Tíminn - 13.04.1954, Blaðsíða 2
TÍMINN, þriðjudaginn 13,‘apríl 1954.
B6. blaff.
Glaðui* forst
(Pramhald af 1. síSu.'-
beinlínis bjargar lífi sínu
með því að slíkir gúmmbát-
ar voru í bátum, sem fórust
á rúmsjó.
Skipverjar höfðu nokkurt
afdrep í gúmmíbátnum, þar
sem yfir hann er tjaldað til
skjóls. Rak þá nú stjórnlaust
undan sjó og vindi í 22 klst.
Ekki höfðu þeir önnur mat-
föng meðferðis en það, sem
eftir var í einum nestiskassa
skipverja, er þeim tókst að
ná með sér, er báturinn sökk.
Allir voru þeir blautir og
kaldir eftir að hafa lent í
sjónum er þeir björguðust í
gúmmíbátinn.
Á sunnudaginn var alltaf
stöðugt hvassviðri og stór-
sjór og bar þá austur með
landinu nokkuð djúpt, en
alltaf höfðu þeir þó land-
sýn. Ekki urðu þei’r varir við
neinar skipaferðir.
Aðfaranótt mánudagsins
lægði veðrið heldur, en það
versnaði_ aftur með morgn-
inum. í birtingu fóru þeir
félagar enn að horfa vonar-
augum eftir skipum.
Snemma morguns sáu þeir
skip, sem fór langt frá þeim
og nær landi. Hafði björgun-
arbátinn þá borið nokkuð
djúpt undan landi, um 50
sjómílur austur af Vest-
mannaeyjum, eftir því sem
síðar kpm í ijós.
Þorleifur fór utan á björg-
unarbátinn, er þeir sáu til
skipsins. Bundu þeir veifu á
ár, sem fylgdi bátnum, og
reyndu þannig að láta til sin
sjá. En það var árangurslaust
í þetta skipti.
Ekki leið þó á löngu, þar
til þeir urðu aftur skipa-
ferða varir. í þetta sinn kom
skipið til móts við þá og
tókst þeim að láta sjá sig.
Kom skipið til þeirra og
reyndist það vera brezkur
togari, Hull City, sem var á
leið frá Grimsby, beint á
Íslandsmíð.
Er skemmst frá því að
segja, að skipbrotsmennirnir
björguðust allir um Borð í
togarann og fengu þar hinar
ágætustu viðtökur. Má telja
mikið lán að togaramenn
komu auga á björgunarbát-
inn, því annars er óvíst hver
örlög þeirra félaga hefðu
orðið, er þá hefði borið lengra
á haf út og fjær skipaleiðum.
Togarinn fór með skip-
brotsmennina heim til Eyja
og þóttu þeir úr helju heimt-
ir, þar sem flestir höfðu talið
þá af.
Bæði Ægir og Fanney
höfðu leitað að Glað, er hans
var saknað, en líklega ekki
farið nógu langt. Flugvél leit
aði einnig í gærmorgun, en
án árangurs.
Eigendur Glaðs voru þeir
Þorleifur Guðjónsson skip
stjóri óg Þorgils Bjarnason,
sem var vélstjóri á bátnum.
Tíminn samfagnar
skipbrotsmönnum og ást-
vinum, sem heimtu þá heim
aftur úr þessari tvísýnu við-
ureign við ógnþrungið haf-
ið. Megi gæfa og gengi fylgja
þessum dugmiklu sjómönn-
um um alla framtíð, og öðr-
um starfsbræðrum þeirra.
Útvarpíd
ÍJtvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Erindi: Áfangar i réttindamál
um kvenna; síðara erindi
(Rannveig Þorsteinsdóttir, lög
fræðingur).
20,55 Tónleikar (plötur).
21,15 Náttúrlegir hlutir: Spurning-
ar og svör um náttúrufræði
(Guðm. Þorlákss. cand. mag.).
21.30 Undir ljúfum lögum: Carl
Billich leikur píanólög eftir
Chopin).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Passíusálmur (48).
22.20 Úr heimi myndlistarinnar. —
Björn Th. Björnsson listfr. sér
um þáttinn.
22,40 Kammertónleikar (plötur).
23.20 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulegá.
20.20 Lestur fornrita: Njáls saga;
XXXI. (Einar Ól. Sveinsson).
20,50 íslenzk tónlist (plötur): Kon-
sert fyrir þrjá saxófóna og
strengjasveit eftir Victor Ur-
bancic (Þorvaldur Steingríms
son, Sveinn Ólafsson, Vil-
hjálmur Guðjónsson og
strengjasveit Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar leika; höfundur-
inn stjórnar)i
21,05 Vettvangur kvenna. — Erindi:
Um Marian Anderson söng-
konu (Anna Þórhallsdóttir).
21,30 Einsöng'ur: Marian Anderson
syngur (plötur).
21,45 íslenzkt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson cand. mag.).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Passíusálmur (49).
22.20 Með kvöldkaffinu. — Rúrik
Haraldsson leikari sér um
þáttinn.
23,00 Dagskrárlok.
Svar forstjórans
I (Framhald af 8. slðu.)
vegis sem hingað til afgreidd-
ar á viðeigandi hátt af yfir-
'stjórn S.V.R.
Virðingarfyllst,
Strætisvagnar Reykjavíkur
Eiríkur Ásgeirsson
(sign.)“.
Niðurlag.
Áður hafði verið birtur fyrri
hluti bréfs forstjórans til vagn
stjóranna hér í blaðinu en nið
urlag þess hljóðar svo: „Vér
teljum það mikilsvert, að
Strætisvagnar Reykjavíkur og
starfslið þeirra njóti vinsælda
á meðal viðskiptavinanna,
fólksins, sem daglega ekur
með strætisvögnunum, og
treystum vér því, að þér gerið
það, sem í yöar valdi stendur,
til aö svo megi verða“.
STEF
(Framhald af 8. eíðu.)
Óbeint svar frá Gruenther.
Loks hefir yfirherstjórn
Atlantshafsbandalagsins í
Paris sent út frétt þess efn-
is, að bandalagið muni
stofna sérstaka menning-
ardeild til að annast sam-
vi'nnu milli bandalagsríkj-
anna, og fylgir það fréttinni,
að mál þetta hafi hingað til
orðið að bíða, vegna mikilla
anna í hervopnamálum. —
Sagt er, að HoIIendingur
nokkur muni verða ráðinn
til að stjórna þessari menn-
ingardeild bandalagsins.
Suraardraktirnar
komnar
Sambandið við
stjörnurnar og
blaðafregnir af því
Tíminn skýrir svo frá, að
rödd manns af annarri
stjörnu hafi heyrzt á fundi i
félagi Nýalssinna nýlega. En
á stálþráðinn, sem þarna skil
aði frá sér röddinni, hafði hún
komið af miðilsmunni, en í
miðilinn frá ábúum hinnar
fjarlægu stjörnu.
Ég býst við, að flestum þeim,
sem trúa þessu, muni þykja
það allnýstárlegt, en hinir
verða þó margir, sem telja
þetta hégóma einberan og
halda að miðillinn hafi verið
að blekkja viðstadda. Það er
nú mitt álit, að hvorki hafi
þarna verið um eintómar
blekkingar að ræða, né heldur
sé þetta svo mikil nýjung í
eðli sínu, að ekki hafi svipaðir
atburðir átt sér stað áður. í
stað þess að vera algert eins
dæmi, held ég, að samband
takist við ábúa annarra
stjarna svo oft, að ekkert sé
algengara. Það er manninum
eðlilegt að komast í slíkt sam
band í hvert skipti sem hann
sofnar. Hver einasti draumur
er að mér skilst tilkominn fyr-
ir áhrif frá mannverum á öðr-
um hnöttum og þá væntan-
lega draumar annarra manna
einnig. Ætla ég ekki að rök-
styðja þetta nánar hér, en að-
eins minna á, að ýmsir fræg-
ustu vísindamenn nútímans
viðurkenna hugsanaflutning
vísindalega sannaðan (en
reyndar getur hver sá, sem
þorir að treysta eigin viti,
sannað sér þetta sjálfur). Og
eigi hugsanaflutningur sér
stað manna á milli hér á jörð,
hví þá ekki milli jarðstjarna?
Ég er Tímanum vitanlega
þakklátur fyrir að sýna félagi
Nýalssinna þann áhuga, sem
lýsti sér í frásögn hans af
nefndum miðilsfundi, þótt
hún væri raunar meiri að fyr
irferð en efni. Ég get að vísu
ekki beinlínis rengt þær upp
lýsingar, sem gefnar voru um
fundinn, en fleirum en mér
mun finnast þær hafa harla
lítið fféttagildi og allra sízt
gefa þær tilefni til stórra fyr-
irsagna í virðulegu dagblaði.
Annað liefði kannske verið
merkilegra til frásagnar, t. d.
sú hljóðfræðilega rannsókn,
sem gerð mun hafa verið á
því, sem talaðist af munni mið
ilsins og á að hafa sýnt merki-
legt mállýzkusamræmi hjá
þeim röddum, sem fram komu
hverri fyrir sig. En slíkt hefir
annaðhvort farið framhjá
heimildarmanni Tímans eöa
honum hefir síður þótt taka
því að nefna það, en hinum
vafasama boðskap um klæða
burð framliðinna, sem honum
lá svo á að koma á framfæri.
En þeim, sem vinveittir eru
því að gerðar verði tilraunir
til sambands við aðrar stjörn
ur, vildi ég segja frá því, af
þessu tilefni, að starfsemi fé-
lagsins, sem þetta hefir að
markmiði, er ekki komin á
þann rekspöl, að frá stórtíð-
indum sé þar að segja. Það
vantar peninga til þess að
byggj a stj örnusambandsstöð -
ina og afla til hennar þess,
sem hún þarfnast. En undir
því, hvort hún rís, kann meira
að vera komið en flesta grun-
ar.
Þorsteinn Guðjónsson.
iV.V.V.VAAVVWAVJWWVWWy
Land-Rover
ÁRNI GUÐJÓNSSONi hdl.
Mál fi*. skrífstofa
Garðastræti 17.
Sími 6314
By appointment to
HU AtaiMty Tho Kl>«#
Manufacturert of
Land-fíovert
Tht fíottr Oompang LtM.
Miklar og gagngerðar breytingar hafa nú verið gerð
ar á landbúna&arbílnum LAND-ROVER. — Hann
hefir verið lengdur um Vz fet og eykur það rýmið aft-
ur í bílnum um 25% og ber hann nú þægilega 7 manns
í með bílstjóra. — Einnig hefir hurðaumbúnaðurinn
;• verið endurbættur og er bíllinn nú ryk- og vatnsþéttur.
Heildverzlunin HEKLA h.f.
Hvcrfisgötu 103 - Sími 1275
AWVAVAWAW/AWAVVVVVWAVAVAVVVVAVWrt
\W^AVAV,V/A’.V.V.V.V.,/JWVWVVVWAVWWVW
|
m.s. Gullfoss \
Sú breyting verður á áætlun m.s.
„GULLFOSS“, að skipið fer frá
Reykjavík miðvikudaginn 21. apríl
■I
j kl. 5 e. h. í stað þriðjudags 20. apríl. J.
H.f. Eimskipafélag íslands ji
^/AVW/Z.V.VA'AV.V.VAVA’.VJVAWftVWViV
llllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllMllimillllllllllllHI llllllllllllllllllllllllllllililllllllllllllllllllllllllllllllllllllMl
í •BSaiaup 9 -R m 8fff\
| iuiis ‘uoa i a'eguisÁiddn |
1 •SoiuÁssnuu luSuogum i
I SaiSup goS So iiuasni39H I
| •UinUUQUI III3IJ JUI'BSU |
i nuuiAtjn buuia sb jiBci f
I •IBUI •J'I BIJ BuiIQIJSaBUUnO 1
I pB jsmiso jneBuisgBH f
| JnqeuiSQ^a 1
.......
( Bændur {
| 17 ára piltur vanur öllum 1
I sveitastörfum óskar eftir |
{vinnu helzt nú þegar eða J
| eftir mánaðarmót á góðu |
! sveitaheimili. Tilboð merkt |
| „1. maí“ sendist afgr. Tím- |
I ans fyrir 1. maí næstkom-f
f andi.
iiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiillililiiiiiiiiiiliniiiiiiiiiiiiiini
I
Góð jörð
Ámundakot í Fljótshlíð
fæst til kaups eða leigu í fardögum. Tún véltæk. Hey-
skapur fyrir 30 kýr. Nýtt steinsteypt íbúðarhús með öll-
um þægindum og raflýsingu frá Soginu. Heymjölsverk-
smiðja getur fylgt Góðir greiðsluskilmálar. Upplýsingar
gefa Sigurður Sigurðsson, Ferðaskrifstofunni, og eig-
andi jarðarinnar Eggert O. Sigurðsson, Ámundakoti i
Fljótshlíð.
Tnnilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarþel
við andlát og jarðarför
frú SVANBORGAR LÝÐSDÓTTUR
frá Keldum.
Vandamenn.