Tíminn - 03.02.1955, Blaðsíða 1
t»*c
Ritstjóri:
Þórarlnn Þórarlnaaon
Ótgeíaadl:
Pramsóknartiokkarlnn
39. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 3. febrúar 1955.
Skriístofur i Edduhúsl
Préttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
1
27. blað.
r
Ahafnir athuga félags-
útgerð báta í Eyjum
Mynd Jessi er af bænum Tashaton á einni hinna suðlægari Tachen-eyja við Kínastrendur.
Bandaríkjastjórn hefir ákveðið að taka ekki þátt í vörnum bessara eyja, en Formósustjórn
tregðast þó við að flytja brott lið sitt þar, sem er um 20. þúsund manns.
Sjjóprófum vef/na strands Egils rauða ehki lokið:
Var skipstjóra ekki skýrt frá
siglingu skipsins fyrr um daginn?
Skipstjóri heldur fast við framburð siim.
að Itaitn hafi sjálfnr orðið að taka stýrið
Sjópróf vegna strands Egils rauða héldu áfram í gær og
lauk ekki. Halda þau áfram í dag kl. 2. í gær kom fyrstur
fyrir réttinn Einar Hólm, 2. vélstjóri, síðan bátsmaðurinn
Guðmundur Arason, loftskeytamaðurínn Axel Siguröur
Óskarsson, og 2. stýrimaður, Pétur Ilafsteinn Sigurðíson.
Kom fátt nýtt fram í framburði þeirra. Að lokum kom skip-
stjórinn Guðm. ísleifur Sigurðsson, og verður hér getið um
framburð hans.
Skipstjóri kveðst hafa mið
að skipið, sem hann sá kl. 18
Mikill snjór kominn
á Austurlandi
Frá fréttaritara Tímans
á Reyðarfirði.
Hér er kominn allmikill
snjór og ófært yfir Fagradal
nema á snjótaíl, og eru feröir
hans yfir heiðina nú alltíðar
í sambandi við flugsamgöng-
ur, því að það eru nú einu sam
göngurnar hingað austur á
firði. Bezta veður hefir verið
hér síðustu daga. MS.
Sýningin i Róm er á nor-
rænni nútímalist, yfirlitssýn
ing, sem felur í sér allar
mögulegar liststefnur, þær
sem norrænir iistamenn hafa
tileinkað sér.
17 málarar.
Héðan eru sautján málar-
ar þátttakendur, þeirra á
á miðvikudag, og hafi það
reynst í NA á kompás. Hann
kveðst hafa sagt aé kippa
skyldi Agli rauða að skipi
þessu og þá hafi staðið við
hliðina á sér Berg Nielsen í
stýrishúsinu. Hann mundi
ekki hvort hann nafngreindi
Berg Nielsen, er hann gaf
þessi fyrirmæli, en hann
hefði taliö sjálfsagt, að Ni-
elsen sem vaktarformaður,
hlustaði eftir fyrirmælum
sínum. Þá sagði skipstjóri, að
skipið hefði aðeins verið að
tayrja að snúast í hina upp-
gefnu stefnu, þegar hann fór
af stjórnpalli.
Framburður Færevinga.
Skipstjóra var taent á þaö,
að Nielsen haldi því fram í
*****
meðal eru Kjarval, Gunnlaug
ur Scheving, Svavar Guðna-
son, Júlíana Sveinsdóttir og
Sverrir Haraldsson. Fjórir
myndhöggvarar senda verk,
einnig sex, er senda svartlist
armyndir. Nokkuð margar
myndanna hafa verið lánað-
ar af listasafni ríkisins.
framburði sínum, að á tíma-
bilinu frá 15,30—18 hafi skip
inu verið siglt í austur í um
það bil hálfan klukkutíma,
og sé sá framburður Nielsen
studdur af framburði þeirra
Joansen og Viderö
Ekki skýrt frá siglingunni.
Skipstjóri kveðst ekki
hafa oröið þess var, að skip-
ínu liafi verið siglt á þersu
tímabili og honum hafi
ekki verið skýrt frá því, að
svo hafi verið gert, en það
hafi þó verið venja, ef skip
i'nu var kippt upp undir
skipin undir Grænuhlíð, að
láta hann eða 1. stýrimann
vita um það.
Skipstjóri telur, að hann
hefði átt að vera var við það,
ef skipinu hefði verið siglt á
þessum tíma. Hann hefði ver
ið vakandi allan tímann.
Hann vill þó ekki fullyrða, að
skipinu hafi ekki verið siglt
Enginn við stýrið.
Þá sagði skipstjóri enn-
fremur, að efti'r að skipið
tók fyrst niðri, hafi hann á
leiðinni úr kortaklefanum
að vélsímanum til þess að
hringja á fulla ferð aftur á
bak, gefið skipun
um að setja stýrið hart í
stjórnborða, en það hafi
ekki verið gert, og hafi
hann því, er hann var bú-
inn aö hringja á ferð aftur
á bak, hlaupið að stýrinu
og sett það hart í stjórn-
borða. Kveðst skípstjóri þá
ekki hafa tekið eftir nein-
I um í stýrishúsinu.
Skilur íslenzku.
Aðspurður vegna hugsan-
legs möguleika, að Berg Ni-
elsen hefði ekki skilið fyrir-
skipunina, sagði skipstjóri,
að hann teldi að Berg Niel-
sen skyldi sæmilega íslenzku
og vel sé hægt að halda uppi
(Framlialct á 7. siðu),
Sýning opnuð í gær á
verkum sem fara til Rómar
í dag verður opnuð í Listamannaskálanum sýning á mynd
um þeim, er sendar verða héðan á Rómarsýninguna. Alls
verða áttatíu og fjögur málverk send á sýninguna, en í
Listamannaskálanum eru sjötíu og átta málverk sýnd. Þau
sem á vantar bætast við erlendis.
Engar vlðræður mllli dclluaðila og sjó-
mcim biðja um að sáttancfnd sc skipnð
Frá fréttaritara Timans 1 Vestmannaeyjum.
Fkki miðar neitt í samkomulagsátt í vinnudeilunni í Vest-
mannaeyjum bg má heita, að verkfallið sé algert varðandi
sjósóknina. Þó var einn bátur á sjó í gær c>g aflaði 4 lestir.
Var það Frosti Helga Benediktssonar.
Nokkrar skipshafnir í Vest-
mannaeyjum hafa uppi ráða-
gerðir um að efna til félagsút
gerðar um nokkra báta og
taka þá á leigu hjá útgerðar-
mönnum.
Sjómannafélagið hefir nú
snúið sér til sáttasemjara rík
isins og beðið hann að hlut
ast til um, að skipuð verði
sáttanefnd í deilunni til að
hafa á hendi milligöngu um
samninga.
Fulltrúaráð útvegsbænda-
félagsins í Eyjum kom saman
í gær og samþykkti áskorun
til fiskiðjuvera þess efnis, að
þau láti ekki vinna úr þeim
fiski, sem kann að koma á
land og afgreiði ekki beitu.
En beita hefir verið afgreidd
handa einum aðkomubát, Snæ
fugli, og afli hans unninn í
frystihúsi. Eins og sakir
standa er því allt í óvissu um
samkomulag í vinnudeilunni
og engar viðræður farið fram
síðustu daga.
Sauðfjáreignin vex
Frá fréttaritara Tímans
í Víðidal.
í vetur hefir verið óstillt
tíð og oft innigjöf sauðfjár.
Bændur hafa allmjög fjölgað
fé sínu síðustu árin og mun
nú vera fleira fé hér á fóðr-
um í hreppnum en nokkru
sinni fyrr. Mun það hafa ver
ið flest áður um sjö þúsund
en er nú á áttunda þúsund.
Fénaðarhöld hafa verið ágæt.
Kýreign bænda eykst einnig,
og er mjólk flutt daglega í
mjólkurbúið frá þeim heimil
um, sem eru við aðalveg. SL.
Engar samgöngur
við Akureyri
síðustu daga
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri.
Hér er kominn allmikiH
snjór og færð orðin erfið um
héraðið því að rennt hefir í
skafla. Fáir mjólknrbílar
komust til Akureyrar í gær,
aðeins framan úr Hrafna-
gilshreppí en ekki utan af
Dalvík eða austan úr Höfða
hverfi. Heiðar allar munu
ófærar og leiðin suður al-
veg ófær. Flugvélar hafa
ekki komið í tvo daga og
engar eru skipaferðir, svo
að Akureyri og nágranna-
héruð eru alveg eínangruð
þessa dagana.
Góður afli Ólafsvík-
urbáta í janúar
Afli Ólafsvíkurbáta siðasta
dag janúar, var góður, eða 8
—15 lestir á bát. Aflahæstur
var Fróði, skipstjóri Tryggvi
Jónsson, með 15,5 lestir. Afl-
inn í janúar er alls 700 lestir
í 122 róðrum og skiptist þann
ig: Fróöi 17 róðrar, 108 lest-
ir, Víkingur 17 róðrar, 100
lestir, Glaður 15 róðrar, 85
lestir, Bjargþór 16 róðrar, 81
lest, Mummi 15 róðrar, 80 lest
ir, Týr 15 róðrar, 79 lestir,
Þórður Ólafsson 15 róðrar,
79 lestir, Egill 14 róðrar, 78
lestir. Aflinn var ýmist fryst
ur, saltaður eöa hertur. AS.
Akureyringar ætla að
byggja skóla á Oddeyri
Fjárbagsáætliin Akurcyrarbæjar samþ. í
fyrradag, átsvörin áætluð 9,9 milljónir
Frá fréttaritara Timans a Akureyn.
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í fyrra-
dag fjárhagsáætlun bæjarins fyrir þetta ár. Útsvörin eru á-
ætluð 9,9 millj. kr. og er það um 700 þús. kr. lægri upphæð
en fyrst var gert ráð fyrir.
Lækkunin stafar af því, að
samþykkt var að taka hálfr-
ar millj. kr. lán til fram-
kvæmda á árinu en jafna
ekki öllu framkvæmdafram-
laginu niður. í þessum út-
gjöldum eru þó 750 þús. kr.
til hins nýja hraðfrystihúss
á Akureyri.
Þá var samþykkt að leggja
fram nokkurt fé á þessu ári
til byggingar nýs barnaskóla
á Akureyri, og verður hann
byggður á Oddeyri. Barna-
skólinn á Akureyri er nú orð-
inn allt of lítill og þykir rétt-
ara sökum stærðar bæjarins
að byggja nýjan skóla á Odd
eyri fremur en stækka barna
skólahúsið uppi á brekkunni.