Tíminn - 27.06.1954, Page 4
TÍMINN/ sunnudaginn 27. júni 1954.
140. bla&
SKRIFAD OG SKRAFAD
f aukablaði Tímans, er kom
út 17. júní, birtist stutt yfir-
lit um starfsemi samvinnu- j
hreyfingarinnar á árunum
1944—54. Þetta yfirlit sýndi
m. a., að S. í. S. hafði á þess- !
um tíma fært mjög út starf
semi sína og rutt nýjar braut
ir. Mikilvægustu nýmælin í
starfsemi þess, voru þó skipa
deildin, tryggingarnar og
aukning véladeildarinnar.
S. í. S. eignaðist fyrsta
skip sitt 1946, en á nú orðið
sex, og hið sjöunda bætist
við síðar á þessu ári. Árang
urinn af siglingum þeirra
er þegar orðinn mikill og
hefir stórbætt aðstöðu dreif
býlisins. Þó á hann vafa-
laust eftir að verða miklu
meiri.
Samvinnutryggingar hófu
starf sitt 1946. Vöxtur þessa
fyrirtækis hefir verið miklu
meiri en yfirleitt þekkist
hérlendis. Árangurinn hefir
verð í samræmi við það.
Það hefir lækkað trygging-
arnar, endurgreitt viðskipta
mönnum sínum samt mik-
inn hagnað og sparað þjóð-
inni stórfé í erlendum gjald,
eyri. |
Véladeild S. f. S. stendur
að sumu leyti á gömlum
merg, en vöxtur hennar hef
ir þó verið langmestur eftir
seinni heimsstyrjöldina og
ekki sízt nú allra seinustu
árin. Má nokkuð marka
þetta á því, að árleg velta
hennar er orðin 40 millj. kr.
Starf hennar í þágu landbún
aðarins er ómetanlegt og má
m. a. marka það á því, að á-
lagning á landbúnaðarvél-
um mun sennilega hvergi
eins lág og hér.
Það er annars ekki ætlun-
ín hér að fara að segja sögu
þessara þriggja merkilegu
fyrirtækja S. í. S., heldur að
vekja athygli á þeirri stað-
reynd, að þeim er öllum
sfjórnað af ungum mönnum.
Slíkt er góður vitnisburður
um það traust, sem sam-
vinnuhreyfingin ber til ungra
manna, og jafnframt vitnis-
burður um það, að ungir
menn og dugandi skipa sér
nú sem fyrr undir merki sam
vinnunnar. j
Þrír framkvæmdastjórar.
Hjörtur Hjartar, fram-
kvæmdastjóri skipadeildar
S. í. S., er elztur þeirra þre-
menninga, sem hér ræðir um,
en er þó ekki nema 37 ára
gamall. Hann byrjaði að
vinna í þjónustu samvinnu-
félaganna 14 ára gamall, þá
sem starfsmaður hjá Kaup-
félagi Dýrfirðinga. Hjá því
vann hann þangað til hann
varð tvítugur að aldri, að und
anskildum tveim vetrum, er
hann var í Samvinnuskólan-
um. Þá var hann ráðinn kaup
félagsstjóri hjá Kaupfélagi
Önfirðinga og er vafalítið, að
hann hafi verið yngsti kaup-
félagsstjóri landsins fyrr og
síðar. Þessu starfi gefiíndi
hann í átta ár, en bá varð
hann kaupfélagsstjóri á Siglu
firði og gegndi því starfi í 7
ár. Fyrir tveimur árum síðan
varð hann framkvæmdastjóri
skipadeildar S. í. S.
Erlendur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg
inga, er 33 ára gamall. Hann
hyrjaði eins og Hjörtur að
vinna í þágu samvinnufélag-
anna ungur að aldri. Sextán
ára gamall varð hann starfs-
maður Kaupfélags Vestur-
inn aðskilnað íslendinga og
Ungír forustumenn - Samvsnmihreyfingin og út}f.ndinea & Kenavikumug-
nýja kynsSóðin - MikiB fækkun verkafólks á
KeflavíkurveBBi-Hræsnigrjótkastara-MacCarthy
isminn eflist í SjálfstæðisfEokknum
Hjalti Pálsson
framkv.stjóri véladeildar S. í. S.
Skaftfellinga í yík og vann
hjá því næstu árin, að undan
skildum þeim tíma, er hann
stundaði nám við Samvinnu-
skólann. Að námi þar loknu
varð hann starfsmaður Lands
bankans um skeið og stund-
aði framhaldsnám í baiika-
málum í Bandaríkjunum á
árunum 1944—45. Vorið 1946
réði Vilhjálmur Þór hann til
að veita forstöðu hinu fyrir-
hugaða tryggingafélagi sam-
vinnumanna og kynnti Er-
lendur sér tryggingamál í
Bretlandi næstu mánuðina.
Um haustið 1946 tóku Sam-
vinnutryggingar svo til
starfa undir forustu hans.
Hefir hann þannig stjórnað
Samvinnutryggingum frá upp
hafi.
Hjalti Pálsson, framkvstjóri
véladeildar S. í. S., er yngst-
ur þessara þremenninga, 31
árs að aldri. Eftir að hafa
lokið búnaðarnámi að Hólum,
var hann á fimmta ár við há-
skólanám í Bandaríkjunum í
landbúnaðarverkfræði. Hann
réðist í þjónustu véladeildar
S. í. S. nær strax að þessu
námi loknu eða í ársbyrjun
1948. Árið 1949 varð hann
framkvæmdastjóri dótturfyr-
irtækis S. í. S., Dráttarvéla
h. f., og hefir gegnt því starfi
síðan. Fyrir tæpum tveimur
árum síðan varð hann svo
einnig framkvstj. véladeildar
innar, sem er nú orðin ein
umfangsmesta deild S. í. S.
og einna vandasamast mun
að stjórna.
Ungir kaupfélagsstjórar.
Það er víðar innan sam-
vinnuhreyfingarinnar en hjá
S. í. S., sem ungir menn bera
nú hita og þunga forustunn-
ar. Aldrei munu jafnmargir
ungir menn hafa verið kaup-
1 félagsstjórar og nú, og hafa
j sumir þeirra þegar unnið sér
mikla viðurkenningu.
Það má t. d. nefna Finn
Kristjánsson á Húsavík, Sig
fús Jónsson á Þórshöfn,
Björgvin Jónsson á Seyðis-
firði, Jón Sveinsson á Eski-
firði, Guðlaug Eyjólfsson á
Fáskrúðsfirði, Þorstein
Sveinsson á Djúpavogi, Ás-
grím Halldórsson í Höfn,
Odd Sigurbergsson í Vík,
Magnús Kristjánsson á
Hjörtur Hjartar
framKV.stjóri skipadeillar S. í. S.
Hvolsvelli, Jóhann Bjarna-
son í Vestmannaeyjum,
Gunnar Sveinsson í Kefla-
vík, Ragnar Pétursson í
Hafnarfj. Þorgeir Guðm.son
í Kópavogi, Helga Ólafsson
á Brúarlandi, Matth. Péturs
son á Hellissandi, Alexand-
er Stefánsson í Ólafsvík,
Jóhannes Kristjánsson í
Stykkishólmi, Guðjón Ólafs
son í Búðardal, Ólaf E. Ól-
afsson í Króksf jarðarnesi,
Boga Þórðarson á Patreks-
firði, Stefán Thoroddsen á
Bíldudal, Trausta Friðb.son á
Flateyri, Jóhannes Þ. Jóns-
son á SuÖureyri, Jónas Ein
arsson á Borðeyri, Svein Guð
mundsson á Sauðárkróki,
Kristján J. Hallsson á Hofs-
ósi, Salómon Einarsson í
Haganesvík og Skúla Jón-
asson á Svalbarðsströnd.
Allir eru þessir menn
innan við fertugt og allmarg
jir þeirra innan við þrítugt.
; Ef æskan vill rétta þér
1 örvandi hönd....
I Öll fortíð ísienzku sam-
vinnuhreyfingarinnar er með
þeim hætti, að það er óhætt
að hafa mikla trú á framtíð
hennar. Fengin reynsla bend
ir hiklaust til þess, að enn
'má margt vinna og úr mörg-
|um vanda leysa með úrræð-
um samvinnunnar.
Það vekur þó ekki sízt trú
á framtíð hennar, hve margt
ágætra ungra manna hefir
skipað sér undir merki henn
ar seinustu árin og stendur
nú þar í fremstu röð. Þeir
vilja vissulega ekki vera eft
irbátar fyrirrennaranna og
þeir munu ekki heldur verða
það.
Undir forustu þeirra bíða
samvinnunnar margir og
mikilvægir nýir sigrar til
heilla fyrir land og lýð.
Orsök verkafólks-
eklunnar.
Víða úr sveitum berast þær
fregnir, að mjög örðugt sé að
fá verkafólk. Ráðningaskrif-
stofa landbúnaðarins telur
framboð á verkafólki til land
búnaðarstarfa sjaldan hafa
verið eins lítið og nú.
Því hefir verið haldið
fram, að þetta stafi ekki
velii.
Fordæmingarskrif Þjóð-
viljans um grjótkast hins
ölóða Bandaríkjamanns
munu hins vegar fáir taka
alvarlega, þegar þess er
gætt, að Þjóðviljinn hefir
reynt og reynir að gera grjót
kastara að þjóðhetjum, eins
og t. d. þá, sem grýttu þing
húsið 30. marz 1949 og veittu
einum lögregluþjóni hættu-
legan áverka með því fram
ferði sinu. Oft fyrr og síðar
hefir Þjóðviljinn líka veg-
samað framkorau þeirra, er
beitt hafa lögregluna cf-
beldi.
Þessi dæmi sýna, að Þjóð
viljinn fordæmir ekki grjót-
kast eða önnur ofbeldisverk,
sem unnin eru í þágu þeirr-
ar stefnu, sem hann þjónar.
jHúsbændur Þjóðviljans líka
5 beinlínis dýrka ofbeldið í
jskiptum þjóða og einstak-
linga. Brynjólfur Bjarnason
I hefir lýst með miklum fjálg-
I leik þeirri dýrðlegu stund, er
kommúnistar ynnu lokasigur
á íslandi „með handafli".
_ , . ... Þetta er hollt að rifja upp í
sizt af þvi, hve margir yinm af hræsnisskrifum
n“ a Keflavíkurflugvelh. Þjóðviljans undanfarið.
tilefm af því þykir rett að
upplýsa, að íslenzkt starfs- ' Ungir gjálfstæðismenn
f°Ik á Keflavíkurflugvelh er Qg MacCarthyisminn.
Erlendur Einarsson
framkv.stjóri Samvinnutrygginga
nú um 800 færrá en á sama
I seinustu viku fór fram
tímoAÍ fyrra' 1>a UnnU ^,ar prófkjör hjá republikönum í
lUv ool° mannS,“"U,!n?" Maine-fylki í Bandaríkjun-
yið 2200. Er her talið allt það um Annar öldungadeildar-
folk, sem vinnur hja erlend maðurinn þaðan, Margaret
um og mnlendum verktok- Smith> gem hefir yerið eina
um og hja hernum. I konan í öldungadeildinn, sæk
Verkafólkseklan mun eink ir nú um endurkosningu. Hún
um stafa af því, að fleira hefir jafnan gagnrýnt Mac-
fólk vinnur nú við útgerð en Carthy mjög harðlega. Mac-
venjulega á þessum tíma. Carthyistar buðu því fram
Einkum hefir smábátaútgerð gegn henni við prófkjörið, en
aukizt víða. Þá munu senni- biðu mikinn ósigur. Þykir
I lega fleiri ætla að fara á síld þetta sönnun þess, að Mac-
I veiðar en í fyrra, því að nú Carthysminn sé í afturför í
1 er talin meiri von um síld en Bandaríkjunum.
oft áður. Loks vinna nú fleiri,
við byggingarvinnu, því að |
byggingar hafa að sjálfsögðu'
aukizt nokkuð við það að
rýmkað var um byggingar-
hömlur um áramótin.
Kommúnistar og grjót-
kast.
Þjóðviljinn reynir að gera
sér mikinn mat úr rysking-
um þeim, er urðu á Keflavík
urflugvelli aðfaranótt fyrra
sunnudags. Einkum verður
honum tíðrætt um það, að
ölvaður Bandaríkjamaður
veitti íslenzkum lögreglu-
manni áverka með grjótkasfi.
Það ber vissulega að for-
;dæma mjög harðlega fram-
komu þeirra amerískra verka
manna, sem hér um ræðir.
Jafnframt á þetta að vera
hvatning um að hraða fram-
i kvæmd þess samkomulags, er
nýlega var gert við Banda-
ríkjastjórn, um stórum auk-
Þess sáust hins vegar
merki í Morgunblaðinu í síð
astl. viku, að MacCarthyism
inn er ekki í afturför í Sjálf
stæðisflokknum. Þar birtist
yfirlýsing frá stjórn Sam-
bands ungra Sjálfstæðis-
manna, en þar eru menn
eins og Magnús frá Mel, Þor
valdur Garðar og Geir Hall
grímsson æðstu prestar. í
yfirlýsingu þessari er lýst
óbeinni velþpknun á þeim
skrifum Flugvallarblaðsins,
að utanríkisráðherra haldi
verndarhendi yfir rússnesk
um njósnurum á Keflavíkur
flugvelli, og það harðlega á-
taliö, að ráðherrann skuli
hafa gert ráðstafanir til að
hrinda þeim.
Það er að sumu ley.ti ekki
nema gott um það að segja,
að forvígismenn ungra Sjálf-
stæðismanna skuli nú hafa
(FramhKld & 6. eí5u.)
ðSSSSSSSSSSSSSSSSSðSSSSSSSfiSSSSSSSð*
Framtíðaratvinna
Oss vantar reglusaman og duglegan afgreiðslu-
írann frá 1. sept. n.k. Umsóknir með upplýsingum
og kaupkröiu sendist á skrifstofu vora fyrir 20. júlí n. k.
Kaupfélag Skagfirðinga
Sauðárkróki.
a$SS$5$45$$$$SS$SS$$$$S$S$$$SS$$SSS$S$$$S$$$$$S$$$S$$$$S$S$$$$$$S$5$$$«