Tíminn - 18.12.1954, Blaðsíða 1
V-
12 síður
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Ó'tgeíandi:
Pramsók-narílokkurinn
12 slður
Skrifstofur i Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusím 2323
Auglýsingasimi 81300
Prentsmiðjan Edda. r
88. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 18. desember 1954.
287. blaff.
Áætlun gerð um næstu stórframkvæmdir í raforkumálum:
Virkjun Grímsárfoss og háspennulína til Aust-
urlands — tvær virkjanir á Vestfjörðum
Erlendur Einarsson ráðinn f or
síjóri Sami). ísl. samvinnufél.
Framkvæmdastjórn SSS skipa mi 5 íaieim
Stjórn Sambands íslenzkra samvinnufélaga samþykkti á
fundi sínum í dag að ráða Erlend Einarsson sem forstjóra
Sarnbandsins frá næstu áramótum, en þá lætur Vilhjálmur
J>ór af því starfi til csð taka við bankastjórastööu í Lands
bankanum.
i . , , .., „fo vestur um haf til framhalds
I framkvæmdastjorn SIS
voru kjörnir auk forstjóra,
Gert ráð fyrir að hægt sé að hleypa á straum
frá hinum nýju orkuverum í árslok 1957
Samkvæmt upplýsingum frá raforkumálaráðuneytinu og I
St'eingrími Steinþórssyni, rafo>rkumlaráðheV,ra, hafa nú ver I
ið teknar ákvaiðanir um helztu virkjana- og veitufram-1
kvæmdir á árinu 1955 í samræmi við rafvæðingaráætlun |
stjórnarsamningsins og samkvæmt lögum nr. 52 frá 21. apr.!
ÍS5! um viðauka við raforkulögin. Er hér um að ræða mikl j
ar framkyæmdir og stórt spor að hinu setta marki um alls |
herjarrafvæðingu landsins.
Framkvæmdir þær, sem hér um ræðir, eru virkjun Gríms
irfoss og raflína frá Laxá til Austurlands. Á Vestfjörðum
eru virkjanir við Mjólkár og Fossá. Straum á þessar veitur
á að vera hægt að hleypa fyrir árslok 1957. Þá eru ráðgerð
ar rafiínur héraðsveitnanna á 350 býli á næsta ári.
Erlendur Einarsson.
sem er sjálfkjörinn, þeir
Helgi Þorsteinsson, framkv.-
stj. innflutningsdeildar og
er hann varaformaðnr fram
kvæmdastjórnarinnar, Helgi
Pétursson, framkv.stj. útfl.-
deildar, Hjalti Pálsson, fram
kvæmdastjóri vélaéjeildar og
Hjörtur Hjartar, framkv.stj.
skipadeildar. Varamaður í
framkvæmdastjórn var kjör
inn Harry Frederiksen, fram
kvæmdastjóri iðnaðardeild-
ar.
Erlendur Einarsson er 33
ára gamall Skaftfellingur,
fæddur í Vík í Mýrdal 1921,
sonur hjónanna Einars Er-
lendssonar, sem verið hefir
st.arfsmaður Kaupfél. Skaft-
fellinga í fjóra áratugi, og
Þorgerðar Jónsdóttur.
Erlendur réðst 15 ára gam-
ail til starfs hjá kaupfélag-
ilTu i—Vik og vann þar til
áísi'ns:a342, nema hvað hann
«t«Sdaði «nám í Samvinnu-
skólaranfS veturna 1939—41.
"“ftirþais varð hann starfs-
iaður Landsbankans, en fór
náms 1944—1945. Lagði hann
þá fyrir sig bankamál og
starfaði jafnframt víð banka
í New York. Síðan hefir Er-
lendur dvalist eitt misseri við
framhaldsnám við Harvard
háskólann vestra, og var það
veturinn 1952.
Árið 1946 var Erlendur ráð
inn til að veita forstöðu Sam
vinnutryggingum, sem settar
voru á stofn það ár. Dvald-
ist hann þá um hríð í Eng-
landi við undirbúning trygg
ingafélagsins, og hefir veitt
því forstöðu síðan. Hefir það
blómgazt ört og er nú, eftir
aðeins átta ára starf, annað
stærsta eða stærsta trygg-
ingafélag landsins.
Samvinnutryggingar hafa
undir stjórn Erlendar valdið
miklum breytingum á trygg
ingastarfseml hér á landi,
fyrst og fremst með því að
skila hinum tryggðu stórum
upphæðum í endurgreiddum
tekjuafgangi, en einnig fyrir
nýja stefnu í endurtrygging
armálum, stóraukna fræðslu
(Framhald á 2. siðu.)
Virkjun Grímsár.
Á Austurlandi verður hafizt
handa um virkjun Grímsár í
2400 kílówatta orkuveri, sem
gert veröur við Grímsárfoss,
og í beinu framhaldi af þess-
ari virkjun verður lögð raflína
milli Laxárvirkj unar og Egils-
staða, sem tengir saman veitu
kerfi Austurlands og Norður-
lands. Frá orkuverinu í Gríms
á verða meðan á framkvæmd
virkjunar stendur lagðar raf-
línur til þessarra kaupstaða
og kauptúna: Egilsstaðaþorps,
Vopnafjarðar, Bakkagerðis,
Seyðisfjarðar, Neskaupstaðar,
Eskifjarðar, Búðareyrar og
Búðakauptúns og í framhaldi
af því frá Búðakauptúni til
Stöðvarfjaröar, Breiðdalsvík-
ur og Djúpavogs.
Virkjanir á Vestfjörðum.
Á Vestfjörðum verður gerð
2400 kílówatta virkjun í Mjólk
ánum í botni Arnarfjarðar og
jafnframt 400 kílówatta virkj
un í Fossá í Hólshreppi. Sam-
tímis virkjunarframkvæmd-
um veröur lögð aðalorkuveita,
sem tengir saman bæði þessi
orkuver og Fossavatnsvirkj -
unina í Engidal, og mun hún
ná til þessara kaupstaða og
kauptúna: Patreksfjarðar,
Sveinseyrar, Bíldudals, Þing-
eyrar, Flateyrar, Suðureyrar,
ísafjarðar, Hnífsdals, Bolung-
arvíkur og Súðavíkur.
Bæði á Austurlandi og Vest-
fjörðum munu verða lagðar
raflínur út frá aðalorkuveit-
um um nálægar sveitir eftir
því sem nánar verður ákveðið.
Einkum vatnsvirkjanir
í sumar.
Áætlað er að taka muni
%V-z—3 ár að gera fsaman-
greindar virkjanir á Austur
iandi og Vestfjörðum, svo
að hægt verið að hleypa
straum á veitnrnar fyrir árs
lok 1957. Bæði á Austurlandi
og Vestfjörðum verður á
næsta sumri einkum unnið
að vatnsvirkjunarfram-
kvænióum.
: Stofnkostnaður Grímsár-
virkjunar og aðalorkuveitu til
Steingrímur Steinþórsson
raforkumálaráðherra
þeirra kaupstaða og kaup-
túna, er nefnd voru, er áætl-
aður um 40 milljónir króna.
Stofnkostnaður Vestfjarða-
virkjana og aðalorkuveitn-
anna frá þeim er einnig á-
ætlaður um 40 milljónir kr.
(Framhald & 2. sI3a.)
Fiugvélin gat hvorki lent á Egilsstöðum
né í Reykjavík, lenti á Akureyri í myrkri
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri.
í gærkveldi tóku Akureyr
ingar eftir því, að flugvél
sveimaði lengi hring eftir
hring yfir bænum. Var þetta
um klukkan átta, og lenti
vélin síðan á nýja flugveíl
inum á leirunum.
Gat ekki lent á Egils-
stöðum eða Rvík.
Þarna var á ferðinni far
þegaflugvél frá Flugfélagi
íslands, og stóð svo á ferð-
um hennar, að hún var að
koma frá Egilsstöðum með
farþega, en gat ekki lent í
Reykjavík og ekki lieldur á
Egilsstööum aftur. Var þá
haldiö til Akureyrar.
ísing á vélinni.
Allmikil ísing hafði setzt
á flugvélina, og varö hún að
sveima alllengi yfir bænum
til þess að losna við hana.
Mun flugvélin liafa sveim-
að þannig nær klukkustund.
Slökkviliðsbíll og var-
úðarráðstafanir.
Á nýja flugvellinum vfð
Akureyri eru ekki enn full-
komin ljóstæki til iýsingar,
heldur notazt við olíuljós.
Er því ekki gott fyrir flug-
véiar að lenda þar í myrkri.
Var því til öryggis sendur
slökkviliðsbíll út á völlinn
og fleiri variiðarráðstafanir
gerðar, ef slys bæri að hönd
um. Var þessi varúðarráð-
stöfun gerð meðan flugvél
ín sveimaði yfir til að losna
viö ísinguna.
Lendingin gekk vel.
Síðan lenti flugvélin og
gekk lendingin að óskum og
þurfti slysavarnatækja ekki
við sem betur fór. Sandur
hafði einnig verið borinn á
völlinn til öryggis. Flugstjóri
var Sverrir Jónsson. Hélt
flugvélin svo suður kl. níu
í morgun.
Sameinað Alþingi kaus I
gær fimm menn og jafn-
marga til vara í nýbýlastjóra
til fjögurra ára.
Þrír listar komu fram: A-
listi með nafni Áemundar
Sigurðssonar, B-listi, með
nöfnum Steingríms Stein-
þórssonar og Hauks Jörunds
sonar og D-listi með nöfn-
um Jóns Pálmasonar og Jóns
Sigurðssonar. Voru þessir
menn; þvl réttkjörnir sem
aðalmenn.
Varamenn voru kjörnir:
Tryggvi Pétursson, fulltrúi í
Búnaðarbankanum (komm-
únisti), Björn Bjarnason,
ráðunautur og Þorsteinn Ei-
ríksson, skólastjóri (Fram-
sóknarmenn), Ingólfur Jóns
son og Þorsteinn Þorsteins-
son (Sjálfstæðismenn).
Bnðir opsiar til
kl. 10 í kvöld
Eins og að undanförnu fyr
ir jólin verða sölubúðir opn-
ar tvö kvöld lengur en venju
lega. Fyrra sinnið er í dag
og verða búðir opnar til kl.
10 í kvöld en á Þorláksmessu
sem e:r næsta fimmtudag,
verður opið til miðnættis.