Ómars Kajams, en þau
glitra líka og anga hin
smærri blómin. Sjá Hafiz:
,,Ég er ei lengur. Líf mitt hvarf
í logum ástar minnar burt,
og askan hjómlétt út í bláinn sveif
og féll — svo íöl og mjúk
að fótum þér.
Ó, stígðu hægt — mitt hjarta
lifir enn.“
Eða hin órímuðu japönsku
ljóðabrot frá miðöldum:
„Sífelld von
um að hitta þig
í draumi
hélt fyrir mér vöku
næturlangt.'
Og ennfremur:
„Ef ekki væri rödd
næturgalans,
hvernig ætti fjalla-þorpiö,
sem enn er undir snjó,
að þekkja vorið?"
!
Já, hvernig ætti heimur-
inn — á þessum tímum uggs
og aðvífandi ógna — að
þekkja vorið — að trúa á
vorið — ef ekki væri til nátt-
úrleg, auðmjúk og undursam-
leg list, þar sem rödd hins
eilífa vorboða kveður við og
gefur fyrirheit um að lífsins
undur skuli enn gerast ár frá
ári og öld eftir öld? j
Þessi fáu orð mín eru eng-
inn rökstuddur ritdómur, en
(Framhald á 6. síðu.)
t
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti og spil.
Ljóðabók barnanna
Minnisbókin 1954
er komin í bóka- og ritfangaverzlanir í hent-
ugu vasabroti. — í bókinni er ýmis fróðleikur
og upplýsingar, svo sem um:
Póst- og símagjöld — Gistihús á íslandi
Einkennisstafi bifreiða og flugvéla hér-
lendis og erlendis — íbúatala á íslalidi
Ljósatími ökutækja — Bifreiðaeign ís-
lendinga — Veðalengdir á Íslandi —
Mál og vog — Mynt ýmissa landa —
Kaup verkafólks — Strætisvagnaferðir
— Útsvars- og skattastiga — Veldi,
kvaðrat, kúbik — Farþegaflutninga —
Sjúkrahúsin — Úrslit Alþingiskosninga
— og er þá fátt eitt talið.
Auk þess er í bókinni Almanak fyrir 1954 og
götukort af Hlíðunum, Holtunum, Melunum,
Skjólunum, Smáíbúðahverfinu, Teigunum,
Túnunum og Vogunum.
HENTUG GJÖF FYRIR UNGA SEM GAMLA
Munið minnisbókina 1954 með dvergnum á
kápunni.
Tekið á móti pöntunum í síma 82913
kl. 12—2 og 4—5 daglega.
Bókaútgáfan FJÖLVÍS
NÝ BUÐ
Rúmgóð og skemmtileg. Leggjum
áherzlu á fljóta og góða afgreiðslu
MUNIÐ AÐ SÆKJA
NÝJU FÉLAGS-
BÓKINA OG
TÍMARITSHEFTIÐ.
Auk állra fáanlegra íslenzkra bóka höfum við mikið úrvál af álls konar jólavörum: Kort í miklu úr-
vali, jólapappír, jólaservíettur, diskaservíettur, jólalöberar, jólalöberar úr plasti (gullfallegir), krep-
pappír, jólalímbönd.-Litakassar, litabækur, dúkkulísubækur, vatnslitakassar, skrúfblýantar, bolt-
ar o. m. m fl.
Opið til kl. 12 í kvöld.
Bókabúð Mdls og menningar
Skólavörðustíg 21, sími 5055.
APPELSÍNUR með sól í hverjum dropa fást í hverri búð