Tíminn - 13.04.1954, Síða 4
TÍMINN, þrigjudaginn 13. apríl 1954.
86. blað.
Tilkynning frá Skattstofunni í Reykjavík
Vegna þeirra brytinga á skattalögunum, sem Alþingi
hefir nú samþykkt, og gilda eiga við skattálagningu á
þessu ári, er framteljendum hér með bent á að kynna sér
þessi nýju ákvæði. Skattalögin í heild, ásamt leiðbein-
ingum um framkvæmd hinna nýiu ákvæða, hafa nú ver-
ið sérprentuö og fást gögn þessi á skattstofunni.
Nokkrar þeirra auknu frádráttarheimilda, sem lögin
ákveða eru þess eðlis að frekari upplýsinga er þörf en í
framtali greinir. Er hér á eftir getið þessara nýmæla og
þeim tilmælum beint til allra þeirra, er telja sig eiga rétt
t:l skattlækkunar samkvæmt þeim, að lá'ta skattstofunni
í té nauðsynlegar upplýsingar eftir því sem bent er á um
hvert einstaka atriði.
1. Skattfrelsi sparifjár.
Samkvæint 7. grein d-lið og 22. grein laganna er viss
hluti af innstæðum i bönkum, sparisjóðum og innláns-
deildum félaga, og vextir af sömu innstæðum, undanþeg
iö framtalsskyldu og tekju- og eignaskatti, sem ekkert
skulda hinn 31. desember ár hvert, eða sé um skuldir að
ræða, er skattfrjás sá hluti heildarinnsteeðu, sem er um
fram heildarskuldir. í þessu sambandi skal þó draga frá
heildarskuldum fasteignaveðlán sem tekin hafa verið til
10 ára eða lengri tíma og sannanlega verið tekin til
kaupa eða endurbóta á fasteignum skattgreiðandans.
Allir þeir, sem telja sig eiga að njóta skattfrelsis af
sparifé samkvæmt ofanskráöu, en hafa talið fram skuld
ir, og einhvern hluti skuldanna er lán gegn veöi í fast-
eignum til lengri tíma en 10 ára, verða að gera grein fyr
ir eftirfarandi varðandi hvert einstakt fasteignaveðlán.
a. Á hvaða fasteign hvílir lánið?
b. Hvenær var lánið tekið og til hve langs tíma?
c. Hverjar voru eftirstöðvar lánsins hinn 31. desember
1953? Tilgreina skal sérstaklega áfallna vexti frá
síðasta gjalddaga til ársloka.
d. Vegna kaupa, byggingar eða endurbóta á hvaða
fasteign var lánið tekið?
2. Húsaleignfrádráttnr.
í 10. grein, m-lið, eru eftirfarandi ákvæði um húsa-
leigufrádrátt:
„Nú færir leigutaki í íbúðarhúsnæði sönnur á að
hann borgi hærri húsaleigu en því nemur, sem af-
not húsnæðisins mundu talin til tekna, ef það væri
sjálfsíbúð, og er honum þá heimilt að telja hálfan
muninn til frádráttar tekjum, áður en skattur er á
þær lagður. Frádráttarheimild þessi gildir þó ekki
fyrir einhleypa, og húsaleigufrádrátturinn má ekki
nema meiru en kr. 600.00 á ári á hvern mann, sem
framteljandi hefir bæði á framfæri og í heimili.“
Þeim leigutökum, sem eiga kunna rétt á leigufrádrætti
samkvæmt ofangreindu, en hafa ekki gert fulla grein
fyrir húsaleigugreiðslum sínum, eða stærð leiguhús-
næðis, eins og krafist var í skattframtali, er hér með
gefinn kostur á að bæta úr þeirri vanrækslu.
3. Iðgjöld af lífsábyrgðnm.
Hámark frádráttarbærra iðgjalda hefir verið hækkað
í kr. 2.000,00.
4. Iðgjöld af ólögboðinim
lífeyrlstryggingum
í 10. grein, d-lið, er heimilað að draga frá tekjum til
skatts iðgjöld af ólögboðinni lífeyristryggingu, er nemi
allt að 10% af launum eða hreinum tekjum, þó ekki
meiru en kr. 7.000,00 á ári.
Þeir, sem á s. 1. ári hafa greitt slík iðgjöld, verða að
gera grein fyrir fjárhæð iðgjaldsins og hjá hvaða sjóði
eða stofnun lífeyristryggingin er keypt.
Öllum eftirlauna- og lífeyrissjóðum og öðrum stofn-
unum, er slíkar tryggingar annast, er bent á að kynna
sér þau skilyrði, sem sett eru í d-lið 10. greinar laganna
og uppfylla verður til þess að iðgjaldagreiðslur til þeirra
megi draga frá tekjum.
5. Ferðakostnaður
Samkvæmt 10. grein, staflið i, mega þeir skattgreið-
endur, sem fara langferðir vegna atvinnu sinnar, draga
frá ferðakostnað eftir mati skattyfirvalda.
Það telst því aðeins langferð að ferðakostnaður milli
heimilis og atvinnustaðar nema a. m. k. kr. 250,00 fram
og til baka, enda sé miðað við ven/aleg og óhjákvæmi-
leg útgjöld. Auk fargjalds má taka tillit til fæðis- og
gistingarkostnaðar. Frádráttur þessi hjá hverjum gjald-
enda kemur að jafnaði aðeins til greina vegna einnar
slíkrar langferðar á ári hverju.
Hver sá, sem telur sig eiga rétt til frádráttar sam-
kvæmt þessum lið, verður að gera nákvæma grein fyrir
ferðakostnaði sínum.
6. Hlífðarfatakostnaðnr fiskimanna
í 10. grein, h-lið, er heimilað að veita fiskimönnmn
frádrátt vegna sérstaks hlífðarfatakostnaðar.
Af skipverjum á togurum njóta þessa frádráttar: há-
setar, bátsmaður og 2. stýrimaður og nemur frádrátt-
urinn kr. 300,00 fyrir hvern mánuð, sem skipverji er
lögskráður.
Á öðrum fiskiskipum njóta allir skipverjar frádrátt-
arins, kr. 200,00 fyrir hvern mánuð, sem skipverji er
slysatryggður í skiprúmi.
Þeir, sem frádráttarins eiga að njóta, leggi fram vott-
orð um, hve lengi þeir hafi verið í skiprúmi, annað
hvort frá lögskráningaryfirvaldi eða hlutaðeigandi út-
gerð.
7. Frádráttur vegna stofnunar heimilis.
í 10. grein, k-lið, er ákveðinn sérstakur frádráttur
þei mtil handa, sem gifzt hafa á skattárinu. Þar sem
skattstofan hefir í höndum aðeins takmarkaðar upp-
lýsingar um hjónavígslur, er nauðsynlegt, að í framtöl-
um hlutaðeiganda séu fullnægjandi upplýsingar þetta
varöandi.
8. Frádráttur vegna keyptrar
hcimilisaðstoöar.
Samkvæmt 10. grein, j-lið, skal með vissum takmörk-
unum, veita frádrátt vegna keyptrar heimilisaðstoðar:
1. Ef gift kona, sem er samvistum við mann sinn, vinn-
ur fyrir skattskyldum tekjum og kaupir í staðinn
heimilisaðstoð.
2. Ef einstæð móðir, sem framfærir börn sín eða aðra
ómaga á heimili sínu kaupir heimilisaðstoð vegna
öflunar skattskyldra tekna.
3. Ef ekklar og ógiftir menn, sem hafa börn eða ómaga
á framfæri á heimili sínu kaupa heimilisaðstoð þess
vegna
Keypt heimilisaðstoð telst í þessu sambandi laun og
hlunnindi ráðskonu eða vinnukonu og greiðslur fyrir
börn á dagheimilum.
9. Sölohagnaður.
Vakin er athygli á hinum breyttu ákvæðum í 7. grein,
e-lið, um skattskyldu söluhagnaðar af fasteignum.
Þá er og atvinnurekendum bent á að kynna sér hinar
nýju reglur í sömu lagagrein um skattlagningu á fyrn-
ingum af seldu lausafé, enn fremur fyrimæli í framan-
nefndum leiðbeiningum varðandi þéssi efni. Af ákvæð-
um þessum leiðir m. a. að öll skattskyld fyrirtæki verða
nú og framvegis að láta nákvæmar fyrningarskýrslur
fylgja ársreikningum sínum.
Þeir, sem telja sig eiga rétt til skattlækkunar sam-
kvæmt einhverju framangreindra atriða, verða að hafa
komið nauðsynlegum upplýsingum þar að lútandi til
skattstofunnar, skriflega eða munnlega, — ekkí í síma,
— í síðasta lagi fimmtudaginn 22. þ. m.
Þeir, sem senda upplýsingar bréflega, tilgreini fullt
nafn, fæðingardag og heimilisfang nii og á fyrra ári.
Úlfarnir stefna nú að
fyrsta meistaratitli sínum í
deildakeppninni, og má segja,
að tími sé til þess kominn,
þar sem liðið hefir verið í
fremstu röð eftir styrj öldina;
sigraði í bikarkeþpninni 1949,
og hlaut sömu stigatölu árið
eftir í deildakeppninni og
Portsmouth, sem sigraði, en
hafði verri markatölu. Víst
er, að nú á ekki að láta tæki-
færið til sigurs ganga sér úr
greipum: Það sýnir hinn
mikli sigur yfir Charlton bezt,
því á undanförnum árum hef
i_r Charlton haft gott tak á
Úlfunum, og oftast borið sigur
úr býtum.
Svo virðist sem West Brom-
wich ætli að lenda í því sama
og önnur stórlið,, sem reynt
hafa að sigra bæði í bikar-
keppninni og deildakeppn-
inni, en misst af hvoru
tveggja. Hinir erfiðu leikir
undanfarið hafa valdið því, að
helmingur aðalliðsins er nú
meira og minna meiddur, en
það vill oftast koma fyrir í
lokaátökunum í ensku knatt,-
spyrnuni, að mikil harka fær-
ist í leikina, einkum, þegar
leikið er við þau lið, sem eru
í fallhættu. Má því reikna
með, að WBA bíði það sama
og Manch. Utd. og Arsenal,
en þessi lið reyndu hvað eft-
ir annað að sigra í báðum
keppnunum, en misstu alltaf
|af sigrinum á síðustu stundu.
Sérstaklega er dæmið um Ar-
senal 1952 táknrænt, en þá
lék liðið við sigurvegarann
Manch. Utd. í síðasta leikn-
um í deildinni og tapaði með
6—0, og viku síðar tapaði Ar-
senal fyrir Newcastle í úr-
slitaleiknum í bikarkeppn-
inni með 1—0.
i í 2. deild er keppnin mjög
tvísýn ennþá. Fjögur lið heyja
þar harða baráttu um rétt-
inn til að komast í 1. deild,
en sem kunnugt er,komast tvö
efstu liðin þangað. Leicester
hefir mesta möguleika til sig-
urs, en þess ber þó að geta, að
liðið á eftir að leika báða
leikina við Blackburn, sem er
í öðru sæti, og getur það sett
strik í reikninginn, og gefur
tveimur næstu liðum, Everton
og Nottm. Forest aukna mögu
leika. Ekki er þó vafi á því, að
Leicester og Blackburn hafa
beztu liðunum á að skipa, en
hjá þessum liðum leika marg
ir frægir leikmenn, eins og t.
d. Morris, Froggatt, Rowley
og Hines hjá Leicester, en
Langton, Eckersley, Briggs og
Quigley hjá Blackburn.
Úrslit s. 1. laugardag:
1. deild.
Skattstjórinn í Reykjavík
Arsenal—Liverpool 3-0
Aston Villa—Burnley 5-1
Blackpocl—Manch. Utd.. 2-0
Cardiff—W.B.A. 2-0
Cheisea—Bolton 2-0
Huddersf.—Tottenham 2-5
Manch. C.—Middlesbro 5-2
Portsmouth—Newcastle 2-0
Sheff. Utd.—Preston 1-1
Sunderiand—Sheff. Wed. 2-4
Wolves—Charlton 5-0
2. deild.
Biackburn—Birmingham 3-0
Brentford—Luton 0-1
Bristol K.—Plymouth 3-1
Bury—West Ham 2-0
Derby—Nottm. Porest 1-2
Doncaster—Leeds 0-0
Everton—Stoke 1-1
Hull—Leicester 0-3
Lincoln—Swansea 3-1
Notts Co.—Rotherham 1-2
Oldham—Pulham 2-3
| Staðan er nú. þannig:
1. deild.
Wolves 38 23 6 9 89-54 52
West Bromw. 38 21 8 9 83-53 50
Huddersfield 38 18 11 9 .73-53 47
(Fr,unlia' d á 7. síðu»