Tíminn - 31.03.1954, Blaðsíða 6

Tíminn - 31.03.1954, Blaðsíða 6
 TÍMINN, miðvikudaginn 31. marz 1354. 75. blaS. BTÖDLEIKHtíSID j Piltur og stúlha | Sýning í kvöld kl. 20. 35. sýning. — UPPSELT Næsta sýning föstudag ki. 20.00. SÁ STERKASTl Sýning fimmtudag kl. 20. Næst síðasta sinn, Pantanir sækist daginn fyrir sýn ingardag fyrir kl. 16. Annars seldar öðrum. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15—20,00. Tekið á móti pönt unum. Sími: 812345. Tvær línur. Heitt brenna æskuástir (För min heta ungdomsskuil.) Afburðagóð ný, sænsk, stórmynd um vandamál æskunnar. Hefir alls staðar vakið geysilega at' hygli og fengið einróma dóma sem ein af beztu myndum Svía. 1 Þessa mynd ættu allir. að sjá. Maj-Britt Nilsson, Folke Sundgist. Sýnd kl. 5, 7 og 9. NYJA BÍÓ — 1544 — Heimtir úr helju (Thee Came Home.) Stórbrotin og alvöruþrungin amerísk mynd byggð á sannri frásögn Agnes Keith, sem dvaldi í fangabúðum Japana um ára- bil: Bönnuð börnum yngri en 16 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð fyrir börn. TJARNARBIO Hin gullna Salamandra (The Golden Salamander) Óvenju spennandi og viðburðarík ný, brezka mynd, afar vel ieikin og nýstárleg. Aðalhlutverk: Trevor Howard og franska leikkonan træga Anouk Myndin er tekin i Tunis. Bönnuð börnum. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ — HAFNARFIRÐI - Sunnudagur í ágást ítölsk verðlaunamynd, er sýnd var í meira en ár í stærsta kvik myndahúsi Parísar. — B. T. gaf myndinni fjórar stjörnur. Anna Balini, Franco Interlenghi. Myndin hefir ekki verið sýnd áður hér á landi. — Danskur Bkýrlngatexti. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 0184. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< Gerist ttskrifcndur cð «7 AUSTURBÆJARBIO Hans og Pétur í KVENNAHLJÓM SVEITINNI (Fanfaren de Liebe) Bráðskemmtileg og fjörug, ný, þýzk gamanmynd. — Danskur texti. Aðalhlutverk: Dieter Borsche, Ingt Egger, Georg Thomalla. Þessi mynd, sem er ein bezta gamanmynd, sem hér hefir lengi sézt, á vafalaust eftir að ná sömu vinsældum hér og hún hefir hlot ið í Þýzkalandi og Norðurlönd- um. Sýnd kl. 5 og 9. Tregari afli í síðustu viku Afli Faxaflóabáta varð heldur lélegur í síðustu viku. '■ Virðist svo sem fiskurinn! hafi horfið með loðnunni um ! síðustu helgi. í nokkrum ver stöðvum hafa bátar reynt að beita síld í stað loðnunnar, en þá hefir aflinn jafnvel verið ennþá minni. Sjómenn eru hins vegar vongóðir um að enn sé mikill afli ókominn á land, enda er sýnt að meiri fiskur er nú en undanfarnar vertíðir. Uetjuf SKÓGARINS eftir J O. CURWOOD 27. GAMLA BIO — 1475 — Sleginn út (Right Cross) Spennandi, ný, amerísk Metro Goldwyn Mayer kvikmynd um ungan hnefaleikara. June Allyson, Dock Potcell, Richardo Montalban. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLI-BIO Slmi 1182. Völ iin arli iisið (The Maze) Óvenju spennandi og tæknilega vel gerð 3-víddarmynd, gerð eftir samnefndri sögu eftir Maurice Saudoz. Aðalhli^tverk: Richard Carlson, Veronica Hurst. Venjulegt aðgöngumiðaverð, að viðbættri gleraugnaleigu. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Allra síðasta sinn. Bönnuð börnum innan 16 ára. HAFNARBÍÓ — Sími 6444 — Sýnir hina umdeildu ensku skemmtimynd: Kveimholli skipstjórimi (The Captains Paradise.) Mynd þesl, sem f jallar um skip-1 stjóra, sem á tvær eiginkonur, sína í hvorri hejjnsálfu, fer nú sigurför um allan heim. En í nokkrum fylkjum Bandaríkj- anna var hún bönnuð fyrir að vera siðspillandi. — Aðalhlut- verkið leikur enski snillingur- inn Alec Guinnes, ásamt Celia Johnson. Aukamynd: Valin fegurðar- drottning heimsins (miss tfni- vers) árið 1953. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ TRICO hreiMAr allt, jafnt gólfteppi sem fínasta silkivefnað. Heildsölubirgðir hjá CHEMIA H. F. tmkMðHla keto»«fmjrB. •J X SERVUS GOLDlO f______________íL/'vn .0.10 HOLLOW GROUND 0.10 >mra YELIOW BLADE mni cp' Kommánisti ræðst á regluboða (Framhald af 5. síðu.) manna. Slíkt starf hefir ver- ið unnið í mörgum löndum, og árangurinn sjálfsagt stund um minni en til var ætlazt, enda lítt í minnum hafður. En „Iausnarorð“ þeirra komm únistanna gleymist áreiðan- lega engri þjóð, sem komizt hefir í kynni við það af eigin raun. í þeirra slóð um helm- ing tveggja heimsálfa rignir blóði og tárum milljóna, sem hafa orðið fórna,rlömb hins mikla „lausnarorðs“ ofstækis- manna með mannkynsbölið „á vörunum“. X. Skaðræðismenii, er stela hjörtuimm (Framhald af 3. siðu.) að illt, en illt gott, eins og ritningin kemst að orði. „Vei“ slíkum, hrópar hún yfir þá. Fyrir þeim hlýtur ávallt að fara að lokum eins og Absa- lómi. Afdrif hans urðu hörmu leg, og að síðustu verða mannskemmdamennirnir, rógberarnir, þjónar undir- byggjunnar og Marðariðj- unnar, háðung allra manna. „Vegur þeirra endar í veg- leysu“. Mikið blóð heiir runnið og mikil spilling átt sér stað í sambúð manna og þjóða sök- um skemmdarverka þeirra, er stela hjörtunum, stela holl- ustu manna frá því, sem á að vera þeim heilagt mál, svo sem þjóðrækni og ræktarsemi .við manngöfgi og góða siði. Varið ykkur á skaðræðis- mönnunum. Pétur Sigurðsson. Islendingaþættir (Framhald af 3. síðu.) ur hafa eignast átta börn, fjóra sonu og fjórar dætur, og eru þau öll á lífi. Börnin eru öll myndarfólk, og reka nú flest búskap af svipaðri atorku og foreldrar þeirra gerðu. Einn sonanna er for- stjóri fyrir samyrkjubúi Egilsstaðakauptúns. — Þessi börn þeirra Hallbjarnarstaða hjóna og barnabörn eru nú annar stærsti frændbálkur- inn í dalnum. Meðal Skriðdælinga eru menn ágætlega máli farnir, sem kunna vel að koma fyrir sig orði við hátíðleg tæki- færi. Fór samsætið að Haug- um hið bezta fram við ræðu höld og söng og stóð yfir til klukkan fjögur um nóttina. Voru heiðursgestirnir að fornum sið, leystir út með veglegum göfum. Vallanesi 22. marz Pétur Magnússon — Þessi koss veitir þér fyrirgefningu hundrað synda, sagði hún blíðlega. — Ég vona, að bréfið veiti þér ham- ingju. Hjarta Cliftons sló örar við að sjá þá ástúð, sem ríkti milli systkinanna. Ástarsvipurinn, sem kom á andlit Antoinette var eins og sólargeisli, sem'^llt í einu brýzt fram undan skýjaflóka. Slíkt ástartillit mundi veita hvaða manni sem væri afl og þor til að berjast til þrautar. Gaspard leiddi Clifton upp í lítið þakherbergi, sem búið hafði verið sem gestaherbergi. Clifton tók upp beztu klæði sín og Gaspard sýndi honum annað herbergi innar af, en þar var hið fegursta baðker úr postulíni. — Hér er mesti stásshlutur hússins — baðkerið. Það er. heitt vatn í hægri krar.anum en kalt í þeim vinstri. Kerið er þrisvar sinnum fjögur fet að stærð, svo að þú skalt steypa þér varlega í það. Afsakaðu mig svo andartak með- an ég les bréfið frá Angelique. — Já, blessaður láttu mig ekki tefja lengur fyrir þér. Hann var að ljúka við bað sitt, þegar Gaspard kom þjót- andi inn til hans aftur, og var nú ægireiður að sjá á svip- inn. — Gleði, ekki nema það þó. Þetta bréf er fullt af ásök- unum og kvenna flærð. Svikin skína út úr hverri línu, og þessu er kastað í höfuðið á manni eins og fuglaskít. Ég skal svei mér —-------. — Nú, hvað stendur eiginlega í þessu bréfi, maður? spurði Clifton hvatlega. — Stendur — það er ekki einu sinni minnzt á mig. Það er ekkert nema lýsingar á þessum andstyggilega Ajax Trappier, hve fallegir hestar hans séu, og hver ágætismað- ur hann sé sjálfur að bjóða henni í ökuferð á hverjum sunnudegi. Þetta er smán, og mig þyrstir í blóð hans. Hvers vegna er hún að ergja mig með öllu þessu skvaldri um þennan spjátrung, sern keypti sig lausn frá herþjónustu. — Ég veit það svei mér ekki, en ég skal reyna að geta mér þess til, ef ég fæ að sjá bréfið. Gaspárd rétti honum bréfið, sem hann hafði vöðlað sam an í reiði. Við lesturinn gat Clifton ekki annaö en brosað, en svipur Gaspard varð enn þungbúnari. — Þetta liggur i augum uppi, sagði Clifton að lestrinum loknum. Faðir Alphonse hefir alveg rétt fyrir sér. Það ert þú sem ert heimskinginn í þessu máli, Gaspard, fyrst þú sérð ekki þeg ar í stað, að ungrú Fanchon er að sálast af ást til þín, og hún notar aðeins þessa venjulegu' aðferð kvenfólksins til þess að koma vitinu fyrir þig og reyna að fíýta för þinni til sín. — Hún heldur, að ég sé aöeins umrenningur og geti ekki ,fest mig við neitt, af því að mér gezt betur að skóginum og stórfljótunum en að hirða um hesta og svín. — En þú elskar hana samt, er það ekki? — Jú, ég elska hana af öllu hjarta. — En þú vilt ekki fórna svo miklu fyrir ást þína að setj- ast að sem bóndi? — Jú, ég gæti hugsað mér það, en ég kann ekki við að láta þvinga mig til þess. — Hvað ætlar þú þá að gera? — Ég ætla að heimsækja þennan Ajax Trappier og skora hann á hólm, og síðan ætla ég að brjóta hvert einasta beiii í skrokk hans. — Ekki nema það þó. Hún ætti annars að frétta það, því að þá mundi hún kannske gráta úr sér augun af ótta við að þér yrði misþyrmt í bardaganum. En ég held, að slík við ureign mundi samt vera til bóta, hvor sem sigur bæri úr býtum. — Heldur þú í alvöru, að hún elski mig? — Já, það er ég viss um. Ég skil það aðeins ekki, hvers vegna hún leggur svona mikla áherzlu á það, aö þú setjist að sem bóndi. — Ó, henni er þetta í blóðið borðið. Langa-langafi henn ar settist að í Saint Felicien fyrir 160 árum, og Fanchon- fjölskyldan hefir búið á sama blettinum síðan. Angelique þykist vera hreykin af því og kertir hnakkann. Þetta er stórbýli, og hún er eins og drottning þarna nyrðra. Gaspard yppti öxlum. — í kvöld mun þér verða sagt, hvernig á þvi stendur, að St. Ives fjölskyldan er nú nær eignalaus, og karimaður af þeirri ætt er getur ekki lifaö af eignum konú sinnar. Nú er ég búinn að létta á hjarta mínu og segja þér allt. Hann gekk til dyra sneri sér þá við. — Þú kemur niður, þegar þú ert tilbúinn, Clifton. Þegar hann var farinn, rakaði Clifton sig og klæddist. Honum fannst sem hann stæði nú við dyr mesta ævintýris lífs síns, og það var ekki ómögulegt, að Antoinette St. Ives kæmi við sögu í því ævintýri, væri ef til vill lífiö og sálin í því. Antoinette St. Ives sat í stofunni og beið hans, þegar hann kom niður. Bróðir hennar hafði gengið eitthvað frá. Hún sat álút og var að lesa. IJár hennar ljóst sem geiðslaflóð lá um herðar hennar, og augu hans ljómuðu af aðdáun. j — Nú, þarna kemur bardagamaðurinn, sagöi hún glað- lega og leit upp. Bróöir hinn hefir sagt mér, hvernig þér

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.