Tíminn - 16.09.1954, Page 4
TÍMINN, fimmtudaginn 16. september 1954.
207. blaff,
Laxveiðin hefur verið
innan við meðaliag
í sumar
í dag lýkur lax- og göngu-
silungsveiði á þessu ári og
veiði í stöðuvötnum lýkur 27.
þ. m. Laxveiðin í sumar á
stöng hefir verið töluvert
innan við meðallag síðustu
sex ára, en hún er svipuð og
hún var í fyrra, samkvæmt
þeim skýrslum, sem fyrir
liggja nú. Veiðin í nokkrum
ám hefir verið með alminnsta
móti eins og t. d. í Þverá í
Borgarfirði, en í öðrum
ám yfir meðallagi eins og í
Elliðaám, Haukadalsá í Döl-
um og víðar. Laxveiði í net í
Árnessýslu hefir verið með
lakara móti og í Borgarfirði
hefir hún verið undir meðal-
lagi.
Útsöluverð á nýjum og
reyktum laxi hefir verið
nokkru hærra í sumar held-
ur en í fyrra og það lang
hæsta, sem það hefir verið
til þessa. Búðarverð á sil-
ungi hefir einnig verið hærra
en árið áður.
Um göngusilungsveiði hafa
en ekki borizt skýrslur og
sama er að segja um veiði
vatnasilungs. Þó er vitað, að
silungsveiðin í Mývatni hefir
verið góð á þessu ári og einnig
í Þingvallavatni.
Að undanförnu hafa nælon
net verið tekin í notkun við
veiði lax- og silungs í ám og
vötnum og hafa þau reynzt
örugglega veiðnari á silung
heldur en eldri gerð af net-
um.
Á yfirstandandi sumri hef-
ir verið lokið við að gera tvo
laxastiga í fossa neðan til í
Laxá' Ytri hjá Höskuldsstöð-
um í Húnavatnssýslu. Sam-
anlegt eru fossarnir 13 m. á
hæð og er lengd laxastig-
anna beggja um 70 m. breidd
þeirra við botn er 1,8 m. og
eru laxastigar þessir mestu
mannvirki af sínu tagi, sem
gerð hafa verið í eina á hér
á landi. Var sprengt fyrir
stigunum 1952 og 1953, og
þeir steyptir upp í sumar.
Með tilkomu laxastiganna
opnast ný ársvæði fyrir laxa
göngum nál. 25 km að lengd.
Þá er hafin endurbygging
á laxastiga í Laxfossi í Norð-
urá í Borgarfirði og er ætl-
unin að ljúka því verki í þess
um mánuði.
í Laxá í Dölum var sprengd
100 m löng og 1,5 m. breið rás
í klappir ofan við ós árinn-
ar til að auðvelda laxi göngu
iupp í ána, en þessi hluti ár-
innar var áður torgengur fyr
ir lax, þegar áin var vatns-
lítil.
j í sumar hefir verið komið
jupp nýrri klak- og eldisstöð
í Hafnarfirði, sem Reykdals-
fcræður og fleiri standa að.
Mun klakhúsið verða tekið í
notkun í haust og ætlunin er
að hefja eldi í stöðinni næsta
vor, en byggðar hafa verið
jsjö eldistjarnir nál. 2000 fer
m. að flatarmáli. í eldisstöð
inni við Elliðaár og klak- og
eldisstöðlnni að Laxalóni í
Mosfellssveit hefir veriö unn
ið í sumar við byggingu nýrra
eldistjarna. Nokkur hundruð
þúsund laxaseiða hafa verið
í eldi í sumar í tveimur nefnd
um stöðvum og hefir mest-
um hluta seiðanna verið
sleppt í ár víðsvegar um land
ið nú að undanförnu.
Allt d sama stað
Höfum fengið hina heimsviðurkenndu MICHELIN
hjólbarða í eftirtöldum stærðum:
500x14
600x15 zz
650x15 zz
700x15 zz
525/550x18
700x20 (32x6)y
750x20 (34x7)y
825x20 y
600x16 zz
650x16 zz
900x16 zz
Samtök síldarsalt-
enda á Suðvestur-
landi
I fyrradag komu saman til
fundar í Reykjavík nær allh/
síldarsaltendur á suðvestur- j
landi, þ. e. á svæðinu frá
Breiðafirði til Vestmanna-1
eyja. Fundarmenn samþykktu •
að stofna með sér félag til
að fjalla um málefni sín í
sambandi við síldarsöltun og
síldveiðar á fyrrgreindu
svæði. Voru sett lög fyrir fé-
lagið og kosin stjórn þess, en
hana skipa: Jón Árnason,
útgerðarmaöur á Akranesi,
formaður, Ingimar Einarsson
forstjóri í Sandgerði, vara- j
formaður, Björn Pétursson, ’
útgerðarmaður í Keflavík, j
Beinteinn Bjarnason, útgerð
armaður í Hafnarfirði og j
Guðsteinn Einarsson, fram-!
kvæmdastjóri í Grindavík. íj
varastjórn eru: Sigurður
Ágústsson, alþingismaður í
Stykkishólmi, Ólafur Jónsson
framkvæmdastjóri í Sand-
gerði, Huxley Ólafsson, for-
stjóri í Keflavík, Jón Jónsson
útgerðarmaður í Hafnar-
firði og Ellert Ásmundsson,
útgerðarmaður á Akranesi.
Vandamál síldarsaltenca. !
Á fundinum voru rædd
vandamál þau, sem síldar-
saltendur eiga við að etja um
þessar mundir. Ber í því sam
bandi fyrst og fremst að geta
þess, að útflutningsverð á
saltsíld er of lágt tii þess að
um starfsgrundvöll geti ver-
ið að ræða. Þá hefir síldin
oftast reynzt rýr og smá.
Fundarmenn töldu, að þær
fréttir, sem birzt hafa af
síldveiðunum og söltuninni
hafi gefið villandi hugmynd-
ir um heildarástandið, þar
sem oftast sé getið góðra
daga, sem því miður hafa
verið fremur fáir, en hinna,
sem slæmir eru því þeir hafa
verið margfallt fleiri.
í þessu sambandi má benda
á, að þótt aðeins séu um 80
bátar við reknetaveiðar á
öllu veiðisvæðinu, sem er
miklu færra en undanfarin
ár, geta þeir í mörgum til-
fellum ekki losnað við nema
hluta af afla sínum þá daga
sem þeir fá góða veiði. Staf-
ar það af því, hve fáar og af-
kastalitlar söltunarstöðvarn-
ar eru, en það orsakast aft-
ur fyrst og fremst af fyrr-
r.efndum örðugleikum á sild
arsöltun. í slíkum tilfellum
verða bátarnir að leggja hluta
af afla sínum í bræðslu fyrir
lágt verð, en þeir mega illa
við slíku, þar sem fersksíld-
arverð er lágt miðað við fram
leiðslukostnað og veiðarfæra
tjón allmikið vegna skemmda
af völdum háhyrninga.
Fundurinn fói hinni ný-
kjörnu stjórn að taka upp
viðræður við rikisstjórnina
og bankana um skjótar ráð-
stafanir til að forða stöðvun
síldarsöltunar, sem annars
vofir yfir nú á næstunni.
ÍJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJCJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ)
Og
Nútímakonan
gerir meiri kröfur til.hreinlætis
og jafnframt tómstunda en áður
tíðkaðist. Þvottaefnin (hreinlæt
isefnin) mega ekki vetra svo
sterk, að þau valdi skemmdum
á þvotti, húsgögnum og híbýl-
um. Og þau verða að vera al-
gerlega óskaðleg fyrir hörund-
ið. Engin kona vill fá rauðar,
þurrar, harðar og sprungnar
hendur við heimilisstörfin. Og
sama þvottaefnið verður að vera
fjölvirkt. Dagar sápu, sóda og
klórs eru senn taldir, og nýju
gerviefnin, t. d. Nylon og Perlon
krefjast nýs þvottaefnis. Og síð
ast en ekki sízt, nýtízku þvotta
efni verður að stytta vinnudag-
inn.
REI eitt fullnægir öllutn þess-
um kröfum nútímakonunnar svo
vel, að furðu gegnir.
Á aðeins 5 árum hefir REI náð
útbreiðslu um heim allan — allt
frá íslandi til Argentínu — allt
frá Java til Mið-Ameríku. Mill-
jónir húsmæðra, jafnt í hæstu
sem lægstu byggðarlögum, jafnt
í heitum sem köldum löndum,
þurrum sem rakasömum, hafa
tekið REI fegins hendi. í þessu
efni hefir hörundslitur hú%móð
urinnar engu skipt.
REI og Rei-notkunarreglur á
íslenzku fást í næstu búð. —
— Stór pakki aðeins kr. 6,90 —
Reynið REI!
Notið REI!
V. SIGURÐSSON
& SNÆBJÖRNSSON H.F.
jjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjja
t
iJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJSJJJJJJJJJJJJJJJJSJl
Jafnan fyrirliggjandi
fjölbreytt úrval af
metravörum og
kven-undirfatnaði
EEILDSOLUBIRGÐIR:
0
Islenzk-erlenda verzlunarfélagið hi.
MICHELIN
TYRE Co. Ltd.
H.f. Egill Viihjálmsson
SÍMI: 81812.
Samtök lúðrasvcita
stofnuð
(Framhaia af 3. sí&u.j
, tollar og blátagjaldeyrir af
hljóðfærum fyrir lúðrasveit-
ir, þar sem tekjumöguleikar
þeirra eru mjög litlir og all-
ir meðlimir áhugamenn, sem
jstarfa kauplaust og eiga því
’erfitt með að afla sér dýrra
Garðastræti 2 og 4
Sími 8333
ijjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjíjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj) hljóðfæra
tsjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjja
Fimmta fulltrúaþing
Landssambund framhaldsshólahennara
: hefst f Gagnfræðaskóla Austurbæjar fimmtudaginn
: 23. september kl. 5 síðdegis.
SAMBANDSSTJÓRNIN.