Alþýðublaðið - 03.04.1920, Blaðsíða 1
Grefið tít at Alþýðuilokknum.
1920
Laugardaginn 3. apríl
74. tölubl.
Danmerkur-tíðindiri
Khöfn miðvikudag 31. marz
kl. 81/* e. h.
Lieberáðuneytið er aðeins bráða-
birgðaráðuneyti (Forretningsminist-
erium) þar til þjóðþingskosning-
arnar eru um garð gengnar og
þingið komið saman aftur, sem
væntanlega verður eftir sex
vikur.
íhaldsflokkurinn og vinstri menn
hafa tjáð ráðuneytinu stuðning
sinn. Radikali flokkurinn (Zahle-
flokkurinn) og socialistar og syndi-
kalistar eru á móti.
Allsherjarverkfallið, sem boðað
hafði verið, var samþykt í dag af
sambandsfélagi verkalýðsins Og
gengur í gildi á þriðjudaginn kem-
ur (þriðja f páskum); það nær ekki
til þeirra manna sem starfa við
vatnsveitur, gasveitur, sjúkrahús
og lögreglu.
Búist er við að Liebe kalli sam-
an þingið, þó búið sé að rjúfa
það án samanköllunar, frá páska-
leyfi að telja.
. ÁUsherjarverkfallshótunin í gær
og ákvörðun verkamannasam-
bandsins í dag er nú það, sem
allir hugsa og tala um.
Fólk birgir sig að matvælum í
stórum stfl.
Herlið hefir skipað sér um Am
alfuborg.
Borgarafundir á götunum á hverri
nóttu, og jafnframt óspektir.
Frestað hefir verið, fram yfir
páska, að senda herliðið til Suð-
urjótlands.
Extrablaðið, fylgifiskur stjórnar-
blaðsins Politiken, segir, að verði
úr allsherjarverkfallinu, sé hið nýja
ráðuneyti úr sögunni innan fárra
daga, og muni draga konungdóm-
inn með sér f fallinu.
Sfðustu tfðindi, þingið er sent
heim. Þjóðþingið rofið 22. aprfi.
Kosningar 23. aprll.
Khöfn miðvikudag 31. marz
kl. 11,40.
Verkalýðurinn hefir stöðvað öll
skip Sameinaða eimskipafélagsins.
Niðarós lagði af stað í morgun
áður en bannið kom.
Bakarar hafa þegar hafið verk-
fall, en allsherjarverkfallið byrjar
ekki fyrir alvöru fyr en á þriðju-
dagsmorgun.
Khöfn, föstudag 2, apríl
kl. 10 e. h.
Það er opinberlega tilkynt nú,
að þjóðþingið sé rofið frá 21.
þ. m. og að kosið verði þ. 22. >
Þingið er kvatt saman þann 14.
Ráðuneytið segist ekki ætla að
ráða fram úr neinu máli, sem
flokkarnir séu ekki samdóma um.
Engin blöð, nema jafnaðar-
manna og syndikalista.
Engin blöð koma út í Khöfn,
nema Social-Demokraten og Soli-
daritet.
Sjómenn, liafnarverkamenn, raf-
uppsetningarmenn, prentarar, múr-
arar, trésmiðir, vindlagerðarmenn
og ýmsar fleiri stéttir hafa lagt
niður vinnu.
Nýja ráðuneytið í samningum.
Ráðuneytið er að reyna að semja
við jafnaðarmenn, radikala flokkinn
og fulltrúa verkamannasambands-
ins, sem heimta að þjóðþingið sé
kvatt saman á mánudag og að
launakröfum verkamanna sé full-
nægt og að öllum pólitízkum af-
brotamönnum (Syndikalistunum)
séu gefnar upp sakir. Verði kröf-
um þessum fullnægt, muni alls-
herjar verkfallinu verða létt af;
þó aöeins ef meirihluti verka-
mannafulltrúa samþykki að svo
skuli vera.
- Skýrsia frá danska sendi-
herranum hér.
Rvík 2. apríl ipko.
Bráðabirgðaráðaneyti það sem
myndað hefir verið í Danmörku
undir forystu Liebes, hæztaréttar-
málaflutningsmanns, hefir mætt
mjög misjöfnum dómum hjá hin-
um ýmsu flokkum. Blöð íhalds-
flokksins og Vinstrimanna fagna
því að Zahleráðaneytið skuli vera
farið frá, og halda fram fullkomn-
um stjórnlagalegum rétti konungs
til þess að víkja Zahleráðaneytinu
frá, og mynda bráðabirgðaráða-
neyti, sem Iáti kosningar fara fram,
en síðan velji konungur sér ráða-
neyti í samræmi við hið nýkosna
þjóðþing. Blöð Radikalaflokksins
(Zahleflokksins) segja að það sem
skeð hafi fari í bága við þá þing-
ræðisvenju er sé í Danmörku.
Jafnaðarmenn álíta að konungurinn
hafi framið stjórnlagarof.
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna
hefir samþykt að allsherjarverkfall
skuli hafið þriðjudaginn 6. apríl,
nema gengið sé að launakröfum
verkalýðsins, þingið sé kallað sam-
an, og syndikalistar þeir sem i
fangelsi sitja séu látnir lausir.
Þó mikið sé um að vera, virðist
þó vera útlit fyrir að samkomulag
geti orðið, og mikilsverðar sam-
komulagstilraunir fara fram. Það
er ekki rétt, þar sem sagt hefir
verið í útlendum blöðum að bar-
dagar hafi átt sér stað (revolution-
ære Uroligheder). í Kaupmanna-
höfn og öllu landinu ríkir ró og
spekt.
Luttwitz, sá er reyndi að gera
byltingu á Þýzkalandi fyrir skömmu.
er enn á lífi. Það var lygafregn,
að hann hefði framið sjálfsmoið,
segir blað frá Hamborg, er hing-
að hefir borist, dags. 22. marz.