Tíminn - 23.04.1955, Blaðsíða 2
2,
TÍMINN, laugardaginn 23. apríl 1955.
90. blaff.
„Fædd í gær”
I kvöld verffur leikritið „Fædd í gær“ sýnt í tuttugasta sinn.
Aðsókn hefir verið mjög góð og hafa um tíu þúsund manns
séff leikinn. Myndin er af þeim Þóru Friðriksdóttur og Bene
dikt Árnasyni í hlutverkum sínum.
Klakksvík
(Framhald af 1. síðu).
Skoriff á landfestar.
Þegar embættismennírnir
og hinn nýi læknir voru
komnir um borð, skáru
Klakksvíkingar sem fljótast
á landfestar Tjalds, og sá
skipstjórinn sér ekki annað
fært en halda sem skjótast
á brott og fór til Fuglafjarð
ar en þaðan hélt liðið úr
hinni misheppnuðu herför
heim með flóabát.
Búizt t‘l varnar á ný.
í fréttum frá Klakksvík í
gær sagði, að Klakksvíking-
ar, konur jafnt sem karlar,
byggjust nú til nýrrar orustu
og hennar öllu meiri en fyrri,
eftir að það fréttist, að Djur
huus lögmaður hefði beðið
um aukið lögreglulið frá Dan
mörku, og danska stjórnin
hefði sent 120 vel vopnaða
lögreglumenn af stað með
skipi frá Esbjerg, og í gær
var fáum störfum smnt í
Klakksvik. Verðú vóru hafð
ir á fjöllum í kring um bæ
inn og við höfnina var unnið
að því að koma upp hindrun
um, svo að skip gætu ekki
lagzt þar að bryggju.
Augljóst er taM, að Klakks
víkingar ætli ekki að láta
undan síga í neinu og veita
danska lögregluliðinu sömu
viðtökur og.hmu færeyska og
þó heldur verri.
Flotinn kallaffur heim.
Klakksvíkingar sendu í
gær öllnm fiskibátaflota
sínum, sem ekki er í höfn, I
boff iim það í talstöð að
hverfa sem skjótast heim og
bað einnig fiskimenn úr öðr
um verstöðvum, sem vildu
veita Klakksvíkingum l‘ð,
að koma. Er taUð, að ætlun
in sé að leggja flotanum
þétt fyrir víkina, svo aff ekk
ert skip komist inn. En tak
ist lögreglwmönnunum að
komast á land, draga
Klakksvíkingar ekki dul á,
aff þeim skwli veitt hörð mót
spyrna.
Varff aff flýja.
Stuðningsm.enn Halvorsens
læknis höfðu sérstakan lista
við síðustu bæjartjórnarkosn
íngar og náðu fjórum mönn
um af sjö og ráða því bænum.
Hafa stuðningsmenn hans
nú í hótunum við aðra, sem
ekki eru á hans bandi og
varð emn meðUmur sjúkra-
húsráðsins, sem er á móti Hal
vorsen, að flýja frá Klakks-
vík í gær með konu og tvc
bcrn.
Hákon Hansen sýslumaður
í Klakksvík sagði í viðtali í
Ný fólksbifreiðastöð
Ný fólksbifreiðastöð hefir
verið stofnuð hér í Reykjavík
undir nafninu „Bifreiðastöð
in Bæjarleiðir h.f.“ og hefir
opnað afgreiðslu í bráða-
birgðahúsnæði á lóð sinni að
Langholtsveg 117, sími 5000.
Mun stöðin leggja áherzlu á
að fá staðsetningu fyrir bif
reiðasíma víðs vegar i bæn-
um. Ennfremur verður mjög
fljótlega hafizt handa um
byggingu nýs stöðvarhúss á
lóð stöðvarinnar.
gær, að allt væri rólegt að
kalla þá í bænum, en búast
mætti við miklum óeirðum,
ef iögreglumenn frá Kaup-
mannahöfn kæmu. Sýslumað
urinn hefir fengið skipun um
að halda sig innan dyra
ásamt þeim tveim lögreglu-
þjónum, sem í bænum eru og
hafa þeir lokað húsi sínu og
búizt þar um og bíða átekta.
Bannað hefir verið að selja
skotvopn í Færeyjum. Erlend
ur Patursson, formaður Þjóð
veldisflokksins, hefir krafizt
þess, að færeyska landsstjórn
in hlutaðist til um, að skipið
með dönsku lögreglumönnun
um sneri þegar við, annars
mundi koma til alvarlegra
átaka.
Þorlákshöfn
(Framhald af 1. síðu)
og varð að tvísækja.
Afli þessi fæst rétt við land
steinana, austur af nesinu, og
er nú orðið þétt af bátum þar,-
Aflahæsti báturinn nú er
ísleifur, skipstjóri Svavar
Karlsson, og er hann búinn
að fá 800 lestir í 75 róðrum,
þar af 30 á línu en 45 með
net og í netin hefir hann
fengið 660 lestir. Á land komu
í Þorlákshöfn í fyrradag 90
lestir og 110 í gær. Er nú bú
ið að afla 250 lestum meira
en við vertíðarlok í fyrra, en
frá þessum tíma til vertíðar
loka þá öfluðust 1500 lestir,
og sést á því, hve vertíðin get
ur orðið miklu betri en í
fyrra. Skip lestaði saltfisk í
Þoriákshöfn til útflutnings í
gær.
Allir vinna nú sem þeir
mega, og er vandséð, hvort
undan hefst.
Árnað heilia
Trúlofim.
Njlega opinberuðu trúlofun s:na
í Vestmannaeyjum ung/tú Guð-
láug Ásrún Kristinsdcttir, Suður-
iandsbraut 86 og Rósant Hjörleifs-
son, Arnarbæli, Ölfusi, Árnessýslu.
Kópavogur
ennþá
Þar sem ég tel „verst hin
þöglu svik, að þegja við
öllu röngu", hefi ég að nokkru
látið 1 ljés skoðanir mínar á
stofnmi kaupstaðar í Kópa-
vogi, i tveimur örstuttum
greinarkornum í Tímanum.
En skoðanir mínar eru þess-
ar:
1. Sá stofnaður kaupstaður
má búast við að hlaðist vígi,
sem siðar verði þrándur í
götu saméiningar við Reykja-
vík. Byggi ég þetta m. a. á
kynningu minni víða úti í
heimi, þar ssm svipað stend-
ur á og hér.
2. Ég tel ofbeldiskennt að
ryðja nýlega tvíkosinni, lög-
legri stjórn hreppsins úr vegi
með lagasetningu frá löggjaf
arþingi þióðarinnar. Það sé
tæplega forsvaranlegt í lýð-
ræðislandi, og með því sé gef
ið hættulegt fordæmi fyrir
ókominn tíma.
3. Þar sem Kópavog vant-
ar nær alla atvinnuvegi og
þar er ekkert sérstaklega
heppilegt til rekstrar atvinnu
tækja, þá er það stórhætta
fyrir íbúana þar, að einangra
sig, einkum þó, þegar harðn-
ar í ári.
4. Margt er og verður sam-
eiginlegt með Kópavogi og
Reykjavík, sem gerir það eðli
legt og sjálfsagt að þessar
byggðir séu eitt bæjarfélag.
Og ætti þá Kópavogur eins og
ýmiss önnur úthverfi Reykja
víkur að hafa nokkur sérráð
í bænum, sem hér er ekki rúm
til að ræða nánar.
5. Þar sem atvinnurekstur,
efnamenn og margs konar
fyrirtæki eru og verða í R-
vík, á að geta verið stórhag-
ur við uppbyggingu ýmiss
konar menningarverðmæta í
Kópavogi, að njóta gjaldþols
slíkra.
6. Vegna legu sinnar eiga
úthverfi Reykjavíkur eins og
Kópavogur og Seltjarnarnes
að tilheyra höfuðstaðnum. Og
þar sem 2/5 íbúa landsins eru
í Reykjavík, er sanngjarnt að
þeir hafi þennan litla skika
landsins til afnota og um-
ráða.
7. í stað þeirrar orku, sem
fer í baráttu fyrir kaupstað-
armyndun i Kópavogi, væri
miklu nær að beita kröftun-
um til vakningar og eflingar
því, að sameina Reykjavík og
Kópavog í eitt bæjarfélag eins
og þau eiga að vera á ókomn-
um árum. Þótt þrír af fimm
bæjarráðsmönnum nú í
Reykjavík séu á móti samein
ingunni, þá sannar það lítið
um hug hygginna og fram-
sýnna manna yfirleitt.
Ég hefi sett fram þessar
skoðanir mínar sem íslend-
ingur, er ann höfuðstað okk
ar með öllum sínum úthverf-
um, — en ég hefi ekki gert
það sem flokksmaður neins
stj órnmálaf lokks.
Og er hér með lokið af-
skiptum mínum af þessu máli.
Vigfús Guðmundsson.
Útvarpið
Útvarpið í dag.
Fastir liðir eins og venjulega.
18.50 Úr hljómleikasalnum (plötur).
20.30Tónleikar (plötur).'
21.00 „Já eða ‘nei“. — Sveinn Ás-
geirsson hagfræðingur stjórn-
ar' þættinum.
22.10 Danslög (plötur).
24.00 Dagskrárlók.
S.K.T. Oömlu dansarnir
í GT-húsinu í kvöld kl. 8.
Hljómsveit Carl Billich
Aðgöngumiðasala kl. 8.
ÁN ÁFENGIS — BEZTA SKEMMTUNIN.
JAZZHLJÚMLEIKAR
í Austurbæjarbíói mánudaginn 25. april kl. 11,30
Hljómsveit Gunnars Ormslev
Hljómsveit Björns R. Emarssonar
Tríó Ólafs Gauks
Söngvari Haukur Morthens
Kvartett Gunnars Sveinssonar
Trfó Kristjáns Magnússonar
Kvartett Eyþórs Þoriákssonar
Jam Session, sem 15 þekktir
hljóðfæraleikarar taka þátt L
Kynnir Svavar Gests
Hljómleikar þessir eru kveðjuhljómleikar fyrir
Gunnar Ormslev, sem er senn á förum ttt Sví-
þjóðar, og mun þar leika með einni þekktustu
hljómsveit Svía, hljómsveit Simon Brehm.
Aðgöngumiðar eru seldir í Músíkbúðinni, Hafnarstr. 5.
f B Ú Ð
3 herbergi og eldhús, ásamt bíLskúr ttt sölu á Selfossi.
Upplýsingar gefa:
Haraldur Bachmanu
og Suorri Arnason,
SELFOSSI
Alúðarfyllstu þakkir ttt allra, nær og fjær, fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa
SIGURÐAR GOTTSKÁLKSSONAR,
Kttkjubæ, Vestmannaeyjum.
Dýrfinna Ingvarsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
HJARTANLEGA ÞOKKUM við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför
KRISTÍNAR JÓHANNSDÓTTUR
Læk, Ölfusi.
ÍSLEIFUR EINARSSON
börn, tengdabörn og barnabörn.
ÞÖKKUM AUÐSðNDA samúð við andlát og útför
GUÐRÚNAR BJÖRNSDÓTTUR
frá Guðlaugsstöðum.
Eiginmaður og börn.