Tíminn - 06.05.1954, Blaðsíða 6

Tíminn - 06.05.1954, Blaðsíða 6
TIMINN, fimmtudaginn 6. maí 1954. 100. blað. \f!Í> ' PJÖDLEIKHÚSID Valtýr á grænni treyjn. Eftir Jón Björnsson. Sýning í kvöld kl. 20.00 ASeins örfáar sýningar. PIItur og stúlUa Sýning föstudag Jd. 20.00 ABgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15 til 20,00. Tekið á móti pönt unum. Sími 8-2345, tvær linur. ^ -m w C ^ Sér grefur gröf. (Scandal Sheet) Stórbrotin og athyglisverð, ný, amerísk mynd um hið taugaæs- andi og oft hættulega starf við bln illræmdu æsifregnablöð í Bandaríkjunum. Myndin er afar spennandi og afburða vel leikin. Broderick Crawford, John Derek, Donna Reed. Bönnuð börnum. Sýnd kl. 7 og 9. Síðasta sinn. Spennandi gamanmynd. sem allir hafa gaman af að sjá, með Bakkabræðrum, Ship Larry og Moe. Sýnd kl 6. ♦••♦♦♦♦^♦# NYJA BIO — 1544 — Hátíðisdagur Henriettu (La Féte á Henriette) Afburða skemmtileg og sérstæð, frönsk mynd, gerð af snillingn' um Julien Duvivier, er gerði hin ar frægu myndir „La Ronde“ og „Síra Camillo og kommúnistinn". Sýnd kl. 7 og 9. Nautaat í Mextco. Hin sprenghlægilega mynd með Abbott og Costello. Sýnd kl. 5. TJARNARBÍÓ Sími 6485. Ailt getur homið fyrir Anything can happen) Bráðskemmtileg amerísk verð- launamynd gerð eftir samnefndri sögu, er var metsölubók í Banda- ríkjum Norður-Ameríku. Aðalhlutverk: José Ferrer, hinn heimsfrægi leikari, sem írægastur er fyrir leik sinn í Rauðu myllunni. Kim Hunter, sem fékk verðlaun fyrir lelk sinn 1 þessari mynd. Sýnd kl. 5, 7 og 9. amP€R Baflasair — YiSmRte Baftelknlncar WngholtMtrætl 11 Bíini R16M •»♦♦♦♦•♦ I SLEIKFEIAG! ^EYKJAyÍKK^ ,Frænka Charleys’ Gamanleikur í 3 þáttum. 15. sýning. Annaðf kvöld kl. 20,00. AðgöngumiSasala kl. 4—7 í dag. — Sími 3191. AUSTUR8ÆJARBÍÓ Ég hefi aldrei elshað aðra (Adorables Créatures) Bráðskemmtileg og djörf, ný, frönsk kvikmynd. Danskur texti. Þessi mynd var sýnd viðstöðu- laust í marga mánuði í Palladi- um í Kaupmannahöfn og i flest um löndum Evrópu hefir hún ver ið sýnd við metaðsókn. Bönnuð börnum yngri en 16 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 2 e. h. -»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ GAMLA BÍÓ — 1475 — Hrói höttur og happar hans (The Story of Robin Hood) Bráðskemmtileg og spennandi ævintýramynd í litum, gerð af Walt Disney í Englandi eftir þjóðsögunni um útlagana i Skíris I skógi. | Aðalhlutverk: Richard Todd, Joan Rice. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ♦♦♦»♦♦♦#♦♦»♦♦♦ Sumarkveðja Mbl. (Framhald af 4. síðu.J útsvörum helztu máttarstólpa þess sjálfs í kaupsýslumanna stéttinni. Og hvernig hafa samvinnufélögin farið að því að eyðileggj a atvinnulíf hyggðarlaganna? Hafa þau e. t. v. gert það með því að koma upp frystihúsum, fiski mjölsverksmiðjum, mjólkur- búum og sláturhúsum? Er það að eyðileggja atvinnu- lífið? Slíkt er víst á álíka rök um reist og hin meiðandi ummæli sumarkveðjunnar um Kaupfélag Hafnarfjarð- ar, sem ekki verða tilfærð í þetta sinn. í lok „sumarkveðjunnar“ er svo eftir allt saman býsn- ast yfir því, hvílík fjarstæða þas sé, að tala um „óvild Sjálfstæðismanna í garð sam vinnuhreyfi7igarinnar“! Sam kvæmt þessu virðist eiga að skoða það sem góðvild við félögin eða kannske með- mæli með þeim að halda því fram, sem tilfært hefir verið innan tilvitnunarmerkja hér að framan! En svona var líka talað fyrir 30 árum. Af einskærri góðvild til sam- vinnufélaganna hafa ráðandi menn Sjálfstæðisflokksins fyrr og síðar streitst við, að færa rök fyrir því, að réttast sé að ganga af samvinnufé- lögunum dauðum! TRIPOLI-BIO Bíml 1182. Hann gleymdi henni aldrei (Han glömde hende aldrig) Mjög áhrifarík og sérlega vel gerö, sænsk stórmynd, er fjallar um ástir bandarísks flugmanns og sænskrar stúlku. Bönnuð hörnum yngri en 16 ára Sýnd kl. 9. B AMB O og frumskógastiilkaii (Bomba and Jungle Girl) Alveg ný Bomba-mynd, sú mest spennandi, sem hér hefir veriö sýnd. Aðalhlutverk: Frumskógadrengurinn Bomba, leikinn af Johnny Sheffield. Sýnd kl. 5 og 7. hÁfnarbíó’ — Sími 6444 — OFBELDI (For men only) Hörkuspennandi ný amerísk kvikmynd um hrottaskap og of- beldisaðferðir stúdentafélags í amerískum háskóla. Myndin er byggð á sönnum viðburðum. Paul Henreid, Margaret Field, James Dobson. Bönnuð börnum. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ♦♦♦♦♦♦♦>♦♦♦♦♦♦ BÆJARBÍÓ — HAFNARFIRÐI - CZARDAS DROmiNGIN Bráðskemmtileg og faileg ný þýzk dans- og söngvamynd, tek- in f hinum fögru Agfa-litum. Myndin er byggð á hinni frægu óperettu eftir Emmerich Kál- mán. — Danskur texti. Aðalhlutverk leikur hin vin- sæla leikkona: aiarikka Rökk, ásamt Johannes Heeters. Sýnd ki. 7 og 9. Sími 9184. 52. Gjöf Glssurar. (Framhald af 5. síðu.) flutt til Reykjavíkur nokkru eftir móðuharðindin. Fyrir nokkrum árum var stofnað Skálholtsfélag, sem hefir látið mál Skálholts til sín taka. Meðal þjóðarinnar mun því áreiðanlega fagnað, að Skálholti sé aukinn sómi sýndur. Mörgum mun þykja viðeigandi, að gjöf Gissurar biskups verði minnzt með endurreisn biskupsstóls í Skálholti. Viðhorf verkalýðs- hreyfingarinnar. (Framhala af 3. síðu.) hið kapitaliska skipulag er alls staðar þrautreynt með sín um ókostum. Launþegasamtökunum ber að setja markið hátt og stefna að því að drottna yfir ávöxtum vinnu sinnar, fjár- magninu. Kröfurnar eiga því að vera sannvirði vinnunnar og rétt vöruverð. Samvinnu- hreyfingin cg verkalýðshreyf ingin verða að haldast í hend ur, svo að þessu marki verði náð. Réttur hins vinnandi manns yfir f jármagninu verð ur bezt tryggður eftir leiðum samvinnunnar. Bótthreinsandi \ vökvi nauðsynlegur hverju] sótthreinsunar Í'munum, rúmfötum, húsgögnum, ] símaáhöldum, andrúmslofti o. | s. frv. — Pæst í öllum lyfjabúð- um og snyrtivöruverzlunum. Hetjur SKÓGARINS eftir J O. CURWOOD Eftir þrjár vikur skal ég koma til móts við ykkur í St. Felicien og hjálpa þér að útkljá deilumálin við Ajax Trappier. Það var harður hljómur í rödd hans, og Gaspard fannst ráðlegast að líta á þetta sem fastráðna áætlun án frekari umræðna. Hann sá vel, að örlagarík breyting hafði orðið á Clifton þessa nótt. — Nú er ég tilbúinn, og ég skal ekki draga af mér, sagði Clifton. Til þessa hefir þetta verið mér skemmtiganga, en frá þessum degi mun ég leggja fram alla krafta mína. Ef ég hitti Leannot í Roverval, tekst mér vafalaust að komast þegar á morgun til skógarsvæða Laurentin-félagsins víð Mistassini-ána. Þar sem munkurinn hafði ekki komið til tjaldanna enn, skrifaði hann honum stutt bréf og bað Gaspard fyrir það. Hann klappaði Joe á öxlina og kyssti hann að skilnaði og sagði: — Antoinette ætlar aö annast þig. Segðu henni, að ég sé mjög hryggur, ákaflega hryggur. Það var ekki liðið langt á morgun, þegar hann kom til Metabetchevan. Þar leigði hann sér bíl og ók af stað eftir veginum, sem lá til norðvesturs. Hann ók fram hjá tjöldun- um, sem risin voru á votu enginu og sá hvernig Barnabe og matreiðslumaðurinn voru að strita við að fá vott brennið til að loga. Tjald Antoinette hafði nú lika verið reist. Hann sá föt Gaspards hanga til þerris, en hvergi sá hann Joe eða munknum bregða fyrir. Hann veifaði hendi til Gaspards, sem svaraði með háu hrópi. Svo ók hann hjá bóndabænum, sem hann hafði borið Antoinette heim í um nóttina. Húsið var snoturt, og í garðinum framan við það voru fögur blóm. Clifton spurði bifreiðarstjórann meira um bóndann. — Hann er hamingjusamur maður. Þegar þau hjónin giftust, áttu þau ekki grænan eyri. Nú eiga þau tíu börn. Ég á nú reyndar fimmtán, bætti hann við laundrjúgur. Þeir komu til Roberval, en Clifton hitti Jeannot ekki þar. Til allrar hamingju féll þó góð ferð með fljótabát norður til Peribonka þennan sama dag. Daginn eftir ók hann í hest- vagni siðasta spottann heim að birgðastöð Laurentinska fé- lagsins. Hann var undrun sleginn vegna þeirrar breytingar, sem orðin var á honum þessa siðustu tvo daga. Atburðir óveðurs- næturinnar höfðu ekki liðið honum úr minni nokkra stund, en þrátt fyrir örvæntingu þá, sem þeir höfðu greypt í hug hans, fann hann, að hann var nú reiðubúinn að taka til starfa af öllum þeim kröftum líkama og sálar, sem hann réð yfir. Hann gerði sér ljóst, að litlar líkur voru til, að fund- um hans og Antoinette bæri saman oftar, nema hann færi gagngert á fund hennar, og hann ákvað að ge'ra ekki þáð glappaskot framar, enda mundi það varla verða tekið vel upþ. Hann reyndi ekki að afsaka sjálfan sig, og hann þóttist sann- færður um, að álit Antoinette á honum væri nú slíkt, að hún hlyti að hata hann engu minna en Ivan Hurd. Slík hugsun særði hann ákaflega, en hann reyndi ekki að ganga á snið við hana. Hann þráði nú það eitt að berjast um líf og dauða við Ivan Hurd. Slík viðureign var honum nú allt. Með þeim hætti gæti hann kannske unnið sér tiltrú Antoinette og vin- játtu, og jafnframt mundi hann geta hefnt föður síns. I Bolduc umsjónarmaður félagsins í Mistassini hafði til reiðu i ótal uppdrætti, tölur og aðrar upplýsingar. Þeir settust að ráðagerðum og gerðu áætlanir um ótal margt, smátt og stórt, ' viðkomandi rekstrinum, og þannig unnu þeir hvíldarlítið langt fram yfir miðnætti. Verkamenn Hurds höfðu verið að verki síðan snemma í júlí, og þeir eru þegar búnir að koma upp 17 nýjum bækistöðvum. Hrukkurnar á enni Eugene Bolduc urðu djúpar, þegar hann sýndi Clifton nákvæmlega stöðu þeirra á kortinu. Delphis Bolduc, sem fylgdist með aðgerðum andstæðinganna notður í skógunum, hafði orðið þess var í síðustu viku, að símasambandi hafði verið komið á milli allra þessara bækistöðva og aðalstöðva Hurds rétt við landamerki Laurin- tinska félagsins. — Og tilgangurinn með þessu símasambandi er aðeins einn, sagði hann. — í hverri bækistöð er hægt að hafa 300 menn, og með símasambandiriu getur Hurd jafnað fólki sínu niður til að vinna þar sem þörfin er mest hverju sinni. Allt þetta sýndi ljóslega, hve samkeppnin var erfið, jafn- vel vonlaus. í héraðinu umhverfis St. John-vatnið urðu bæði félögin að nota sömu vegina á 15 mílna kafla. Þess vegna hafði Eugene og Delphis tekizt að telja með nokkurri nákvæmni verkamenn þá, sem Hurd sendi norður á bóginn. Það kom í ljós, að Hurd hafði meðal manna sinna ýmsa al- ræmda þorpara og illmenni, og mörgum slíkum mönnum smyglaöi hann blátt áfram norður eftir ýmsum hjávegum. Hann virtist vera að safna að sér ofurlitlum her slíkra manna þar norður frá og reyndi að leyna því fyrir keppinautum sín- um, hve fjölmennt lið hann hafði. Til þess að geta haft meiri leynd yfir mannflutningum sínum, hafði hann 20 manna sveit við landamerkin, og sá einn, sem hafði skriflegt leyfi, fékk að fara yfir þau. Það var þvi helzt á nóttunni, sem Delphis hafði tekizt að komast.yfir landamerkin og afla sér upplýsinga um flutn- ingana. Eftir veginum, sem lá inn á skógarsvæði Hurds að norðan, hafði verið ekið miklu magni alls kyns efniviðar,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.