Tíminn - 20.01.1955, Blaðsíða 2
2.
TIMINN, fimmtudaginn 20, janúar 1955.
15. blað,
Frunnð var boðið I giftingarveizlu
en þó var hún ekki af þessum heimi
Myndatökumaður, sem tók þessa mynd af stiga í Raynham-
böll, heimili markgreífans af Townsend í Norfolk, sá sér til
undrunar, þegar hann framkallaði myndina, að óskýr vera
kom í ljós. Birtan frá verunni virtist svo mikil, að hún sýnd-
ist varpa ljósi á veggina i kring.
Öll þjóðlönd hafa átt tímabil í
Sögu sinni, sem er mjög ríkt af trú
og sögnum af öndum. Hér á ís-
landi hefir því verið trúað, að
til væru andar eða draugar, sem
gengu ljósum logum sumir hverj-
ir og ynnu speilvirki eða væru
meinlausir en fylgdu mönnum og
ættum. Bretar hiafa sína drauga,
eins og aðrar þjóðir og í eftirfar-
andi grein segir einn þeirra, sem
hafa rannsakaö þcssi mál, Dennis
Bardens, að með engri þjóð hafi
ekki verið tímabil, þar sem trúað
var á tilveru drauga, og engin þjóð
sé án skráðra sagna af þessum
fyrirbærum.
í fornöld trúöu ýmsir kunnir
menti því, að til væru draugar og
enn þann dag í dag halda þúsundir
því fram að hafa séð eitthvað, sem
þeir kalla drauga. Ef þetta fólk hef
:ír séð ofsýnir, þá eru það óeðlilega
margir, sem búa við svo ruglaða
tíómgreind. Dennis Bardens hefir
eins og margir Bretar vísindalegan
áhuga á þessum fyrirbærum. Hefir
Ihann safnað ýtarlegum skýrslum
■um ýmsa fyrirburöi hjá þeim aðil-
um, sem þetta hefir komið fyrir.
Sögur frá venjulegu fólki.
Bardens hefir fengið hundruð
sagna og fjölmargar þeirra hefir
hann rannsakað eftir beztu getu.
Hann segir það hafa vakið einna
mest undrun sína, að ótrúlegustu
sögurnar hiefðu komið frá mjög
venjulegu fólki. Bardens segir, að
draugar eigi vitanlega margt sam-
eiginlegt. Venjulega eru þeir ekki
nema nokkur hundruð ára gamlir.
Þeir geta farið í gegnum heilt, eins
og hurðir og veggi og brjóta þyngd
arlögmálið, þegar þeim býður svo
við að horfa. Vitað er til þess, að
þeir hafi talað, en samt ekki haft
forustu í samræðum. Það er ekki
hægt að sjá mynd þeirra í spegli og
þeir spora ekki gólfin.
Hvenær andar birtast.
Það eru fjölmargar frásagnir af
ondum finnanlegar i skráðum heim
:ddum ýmissa þjóða, sem bæði eru
:ný tilkomnar og frá fyrri tíð. Þar
má finna sagnir af öndum deyj-
andi manna, sem birtast öðrum í
pann mund að dauðinn heldur inn-
reið sína. Þar er einnig sagt frá
þeim öndum, sem láta töluvert til
sín taka, annað hvprt með kátlegum
tilburðum eða í vonzku. Henda þeir
pá og grýta ýmsu og megum við
ninnast héðan Írafells-Móra og
.. .............—==
Útvarpib
'Ötvarpið í dag:
Pastir liðir eins og venjuiega.
110.30 Kvöldvaka: a) Kjartan Ragn
ars stjórnarráðsfulltrúi flytur
þátt af Hafnarbræðrum. b)
íslenzk tónlist: Lög eftir Emil
Thoroddsen (plötur). c) Þor-
| grímur Einarsson les kvæði
eftir Jóhannes úr Kötlum. d)
Sigurður Jónsson frá Brún
flytur frásögu af hestinum
Þokka.
22,00 Préttir og veðurfregnir.
.22,10 Upplestur.
12.25 Tónleikar (plötur).
.23,10 Dagslcrárlok.
Utvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Davíð Stefánsson skáld frá
Pagraskógi sextugur; a) Krist
ján Eldjárn þjóðminjavörður
flytur erindi. b) Skáldið les
úr ljóðum sínum. c) Tónleik-
ar.
21.30 Útvarpssagan.
22,00 Préttir og veðurfregnir.
22.10 Hæstaréttarmál.
22.25 Dans- og dægurlög (plötur).
23.10 Dagskrárlok.
annarra, sem slettu skyri. Aðrir
draugar láta heyra til sin, en sjast
ekki (hér: útburðir). Einnig eru til
staðardraugar, þeir sem alltaf eru
á sama stað og sjást af hinu og
þessu fólki á mismunandi tímum.
Margar aðrar gerðir eru til, segir
Barden, svo sem verndarandar og
þvíumlíkt.
Stúlkan frá Prag.
Fyrir nokkrum árum var Bardens
í Prag og ■ var hann þá beðinn af
manni nokkrum að reyna að kom-
ast fyrir um afdrif stúlku, sem mað
urinn hafði þekkt. Bardens komst á
slóð stúlkunnar og komst að raun
um, að stúlkunnar höfðu beðið þau
hryggilegu örlög, að bíða bana í
gasklefum Þjóðverja í einum aí
fangabúðum þeirra. Hann fór til
þess staðar, þar sem fangabúðirnar
höfðu verið, en það var ekkert frek
ar að gera í málinu. Sextíu þúsund
fangar höfðu verið drepnir í búðun-
um og ómögulegt að finna líkams-
leifar stúlkunnar. Bardens gisti á
hóteli þarna ákammt frá. Segist
hann hafa vaknað um tvöleytið um
nóttina við það, að honum fannst
eins og herbergið hefði fyllzt af
yfirþyrmandi sorgarkennd og
fannst honum um leið, hélt jafnvel
um tíma, að það væri stúikan, að
eitthvað á tilteknum stað í herbsrg
inu, væri að reyna að komast í sam
band við hann. Hann sá ekki neitt
né heyrði. Hann aðeins fann, að
eitthvað var þarna. Hann varð mjög
óttasleginn og seildist til að kveikja
á náttlampanum. Það kostaði hann
mikið erfiði að hafa sig fram úr
rúminu til að kveikja loftljósið, en
til þess varð hann að fara yfir þaun
hluta herbergisins, þar sem hon-
um fannst þetta vera, sem leitaði
sambands við hann. Bardens telur,
að annað gæti hafa komið til greina,
svo sem þreyta, en samt finnst hon
um eitthvað vera óskýranlegt við
þetta.
Konan í gráu skykkjunni.
Á prestsetri einu í Berkskíri
bjuggu þar til fyrir nokkru prests-
hjón ásamt þremur dætrum. í hús
inu virtist vera um tvo fastagesti
að ræða, og var þó annar öllu meira
áberandi. Það var hefðarfrú og sá
prestsfrúin hana sumarið 1949, ekki
að nóttu, heldur á björtum morgni.
Hefðarfrúin birtist henni í grárri
skykkju og var svo skýr, að konan
gat fundið lýsingu á fatnaðinum.
Var hann í tízku i kringum 1730.
Veran hvarf oftast nær í vegg, en
breytingar höfðu margsinnis verið
gerðar á húsinu og stóð heima við
rannsókn, sem Bardens gerði, að
bak við vegginn hafði einu sinni
verið stigi, svo að hefðarfrúin hélt
„réttri leið“. Pjögur vitni voru að
því, er konan i gráu skykkjunni
birlist eitt sinn. Heimilisfólkið hafði
engin óþægindi af þessu og var vel
til verunnar. Cg þegar ein dóttirin
gifti sig, var „frú þetta“ eins og
hún var kölluð á heimilinu, boðið í
giftingarveizluna. Hefir frú þetta
sjálfsagt setið veizluna, þótt hún
gerði sig ekki sýnilega.
Móðurskugginn bjargaði lífi piltsins.
Eftirfarandi sögu segir Bardens
af því, hvernig fyrirbæri barg lífi
manns í heimsstyrjöldinni fyrri.
Nokkrir hermenn voru að hvíla sig
hjá hrundum bóndabæ í Prakk-
landi. Var einhver vír uppihangandi
þar í nálægð og ákváðu tveir lier-
mannanna að hengja föt af sér á
vírinn til þerris meðan staðið var
við þarna. Annar þeirra var seinni
til og stóð aðeins fyrir aftan hinn
manninn, þegar hann heyrði kunn
uglega rödd fyrir aftan sig. Þegar
hann leit við, sá hann daufa mynd,
sem minnti hann á móður hans.
Hann gekk í áttina til myndarinn
ar, en hún hvarf. Meðan þetta geið-
ist snerti félagi hans vírinn í þeim
tilgangi að hengja fötin á hann,
en lézt samstundis. Þetta var raf-
magnsvír.
tiuylíjAtö í 7wam&
Stérköstleg verðlækkun
RENAULT
Glæsilegar bifreiðar
Vegna hinnar síauknu hagkvæmni í fjöldaframleiðslu
RENAULT-bifreiðanna hefir enn tekist að lækka fram
leiðslukostnaðinn það mikið að þessar bifreiðar eru
miklu ódýrari en allar aðrar sambærilegar bifreiðar.
4ru manna bifreiðin 4CV hefir Itehkað
úr 45 þús. hr. í 36.500 kr.
6 m. bifreiðin FREGATE hefir læhhað
úr 83 þús. hr. í 64.600 hr.
Margra ára reynsla hér á landi hefir sarinað enlingu
RENAULT-bifreiðanna og hæfni þeirra við íslenzka
staðhætti.
COLUMBUS H.F.
BRAUTARHOLTI 20
SÍMAR 6460 og 6660
T§L SOLU
Þriggja herbergja íbúð við Rauðarárstíg. — Upplýs-
ingar gefur undirritaður kl. 5—6 í dag og á morgun
Guðjón B. Baldvinsson,
Lindargötu 9 A, III. hæð, herb. 5.
INNILEGA ÞÖKKUM við öllum, sem sýndu okkur
samúð við fráfall og jarðarför föður okkar
ODDS J. BJARNASONAR
skósmíðameistara
Anna Oddsdóttir, Ingibjörg Oddsdóttir,
Kristján Oddsson, Steingrímur Oldsson.
Föðurbróðir minn
BENEDIKT GUÐMUNDSSON
bóndi•
Methven, Perthshire í Skotlandi, andaðist í sjúkra-
húsi 9, janúar síðastliöinn.
Þórný Þorsteinsdóttir.
^VAW^WAAWVVWVSWAAWyWWSWaVWWWWWWwV
í ÞÖKKUM HJARTANLEGA öllum þeim er glöddu
I; mig með heimsóknum, gjöfum, heillaskeytum og alla
% þá velvild, sem mér var sýnd af skyldmennum og
*" kunningjum á sjötugsafmælinu 31. desember síðastl.
I; Guð blessi ykkur öll.
í ELÍAS ÁRNASON
í Hólshúsum.
WMNWWWAWWWWWVWWMVSWWWWWWWú
VWVV\AVSVVWWVVVWSAWA%%m^VWVwWÖAWWWVWUV
■; ?
•t Hér með færi ég innilegar þakkir, öllum nær og fjær,
er heimsóttu mig og heiðruðu með gjöfum og skeyt- í
•; um, í ljóðum og lausu máli, á 70 ára afmæli mínu 2.
janúar síðastliðinn. — Guð blessi ykkur öll.
Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum.
í
niVAV.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAV.'AVliVWA