Tíminn - 21.04.1954, Síða 2
2
TÍMINN, miSvikudaginn 21. apríl 1954,
89. blaff.
Gildvaxnar konur og kol hjálpar-
tæki I sífelldu gullsmygli í Evrópu
, Allar stundlr er veriö að finna
nýjar leiðir til að smygla gulli yfir
landamæri framhjá tollvörðum og
margar eru þær aðferðir, sem
mcnn viðhafa í þeim efnum.
Brezka myndin The Lavender Hill
Mob var að vísu aðeins kvikmynd,
en hugmyndina að henni fengu
þeir úr forsíðufregnum Evrópu-
blaðanna um gullsmygl. Tollverð
ir eiga við margliáttaða erfiðleika
að stríða í sambandi við gull-
smyglið og einföldustu brögð
smyglaranna geta þvælzt fyrir
þeim.
Eitt sinn urðu farþegar í lest, er
fór milli Belgíu og Þýzkalands vitni
að því, að þýzku tollverðirnir töku
nokkra franska gulldali af gömlum
manni, en annar maður, sem sat
skammt frá slapp í gegn með þrjár
gullstengur. Gamli maðurinn hafði
t'
f -
Útvarpið
■Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20,20 Dagskrá háskólastúdenta: a)
Ávarp (Björn Hermannsson
stud. jur., formaður stúdenta
ráðs). b) Erindi: Síðasti Odda
verjinn (Bjarni Guðnason
stud. mag.). c) Kórsöngur:
Karlakór háskólastúdenta
syngur; Carl Billich stjórnar.
d) Upplestur: Smásaga eftir
Sigurjón Einarsson stud.
theol. (Höfundur les). é) Há-
Skólaþáttur (Hjalti Jónasson
stud. philol. og Jón Böðvars-
son stud. mag.). f) Upplestr-
ar: Kvæði eftir Jón Böðvars-
son stud. mag., Matthías Jo-
hannessen stud. mag. og Sig-
urð Friðþjófsson stud. mag.
(Höfundarnir lesa). g) Gam-
anvísur (Baldur Hólmgeirs-
son stud. med.).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Gamlar minningar. — Hljóm-
sveit undir stjórn Bjarna
Böðvarssonar leikur.
22,40 Danslög (plötur).
23,45 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
(Sumardagurinn fyrsti).
8,00 Heilsað sumri: a) Ávarp
(Magnús Jónsson prófessor).
b) Upplestur (Lárus Pálsson
leikari). c) Sumarlög (pl.).
9,10 Morguntónleikar (plötur).
11,00 Skátamessa í Dómkirkjunni
(Prestur: Séra Emil Björns-
son. Organleikari: Kristinn
Ingvarsson).
13.30 Útvarp frá útihátíð barna í
Reykjavík. — Ræða: Biskup
íslands, herra Ásmundur Guð
mundsson.
18.30 Barnatími.
20,20 Sumarvaka: a) Erindi (Stein
grímur Steinþórsson landbún
aðarráðherra). b) Útvarps-
| hljómsveitin leikur sumarlög;
Þórarinn Guðmundsson stjórn
ar. c) Erindi: Hraunin í kring
um Hafnarfjörð (Guðmundur
Kjartansson jarðfræðingur).
d) Takið undir! Þjóðkórinn
syngur; Páll ísólfsson stjórn-
ar. — Gestur kórsins: Bjarni
Böðvarsson.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,05 Danslög, þar á meðal leikur
danshljómsveit Þórarins Ósk-
arssonar.
01,00 Dagskrárlok.
Árnað heilla
Trúlofanir.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Vigdís Guðmundsdótt
ir frá Hlíð í Grafningi og Baldur
Guðmundsson frá Efra-Apavatni í
Laugardal.
Opinberað hafa trúlofun sína um
páskana ungfrú Guðrún Anna
Bjarnadóttir, Dvergasteinum á
Stokkseyri, og Hörður Sigurgríms-
son, Holti, Stokkseyrarhreppi.
Opinberað hafa trúlofun sína um
páskana ungfrú Halldóra Jónsdótt-
ir frá Málastöðum, Fljótum, og
Sturla Símonarson bílstjóri hjá
Mjólkurbúi Fióamanna, Selfossi.
„Ég skal gefa þér gull í tá“, sagði skáldið, en þessi virðist
hafa haft gull bæði í hæl og tá
getið þess, er beigísku tollverðirnir
yfirgáfu lestina, að hann væri feg-
inn, því að þeir fundu ekki gull-
peningana, sem hann var með, þar
sem honum fannst mikið til um
þessa minjarripi, er voru mjög dýr-
mætir. Svo þegar þýzku tollverð-
irnir komu í lestina, benti maður-
inn með gullstengurnar á gamia
manninn og tóku þeir peningana af
honum. Sagðist maðurinn hafa gert
þetta til að sleppa með sitt eigið
stöðvuð og kom í ljós, að íonan
hafði falið demanta í skóhæiimum
og hafði tollverðinum fundizt liún
vera óeðlilega tindilfætt, enda von,
þar sem hún mun ekki á hverjum
degi hafa gengið á demöntum.
Minnstu munaði að eitt slnn tæk
ist að smygla nokkrum smálestum
af gulli sem kolum frá Sviss. Kom-
ust tollverðir á snoði'r um þetta. Fór
einn þeirra og réði sig samkvæmt
fyrirmælum í kolavinnu hjá sviss-
gull og leiða athyglina frá sér. Þessi nesku járnbrautunum í Zurich.
aðferð er þó ekki hættulaus og hún Höfðu borizt fregnir af því, að kunn
er mjög óvinsæl af skiljanlegum ur gullsmyglari væri kominn í kola
ástæðum. Hafa tollverðir oft og vinnu í borginni og þótti það tíð-
tíðum ýmugust á þeim mönnum, indum sæta, þar sem þessi maður
sem benda á aðra og hafa verðirnir var jafnan tíður gestur í beztu gisti
tíðum fundið smyglvarning í fórum húsum og veitingahúsum megin-
þeirra. landsins. Liðu svo vikur og töluðust
1 þeir ekki við smyglarinn og toll-
Sérbyggðar bifreiðar. ' vörðminn, þótt þeir sæust daglega
Stundum tekur þetta þráláta stríð í kolavinnunni. Svo var það einn
tollvarða við gullsmyglara á sig ein dag, að einn verkamannanna sparn
kennilegar myndir. Eitt sinn fengu fæti við gljáðum kolamola og sagði
tollverðir og lögregla grun um, að háðslega, að allt eins mætti kalla
ekki væri allt með felidu varðandi svona áferðafalleg kol svart gull.
benzlnstöð nærri landamærum Grunaði hann ekki, hve hann fór
Sviss og Ítalíu. Ekki lá þó grunur nærri sannleikanum. Var smyglar
á eiganda stöðvarinnar. Allir komu inn að aka þessum „kolum“ til járn
til stöðvarinnar með tóma benzín brautarinnar og lá við að hann
geyma, því að þetta var eina stöð- fengi tilfelli, er verkamaðurinn
in á löngum kafla. Allir fylltu geym minntist á gullið. Var tollvörðurinn
ana og héldu áfram. Hins vegar þá fljótur til og gekk úr skugga
fannst leynilögreglumanninum, sem um, að þarna væri um gull að
gætti stöðvarinnar, það grunsam- ræða. Var þar með bundinn endir á
legt, þegar stór bifreið kom og bif þennan flutning, en talið var, að
reiðarstjórinn bað um tvo lítra á gulli fyrir eina og hálfa milljón
geyminn og það í snatri. Lögregl- punda hefði verið komið úr Sviss
unni var nú gert aðvart og elti með þessum hætti — að flytja það
hún bifreiðina. Ekki hafði hún lengi sem kol.
farið, þegar hún stanzaði og -bif- j _____________________
■UVWWVWWWWWVWVWWWmAAVSA/VUWUWVWWW
reiðarstjórinn fór eitthvað að eiga
við .benzíngeyminn. Runnu þá lög-
reglumennirnir að honum og kom
ust að raun um, að hólf hafði verið
Afll í Eyjtim
(Framhald af 1. slðu.)
, . , , I höfninni er mikil þröng
byggt inn geymrnn og þar var hyer bumlungur að kalla
að fmna toluvert magn af skiru nQlaður
gulli í stöngum. Var því ekki að
við bryggjurnar.
Skipakomur eru tíðar, og
undra, þott geymirmn rumaði ekki i " ... ’ , .
.. ., C , verða framskipm að flytja
mikið. Margir smyglaranna gera I . ' ., .
, ,. , ... ., . . ísig til, þegar batarmr koma
ymsar breytmgar a btfreiðum þeim,
sem þeir nota við smyglið til þess
að auðyeldara sé að fela það og
ekkert viðlit er að framkvæma gagn
gera leit í öllum þeim bifreiðum,
sem ekið er yíir landamæri í Evr-
ópu daglega.
Konan hafði gildnað skyndilega.
Tollvörður við flugvöll hjá Lon-
don undraðist, hve fögur og kunn
furstafrú var orðin gildvaxin, er
hún kom þangað einn góðan veður
dag í flugvél, ásamt manni sínum.
Nokkrum dögum áður hafði hann
séð mynd af þessari indversku frú
í tímariti og mundi hann, að þá
hafði hún verið grönn eins og ösp.
Hann gekk því til konunar og bað
hana að ganga inn í herbergi, þar
sem nákvæm leit var framkvæmd á
grunuðum smyglurum. Var leitað á
‘frúnni og úrslit urðú þau, að maður
hennar og hún voru sektuð um
niutíu þúsund pund. í annan tíma lá
við slagsmálum í flugafgreiðslustöð
í London, þegar ungur tollvörður
gat ekki fengið augun af öklum ungr
ar og fagurrar konu, er var í fylgd
tveggjá manna. Ætlaði annar þeiira
að ráðast á hann fyrir dónaskap-
inn, en hinn maðurinn og konan
reyndu að hraða sér út. Voru þau
flestir úr róðri.
Þessi mikla aflahrota í
Eyjum hefir skilað miklum
auðæfum á land.
| Líti! íbúð 1
f sem næst miðbænum, ósk
| ast á leigu nú þegar.
Skúli Guðmundsson
í Sími 3263
iiiiiiiiiiiiii111111111111111111111111111111111111111111111111111111 n
Skaftfellingafélagið í Reykjavík heldur
Sumarfagnaö
í Breiðfirðingabúð laugardaginn 24. þ. m. kl. 8,30
Gestur Þorgrímsson, skemmtir. Dans.
Skemmtinefndin
iVAW.V.V.V.V.V.VV.V.VV.V.W.V.VV.V.V.'.W.V.WA
Kapp er bezt með
forsjá
SAMVII HmnnETTB <B Orso/MB
TILKYNNING
iim bútagreiðslnr almannatrygg-
airna árið 1954
Yfirstandandi bótatímabil almannatrygginganna
hófst 1. janúar s. 1. og stendur yfir til ársloka.
Lífeyrisupphæðir þær, sem greiddar eru á fyrra helm
ingi ársins 1954 eru ákveðnar til bráðabirgða með hlið-
sjón^f bótum síðasta árs og upplýsingum bótaþega. Sé
um tekjur að ræða, sem áhrif geta haft til skerðingar á
lífeyri, verður skerðingin miðuð við tekjur ársins 1953
og endanlegur úrskurður um upphæð lífeyrisins 1954
felldur þegar framtöl til skatta liggja fyrir.
Þeir, sem nú njóta lögboðsins ellilífeyris, örorkulíf-
eyris, ,barnalífeyris, mæðralauna eða fjölskyldubóta
þurfa ekki að þessu sinni, að sækja um framlenginu
þessara bóta. Hins vegar ber öllum þeim, sem nú njóta
bóta samkvæmt heimildarákvæðum almannatrygginga
laganna, að sækja á ný um bætur þessar, vilji þeir
áfram njóta þeirra.
Hér er um að ræða örorkustyrki, ekkjulífeyri, maka-
bætur, bætur til ekkna vegna barna, svo og lífeyris-
hækkanir.
Umsóknir um endurnýjun bóta þessara, skulu ritað-
ar á viðeigandi eyðublöð Tryggingastofnunarinnar, út-
fyllt rétt og greinilega eftir því sem eyðublöðin segja
íyrir um, og afhent umboðsmanni ekki síðar en fyrir
25. maí næstkomandi.
Áríðandi er að örorkustyrkþegar, sem misst hafa 50-
•75% starfsorku, sæki á tilsettum tíma, þar sem ella er
með öllu óvíst að hægt sé að taka umsóknirnar til
greina, vegna þess að fjárhæð sú, er verja má í þessu
skyni, er takmörkuð.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu
fylgja umsóknum, hafi þau eigi verið lögð fram áður.
Þeir umsækjendur, sem gjaldskyldir eru til trygginga-
sjóðs, skulu sanna með tryggingaskírteini sínu eða á
annan hátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sín skilvíslega.
Vanskil varða skerðingu eða missi bótaréttar.
Umsóknir um aðrar tegundir bóta, svo sem fægingar
styrki, sjúkradagpeninga og ekknabætur, svo og allar
nýjar umsóknir um lífeyri, fjölskyldubætur eða mæðra
laun verða aígreiddar af umboðsmönnum á venjulegan
hátt, enda hafi umsækjandi skilvíslega greitt iðgjöld
sín til tryggingasjóðs.
íslenzkar konur, sem gifst hafa erlendum mönnum,
eiga nú rétt til barnalífeyris frá Tryggingastofuninni,
þótt þær hafi misst ísl. ríkisborgararétt, ef eiginmenn
þeirra hafa fallið frá, yfirgefið þær eða skilið við þær,
enda dvelji þær með börnin hér á landi og njóti ekki
lífeyris eða meðlags annará staðar frá.
Norðurlandaþegnar sem hér hafa búsetu eru minntir
á. að skv. milliríkjasamningum hafa danskir, finnskir,
sænskir og norskir ríkisborgarar ellilífeyrisrétt með til
heyrandi barnalífeyrisrétti, hafi þeir haft hér sam-
felda 5 ára búsetu þegar bótanna er leitað: Þá hafa
finnskir, sænskir og norskir ríkisborgarar fjölskyldu-
bótarétt fyrir börn sín, séu þeir ásamt börunum skráðir
á manntal hér, enda hafi þeir ásamt börnunum haft
hér 6 mánaða samfellda búsetu áður en bótarétturinn
kemur til greina. Fjölskyldubótaréttur þessi tekur ekki
til danskra ríkisborgara.
íslenzkir ríkisborgarar eiga gagnkvæman rétt til
ellilífeyris og fjölskyldubóta í hinum Norðurlöndunum.
Athygli er vakin á, að bætur úrskurðast frá 1. degi
þess mánaðar, sem umsókn berst umboðsmanni, enda
hafi réttur til bótanna þá verið fyrir hendi. Þeir, sem
telja sig eiga bótarétt, dragi ekki að senda umsóknir
sínar, þar sem bótaréttur getur fyrnst að öðrum kosti.
Reykjavík, 10. apríl 1954.
Iryggingastofimn ríkisins
I
í
I
í
í
s
1
.V.VV.V.VV.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.W.V.VV.VA'W