Tíminn - 18.02.1955, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinssoc
%
Skriístofur f Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
39. árgangur.
Reykjavík, föstudaginn 18. febrúar 1955.
40. blað.
Eisenhower með blaðamönnum
Mynd þessz er tekin fyrir nokkru á fundi, sem Eisenhower
forseti átti með blaðamönnwm. Myndin er söguleg að Því
leyti, að hún er tekin af fyrsta blaðaman?tafwndi með for-
setanwm sem var kvikmync aðnr, svo að hægt væri að sýna
hann í sjónvarpi og i fréttamyndum kvikmyndahúsa. Tveir
blaðamenn hafa risfð npp samtímis til að spyrja sömn spurn
ingarinnar: Hvað er framnndan í Kína?
Yfirmaöur settur yfir for-
stööumann bæjarbókasafna
Samþykkt var á bæjarstjórnarfundi í gær, að fræðslufull-
trúi yrði yfirstjórnandi bókasafns bæjarins, það er aðallega
bæjarbókasafnsins. Um má þetta urðu harðar umræður á
fundínum. Fulltrúar allra minnihlutaflokkanna bentu á, að
mál þetta væri fram borið án þess að bent væri á rök fyrir
ráðningunni og komu með tillögur um að vísa málinu frá
til nánari athugunar.
Þórður Björnsson benti á,
að ekki hefði verið leitað til-
lagna eða 'álits fræðsluráös
eða forstöðumanns bæjar-
bókasafnsins um málið, sem
þó væri næsta eölilegt. Þá
væri hvergi í fjárhagsáætl-
un fjárveiting til þess að
stofna nýtt yfirstjórnarstarf
yfir forstöðumanni bæjar-
bókasafnsins.
Tillögur minnihlutans voru
allar felldar í málinu. Mála-
tilbúnaður allur á bæjar-
stjórnarfundinum í gær sýn-
ir þaö ljóslega, að hér er ver-
ið að stofna nýtt embætti án
þess að rök séu finnanleg
fyrir nauðsyn þess.
Ekið yfir dreng
í gær varð drengur fyrir
bifreið á Bústaðavegi. Ók bif
rciðin yfir drenginn, en hann
meiddist furðu lítið. Dreng-
unnn, sem heitir Svavar
Helgason, Hólmgarði 56, var
flutíur í Landsspítalann.
Uppsögn launasamn-
inga rædd í bæjarstjórn
Á bæjarstjórnarfundinum í gærkvöldi urðu talsverðar um-
ræður um uppsagnir verkalýðsíélaganna á samningum sín-
um og því hvernig Reykjavíkurbær ætti að snúast viö þei’m.
Fulltrúar minnihlutaflokkanna Þórður Björns on, Alfreð
Gíslason, Bárður Daníelsson og Guðmundur Vigfússon, báru
fram tillögu um, að bæjarstjórn skoraði á deiluaðila að
gera allt sem unnt væri til að jafna deilumálin, áður en til
vinnustöðvunar kæmí, og jafnframt að borgarstjóra væri
veitt heimild til þess aö semja fyrir hönd bæjarins við
verkalýðsfélögin tíl að forða frá vinnustöðvun í bæjar-
rekstrinum.
Þórður Björnsson taldi rétt
að gengið væri til móts við
kröfur verkalýðssamtakanna
um kjarabætur, en tryggja
Þyrfti, að kjarabæturnar
lentu hjá launþegum sjálf-
um, en ekki hjá milliliðum.
óera yrði ráðstafanir til þess
að koma í veg fyrir hækkun
á vöruverði, þó að launþegar
fengju kjaraþætur og benti
á ýms atriði í því sambandi.
Borgarstjóri og Ólafur
Björnsson voru nokkuð á
ööru máli en minnihluta-
flokkarnir. Fékk borgarstjóri
því til leiðar komið að tillaga
minnihlutans var ekki sam-
þykkt, nema fyrrihluti henn
ar og þó aðeins með breyttu
orðalagi.
\
Verkfallinu í Eyjum lokið —
margir bátar réru þar í nótt
Eærfim iðaði af starfandf fólki síðdegis
og allir, er fengið gátu áhöfn, réru
í gær var mikið annríki við Vestmannaeyjahöfn og fögn-
uðar, því Iok?'ð var hi?iu Iangvi????a verkfalli þar og róðra-
banni, sem samtals er búið að staTic’.a síðan í janúarbyrjwn
og valda mikla tjóni.
Samningar tókust í fyrri-
nótt um klukkan 3 og voru
þeir samþykktir á fundum
sjómanna, vélstjóra og út-
vegsbænda, sem haldnir voru
eftir hádegi í gær.
Samkvæmt hinum nýju
samningum fá sjómenn fisk-
verð hækkað um 3 aura á kg.,
úr kr. 1,22 í kr. 1,25. Einnig
verður felldur niður hluti af
aðgerðarkostnaði sjómanna.
Lækkar hann um 3,6 aura á
kg., en var áður samtals 5,4
aurar á kg. Þá hækkar kaup-
trygging sjómanna. Höfðu
þeir áður enga kauptryggingu
frá septemberbyrjun til vetr-
arvertíðar, en fá nú kaup-
tryggingu allt árið, sem nem-
ur 1950 krónum í grunnlaun
á mánuði. Matsveinar fá 400
krónur umfram einn hlut.
Frumvarp nm rekst
ur og skiptingu
kostnaðar
Lagt hefir verið fram á Al-
Þingi frv. frá ríkisstjórninni
um greiðslu kostnaðar við
skóla, sem reknir eru sameig
inlega af ríki og sveitarfélög
um. Meginmarkmið frum-
varpsins er að kveða nánar
á um, en gert var í fræðslu-
lögunum frá 1946, hversu
kostnaður af rekstri og viö-
haldi skóla, sem hér um ræð
ir, skuli skiptast milli ríkis
og sveitarfélaga. Þá eru einn
ig allmörg ný ákvæði, er
varða kostnaðarhlið skóla-
haldsins, svo sem fjölda fast
ráöinna kennara, reiknings-
hald. endurskoðun og eftir-
lit með rekstri þeirra.
Kristín Sigurðar-
dóttir tekur sæti
á Alþingi
Fyrsti varaþingmaður Sjálf
stæðisflokksins, frú Kristín
Sig'urðardóttir, tók í gær
sæti á Alþingi í forföllum
Jóhanns Hafsteins, þing-
manns Reykvíkinga.
Margir búast á sjóinn.
í gær var mikil ös við skrán
ingaskrifstofu bæjarfógeta-
embættisins og voru skráðar
að jafnaði um fjórar skips-
hafnir á hverjum klukkutíma.
Samtímis var mikið annríki
við höfnina við að búa báta
til róðra og ætluðu allir sem
gátu að róa þegar í gærkvöldi,
en langan tíma tekur að skrá
skipshafnir á 70—80 báta,
sem gerðir eru út frá Eyjum.
Það aðkomufólk ,sem ekki var
farið úr Eyjum hættir nú
flest við að fara þaðan, nema
þeir, sem búnir voru að ráða
sig í aðra vinnu og voru á
förum. Má því búast við að
einhver skortur verði á vinnu
afli þegar útgerðin fer öll svo
snögglega af stað.
Samningar voru undirrit-
aðir af deiluaðilum klukkan
hálf sex í gærmorgun og
hafði verkfallið þá staðið í
íjórar vikur.
Voru gerðir tveir samning-
ar við matreiðslumenn á
kaupskipunum og fyrir frarn
reiðsiumenn.
Samkv. samningnum við
matreiðslumenn eru þetta
helztu breytingar: Vinnudag
ur verður 8 stundir í stað 9
stunda áður. Kaup yfirmat-
reiðslumanna á farþega-skip-
um hækkar úr kr. 2025 i 2475
kr. í grunnlaun á mánuöi fyr
5r 8 stunda dagvinnu.
Á farþegaskipunum fá yf-
irmatreiðslumennirnir auk
þess aldursuppbætur á laun
sin. Þannig að kaupið verður
frá 2505 upp í 2625 kr. á mán.
eftir 10 ára Þjónustu.
Yfirbúrmenn á farþega-
skipunum fá nú 2125 í grunn
laun í stað 1950 kr. áður. Fá
einnig aldursuppbætur.
Matreiðslumenn og búrmenn
almennt fá nú 2075 kr. í
grunnlaun á mán. í stað 1875
króna áður.
Yfirvinna verður greidd
Agætar gæftir og
sæmilegur afli á
Stokkseyri
Frá fréttaritara Tímans
á Stokkseyri.
Ágætar gæftir hafa verið
hér undanfarið og reytings-
afli hjá þeim 4 bátum, sem
stunda róðra. Afli þetta 4—5
lestir á bát i róðri. í dag var
þó ágætur afli, eða 5—9 lest
ir á bát. Aflahæstur er bát-
urinn Hólmsteinn, með um
100 lestir. í morgun notuðu
bátarnir norska beitu og lízt
sjómönnum mjög vel á hana.
Síldarlaust var orðið hér til
beitu upp úr síðustu helgi og
horfði til vandræða, unz hin
norska síld bætti úr. Vinna
er hér næg, enda tekur frysti
húsið við öllurn þeim fiski,
sem hér veiðist, og hafa marg
ir við það atvinnu.
samkvæmt nýja samningn-
um með 7 krónum fyrir
hvern byrjaðan hálftíma í
stað kr. 5,70 áður. Frídagar
skulu vera fjórir í mánuði í
stað þriggja áður.
Framreiðslumenn á skipun
um höfðu áður lágmarkskaup
900 kr. á mánuði í grunn-
laun. en verður nú 1600 kr.
frá október til marzmánaðar
að báðum meðtöldum. Hma
mánuðina 900 kr. eins og áð-
ur. Aðalkaup framreiðslu-
nanna er 15% þjónustugjald
cg er það óbreytt. En kaup-
hækkunin nær til þeirra mán
aða. sem fæstir farþegar eru
með skipunum.
.4 þeim skipum se.m lívil
farþegarúm hafa, er lág-
rr.arkskaup 1600 krónur allt
árið í stað 900 króna í grunn
laon áður.
Báðir samningarnir gildi
til 1 iúní 1956 til þess að upp
sagnaiákvæöi séu á sama
tíma og hjá vélstjórum stýri-
mönnum og loftskeytamönn-
um. 4 það að koma í veg fyr-
ir að skipin stöðvist vegna
þess að staðið er í deilu við
eina stétt.
Kaupskipin láta úr höfn -
Verkfallið stóð í 4 vikur
Sarait. tókust við matreiðslum, í fyrrinótt
f fyrrinótt varð samkomulag í vinnudeilw matsveina á
kaupskipixnwm. Héldu nokkur skipanna úr höfn þegar í gær,
en mjög var orðið þrö?ig í höfnin?ii eftir því sem á verkfallið
leið.