Tíminn - 05.01.1954, Blaðsíða 7

Tíminn - 05.01.1954, Blaðsíða 7
J5. blað. TÍMINN, þriðjudaginn S. janúar 1954, Frá hafi til heiba Hvar eru skipin Sambandsskip: Hvassafell losar í Helsingfors. Arnarfcll fór frá Hafnarfirði 26. des. til Rio de Janeiro. Jökulfell r frá Fáskrúðsfirði í morgun til Boulogne. Dísarfell er í Leith. lá- fell er á .eyðisfrði. Kíkisskip: Hekla er á Austfjörðum á norður leið. Esja kom til Akureyrar í gær- kveldi á austurleið. Herðubreið var i á Hornafirði siðdegis í gær á suður j leið. Skjaldbreiö fór frá Reykjavík , í gærkveldi vestur um land til Akur | eyrar. Þyrill verður væntanlega á Akureyri í dag. SkaftfeUingur fór frá R\úk í gærkveldi til Vestm-nna eyja. Eimskip: Brúarfoss er í Rvík. Dettifoss er frá Rotterdam i dag 4. 1. til Ant- verpen og Hamborgar. Goðafoss fór frá Rvík 30. 12. til Ventspiels í Let landi. Gullfoss fer frá Kaupmanna höfn á morgun 5. 1. til Leith og Rvíkur. Lagarfoss fer frá Rvík ann að kvöld 5. 1. til N. Y. Reykjafoss fer frá Akureyri kl. 24 í kvöld 4. 1. til Siglufjarðar og ísafjarðar. Sel- foss kom til Hamborgar 3. 1. Fer þaðan væntanlega 6. 1. til Rvíkur. Tröllafoss fór frá Rvík 27. 12. t.il Prince Edward Island, Norfolk og N. Y. Tungufoss kom til Áhus 31. 12. Fer þaðan til Helsingfors, Kotka, Hull og Rvíkur. Vatnajökull fór frá N. Y. 29. 12. til Rvíkur. Ur ýmsum áttum Bólusetning gegn barnaveiki. Pöntunum veitt móttaka í drg kl. 10—12 f. h. í síma 2781. Myndlistaskólinn í Reykjavík Laugaveg 166 (sími 1990), hefur starfsemi sína að nýju n. k. fimmtu dag þ. 7. þ. m. í kvölddeildum fullorðinna cru kennarar sem fyrr Ásmundur Sveins son í höggmyndalist, Hörður Ágústs son í málaralist og Kjartan Guð- jónsson í teikningu og málaralist. Innritun í barnadeildir kólans fer fram n. k. miðvikudag þann 6. þ. m. frá kl. 5—7 e. h. Kennari barnanna er frk. Valgerður Árna- dóttir Hafstaö. Glímufél. Ármann. Fimleikadeild. Æfingar í karlafiokkum, öldunga og drengjaflokk hefjast í kvöld á sama tíma og áöur. Mætið vel og réttstundis. Gjafir, sem borizt hafa skrifstofu R.K./. til fólksins á Heiði: Guðjón 60, ónefnd 100, H.F.P. 50, Hildur 100, Margrct 100, ónefndur 30, Einar 50, G. J. 200, J. K. 100, Sigrún 100, S. S. 200, X. 100, Gam- all 50, Kristín 100, N. N. 20, ónefnd- ur 100, K. 20, G. R. 30, J. J. 200. Enn fremur hafa borizt fáeinar fata- gjafir. — Rauöi kross íslands. Árnab heilla Hjónaband. Gefin vor saman í hjónaband 30. des. s. 1. í Birmingham ungfrú Ás- dís Helgadóttir frá Seglbúðum og Einar Haukur Ásgrímsson stud. polyt. Bárður (Framhald af 8. síðu.) stjórn, ef þaö skyldi bera upp á sama daginn, sem ekki er ólíklegt, að hann næði heim tit föðurhxisa Sjálfstæðisflokksins og yrði kosinn í bæjarstjórn. StyrUþeginn í baðherberyinu: Sökin játuö en reynt aö skella henni á aðra Framfærslufulltrúarnir í Reykjavík hafa nú gefizt upp ' við að verja aðfarir sínar í máli Jóhanns Benediktsson-! ar, styrkþegans sem þeir létu búa hjá ósambýlishæfum | manni, svo að hann varð að flýja að heiman með konu og barn og leita til Hjálp-| ræðishersins, þar sem hann varð um skeið að búa í bað- herbergi af því að fram-; færslufulltrúarnir neituðu honum um alla fyrirgreiðslu j og skipuðu honum að fara heim. í þess staö hafa fulltrú arnir nú skriðið undir nafn- J lausa gæru Moggans og, tekst vörnin sýnu verr en; fyrr úr því vígi á gamlárs-j dag, enda fer bezt á því, þarj sem hér er fremur um að, ræða almenna mynd af fram' Aðalfnntliir Tryggiíigar h.f. Aðalfundur Trygging h. f. héfri nýlega verið haldinn. f erði bæj arst j órnaríhaldsins í Reykjavík en undantekn- ingum slysinna framfærslu- fulltrúa. í Moggagreininni á gaml- ársdag eru nú allar sakir, sem Tíminn hefir fram bor- ið í þessu máli játaöar. Þar! er játað, að granni Jóhannsj sé ósambýlishæfur, enda hafa þeir þótzt sjá, að ekki tjáöij að berja höfðinu lengur við[ steininn, er læknisvottorðið var birt. Þá er og vist manns ins í baðherberginu játuð. En nú er það fangaráðið að skella öllum þessum ósköp um á aðra menn, og er þá ekkert lengur af þeim dregið, þegar von sýnist til þess að það megi takast. Nú segir Mogginn, að alþingismaður Suður-Þingeyinga, sem einn ig sé oddviti Húsavíkur- hrepps (sic) hafi vistað Jó- hann í baöherberginu og fé- lagsmálaráðherra hafi átt að f j arlægj a hinn ósambýlis- hæfa mann. Þetta hálmstrá er sannkallað sinustrá, og sannleikurinn veröur þeim hjá Mogganum hált svell eins og áður í þessu máli. Alþingismaður S.-Þingey- inga er ekki „oddviti Húsa- víkurhrepps.“ Húsavik er kaupstaður á Norðurlandi og bæjarstjórinn þar er komm- únisti, enda stjórna kommar og kratar bænum saman um þessar mundir. Alþingismað- ur S.-Þingeyinga hefir hvorki vistað Jóhann Benediktsson á Hernum eða annars stað- ar. Jóhann kom hingað til bæjarins 5. sept. 1952, en ekki s. 1. vor eins og hinir sannleikselskandi fram- færslufulltrúa'r sögðu, og hann kom hingaö sunnan úr Garði, þar sem hann hafði dvaliö ár. Það er og tilgangslaust fyr ir Moggann að ætla að skella þeirri skuld á félagsmálaráð- herra að hafa látið Jóhann búa í bragga með ósambýlis- hæfum manni. Þar er höfuð- 'sök framfærslufulltrúanna sjálfra, sem létu Jóhann í braggann til mannsins, þótt þeim væri kunnugt um hvern ig hann var. Þeir vissu, að hann var ósambýlishæfur, og þess vegna var það óverj- andi að láta í íbúð til hans mann, sem ekki vissi um þetta og það án þess að vara hann í nokkru við. Sagan um „styrkþegann í baðherberginu" mun loða við bæj arstj órnaríhaldið héðan af. Það hefir játað sakir sín- ar í þessu máli en það er til- gangslaust örþrifaráð að ætla að bjarga sér úr kútnum með því að kasta sökinni á aðra. Fjölmennt afmælis- hóf slysavarnadeild- ar á Eyrarbakka Um áramótin var haldið upp á 25 ára afmæli slysa- varnadeildarinnar Bjargar á Eyrarbakka. Samkomunni, sem var fjölsótt, stýrði Guð- laugur Eggertsson formaður sveitarinnar. Mikið af yngra fólki tekur þátt í samstarfi sveitarinnar, enda ýmsir af stofnendunum fallnir frá. Stofnandi slysa- varnadeildarinnar og fyrsti formaður var Þorleifur Guð- mundsson. Á afmælissamkomunni var margt til skemmtunar, leik- þáttur, kvikmynd, ræður og söngui'. Henry Hálfdánarson skrifstofustjóri Slysavarnafé- lags íslands sat afmælishófið af hálfu Slysavarnafélagsins. Bískupsbréfiu (Framhald af 1. síðu.) ekki einu sinni, hvort þar eru stéttarbræður þeirra að gefa þeim heilræði eða ein- hverjir aðrir óviðkomandi menn. Sfe'iistjifiwriwii'mi? Ræddi um nafnlaus dreifibréf í stólræðu. Það vakti og athygli manna, aö séra Jón Auðuns, dómprófastur, ræddi um nafnlaus dreifibréf í stól- ræðu nú um hátíðarnar. Mun hann aðallega hafa átt þar við hin sænsku bisk upsbréf, sem vakið hafa geysilega athygli, en mörg- um þeim, sem frétt höfðu um hin íslenzku dreifibréf þó fundizt, að hann hefði þau þar öðrum þræði í huga er hann deildi á slíkan verknað. Hvaðan eru bréfin runnin? Þar sem hin íslenzku dreifibréf eru nafnlaus og engin rannsókn mun enn hafa farið fram á málinu, er ekki hægt að segja um, hvaðan þau eru komin, hvort þau eru komin frá Í1- lenzkum prestum, sem margir munu eiga erfitt með að trúa, eða hér eru að verki einhverjir aðrir, sem vilja með þessum óviðkunn anlega hætti blanda sér í biskupskjörið. Hér er um svo sérstakt og óviðfelldið mál að ræða, að þörf væri á að fá það upplýst að fullu með einhverjum ráðum. Það mun þó óhætt að full yrða, að Magnús Jónsson, prófessor, á hér engan hlut að máli né menn, sem hon- um eru nákomnir, enda mun hann hafa tjáð eindreginn vilja sinn, sem hann hyggst ekki hvika frá, er hann gaf yfirlýsinguna um það, að hann vildi ekki gefa kost á sér. Sænska skipið náðist Ot og komið á sand við Kiepp í fyrradag tókst að ná á flot sænska skipinu Hanön, sem strandaði við Engey fyrir jólin og hefir legið þar síðan. Skipið er mikiö skemmt og var það dregið á flóði inn á Kleppsvík, þar sem það stendur á þurru um f jöru. Maður frá'tryggingarfélag- inu er væntanlegur frá Lond- on í vikunni. Mun hann at- huga skemmdirnar á skipinu og ganga úr skugga um það, hvort tiltækilegt er að gera viö skipið. Það er gamalt og búiö að lifa sitt fegursta og því álitamál, hvað miklu skal kosta upp á viðgerð þess. Er skipa nú, Othar Ellingsen verzl.stj., Geir Borg forstjóri, Kr. jóh. Kristjánsson for- stj óri, Sigurður Guðmunds- Tryggingariðgjöld félagsins son forstjóri og Helgi Magn- uxu á áririu. Stj órn félagsins1 ússon kaupmaður. það tryggingarfélagsins að skera úr um það, hvort heldur skal greiða tryggingarupphæð ina eða gera við skipið og skila því jafn góðu. Skipið náðist út á flóði. Var þá mun hærra í en þegar það strandaði. Dælt var sjó úr skip inu, eins og hægt var og létt- ist þaö þá svo, að hægt var að draga það af strandstaðn- um. Var björgun þess léttari en margur hafði látið sér til hugar koma. Stóð skipið á stór grýttum botni. Gat því brugð- ið til beggja vona um björgun. Landlielgisgæzlan vann að björgun skipsins. V estmannaeyj ar (Framhald af 1. síðu.) ir aðilar verða þátttakendur frá þessum áramótum. Matt- hías sonur Ástþórs stýrir fyrir tækinu heima fyrir. Ástþór mun sjálfur annast fram- kvæmdastjóírn út á við og verða búsettur í Reykjavík, eða í Danmörku. Fiskimjölsverksmiðjan í Eyjum hefir greitt 325 krónur fyrir smálest af fiskúrgangi við verksmiðjudyr á árinu sem var að líða. Smáíbiiðaláuin (Framhald af 1. síðu.) verið útvegaðar 10,4 millj. kr. að láni tvö seinustu árin, svo að þeim yrði kleift að koma sér upp eigin húsnæði. Ekkert slíkt var gert meðan svokall- aðir verkalýðsflokkar áttu sæti í ríkisstjórninni og því síður hefði slíkt verið gert að frumkvæði Sj álfstæðisflokks- ins. Barnaskemmtuii (Framhald af 8. síðu.) stofu flokksins í Edduhiis- inu í dag fyrir hádegi, ann- ars verða þeir seldir öðrum, sem bíða eftir miðum. Mjög vel er til fagnaðar ins vandað. Jólasveinn kem ur í heimsókn og myndir verða teknar af börnunum. Góða skemmtun, krakkar! CtbreiðlS Tímasm e&u&eci&íj % ■iliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiuiin |10 þús. kr.j |HVER VILL lána ungumf | manni í sveit 5—10 þús. I | krónur í 2—3 ár, eða | I eftir samkomulagi. Vext I I ir 5%. f Ef einhver kynni að = | vilja sinna þessu, þá | I sendi hún eða hann | | nafn sitt og heimilis-1 1 fang í lokuðu umslagi \ I til afgreiðslu Tímans § | fyrir 1. febr., merkt i | „Sveitamaður.“ •fiuiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiitmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiium 4IIIIIIIIIIll>lllllllllllllllllllIIIIIIIII>l*llllllllll*llllll*II*IB«» I Tek á rraóti j | sjúkiingum | að Háteigsvegi 1. I (Apótek Austurbæjar). | Iþriðjudaga og fimmtudaga | | kl. 3—5. Sími 5819. | Jóhann Sæmundsson, | prófessor, | dr. med. | ■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiifiimii SKIPAUTGCRÐ RIKISINS M.s. ESJA vestur um land í hringferð hinn 12. þ. m. Tekiö á móti flutningi til áætlunarhafna vestan Raufarhafnar á morg un og fimmtudag. Farstðlar seldir árdegis á mánudag. Skaftfellingur Tekið á móti flutningi til Vestmannaeyja daglega. Margir Austfj arðabátar (Framhald af 8. síðu.) farnir til sjósóknar enn þá. Vertíðin i fyrra gafst illa frá Stöðvarfirði, enda eru þar ekki nema tveir stórir bátar til sjósóknar á fjarlægari mið. Að undanförnu hefir ekki gef- ið til sjósóknar á trillunum. Afli var hins vegar með betra móti þá sjaldan að hægt var að komast á sjó í haust. En heldur þótti mönnum lang- sótt og erfið sóknin á opnum trillum i ótryggum haustveðr- um. Frystihús kaupfélagsins á Stöðvarfirði vinnur úr þeim afla, sem þar kemur á land.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.