Tíminn - 08.02.1955, Síða 4

Tíminn - 08.02.1955, Síða 4
TÍMINN, þriSjudaginn 8. fcbrúar 1955. 31. blað. «, Darúel Kristjánsson: Orðið er frjálst Afkomuskilyrði á Mýrum Oft er um það deilt, hvort far sælla sé fyrir þjóðina menn- ingarlega séð, að búa í borg eða dreifbýli. Mjög misjafnir dómar eru um það, og legg ég ekki þar til mála að þessu sinni, en þó verður ekki hjá því komizt, að þjóðin velji um þá kosti næstu árin, hvort eigi að viðhalda byggð í mörg um sjóþorpum og afskekktari sveitum landsins — eða á öll fólksfjölgunin, og þó ríflega það eftir reynslu síðustu ára — að setjast að á Reykjanes- skaganum og í Reykjavík. Við heyrum að vísu margar háværar raddir um það, að ekki komi til mála að færa saman byggðina, og meira að segja sjálft Búnaðarþing lét frá sér fara boðskap á s. 1. vetri um sjálfsagða endurbygg ingu á Hornströndum. Og þegar jafn fjölmenn samkunda og Búnaðarþing með fulltrúum úr öllum sýsl- um landsins samþykkir slíkar tillögur, skyldum við nú ætla að á bak við stæði alvara og möguleikar til framkvæmda á þessu sviði. Um endurbyggingu á Horn ströndum hefir að vísu ekkert heyrzt síðan, en hins vggar berst það okkur til eyrna, að í mörgum sjóþorpum og sveit um þessa lands fækki fólki, þrátt fyrir umtal margra, er álengdar standa um að stöðva ben flóttann úr dreifbýli og sjávarþorpum. íslendingum hefir fjölgað verulega síðustu árin og ef um væri að ræða jafnvægi í byggð landsins, ætti fólkinu að fjölga í sveitum og sjávar þorpum, en hið gagnstæða skeður. Valdhafar þjóðarinnar virð ast ekki hafa miklar áhyggj ur af tilflutningi fólksins 1 landinu, enda er nú Reykja- nesskaginn mörgum kær um þessar mundir, þótt fáir hafi manndóm til þess að kannast við það. Framfarir og bætt lífskjör meðal þjóðarinnar hafa verið miklar síðustu árin, en í kjöl far framfaranna koma kröf- urnar, sem eru sjálfsagðar að vissu marki. Það er ennfrem ur staðreynd, að fólkið flytur til þeirra staða, þar sem lífs þægindin og afkomuskilyrðin eru bezt, án tillits til þess, hvað hagkvæmast er frá þjóð hagslegu sjónarmiði. Allt eru þetta mannlegir og sjálfsagð- ir hlutir, að bjarga sér, þar sem bezt gengur. Og því skyldu bændur og fiskimenn vilja búa norður á Hornströnd um eða öðrum afskekktum stöðum, í fámenni og þæginda leysi, á sama tíma sem þeir geta fengið vellaunaða utan- búðarvinnu hjá ríkum mönn- um í Reykjavík eða hjá er- lenda herliðinu á Reykjanes- skaga. Auk vellaunaðrar at- vinnu verður fólkið um leið aðnjótandi rafmagns, ásamt fjölda annarra þæginda. Þessi saga endurtekur sig um mikinn hluta landsins, fólkið flytur í hundraðatali úr þorpum og sveitum — suð ur fyrir Faxaflóa í leit að gulli og.þægilegra lífi. Nú munu margir spyrja, hvað er hægt að gera til úr- bóta á þessu sviði? Við höfum allstóran ráð- herrahóp (miðað við fólks- fjölda) og auk þess 52 þing- menn. Til þings og stjórnar gerum við þær kröfur, að fram úr þessum vanda sé ráðið á skynsamlegan hátt, með fram tíð þjóðarinnar fyrir augum. Tekjur íslendinga hafa verið og eru miklar um þessar mund ir, enda á allra vitorði að auð söfnun margra einstaklinga er mikil. Af tekjum þjóðarinn ar á að byggja land vort upp með hag framtíðarinnar fyrir augum, en láta ekki stundar hagsmuni fégráðugra einstak linga ráða þar um. Þjóðin veit, að hin mikla vinna á Reykjanesskaganum byggist mikið á hinu erlenda herliði. Allir þjóðhollir íslendingar vona, að dvöl herliðsins sé stundarfyrirbæri. Þegar her- liðið hættir framkvæmdum, losnar vinnuafl og því vinnu afli verður að beina til atlögu við aðkallandi viðfangsefni, bæði til sjós og lands. Og verk efnin eru mörg í landinu okk ar, landrými er mikið, auð- legð í hverum og fossum lítt tæmandi, gnægð af góðum fiski við strendur landsins. Þrátt fyrir alla þessa mögu- leika, er hægt að benda á blómlegar sýslur, þar sem fólki hefir jafnvel fækkað seinustu árin og ein af þeim er Mýrasýsla svo dæmi sé nefnt. Mýrasýsla er í senn land- kostamikil og fögur, liggur vel við samgöngum, ræktunar skilyrði ágæt og þar af leið- andi miklir möguleikar fyrir stórframleiðslu í landbúnaði, auk þess eru þar viðurkennd- ar mestu laxveiðiár í land- inu. Borgarnes er einn af snyrtilegustu bæjum þessa lands og hefir yfir miklu land rými að ráða til ræktunar, enda þegar mikið ræktað. Þrátt fyrir öll gæði Mýra- sýslu frá náttúrunnar hendi, og þrátt fyrir dugnað íbúanna í alhliða framfaramálum, bæði í ræktun, byggingum og samgöngubótum, hefir fólk- inu ekki fjölgað síðustu árin, aukningin hefir lent á sjávar möl og heiðarhrjóstrum sunn an Faxaflóa. Eitthvað er bogið við þetta. Þegar búsældarlegar fagrar sveitir halda ekki velli í sam keppninni um vinnuaflið, skortir eitthvað á. í uppsveitum Mýrasýslu eru samgöngur víðast hvar góð- ar, þótt undantekningar séu til, enda er þar þéttbýli meira en í vesturhreppum sýslunn- ar. Á Mýrum, er ná yfir tvo vestustu hreppa sýslunnar eru landflæmi mikil og grösug, en víða votlent. Þar er strjálbýlt, enda samgöngur ekki komnar í það horf allsstaðar, er þarf, til þess að unnt sé að reka fullkominn ræktunarbúskap, er byggist meðfram á daglegri mjólkursölu. Fyrir nokkrum áratugum var fiskiauðlegð mikil fyrir Mýrum og byggðist afkoman þá jöfnum höndum á sjávar- afla og landbúnaði. Með komu togaranna þvarr fiskur fyrir Mýrum, sem víða annars stað ar og byggðin drógst saman. Mannmörgu heimilin við sjáv arsíðuna hurfu úr sögunni og nú hefir þessi forna blómlega menningarbyggð átt erfitt uppdráttar undanfarin ár eft ir að fiskurinn þvarr, og mæði veikin herjaði sauðfjárstofn- inn um mörg ár. Þótt vega- bótum hafi mikið miðað á- fram, eru þær þó ekki full- nægjandi ennþá. Framundan ætti nú að vera bjartara en áður hefir verið. Fiskurinn er kominn aftur eftir rýmkun landhelginnar og fjárpestinni hefir veriö út- rýmt. Og nú er kominn tími til að hefta fólksflutning burt úr Mýrasýslu, en til þess þarf aöstoð. Á Mýrum þarf auknar vega bætur og bætt lendingarskil- yrði fyrir smærri báta. Fisk- inn er hægt að flytja jafn óðum á markaðsstað og í frystihús í Borgarnesi. Með smábátaútgerð og stofnun nýbýla á Mýrum hyllir undir framtíðarmöguleika fyrir fjölda af fólki, er annars mundi hverfa á mölina sunn an Faxaflóa. Borgarnes vant ar meira athafnasvigrúm bæði með stuðningi af útgerð og iðnaði. Rafmagnið er efst á baugi í hugum allra, næst nauðsyn legum samgöngubótum, og rafmagnið þarf að koma fljótt þar sem uppbygging og rækt- un lands er framkvæmd. Það stöðvar enginn framrás tím- ans og rafmagnið heyrir undir þann lið, svo nátengt er raf‘- magnið framförum og menn ingu, að án þess verður ekki hægt að tala um menningar- búskap héðan af, enda er sjón sögu ríkari í þeim efnum, því nú hafa flestir bændur benzín eða olíuhreyfla til fram- leiðslu á rafmagni, sem er þó óbærilega dýrt og notagildi afar takmarkað. Það er hægt með skipulögðum áróðri að tefja fyrir góðum málefnum í bili, en til lengdar verður það ekki hægt. Ef sami fram farahugur og dugnaður held ur áfram að ríkja meöal fólks ins í dreifbýli og sjávarþorp- um — sem allir vona — verð ur rafmagnsmálið tekið í hendur fólksins sjálfs og fram kvæmt undir forustu þess, og ef samstillt átak allra er fyrir hendi í þessu mikla þjóðþrifa máli, munu margir þeir örð- ugleikar, sem nú eru miklaðir í augum fólksins, hverfa eins og dögg fyrir sólu, en birta og ylur frá íslenzkum fossum kemur á hvert heimili í iand inu. Ef íslenzka þjóðin ætlar um ókomnar aldir að búa hér og lifa sönnu menningarlífi, verð ur hún að skilja þá einföldu staðreynd, að engin utanað- komandi hjálp er þess umkom in að veita henni forsjá, ef hún sjálf yrkir ekki sitt eigið land og trúir á möguleika þess. Auðlegð allra þjóða er fyrst og fremst fólgin í atorku og menningu fólksins og landinu. Ef fólkinu villist sýn og gleym ir að yrkja land sitt, er skammt að bíða þess, að þjóð in sjálf sé rányrktur akur. Ekki verður því neitað, að íslenzka þjóðin hefir lifað við góð kjör — almennt — síð- ustu árin, og er það gleðiefni, ef auðlegð líðandi stundar væri rétt nýtt. En fátt er hættulegra frelsi og farsæld þjóðar en auðlegð, sem fólk- ið hagnýtir ekki á réttan hátt. Sé auðurinn notaður í hóg- lífi, og ef fólkið fer að líta á hann sem sjálfsagðan hlut, er einvörðungu beri að hag- nýta fyrir líðandi stund, er auðurinn orðinn sú versta plága, sem nokkurri þjóð get ur fallið í skaut. (Framhald & 7. bI5u.) . Hér kemur bréf frá Rangæing, er vill fá hingað Vestur-íslendinga til landbúnaðarstarfa: „Kæri Starkaður! Góðan dag og gieðilegt ár og þökk sé þér fyrir liðna árið. — Nú er nj'ja árið runn ið í garð og margur mun spyrja eða hugsa sem svo, hvað skyldi nú þetta nýja ár bera í skauti sínu? Skyldi það verða happaár fyrir mig og rnína fjölskyldu? Slíkum spurn- ingum verður ekki svarað, tíminn einn veit, hvað hann ber í skauti sínu og er því bezt fyrir hvern og einn að minnast þess gamla spak- mælis, er segir: „Hver og einn er sjnnar gæfu smiður.“ Ég býst við, að þetta nýbyrjaða ár verði lítið frábrugðið hinu liðna, að minnsta kosti hjá okkur, sem stundum landbúnað. Við göngum að starfi okkar strax á morgnanna og erum að til kvölds. Ég veit, að sumu kaupstaðafólkinu þykir þetta langur vinnudagur, og það er það óneitanlega, en tilbreytjngin er svo fjölþætt í starfinu, að það veitir okkur ótakmarkaða vinnugleði. Vinnugleðin er undirrót alls vel- farnaðar, sá sem ekki finnur til vinnugleði við starf sitt, þarf ekkj að búast við miklum afköstum, því síður miklum ágóða. Við, sem í sveitunum búum, verð- um oft að reyna að spá fram í tímann, því starfi okkar er þannig háttað, að okkur er það nauðsyn- legt. Góður bóndi verður ætíð að sjá búfénaði sínum fyrir nægum heyjum, ef harður vetur kynni að koma, Því verður hann á haustin a,ð mjða ásetning sinn við það, að vetur getur crðið mjög hárður, og því miður eru alltóf margir kæru- lausir með ásetning búfjárs síns á haustin. Eitt af mestu vandamálum, sem steðja að íslenzkum landbúnaði á komandi vori, er það, að gífurlegur skortur mun vera á verkafólki til landbúnaðarstarfa. Víðast hvar eru búin orðin svo stór, að bóndinn, á- samt fjölskyldu sinni, getur ekki aflað þess heymagns, er liann þarf, án þess, að fá aðkeyptan vinnu- kraft. Það mun vera mjög erfitt að fá kaupakonur, að ég tali nú ekki um kaupamenn, þeir .fást ekki frek- ar en rauðagull. Mér hefir dottið það í hug, hvort ekki væri nokkur leið að fá hingað fólk til landbúnaðarstarfa frá ís- lendingabyggðum í Vesturheimi, því mér er kunnugt um, að margt ungt fólk af islenzku bergi brotið þar vestra hafi sterka, löngun til að koma til íslands og dvelja hér í 1—2 ár við ýmis konar störf og ekki hvað sízt landbúnað. En þetta fólk, sem langar .til að sjá ættjörð íeðra sinna, hefir ekki fjármagn til að koma af eigin'ram- leik. Það þyrfti því að hjálpa þessu fólki til að komást heim tjl gamla landsins, sem afar þe.ss og Ömmur elskuðu og dáðu. — Væri ekki rétt, að Búnaöarfélagið og ' flugfélögin ræddust við og reyridu áð finna úr- lausn á þessu nauðsynjámáli, ög það fyrr en síðar.“ Rangæingur hefir lokið máli sínu. - Starkaður. RÍ55Í54WSSÍ555SSS545555Í5555545555S54SS555555555S45Í5ÍS55ÍSSSÍSSS55S559 Með TIPON getið þér auðveld lega gert við rispur og aðrar smáskemmdir, er verða á hús gögnum yðar, heimilistækj- um eða bifreið. Meff TIPON getið þér einnig stöffvað Ieka á miðstöffv- arofíiwm, vatnsrörum og margs konar málmílátum, eytt ry®i úr þvottaskálam, baðkerum, saler?iisskálum, af krómuðum hlutum o. fl. o. fl. — Tipon fæst í sex litum fyrir húsgögn og heimilistæki og tólf litum fyr- ir bíla. — Notiff sjálflýsanc’d TIPON á rafrofa, kring um skráargöt, á símtæki, dyrabjölluhnappa o.fl. REYNIÐ TI P O N . Málning & Járnvörur Sími: 2876. — Laugavegi 23. OPTÍMA Ferðaritvélar GARÐAR GÍSLASON H.F. ►54444554555555454555555455455545455454555545455455555555555545555555453

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.