Tíminn - 21.02.1954, Side 4

Tíminn - 21.02.1954, Side 4
 ' TÍMINN, simnudaginn 21. febrúar 1954. 43. blað. (PramhalíJ af 3. siðu.) hans, minni ágætu skólasyst- ur, Þjóðbjörgu Þórðarúóttur. Að iokum óska ég aimælis- barninu og fjölskyldunni allra heilla á ókomnum árum. Bjarni Bjarnason. Nafn Jörundar Brynjóifs- sonar sá ég fyrst fyrir nál. 40 árum á kennsiubck í reikn- ingi, sem hann, ásamt cðrum hafði þá nýlega samið til aí- nota fyrir alþýðuskóla. 10 ár- um síðar sá ég hann í.íyrsta sinn, í söiúm Alþingis. En fyrstu persónulegu kynni mín af honum voru þau, að ég var gestur hans eina sumarnótt á Skálholtsstað. Eftir það urðu kynni okkar meiri, og fyrir tuttugu árum höguðu örlögin því svo, að við uroúm sam- starfsmenn á Alþingi og höf- um verið það lengst af síðan. Þvi er það, að mig, nú á sjö- tugsafmseei hans, fýsir a.5 íara nokkrum örðum-um al- þingismanninn Jcrund Brynj ólfsson, þótt vera megi, að til þess verði einnig elnhverjir aðrir mér færari. Jörundur var kosinn á þing í fyrsta sinn fyrir 38 árum (1916) og hefir setið þar jafn an síðan, að einu kjörtíma- bili undanskildu, en þá bauð hann sig ekki fram. Fýrsta kjörtímabilið var hann þing- maður Reykvíkinga. Var framboð hans, hið fyrsta, í höfuðstaðnum stutt af hinum ungu verkalýðssamtökum í þann tíð svo og af Sjálfstæð- ismönnum beim, er þá báru það nafn. Hefi ég heyrt til þess tekið af þeim, er það muna, hve skörulega þessi ungi maður haíi þá gengið fram í kosningahríðinni, enda hlaut hann þá fleiri atkvæði en nokkur frambjóðandi ann Jörundur Brynjólfsson ar í Reykjavík. Næst var hann eftir stofnun Framsóknarfl., kosinn á þing í Árnessýslu árið 1923 og hefir síðan verið endurkjörinn í því héraði níu sinnum, jafnan sem fyrri þing maður kjördæmisins. Hann er því búinn að vera þing- maður Árnesinga í 30 ár sam fleytt. Kosningabarátta þar í héraði hefir oft verið - hörð á þessum þrem áratxigum og fast að Jörundi sótt og án hlífisemi á ýmsum vettvangi, svo sem verða vill. Hefir hann og fátt haít sér til brautar- gengis, nema mátt sinn og megin — og málstað góðan — svo sem auðsætt er, maður aðkominn í héraði við bú bundinn. Hefir og iítt leitað sér liðs í kosningum, en nið- urstaðan þó sú, er fyrr var greint. Felst I þessu mannlýs- ing nokkur óbein, þótt eigi sé um það íleira sagt. Það munu þeir sennilega gera, sem bet- ur þekkja Jörund heima í hér aði en ég hefi átt kost á. Ég hygg það ekki ofmælt, að Jörundur Brynjólfsson sé einn þeirra manna, sem sett hafa svip á Alþingi undan- farna áratugi. Þess má þá fyrst geta, sem ýmsum þykir miklu skipta, er stjörnmála- menn eiga í hlut, að hann er ræðumaður góður, og mál- far hans til prýði. Framkom- an örugg og djarfmannleg, og maðurinn hinn vaskasti í hví- vetna, reifur í máli og við- talsgóður, en vegur þó orð sín jafnan. Svo sem kunnugt er var Jörundur varaforseti og forseti neðri deildar hátt á anan áratug, en um nokkur undanfarin ár hefir hann ver ið varaforseti í sameinuðu þingi, unz hann nú á síðastl. hausti var kjörinn forseti Al- þingis. Hann mun hafa stýrt fleiri fundum á Alþingi en nokkur maður annar, sem nú er á þinginu, og jafnan með þeim skörungsskap, að vart er uní deilt. Hann er maður gerhugull og glöggskyggn á menn og málefni, og fljótur að átta sig á hvers konar hræringum og fyrirbrigðum í heimi stjórnmálanna, enda reynsla hans í þeim efnum svo mikil, að fáir hafa nú slíka. Að'aláhugamál hans eru landbúnaðarmálin, svo og þau mál önnur, er sérstakl. varða sjálfstæði ísl. og þjóð- lega menningu. Hann hefir gott lag á að koma fram mál- um og hefir hérað hans cft notið þess. Á þingfundum tek ur hann fremur sjaldan til máls núorðið, enda hefir hann mjög vanizt því í löngu for- setastarfi, að vera fremur þögull áheyrandi en þátttak- andi i umræðum. En á flokks- fundum í Framsóknarfolkkn um gefst okkur, nánustu sam starfsmönnum hans, þess oft kostur að hlýða á mál þessa vökula, varfærna og lífsreynda manns, sem á lengri þingsögu að baki en nokkur okkar hinna. Okkur grunar þá stundum, að hvöss augu hans sjái sumt skjótar og betur en okkar augu, þótt yngri séu og óþreyttari ættu ! að vera. Stundum leikur hann jþá iþrótt í ræðu, sem aðrir ! kunna misvel, að haga svo Imáli sínu, að eftirvæntingu I veki og nokur vafi geti á leik . ið um niðurstöðu, unz að henni kemur. En að jafnaði mælir hann ekki á neinni tæpitungu um það, sem hon- um þykir til óþurftar vera. Eins og nærri má geta, hef ir Jörundur víöa komið við sögu á hinum langa þing- fundi sínum, þótt eigi verði hér rakið.Á það má þó minna, að hann var formaður milli- þinganeíndarinnar j land- búnaðarmálum, sem skipuð var eftir fyrstu stjórnar- myndun Framsóknarflokks- ins 1927 og leysti af hendi árangursríkt starf. Einnig vann hann i milliþinganefnd um að setningu laxveiðilög- gjafarinnar og raforkulög- gjafarinnar, svo að drepið sé á einhver hinna helzfu stór- mála, er hann hefir látið til sín taka. Hann hefir og mjög lengi verið einn af yf- irskoðunarmcnnum ríkis- reikniríganna, til þess kjör- inn af Alþingi. Þekking hans á lcggjafarstöríum og; ríkis- rekstrinum er því að sjálf- sögðu mjög mikii. j Margir munu um þessar mundir verða til þess á ein- hvern hátt, að tjá Jörundi Brynjólfssyni virðingu sina og þökk fyrir langan og anna- saman starfsdag,. og vænta þess um leið, að sá: dagur sé þó enn langt frá því að vera að kvöldi kominn. 1 G. G. $5555555S5Í5555$55S5555555555555$5555$5555555Í5S553555555555555555555553I er til sölu. Skipið er 149 brt., byggt úr stáli níeð; ný- ísettri ra. 500 ha. diselvél, gangharaði 10—11 sjóm/ Skip og vél í Veritas klassa. í skipinu er ný togvinda, 2 Lister-diesel hjálparvél- ar,- miðstöövarhitun og raflýsing. Eldsneytisgeymar rúma 26 smál, sem er íorði til 3ja—4ra vikna útivistar. Vegna vélaskipta hefir lestarrými skipsirís áúkizt um 18—20%. Upplýsingar gefur Jón N. Sigurðsson hrl. Laugaveg 10, Rvík. Sími 4934 i í Skriðbelti. 11 h.a. loftkæld dieseldráttarvél Deutz-dráttarvélar með loítkældum dieselvélum Áhugi bænda fyrir dráttarvélum með dieselvélum hefir glæðzt mikið með hækkandi verði á benzini og er það eðlilegt, þar sem olíukostnaður diesel-j véla er aðeins um fjórði hluti af bensínkostnaði við sömu afköst. Deutz-, dráttarvélarnar eru með loftkældum diselvélum og hefir loftkælingin í för með sér einfaldari byggingu vélanna, viðkvæmt kælivatnskerfi hverf ur, auk þess sem slit og olíueyðsla minnkar. Samkvæmt opinberum skýrsl um orsakast fimmta hver mótortruflun af bilun í vatnskælikerfi. Deutz-dráttarvélarnar eru framleiddar í stærðunum 11 h.a., 15 h.a., 30, h.a., 42 h.a. og 60 h. a. 11 h. a. Deutz-dráttarvélin er ir.jög hentug til heyvinnslustarfa, vi%garð ræktun og við létta jarðvinnslu. íltsöluverð er kr. 21.700.00. 15 h.a. Deutz-dráttarvéiin er hentug til allra heyvinnslustarfa, járð- ræktar og amrara landbúnaðarstaría. Útsöluverð er kr. 29.800.00. Leitið upplýsinga um Deutz-drátíarvélarnar með loftkældu dieselvélunum i a t- u a a it a u c u =>' a a e a a c i Flutninsskassi með sturtu amar í ^/AVVVV^%%VAV.%WVWWWV*.WA,Ark»/AW«WJ,WWyVVAVA,A?."kW^W//WAVWAWA’/W.V.’.,Vi.W.V.V.-AV.V.V.a.W.W.V.V.’JVA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.