Tíminn - 20.01.1955, Blaðsíða 8
39. árgangur.
Reykjavík,
20. janúar 1955.
15. blað.
Mesti vatnsflaumur Rínar í 50
ár. - Signa ógnar Parísarbúum
Tvö flutningaskip
á einum degi í
Ólafsvík
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsvík.
Afli er nú mjög að glæðast
hjó bátum í verstöðvum á
Snæfellsnesi. Þannig eru
Ólafsvíkurbátar nú farnir aö
fá ágætan afla. í fyrradag
voru tveir aflahæstu bátarmr
þar til dæmis með 13 lestir úr
róðrinum. Heita þessir bátar
Fróði og Víkingur.
Á laugardag var mikið ann
ríki við höfnina í Ólafsvik.
Voru þar þá tvö skip við
bryggjur og tóku afurðir til út
flutnings. Voru það Jökulfell,
sem tók freðfisk og sænskt
skip, sem tók saltfisk. AS.
Afli Stykkishólms-
báta að glæðast
Frá fréttaritara Tímans
í Stykkishólmi.
Afli á Stykkishólmsbáta er
svipaður og að undanförnu.
Var hann þó heldur meiri í
síðustu viku. Hefir komið fyr
ir, að tíu lestir öfluðust i róðri
en meðalafli á bát er þetta
fjórar til sex lestir. Er þá lang
sótt á miðin. KG.
TVö Mfreiðaslys í
gaer
í gærdag varð eldri mað-
ur, Björn Líndal, Njálsgötu
25, fyrir bifreið á Skúlagötu.
Hlaut hann stóran skurð á
aðra augabrúnina, en meidd
ist ekki mikið að öðru leyti.
Var hann fluttur í sjúkra-
bifreið á Landsspítalann,þar
sem gert var að sárum hans.
Þá varð tírengur fyrir bifreið
í gærmorgun á Klapparstíg,
en hlaut lítil;.háttar meiðsli.
Tugþúsundir manna verja þing
húsið í Bonn. - Varnargarðar í
París. - 20 stiga frost í Vín
Bonn, París og Lyon, 19. jan. — Stórrigningar halda enn
áfram I Frakklandi og Þýzkalandi, Sviss og víðar á megin-
iandinu. Flóðin í ítórám þessara landa vaxa að sama skapi.
Verst er ástandið í Rínardalnum og annar eins vöxtur hefir
ekki hlaupið í Rín og þverár hennar síðastliðin 50 ár. —
Hverfi, sem liggja lágt í Bonn eru undir vatni' og 40 þús.
manna reyna að verja þinghúsið fyrir vatnsaganum. Flóð-
in hafa rénað í fljótum A.-Þýzkalands, t. d. Doná, enda var
í kvöld komið 20 gráðu frost í Vínarborg.
Ibúarnir í þeim hverfum
Parísar, sem næst liggja Signu
hömuðust. sem mest þeir
máttu í dag við að hækka
varnargarðana á árbökkun-
um. Vatnið hækkaði stöðugt
í allan dag og veðurfræðing-
ar gáfu engin loforö um veð-
urbreytingu.
Uinferð stöðvuö
um brýrnar.
Lögreglan stöðvaði alla um-
ferð um nokkrar brýr yfir
Signu í París, þar eð þess sá-
ust merki að brúarstólparnir
voru að gefa sig undan vatns-
þunga og jakaburði, Það gérir
ástandið enn hættulegra, að
stíflur hafa myndast í ánni
hér og þar af íshroða og jaka-
hröngli.
Rhone flæðir yfir vínekrur.
Litlu minni vöxtur er í
mörgum öðrum ám á S.-Frakk
landi. Fljótið Rhone flæðir
nú yfir bakka sína og er vatns
elgurinn sums staðar kominn
5 km. frá fljótsbökkunum yf-
ir vínekrur og aldingarða.
Margt fólk hefir orðið að
flýja heimili sín.
í Rínardalnum.
Hvergi er hættan meiri en
einmitt í Rínardalnum. Haldi
fljótin enn áfram að vaxa, er
óttast að afleiðingarnar kunni
að verða hryllilegar. Eigna-
tjón er þegar stórmikið og all-
margir hafa farizt.
Isalög við Noreg.
Á Norðurlöndum
er hins
Vilja Kísiverjar sleppa föng-
11 gegei uppföku í S.Þ.?
r
□
□
Dag Hamfnarskjöld og Dulles ræddust við í dag. DuIIes
lét í ljós þá skoðun, að almenningsálitið í Bandaríkjun-
um væri nú lilynnt róttækum aðgerðum af Bandaríkjun-
um sjálfum til að fá fangana 11 Iátna lausa. Bandaríkin
mynda samt bíða og sjá hverju S. Þ. fengi áorkað.
Meðal erlendra sendsmanna í Moskvu ganga þær sagnir,
að Hammarskjöld hafi látið í veðri vaka við stjórnmála-
menn í Pekíng, að Peking stjórnin myndi innan skamms
fá sæti Kína hjá S. Þ., jafnvel fyrir næsta hauct.
Eisenhower forseti sagði blaðamönnum í dag, að hann
væri lilynntur því, ef hægt værj að koma á vopnahléi
milli Þjóðernissfnna á Formósu og Pekingstjórnarinnar.
Hann kvað hernaðarsérfræðinga ekki telja Taichen-
eyjar nauðsyn'egar fyrir varnir Formósu, en Peking-
stjórnin tilkynnti' í dag, að eyjar þessar myndu teknar
ein af annarri.
Forsetinn kvaðst ekki viðurkenna, að samningaumleít-
anlr í fangamálinu hefðu strandað fyrr en þei'm væri
hætt. Tímatakmörk i samningagerð yrðu að markast af
viðhorfi þeirra manna, sem að þeim stæðu. Meðan menn
eins og Hammarskjöld hefðu von, væri von.
vegar frost og snjókoma. —
Dönsku sundin, Kattegat og
Oslófjörð er tekið að leggja.
Vélbátarnir eiga erfitt með
að brjóta sér leiö í gegnum
ísinn, og ísbrjótar hafa verið
fengnir til að halda opinni
leið fyrir áætlunarbátinn frá
Osló til Halden.
Ný Chevroleí bifreið í happ-
drætti Iþróttasambands íslands
íþróttasamband íslands er um þessar mundir að
hleypa af stokkunum happdrætti til ágóða fyrir húsbygg-
íngasjóð sambandsins. Vinningur verður einn, Chevrolet-
bifreið, smíðaár 1955, af fullkomnustu gerð. Forráðamenn
ÍSÍ skýrðu blaðamönnum í gær frá happdrættinu.
Benedikt G. Waage, forseti
ÍSÍ, skýrði frá því, að sam-
bandið hefði skipað nefnd
til að sjá um happdrættið,
en í henni eru Stefán Run-
ólfsson, formaður, Gísli Ól-
afsson og Lúðvík Þorgeirs-
son.
Fyrir húsbyggingasjóð.
Stefán Runólfsson sagði,
að á þingi ÍSÍ á Akranesi
1953 hefði komið fram tillaga
þar sem ÍSÍ var falið að
hrinda í framkvæmd happ-
drætti til ágóða fyrir hús-
byggingasjóð, en ÍSÍ hefir
staðið það mjög fyrir þrifum
að hafa ekki eigið húsnæði.
Húsbyggingasjóðurinn var
stofnaður fyrir 25 árum, og
í honum eru nú 60 þús. kr.
Ef þetta happdrætti tekst
vel, ætti húsbygging fyrir
ÍSÍ. að geta hafizt hér í
Reykjavík.
Göngufiskur og ágætur afli
kominn á mið Fáskrúðsfirðinga
Frá fréttaritara Tímans á Fáskrúðsfirði.
í fyrradag komst bátur frá Fáskrúðsfirði á sjó eftir nokk-
uð langa landlegu og aflaði þá ágætlega, eða um 15 skip-
pund. Lagöi báturinn lóðir sínar á heímamiðum Fáskrúðs-
firðinga út og suður af firðinum. _
vel til sjósóknar þar á heima
mið á vetrarvertíð.
Sjóveður var ágætt meðan
báturinn var í sjóferðinni en
breyttist til hins verra í fyrra
kvöld, svo ekki varö aftur
komist á sjó.
Þessi eini bátur, sem róið
hefir frá Fáskrúðsfirði, þeg-
ar gefið hefir í janúar, heitir
Bára, og er um 20 lestir.
í gærkvöldi bjóst annar
bátur frá Fáskrúðsfirði til
róðra í fyrsta sinn. Er það
45 lesta bátur, Ingjaldur, sem
þangað hefir verið keyptur.
Er ætlunin að stunda sjó á
þessum bát á heimamiðum
Fáskrúðsfirðinga í vetur og
telja sjómenn að vel líti út
með aflahorfur.
Fiskurinn, sem veiddist í síð
ustu sjóferð, var eingöngu
stór fiskur, ýsa og þorskur.
Virðist svo, sem göngufiskur
sé kominn á miðin og björgu
legt að róa ef að gæftir leyfa.
Á Fáskrúsfirði eru tvö góð
hraðfrystihús, nýtízku fiski-
mjölsverksmiðja, lýsis-
bræðsla og önnur hin ákjós-
anlegasta aðstaða til að nýta
sjávarafla. Hugsa menn því
Úrslft í Iiverfa-
keppiiiiini í kviild
í kvöld fara fram að Há-
logalandi úrslitaleikirnir í
hverfakeppninni í hand-
knattleik. Hefst keppnin kl.
8 með leik í kvfl. milli Vest-
ur- og Austurbæjar. Bæði lið
in hafa tvö stig. Þá keppa í
kfl. til úrslita Vestur- og
Austurbær, og einnig verður
leikur milli Kleppsholts og
Illíða. Vesturbær hefir 4 stig,
en Austurbær og Kleppsholt
tvö stig, og hafa þessi þrjú
lið möguleika á að sigra í
keppninni.
Oí kalt fyrir raf-
lagningavinnu
Unnið er að rafveitufram-
kvæmdum á Hofsósi, en vegna
(Framhald á 7. síöu.í
-----■— > —■ —
Framsóknarmenn,
Hafnarfirði
Framsóknárfélag Hafnar-
fjarðar holdur fund í Skáta-
skálanum við Strandgötu á
morgun, föstudag, kl. 20,30.
Rætt verður um bæjarmál
og verður Eirikur Pálsson,
skattstjóri, frummælandi.
Sala á miðum er þegar haf
in, en dregið verður 15. júlí
í sumar og drætti ekki frest-
að. Miðinn kostar 10 kr. ÍSÍ
heitir á íþróttafólk og al-
menning 'að taka happdrætb
inu vel, svo þessi draumur
þess um húsbyggingu megi
verða að veruleíka. íþróttafé
lög víðs vegar um landið eru
einnig hvött til þess að taka
miða til sölu.
Tvö vinsæl leikrit
komin í safn
Menningarsjóðs
Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs hefir nú sent frá sér
9. og 10. hefti’ð af leikrita-
safninu. Er þar að finna leik
ritin Ævintýri á gönguför
eftir J. C. Hostrup í þýðingu
Jónasar Jónassonar frá
Hrafnagili, en Lárus Sigur-
björnsson og Tómas Guð'-
mundsson hafa gert breyt-
íngar og nýþýðingar.
í hinu heftinu er leikritiA
Æðikollurinn eitir Ludvig
Holberg í þýöingu Jakobs
Benediktssonar.
Leikritaútgáfa ,Menningar
sjóðs er merkileg viðleitni til
að gefa út leikbókmenntir og
einasta útgáfa sinnar teg-
undar í Iandinu. Er hér um
að ræða útgáfu, sem: létt
getur undir með þeim félög-
um, leikfélögum, ungmenna-
félögum og öðrum, sem
stunda leikstarfsemi. Er þessi
útgáfa ekki .^2zt mikils virði
fyrif slíká stárfsemi í dreif-
býlinu og kauptúnum lands
ins, þar s.em pft er érfitt að'
fá leikrit til flutnings.
En Jón Emil Guðjónsson
framkv.stj.; bókaútgáfu Meim
ingarsjóðs, segir, að nú sé
óvíst um framhald útgáfunn
ar ,því talsvert vanti upp á
að hún beri sig. Ættu þeir,.
sem áhuga hafa á framhalds
útgáfu leikbókmennta því
að gera sitt tii þéss ,að þeim
verði haldið áfram meö því
að gerast áskrifendur, en á-
skriftagjaldið er aðeins 40 kr.
fyrir tvær bækur á ári.
Akureyringar heiðra Jónas
Kristjánsson forstj. sextugan
Frá fréttaritara Tímans á Akureyri.
Jónas Kristjánsson, forstjóri IVljólkursamlags KEA varð
sextugur 18. jan. s.l. Þann dag heiðruðu samstarfsmenn
hans og vinir á Akureyri' hann á ýmsan hátt, enda er Jónas
vinsæll borgari, sem nýtur óskoraðs trausts, og á að bakl
hið ágætasta starf.
Þennan dag sátu samstarfs
menn Jónasar í samlaginu og
Kaupfélagi Eyfirðinga sam-
sæti með honum að Hótel
KEA og var þar fjölmenni.
Voru honum færðar þar góðar
gjafir og ýmis annar heiður
sýndur. Honum barst og niik
ill fjöldi skeyta.
Jónas er fæddur að Víöi-
gerði í Hrafnagilshreppi.
Hann lauk búfræðiprófi frá
Hvanneyri 1914 en sigldi síðan
til Danmerkur á vegum KEA
til að læra mjólkuriðnað.
Mjólkursamlag KEA var síðan
stofnaö 1928 og tók hann þeg'
ar við forstöðu þess og hefir
haft hana á hendi síðan.
Fyrsta árið tók samlagið við
um 1 millj. lítra, en nú er árs
(Framhaia a 7. Blðu).