Tíminn - 29.12.1954, Blaðsíða 3
294. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 29. desember 1954.
3
Framfærslukostnaöur og
kaupmátfiir á Norðurlöndum
Grelnarge?® írá Hagstofmmi
Stutt ferðasaga
Á aðalfundi Kaupfélags
Steingrímsfjarðar, Hólmavik
1053, stofnuðu fulltrúar ferða
sjóð, og gáfu þeir dagkaup
sitt til sj óðsstofnunarinnar,
þó hefir kaupfélagið einnig
lagt fé til sjóðsins. Skal veita
styrk úr honum til 2—3 daga
hópferða fyrir félagsmenn,
jafnt karla sem konur.
í ár skyldi svo nokkrum
hluta félagsmanna gefinn
kostur á að fara eina slíka
hópferð. í þetta sinn voru
bátttakendur úr Kirkjubóls-
hreppi, 36 að tölu.
Ákveðið var að fara eftir
fyrri túna slátt, þegar töður
væru hirtar. Nú var sumarið
afar kalt og sólskinslítið hér
um slóðir um túnasláttinn,
og gekk illa að þurrka töð-
una, dróst því að farið yrði
fyrr en um miðjan ágúst.
Vor(u töð'ur þá að mestu hirt
ar. Kosið var um Norðurland
og Suöurland og var Suður-
land hlutskarpara, enda
sagði útvarpið sólskin og
hlýindi þar en þokusúld og
kulda fyrir Norðurlandi.
Lagt var af stað laugar-
daginn 14. ágúst s. 1. kl. 7
árdegis í hinum nýja og á-
gæta langferðabíl Ingva Guð
mundssonar, sem gengur á
leiðinni Rvík—Hólmavík.
Var nú orðin breyting á
veðri. logn, bjart loft og hiti
um morguninn, bezti þurrk-
dagur sumarsins sem komið
hafði. Hélzt þessi þurrkur
alla vikuna hér um slóðir, og
var bezta vika sumarsins.
í suðurhluta sýslunnar
voru meiri óþurrkar um túna
sláttinn, en irm miðsýsluna,
og voru mikil hey úti, sem
bændur voru að rífa niður
þennan dag, sem sum var
orðin mikið hrakin.
Haldið var beint í Bifröst,
hir, glæsilegu húsakynni Sís
og borðað þar, að því loknu
var staðurinn skoðaður, far
ið upp að Hreðavatni og dval
ið þar góða stund í hinu feg-
ursta veðri.
Eftir tveggja tíma viðdvöl
var haldið til Hvanneyrar,
— þar tók á móti okkur Guð-
mundur Jónsson skólastjóri.
Safnaðist allur hópurinn sam
an úti í skólagarði og lýsti
skólastjóri þar skólabúi og
skólalífi. Á eftir var staður-
inn skoðaður. Bauð svo skóla
stjóri og frú öllum til kaffi-
drykkju og var setið þar góða
stimd í ágætum fagnaði.
Á eftir var gengið út á tún
ið og skoðaðar ýmsar vinnu-
vélar, sem voru þar við sam-
tekningu á heyi og við háar-
slátt. Var svo Hvanneyrl
kvödd með ferföldu húrra-
hrópi.
Nú var haldið beint til
Reykjavíkur cg gist þar um
ncttina. Þetta kvöld var feg-»
urðardrottning íslands valin,
en við komum oí seint til að'
taka þátt í valinu.
Daginn eftir mættu all-ir
kl. 10 árd. við Ferðaskrifstof
una. Farið var beint til Þing
valla og staðurinn skoöaður,
og höfðu margir ekki komið'
þar áður. Útsýni var ekki upp
á bað bezta til fjallanna,
Þykkt var í lofti og smáskúr-
ir. en birti þegar á daginn
leið.
Nokkrir fóru fáum aurum.
fátækari frá Þingvöllum, og
vildu fylgja gómlum og góð-
um sið, að borga fyrir á-
nægjulega viðdvöl þar, og'
skilja eftir nokkra aura ii
Peningagjá.
Þá var ekið að Sogsvirkjun
og skoðuö hin miklu mann-
virkj þar, gengið .um 40 m.
niður í jörðina. en íarið £
lyftu upp aftur
Fariö var síðan að Selfossi
og kauptúnið skoðað. Ekio
var síðan til Rvíkur um Hell
isheiði með stuttri viötívöl i
Hveragerð'. Gist var í Rvik
um nóttina.
Morguninn eftir var fariS
í búðir í Rvík tii hádegis. KL
1 mættu allir v’ð Ferðaskrif
stofuna. Voru þar mættir
rokkrir gatnlir Strandamenrj
búsettir nú í Reykjavík. Var
rabbað við þá dálitla stund,
þangað til bílstjórinn flaut-
aði og gaf til kynna að burt-
farartími væri korninn. —
ITeimleiðis var svo haldið meö
dálitlri viðdvöl r Forna-
hvammi.
Ferðin öll var hin ánægju
iegasta. Kátt var í bílnum hjá
Ingva. Mikið var sungið,
enda var kirkjukór Kolla-
fjarðarnesskirkju meða'í
ferðafélaganna og söngstjórl
hans. Magnús Jónsson, Kolla
fjarðarnesi. Þar létu og rnarg
ir til sín heyra gegnum há-
talara' bílsins.
Ég vil að siðustu þakka
feröafélögunum fyrir á-
nægjulega samverustund.
Guömundi Jónssyni, skólastj'.
og frú fyrir myndarlegar
móttökur á Hvanneyri, bil-
stjóranum okkar fyri; ör-
ugga stjórn og leiðsögn, og
síðast en ekki sízt Kaupfél.
Steingrímsfjarðar fyrir for-
göngu þess að stofnað er tii
hópferða félagsmanna þess.
Benedikt GrímssoiA.
f ráöi útgerð 20 lesta
báta út frá Rifshöfn
Frá fréttaritara Tímans á Hellissandi.
Tíðarfar er rosasamt á Snæfellsíiesi iim þessar mundiv
og gefwr illa til sjósóknar frá Sandi þar sem stwnda verðwr
sjó á opnwm bátum litlum. Nokkrar vonir erw enn til þess
að hægt verði að hefja útgcrð úr Rifshöfn hinni nýjw á,
Er dýrara eða ódýrara að
lifa í Reykjavík en í Osló,
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi
eða Helsingfors, og hve miklu
munar það tiltölulega? Hve
miklar tekjur þarf til þess að
lifa nokkurn veginn jafngóðu
lífi í þessum borgum og i
Reykjavík? Og hver er munur
inn á vihnulaunum?
Nefnd skipuð fulltrúum frá
hagstofum- Norðurlanda hefir
fyrir skömmu lagt fram álit
sitt um þetta í 92 blaösíðna
bók, er nefnist „Framfærslu-
kostnaður og kaupmáttur
launa í höfuðborgum Norður-
landa“,-
Hlutverk nefndarmnar var
að ber-a saman framfærslu-
kostnað og kaupmátt launa á
Norðurlöndum á ákveðnum
tíma — í apríl 1952 — en í
framkvæmd var athugunin
miðuð við höfuðborgirnar.
.Vegna þess, hve neyzluvenjur
manna, vöruúrval á markaðn
um, veðrátta o. s. frv. eru mis
munandi, er erfitt að finna
mælikvarða til samanburðar
á framfærslukostnaði og kaup
mætti launa og er því í álitinu
gerð ýtarleg grein fyrir fræði
legri hlið þessara mála.
Sú aðferð var valin að finna
þá peningaupphæð, sem þarf
til að halda ákveðnum „líís-
kjörum“ á viðkomandi stað.
Við samanburð milli staða er
hér miðað við „lífskjörin“ á
hvorum þeirra um sig, en ekki
við meðaltal þeirra fyrir við
komandi staði. Þannig eru
t. d. tvær samanburðartölur
fyrir Stokkhólm og Kaup-
mannahöfn, önnur miöuð við
aðstæður í Kaupmannahöfn,
en hin við aðstæður í Stokk-
hólmi, og þeim þarf engan
veginn að bera saman, enda
hefir sú ekki orðið raunin.
Með „lífskjörum“ er hér átt
við það magn af neyzluvörum
og þjónustu, sem meðalfjöl-
skylda telst nota sér til fram
færslu á einu ári samkvæmt
þeim neyzlugrundvelli, sem
Vísitala framfærslukostnaðar
miðast við í hverju landi. í
Noregi er þó miðað við neyzlu
meöalfjölskyldu í Osló einni.
Framfærslukostnaðurinn er
Sú upphæð, er þarf til aö
kaupa þessar vörur og þjón-
ustu á því verði, er gilti á
staðnum í apríl 1952, og rann
SÖknin var fólgin í því aö
reikna út tilsvarandi upphæð
ír fyrir hinar höfuöborgirnar
miðað við verð á sömu eða
sem líkustu vörum og þjón-
ustu þar á sama tíma.
Kaupmáttur launa er síðan
borinn saman á þann hátt,
áð reiknað er út, hve margar
vinnustundir þarf að vinna á
hverjum stað fyrir upphæð
framfærslukostnaðarins. Hér
ér miðað. við meðaltímalaun
iðnverkamanns í hinum 5 höf
uðborgum, hverri fyrir sig.
Fyrir höfuðborgirnar, aðrar
en Reykjavík, er miðað við
raunverulega greidd laun, og
er ákvæöisvinna og einhver
ýfirvinna þar meötalin, en fyr
ir Reykjavík er miðað við
tímalaún karla í verksmiðjum
án yfirvinnu.
Með því að ísland var ekki
með í þessari rannsókn frá
byrjun og engin tök voru á
að sækja hina mörgu sérfræð
ingafundi, sém haldnir voru
til undirbúnings álitinu, var
þátttaka íslands takmörkuö
við það að bera saman fram
færslukostnað og kaupmátt
launa í Osló og Reykjavík
miðað við neyzlu meðalfjöl-
skyldu í Osló. Var þannig
reiknað út, hve mikið neyzla
meðalfjölskyldu í Osló kostaði
í Reykjavík í apríl 1952. —
Ástæðan fyrir því, að Osló var
tekin fremur en einhver
hinna höfuöborganna er sú,
að neyzluvenj ur íslendinga
eru taldar líkari neyzluvenj-
um Norðmanna heldur en
hinna þjóðanna.
Niðurstöður rannsóknarinn
ar með Osló sem viðmiðun
koma fram í' eftirfarandi vísi
tölu, annars vegar fyrir fram
færslukostnað umreiknaðan
eftir gjaldeyrisgengi, og hins
vegar fyrir kaupmátt launa:
Framfœrslukostn. Kaupm. launa
í Osló = 100 í Osló = 100
Oslo 100 100
Reykjavík 178 107
Kaupmannahöfn 95 112
Stokkhólmur 125 113
Helsirigfors 138 100
Miðað við aðstæður í Osló
og við gildandi gjaldeyris-
gengi er framfærslukostnað-
ur í Reykjavík þannig 78%
hærri en þar. En þegar laun
á hvorum staðnum fyrir sig
eru sett í hlutfall við fram-
færslukostnaö, er niðurstaðan
sú, að kaupmáttur launa sé
7% hærri í Reykjavík en í
Osló. Tölúrnar sýna ennfrem
ur framfærslukostnað og
kaupmátt launa í öðrum höf
uðborgum Norðurlanda, með
aðstæður í Osló sem viðmiðun,
en hæpiö er að nota þau hlut
föll til samanburðar á fram-
færslukostnaði og kaupmætti
launa í Reykj.avík og hinum
norrænu höfuöborgunum öðr
um en Osló. Til þess þyrfti að
liggja fyrir útreikningur á
því, hvað neyzla meðalfjöl-
skyldu í þeim kostar í Reykja
vík, og raunar helzt líka, hvaö
neyzla meöalfjölskyldu í
Reykjavík kostar í hinum
höfuðborgunum, en það ligg
ur ekki fyrir eins og áður er
tekið fram.
Yfirleitt er eins og að líkum
lætur framfærslukostnaður
tiltölulega lægstur og kaup-
máttur launa hæstur á hverj
um stað fyrir sig, þegar við
samanburð er miðað við
neyzlugrundvöll viðkomandi
staðar. Þannig reynast vísitöl
ur fyrir framfærslukostnað í
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi
og Helsingfors með Osló=100
lægri en fram kemur í töfl-
unni hér að framan, og vísi-
tölur fyrir kaupmátt launa til
svarandi hærri, þegar miöað
er í samanburðinum við Osló
við neyzlu í hverri þessara
þriggja borga um sig. Hefði
á sama hátt neyzla meðalfjöl
skyldu í Reykjavík verið reikn
uð út með verðlagi í Osló, þá
hefði framfærslukostnaður-
inn að öllum líkindum reynzt
lægri hér og kaupmáttur
launa hærri en taflan sýnir.
— Niðurstöður eru talsvert
mismunandi eftir því, við
hvað er miðaö, og ber það
vott um óvissu þá, sem rann
sókn þessi er undirorpin.
Þó að niðurstööur þessarar
rannsóknar séu að mörgu
leyti merkilegar og þær varpi
nýju Ijósi á mál, sem fram
aö þessu hafa veriö lítiö könn
NýstárSegir
kennarar
Fyrir nokkru barst mér í
hendiu’ 120 blaðsíðna bók,
skreytt skýrum, lifandi mynd
um eftir Halldór Pétursson.
Skjótséð var, að bók þessi
mundi börnum ætluð. Eg
reyndi að gera mér upp hugs
unarhátt 8—12 ára krakka
og las kverið. Hafði ég all-
góða skemmtun af.
Að lbknum lestri skildist
mér, að um ágæta bák væri
að ræða, því að ég hafði með
tekið mikinn fróðleik auk
skemmtunarinnar.
Sögustaðurinn, ósköp venju
leg fjallshlíð, var gæddur lífi,
lífi lifandi barna, dýra og
jurta. Skólakennarar þeir,
sem fylgja börnunum um
hlíðina eru aftir á móti frem
ur dauðalegir, enda engin
furöa, þar sem höfundur finn
ur upp á því snjallræði að
leysa þá undan prédíkunum
og ítroðslustarfi. Við af þeim
taka reíir, sauðir, geitur, skor !
kvikindi, ýmsar tegundir
grasa og jafnvel vatn og
vindar.
Áreiðanlega er góð sú
kennsla, sem látin er í té með
þeim hætti, að lærlingum
finnst skemmtan ein höfð í
frammi, en þeir læri þó óaf-
vitandi heil ósköp. Lífið sjálft
á það til að kenna svo, með-
an vordagar ævinnar líða hjá.
Slík er túlkun bókarinnar.
Höfundur er Skúli Þor-
steinsson og heiti „Börnin
hlæja og hoppa.“
Ármawn Halldórsson
Sex vertíðarbátar
frá Grafarnesi
í vetur
Frá fréttaritara Tímans
í Grafarnesi.
Bátar frá Grafarnesi eru
ekki byrjaðir róðra á vetrar
vertíð, en munu fara af stað
strax eftir áramótin. í vetur
verða sex bátar gerðir út frá
Grafarnesi og eru þeir allir
heimabátar nema einn, sem
hefir þar viðlegu en er ann-
ars gerður út frá Siglufirði.
Líklegt er að hert verði
töluvert meira af aflanum
en í fyrra, en engu að síður
verður mikið fryst.
Enginn jólasnjór á
Reyðarfirði
Frá fréttaritara Tímans
á Reyðarfirði.
Akvegir eru flestir færir á
Austfjörðum, eins og á sumar
degi. Þannig er nú ekið milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðs-
fjarðar og snjólaus vegur er
að kalla yfir Fagradal upp
á Hérað og til Eskifjarðar frá
Reyðarfirði. Oddsskarð er
hins vegar ófært.
Jörð er alveg auð að kalla á
Reyðarfirði og því útlit fyrir
rauð jól þar. Sakna menn þess
aö hafa ekki jólasnjó, en
fagna þó góðum samgöngum.
uð, eru þær hvergi nærri eins
áreiðanlegar og ákjósanlegt
væri. Kemur þar til ýmislegt,
sem of langt yrði að rekja hér.
Verður því að nota niðurstöð
urnar með varúð og á það
einkum við samanburð á fram
færslukostnaði og kaupmætti
(Framhald á 6. síðu)
þessari vertíð.
Búið var að kaupa tvo stóra
báta til útgerðar þaöan í vet-
ur, en óhapp það er olli því
að ekki varö úr greftri dýpk
unarskipsins Grettis olli því
að erfitt er að hugsa til út-
gerðar þessara stóru báta úr
Rifi í vetur.
Hefir því verið tekið þaö
ráð að leigja annan bátinn
burt og fá í hans stað minni
bát, um 20 Fstir til þess að
gera hann út frá Rifi í vetur.
Ekki er alveg ráðið hvort hinn
stóri báturinn verður gerðu^
þaðan út.
Unnið verður við hafnar*
framkvæmdir í vetur og er
sanddæla alltaf að störfurr.1.
en afköst hennar eru mjög
takmörkuö og vinnst verkið
því seint.
Litlu bátarnir komast sjald.
an úr heimahöfninni til sjó
róðra vegna tíðárfarsins og
sífelldra umhleypinga og
hvassviðra. Snjór er annars:
lítill utarlega á Snæfellsnesi
en svell yfir alla jörö. , ^