Tíminn - 23.03.1955, Qupperneq 7
68. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 23. marz 1955.
T
Hvar eru skipin
Sambandsskip.
Hvassafell er á Reyðarfirði. Arn-
arfell er á Akureyri. Jökulfell fór
frá Akranesi 19. þ. m. áleiöis til
Helsingjaborgar og Ventspils. Dís-
arfell fór frá Keflavík 19. þ. m.
til Vestur- og Norðurlandsins. Heiga
íell fór frá Akureyri 18. þ. m. áleiðis
til New York. Smeralda er í Hval-
firði. Elfrida kemur til Akureyrar
á morgun. Troja er í Borgarnesi.
Bíkisskip.
Hekla fór frá Akureyri siðdegis
í gær á vesturleið. Esja fer frá
Reykjavík í kvöld með farþega vest
ur um land til Akureyrar. Herðu-
breið er á Austfjörðum. Skjaldbreið
er í Reykjavík. Þyrill var í Stykk-
ishóimi í gær.
Eimskíp.
Brúarfoss fór frá Hamborg 21.3.
til Siglufjarðar. Dettifoss fór frá
New York 16.3. til Reykjavikur.
Fjallfoss fer frá Rotterdam 23.3. til
Hull og Reykjavíkur. Goðafoss fer
:frá New York 24.3. til Reykjavík-
ur. Gullfoss kom til Reykjavíkur
20.3. frá Kaupmannahöfn. Lagar-
foss fór frá Keflavík 17.3. til Rott-
erdam og VentspiLs. Reykjafoss fór
frá Hull 17.3. væntanlegur til Húsa-
víkur eða Akureyrar í kvöld 22.3.
Selfoss fer frá Keflavík síðdegis á
morgun 23.3. til Vestmannaeyja og
þaðan til Belfast og Dublin. Trölla-
foss kom til Reykjavíkur 17.3. frá
New York. Tungufoss fer frá Rott-
erdam 23.3. t liHjalteyrar óg R-
víkur. Katla fer Væntanlega frá
Leith í dag 22.3. tíl Siglufjarðar.
Úr ýmsum áttum
Laugarneskirkja.
Föstumessa í kvöld kl. 8 30. —
Séra Garðar Svavarsson.
Aðalfundur
Kvenfélags Hallgrímskirkju verð
■ ur haldinn í Borgartúni 7, föstudag
inn 25. marz ki. 8,30 e. h. — Fé-
lagskonur mætið vel og stundvís-
lega.
Hallgrímskirkja.
Föstumessa í kvöld kl. 8,30, séra
Jakob Jónsson. Sungin Lítanían.
Esperantistafélagið Auroro,
heldur fund í Edduhúsinu, Lind-
argötu 9a, uppi, í kvöid kl. 8,28,
Dagskrá sameinaffs Alþingis í dag.
1. Fyrirspurnir. — Ein umr. a.
Landshöfn í Rifi. b. Áburðarverð.
c. Marshallaðstoð I ágúst 1948.
2. Fjáraukalög 1952. — 2. umr.
S. Alþýðuskölar. — Fyrri umr.
Leiffrétting.
Trúlofunartiikynning Auðar Giií-
brandsdóttu^.og Hauks Sveinbjarn
arsonar hé*|Í blaðinu í gær hefir
reynzt röl^ Tilkynning þessi var
send biaðinu í bréfi undirrituðu,
og mun hér einhvér hafa verið
að þjóna illkvitni sinni í garð ann-
arra. Biður blaðið aféökur.ar á mi#-
tökunum.
SK!»AUT«€KO
RIKISINS
____—___—___• k ■ " A
M.s. ESJA
fer frá Reykjavík í kvöld með
farþesa vestur um land
Patreksfjarðar, BíldudalS,
Þingeyrar, Flateyrar, ísa-
fjarðar, Siglufjarðar og Ak-
ureyrar.
Eisenhower andvíg-
ur stórveldafundi
Washington, 22. marz. Þeir
Eisenhower forseti og Know-
land foringi republikana á
þingi áttu fund með sér 1
dag og ræddu möguleika á
fundi æðstu manna stórveld-
anna á næstunni, en það mál
er nú ofarlega á baugi í bloð-
um og meðal almennings bæði
austan hafs og vestan. Know
land skýrði fréttamönnum
svo frá, aðíorsetinn væri mót
fallinn slíkum fundi fyrr en
Parísarsamningar hefðu vsr-
ið samþykktir og Rússar sýnt
í verki áhuga sinn fyrir sam-
komulagi stórveldanna.
Sandgerðisbátar
allir á sjó í gær
Frá fréttaritara Tímans
í Sandgerði.
Sandgerðisbátar voru allir
á sjó í gær, en ekki var kunn
ugt um aflábrögð, þegar blað
ið hafði tal af fréttaritara
sínum þar síðdegis í gær. —
Sandgérðisbátar sækja nú
margir 2—3 klst. frá heima-
höfn, sem þykir nokkuð lang
sótt þar.
Landlega var í fyrradag og
útlit fyrir að ekki yrði róið
aftur i gærkvöldi, vegna vax
andi hvassviðris. Fengu bát-
arnir talsverðan storm á
sjónum í gær.
Fréttáflutnmgnr
(Framhald af 8. síöu).
um stærðar, að skýra ýtarlega
væri, þar eð það hefði betra
frá þingfréttum.
Ákvæði í refsilöggjöfina.
Gylfi kvaðst vilja stinga
upp á því, hvort ekki væri
unnt að setja einhver ákvæði
inn í meiðyrðalöggjöfina, er
veitt gætu þingmönnum og
öðrum einhverja vernd í þessu
efni. Hér væri um athyglis-
vert mál að ræða, sem snerti
mjög almenning og verndun
lýðræðis í landinu.
Þingfokkarnir ræða málið.
Dómsmálaráðherra tók aft-
ur til máls og vék þá aftur
að máli þessu. Kvaðsf hann
sem formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins vilja
koma með þá tillögu, að þing-
flokkarnir tækju til athug-
unar sín á milli, hvað gera
mætti til að finna viðunandi
lausn á fréttaflutningi frá Al-
þingi.
Blaðið vili geta þess, að t. d.
í Bretlandi og Frakklandi
mun sá háttur á hafður, að
útdráttur úr þingræðum ligg
ur fyrir skömmu eftir hvern
þingfund, og er hann sendur
blöðunum. Með þeim hætti er
fréttamönnum sköpuö mun
betri aðstaða til að skýra
greinilega frá gangi mála en
nú er fyrir hendi á Alþingi
Eins er rétt að getá þess,
að lausleg athugun hefir leitt
í ljós, a.ð þingmenn saka hver
annan allmiklu oftar um að
hafa rangfært eða misskilið
ummæli í þingræðum en slíkr
ar rangfærslu verður vart í
blöðum.
Kynnast fluginu
(Framhald af 8. siffu).
þar, flugvöllurinn og jafnvel
gefinn kostur á að stíga upp
í flugvél á vellinum. Hér er
um að ræða merkilega ný-
breytni og er það vel til fund
ið hjá Agnari Kofoed-Hansen
flugmálastjóra að bjóða unga
fólkinu í svo lærdómsrikax
kynnisferðir. Hann skilur að
forvitnisferðir unglinga út á
flugvöllinn, sem raunar eru
háskalegar eru sprottnar af á
kafri þrá að kynnast fluginu.
Þeir, sem þekkja flugmála-
stjóra og raunar fleiri vita,
að hann er óþreytandi áróð
ursmaður fyrir flugið á öll-
um vígstöðvum, ef svo mætti
að orði komast og lætur því
ekki fram hjá sér fara slíkt
tækifæri sem gefst til að
virkja flugáhuga æskunnar,
sem leitar út á flugvöll í
háskaferðir, með því að bjóða
þessu áhugafólki heim og
leyfa því að skyggnast inn í
heim flugtækninnar undir
góðri leiðsögn.
lidklist
(Framhald af 1. síðu.)
daga og stundum að degin-
um til líka.
Leikstarfsemi hafði að
mestu legið niðri í Vík þar
til fyrir tveimur árum, en nú
standa kvenfélagið og ung-
mennafélagið að leikstarfsem
inni og verja ágóðanum til
byggingar félagsheimilis.
Góð aðsókn.
Allar sýningar voru fyrir
fullu húsi. Til marks um að
sóknina má geta þess, að í
Vík i Mýrdal, þar sem íbúar
eru um 300, eins og áður er
sagt, jsáu leikinn yfir 700
manns. Komu margir langt
að til að sækja leiksýningu,
meðal annars alla leið aust-
an frá Kirkjubæjarklaustri.
Leiknum var mjög vel tek
ið á Suðurlandi og óskuðu
margir eftir fleiri sýningum
og víðar. En því var ekki hægt
að koma við. Margir leikend
ur þurfa að sinna. daglegum
störfum og komust ekki að
heiman nema um helgar og
illa það. Aðrir þurftu að leita
burt úr kauptúninu til starfa
og uröu að hverfa burt af
þeim sökum.
Duguaður og áhugi.
Ragnhildur, sem unnið hef
ir mikið og gott starf við að
koma upp þessu leikriti, seg-
ir, að ánægjuiegt sé að starfa
með fólki, eins og í Vik, þar
sem áhugi og dugnaður fer
saman og menn líta ekki á
Klukkuna, eða telja eftir
þann tíma, sem til starfsins
fer.
Með auknu leiðbeininga-
starfi og hjálp eins og nú er
komin á fót með starfsemi
Bandalags ísl. leikfélaga, verð
ur auðveldara fyrir áhuga-
samt fólk að koma á fót leik
starfsemi, sem orðið getur
mörgum til ánægju, ekki sízt
á hinum löngu skammdegis-
kvöidum.
Auflfyétö i Tím*rnm
Ölafur Jónsson,
scxtiigur
Ólafur Jónsson, fyrrverandi
tilraunastj óri á Akureyri er
sextugur í dag. Bændaklúbb-
ur Akureyrar minntist afmæl-
isins á fundi sínum í gær-
kveldi. Ármann Dalmanns-
son flutti þau boð frá stjórn
Búnaðarsambands Eyjafjarð
ar að sambandið hefði kjörið
Ólaf heiðursfélaga sinn, en í
þágu þess hefir hann unnið
mikið og merkilegt starf.
Flutti Ármann síðan erindi
um starf Ólafs. Einnig mæitu
fyrir minni hans Steindór
Steindórsson menntaskóla-
kennari og Árni Jönsson til-
raunastjóri.
Blöndalsmálið
(Framhald af 1. síffu.)
Leynt skuldaskilrikjum.
Vitnið kvað endurskoðun-
arskrifstofu sinni ekki hafa
verið annað kunnugt, þar til
um sl. áramót, en allt væri
með felldu um bókhald fyr
irtækisins en samkv. því var
hagur fyrirtækisins góður.
Um síðustu áramót hefði
endurskoðunarskrifstofan
hins vegar komizt að raun
um, að ýmsum skuldaskil-
ríkjum og skjölum varðandi
viðskipti fyrirtækisins hefði
verið haldið utan við bók-
haldið og aldrei í hendur
endur skoðunarskrif stof unn -
ar komið. Fyrir nokkru síð-
an hefði endurskoðunarskrif
stofan sent bókhald fyrir-
tækisins fyrir sl. ár til Skatt
stofunnar, eða mestan hluta
þess.
Skjölin í vörslu sakadómara.
Er þessi vitnisburður end-
úrskoðandans lá fyrir, sem
virtist benda til þess, að bók
hald fyrirtækisins Ragnar
Blöndal h.f. hafi verið fals-
að að einhverju leyti, úrskurð
aði sakadómari að öll gögn
varðandi bókhald fyrirtækis
ins skyldu tekin í vörzlu saka
dómara og væri heimilt að
sækja þau í hirzlur, ef nauð
syn krefði.
Rannsókn málsins fagnað.
Dómsmálaráðherra ræddi
allmikið um málið og kvaðst
fagna því, að nú væri hafin I
rannsókn þess og væri það
að þakka Hermanni Jónas-
syni, sem hefði krafist henn
ar sökum ummæla, er birt-
ust í flugriti .þónasar Jóns-
sonar. Með jm hefðu verið
opnaðar dyr til að kryf ja til
mergjar sannleiksgildi sögu
sagna um stórkostlegt
hneyksli í sambandi við f jár
þrotabú verzlunarinnar.
Væri einkum vel farið, að
Hermann Jónasson hefði
krafizt réttarrailnsóknar,
en ekki höfðað einhliða mál
sókn vegna meiðandi um-
mæla um sig persónulega og
starf sitt sem formanns
bankaráðs Búnaðarbankans.
Gylfi Þ. Gíslason tók einn
ig til máls og kvaðst mjög
fagna því að rannisókn væri
nú hafin í málinU. Bergur
Sigurbj örnsson talaði éinnig
og loks tók dómsmálaráð-
herra aftur til máls.
WV«^''-e-*VWVVV'VSVVV’ /.V.VAWWWAAVyVWVWWiV^
Hjartanlega þalcka ég Öllum þeiai, seii glöddu mig á* *!
90 ára afmæli mhiu. -
Infibj. Jéhanjisdéééir, Steí»stá*i.
1.<»WWWWWWWWWWW\aWWWWtfVMJL*"J,lJ,-''L*'J*J«J'L,':
Ef*» þykkt,
er kemur i stað
SAE 10-30
Olíufélagið h.f.
SÍMI: 81606
Heydalsvcgiir i
(Framhald al 5. síffu).
ur þess végna í framtíðinni
mjög mikill sparnaður í því
að eiga snjólétta og góða.
vetrarleið og spara þannig
snjómokstur á 2 eða jafnvel
3 fjallvegum, þegar ísa- og
snjóavetur geisa.
Bæði Hvammsfjörður og
GilÁfjíirðiir geta lokaztt
vegna ísa meiri hluta vetrar,
og á sama tíma er venjulega
mjög hætt við miklum snjó,
sem teppir fljótlega háa fjall
vegi algerlega, svo að sveit-
irnar við innanverðan Breiða
fjörð og í Stranda- og Húna
vatnssýslum geta verulega lið
ið fyrir samgönguleysi. Það
er þvi höfuðnauðsyn að hraða
mjög vegagerð yfir Heydal og
aðliggjandi sveitir, ef breið-
firzkar byggðir ásamt fleir-
um eiga ekki smám saman
að falla í auðn og fólki, sem
verulega hefir verið afskipt L
baráttunni um lífsþægindin,
á ekki að flytja sig til þæg-
indanna, þar sem þau eru
þegar fyrir hendi.
Virðingarfyllst.
Sigurður Ágústsson, Ásgeir
Bjarnason, Hermann Jónas
son.“
Þegar vitað var, aö fjár-
veitinganefnd gat ekki orðið
við þessari ósk, bárum rið
fram breytingartillögu við
fjárlögin í vetur um aái taka
upp kr. 300000,00 til Heydals-
vegar og til vara kr. 200000,0«
Báðar tillögurnar voru felld-
ar. og var varatillagan felld
með 25:18 atkv.
Á þessum vetri hefir sann
azt það, sem fyrr var vitað,
að knýjandi nauðsyn er að
tryggja breiðfirzkum byggð-
um öruggari samgöngur, svo
að þær einangrist ekki alveg
frá umheiminum. En það er
ekki aðeins í þágu þessara
héraða að fá auknar sam-
göngur á þennan hátt. Snjó-
Iéttasta leiðin, sem getur
tengt Suður-, Vestur- og
Norðurland, er Heydalur og
áfram um Dali yfir Laxár-
dalsheiði til Hrútafjar|Jar.
Holtavörðuheiöin er fann-
sækin og þess vegna mjög
kostnaðarsamt að tryggja
vetrarsamgöngur yfir hana.
Það er því ekki neitt sérmál
fyrir breiðfirzkar byggðir að
fá veg yfir líeydal, heldur
mun sú leið einnig í fram-
IKbnni tryggja samgöngur
milli þriggja landsfjórðunga.“