Tíminn - 15.01.1955, Side 3
TÍMINN, laugardaginn 15. janúar 1955.
3
11. blað.
Glæsilegt félagsheimili reist
í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði
Hinn 30. októbe?- sl. var félagsheimili vígt að Saurbæ í
Saurbæjarhreppi í Eyjafirðz með veizla, sem hreppsbúar
fjölme?mtM í. Var þar samankomið á þriðja hwndrað manns,
og andir borðum var kosið itm nafn á félagsheimilið og
hlaut „Sólgarður“ flest atkvæði.
Undirbúningur aS byggingu
hússins hófst 1948, er Daníel
Sveinbjörnsson, Saurbæ, for-
maður skóianefndar, sótti
Úm f járfestÍHgarleyfi og styrk
úr félagsheimilasjóði, en var
synjað um hvort tveggja.
Haustið 1952 boðaði Daniel
hreppsnefnd og stjórnir fé-
laga í hreppnum til fundar,
og lagði fram teikningu og
kostnaðaráætlun að félags-
heimilsbyggihgu. Bygging
þess var ákveðin á almenn-
Úm fundi hreppsbúa nokkr-
iim dögum ' síðar, og hófust
framkvæmdir um miðjan maí
vorið eftir.
Stórt hús.
v‘i C .
Félagsheiipiiið var byggt í
tVeimur álmum. Er önnur
þeirra áð mestu leyti gamla
þmghúsið í Saurbæ, en því
ýar breytt i stóran sal með
leiksviði. Sunnan við það er
tfýbygging, tvær hæðir og
kjallari. í kjallara eru fata-
geymslur, snyrtiherbergi, mið
stöð og ijósavélar. Á næstu
hæð er rúmgóð forstofa í
tvennu lagi, eldhús, skóla-
stofa og kennarastofa. Á ris
liæð er íbúð fyrir kennara,
og einriig herbergi fyrir kvik-
myndasýningarvél.
Sáu tim framkvæmdir.
Yfirsmiður við bygginguna
var Þórður Friðbjarnarson.
Um múrhúðun og járnlögn
sáu Trwgvi Sæmundsson og
Pétur Öúnniáugsson. Viktor
Kristjánsson annaðist raf-
lagnir en Herbert Sveinbjarn
arson um málningu. Kaup-
félag Eyfirðinga sá um lagn
ingu á miðstöð og hreinlætis
tækjum.
Önnur vinna var mikið
framkvæmd af hreppsbúum
sjálfum í sjálfboðaliðsvinnu.
Umsjón alla um efnisútveg-
un' og framgang verksins í
heild hafði Daníel í Saurbæ.
Kost natSur.
Heildarkostnaður við bygg
mguna er kominn yfir hálfa
millj. kr. Sveitarsj óður hrepps
ins hefir iagt fram 165 þús.,
félagsheimilasjóður 185,200
krónur. Afganginn hafa ým-
is félög í hreppnum lagt fram
oða lánað, og í vinnu og flutn
ingum var gefið milli 30—40
þús. kr. og peningagjafir
námu rúmum 10 þús. kr.
Tvö hlutverk.
Sólgarður er fyrsta félags-
heimilið i Eyjafjarðarsýslu,
sem reist er með styrk úr
félagsheimilasjóði, en nú er
verið að- undirbúa byggingu
fleiri félagsheimila þar, og
framkvæmdir eru hafnar í
Öngulstaðahreppi.
Eins og sjá má af lýsingu
hússins gegnir það tveimur
hlutverkum. Fyrst og fremst
sem félagjsheimili, sem öll
félög hreppsins hafa athvarf
í með fundahöld og samkom
ur, og einnig sem skólahús.
Þar verður þó engin heima-
vist fyrir böirn, en þess í
stað verður börnum séð fyr
ir flutn'íngi milli skólans og
heimila sinna daglega. Það
íyrirkomulag hefir verið
reynt í Saurbæjarhreppi; í
nokkur ár og gefizt vel.
Hvað hefir komið út á ís-
ienzku eftir rómanska höf unda
Drög að skrá um slík ritverk á íslenzku
aö fornu og nýju eftir Þórkall Þorgilsson
út er komin á vegum Landsbókasafns íslands allstór bók
er nefnist Drög að skrá um ritverk á íslenzku að fornn og
??ýju af latneskum eða rómönskum uppruna eftir Þórhall
Þorgilsson, bókavörð. Er þetta fyrsta bindi og eru þar fram
taldar bókmenntzr af frönsku bergi.
í formála segir höfundur,
að annað tveggja höfuðverk
efna sinna í tómstundum síð
an hann tók við bókavarða-
starfi á Landsbókasafninu
1943 hafi verið að rannsaka
þann skerf, sem latneskar og
rómanskar bókmenntir hafi
lagt ti-1 íslenzkra ritverka frá
eiztu tíð til þessa dags.
Höfundurinn flutti um
þetta erindi í Háskólanum
fyrir nqkkrum árum og hef-
ir síðan haldið rannsóknum
sínum áfram. Hefir hann og
í gerð sögu um bókmenntir
Suóurianda og tengsl þeirra
við íslenzkar bókmenntir, og
verður skrá þessi síðar nán-
ast registur við þá sögu.
Þetta- fyrsta hefti skrárinn
ar telur franskar bókmennt-
ir- og er alllangt, en á eftir
munu koma hefti um ítalsk-
ar, spárrskar, portúgalskar
og rómanskar bókmenntir,
en það allt verður tæpast
lengra en franska heftið eitt.
Aftan við skrár þessar er svo
ráðgert að hafa registur um
þýðendur, útgefendur, blöð
og tímarit.
í skránni um Frakkland er
getið um 1600 ritverka stórra
og smárra, er þýdd hafa ver
ið af frönskum uppruna á
íslenzku.
Þórhallur Þorgilsson er
flestum íslendingum fróðari
um suðurlenzkar bókmenntir
og er . því mikill fengur að
þessum ritum hans. Bóka-
mönnum er mikil hjálp að
skrá þessari.
I\ýíl liraöfrvsliliíis í
smíðum í Ólafsvík
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsvík.
í Ólafsvík er nú unnið að
kappi aö byggingu nýs hrað
frystihúss, sem kaupfélagið
byggir þar. Verður það
vel búið nýtízku frystihús,
aðallega ætlað til frystingar
á sjávarafurðum og einnig
kjöti.
Húsið er það langt komið
Gjöf Isaac Stern
til Háskólans
Svo sem frá hefir verið
skýrt í blöðum gaf fiðlusnill-
ingurinn Isaac Stern allar
tekjur sínar af hljómleikum,
er hann hélt í Reykjavík í
þessum mánuði til stofnunar
tónlistarsafns í Háskóla ís-
lands. Gjafabréf hans er há-
skólarektor barst mánudag-
inn 9. þ. m., er á þessa leið:
„Herra háskólarektor:
Við Alexander Zakin þökk-
um yður kærlega fyrir það, að
okkur gafst kostur á að leika
fyrir yður og stúdentahópinn
og eiga við yður samræður.
Við ferðumst víða um heim,
og þykir okkur hvarvetna
miklu skipta að hitta ung-
menni hvers lands. Okkur
hafa þótt þau miög þakklátir
áheyrendur, og í okkar augum
hefir unga fólkið miklu hlut
verki að gegna í framþróun
tónlistar og allra mennta.
Af þessum sökum er mér
,það mikil ánægja að bjóða
Háskóla íslands allar tekjur
mínar, sem orðið hafa af þess
ari skemmtilegu heimsókn til
íslands, í því skyni að opna
megi tónlistarstofu með beztu
fáanlegum tækjum til hljóm
plötuleiks, svo og vísi að tón
plötusafni. Er það von mín, að
slíku safni megi eigi aðeins
koma gjafir víða að, heldur og
að það megi verða vísir að tón
listardeild innan Háskólans.
Okkur hefir þótt fólk hér
vera með söngvísustu og
áhugasömustu áheyrendum,
sem við höfum fyrir hitt. Við
trúum fastlega á gildi tónlist
ar í sköpun betra og fegurra
mannlífs. Við viljum því af
heilum hug hjálpa hverjum
þeim, sem njóta vill hinna
eilífu sanninda og fegurðar,
sem eru ávextir blómaskeiða
menningarinnar.
í þeirri von að eiga enn eft
ir að sækja ísland heim, kveð
ég yður, kæri háskólarektor,
alúðarkveðjum.
Yðar Isaac Stern“.
Misjafn afli
við Snæfellsncs
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsvík.
Ólafsvíkurbátar ráa dag
hvern, en aflinn er misjafn.
Virðist sjómönnum að fisk-
ur sé ekki genginn enn að
ráði. Einn dag í þessari viku
öfluðu bátarnir upp í 9 lest
ir í róðri, en í gær var aflinn
5—7 lestir á bát. Bátarnir
hafa reynt að róa suður fyr
ir Jökul, en afli virðist ekki
meiri þar en á venjulegum
heimamiðum Ólafsvíkurbáta.
A.S.
Sæmilegur afli
Skagastrandarbáta
Frá fréttaritara Tímans
á Skagaströnd.
Þrír bátar éru byrjaðir hér
róðra eftir hátíðarnar og hef
ir verði reitingsafli. Munu
bátarnir halda áfram eftir
því sem gæftir leyfa. GG.
að áætlað er að það geti tek
ið til starfa í sumar. Kaup-
félagið hefir undanfarin ár
annast nýtingu á sjávarafla
fyrir sjómenn og tekur nú
við fiski af einum báti og
er sá afli ýmist frystur eða
hertur. AS.
Eins og kunnugt er hefst heims-
meistarakeppnin í bridge í þessum
mánuði í New York. Mótherji banda
rísku heimsmeistaranna verður
enska liðið, sem sigraði á Evrópu-
meistaramótinu í íyrra. Keppnin
verður áreiðanlega mjög spennandi
og nokkrar líkur eru til þess, að
enska liðinu heppnist að ná heims
meistaratigninni aftur til Evrópu.
Bandaríska liðið er þó á heimavelli
og eftir því, sem fréttir herma, hef
ir það ekki legið á liði sínu hvað
æfingar snertir. Á það skorti hins
vegar talsvert í fyrra, þegar Banda
ríkjamennirnir — en það verður
sama sveitin, sem spilar í ár —
unnu Evrópumeistarana 1953,
Prakka. Eftir að keppnin hefst mun
Tíminn reyna eftir föngum að birta
fréttir og spil frá henni.
tal við félaga sinr. Reithofer á sama
móti. Reithofer spilaði sjö spaða,
sem ekki voru erfiðir. Hann hugsaðl
sig lengi um, og vann síðan slemm-
una. Því næst spurði hann félaga
sinn: „Hefðir þú spilað á sama
hátt“?
„Nei“, sagði Schneider.
„Hvernig hefðir þú spilað“?
„Hraðar".
Of góð spil.
Flestir taka því létt að tapa sögn
á léleg spil. Hins vegar taka flestir
nærri sér að tapa sögn á góð spil
— sem oft kemur þó fyrir. Sagnhaf
anum í eftirfarandi spili yfirsást
einfalt atriði, einfaldlega vegna
þess, að hann hafði of mörg háspil
til að hugsa um.
Enska liðið hefir undanfarið spil
að marga æfingaleiki, og unnið alla,
en oft með litlum mun. Hér kemur
spil frá einum þessara leikja.
Austur gaf, og austur og vestur
eru á hættu.
* G 9 8 4 3
V D 6
* 7 6 3
* D 9 4
* D 10 5 2 * Á
VÁ753 *G10 98
* D ♦ Á K 8 5 2
* Á 10 8 3 ♦ 765
* K 7 6
¥ K 4 2
* G 10 9 4
* K G 2
Reese og Schapiro sem austur og
vestur sögðu fjögur hjörtu, sem þeir
unnu létt. Flest benti til þess, að
þetta spil myndi falla, en það fór
öðru vísi. Eftir tigulopnun hjá aust
ur, sagði Meredith sem suður eitt
hjarta. Eftir það var ekki létt fyrir
austur og vestur að ná fjórum
hjörtum. Lokasögnin varð 3 grönd,
sem vestur spilaði. Konstam (norð-
ur) þekkti sagnmáta Merediths vel
og spilaði út spaða og vestur varð
einn niður.
Eitt og annað.
Á stórum alþjóðlegum mótum'eins
og Evrópu- og heimsmeistaramótinu
fer venjulega lítið milli spilara ann
að en sagnir, og þegar slíkt kemur
fyrir vekur það oftast athygli. í .’eik
Englands og Libanons á EM var
Meredith í f jórðu hendi, en gleymdi
því og sagði fjóra tígla. Mótherjarn
ir veittu því heldur ekki athygli, að
Meredith átti ekki að segja og sá
næsti sagði fjögur hjörtu. Síðan
spurði hann félaga Merediths,
Reese, hvernig hann skyldi þessa
sögn. Reese svaraði ósköp rólega:
„Ég skil hana sem sögn óviðkom-
andi leiknum".
Hinn þekkti Austurríkismaður
Schneider átti stutt, en skemmtilegt
* A K
V 8 7 4 2
* Á K D
* Á K 3 2
* D G 10 7 6 3 2 * 8 4
¥ 6 ¥ K G 10 9
♦ G 8 4 ♦ 9 5 3
* 7 6 * D G 10 9
* 9 5
V ÁD53
* 10 7 6 2
* 8 5 4
Vestur gaf. Norður og suður &
hættu.
Vestur sagði 2 spaða (veik sögn),
norður doblaði og suður sagði þrjá
hjörtu. Norður hækkaði i fjögur og
pass hringinn.
Spaða D kom út og sagnhafinn
sá sér til ánægju, að hann hafði
fjóra ása, þrjá kónga og að aukl
8 tromp. Til þess að tryggja sig
gegn kóngnum einum í hjarta hjá
vestur spilaði hann litlu trompi frá
norður og drap með ásnum. Því
næst spilaði hann tígli og' aftur
trompi frá blindum. Austur drap
með kóngnum og spilaði út gosanum
í trompi, og eftir það gat suður
ekki unnið spilið. Austur hlaut að
fá tvo slagi á tromp og tvo á lauf.
Árangurinn hefði orðið sá sami, bótt
suður hefði svínað drottningu fyrst
í trompinu og því næst tekið ás*
inn.
Mjög margir hefðu glatað þessu
spili á sama hátt, þótt vinningur-
inn sé einfaldur. Áður en trompað
er í annað skipti á sagnhafinn að
spila litlu laufi og gefa slaginn, því
að hann þolir vel að tapa laufsiag.
Austur getur þá spilað trompi tvisv
ar, en suður á þá tromp eftir til
þess að trompa fjórða laufið hjá
blindum, ef sá litur fellur ekki.
Allir sjá möguleika á að trompa,
þegar einlitur eða tvílitur er á ann
arri hvorri hendinni, en þegar um
þrílit er að ræða, kemur maður
merkilega sjaldan auga á tromp*
möguleika.
| Þakjárn
IAmerískt þahjárn íGtil 10 feta
lentfdum, nýkomið,
| J. Þorláksson & Norðmann h.f.
I Banhastrœti 11 - Shúlagötu 30