Tíminn - 23.06.1955, Qupperneq 2
ÍJ.
TÍMINN, fi7nmtuij<ag:inn 23. júní 1955.
138. blað.
-—■■■■n
Pegar gömlu hjónin á vegbrúninni
örguðu lífi Ike hershöfðingja
Það var se'nt á ár'nu 1944 og Bandamenn höfðu sótt fram
ríir Holland og snæv'þaktar hæðir Luxemborgar. í aðai-
stöðvum Bandamanna í Versölum var Eisenhower að undir-
búa lokaatrennuna að Þýzkalandi. En skömmu fyr'r jól,
nokkrum dögum áður en Þjóðverjar gerðu harða gagnárás,
'Cór Eisenhower t'l Re'ms. Forustumenn allra herja Banöa-
líianna mættu Eisenhower í Re'ms þann dag, scm hann var
þar, en um kvöídið var haldið aftur til Versala.
Eisenhower og ökumaöur hans
/oru í stríösmáluðum Kadillak, en
:i öðrr.m bíl á eftir fylgdu þrír
:menn, kvikmyndatökumaður,
.rréttaljósmyndari og blaðafulltrúi
iherráðsins. Þeim var ekið af óbreytt
am liðsmanni.
,/sing á veginum.
Brátt kom slydduveður og varð
af því nokkur ísing á veginum. Var
iþví nokkuð erfitt að aka og varð
ið fara að öllu með gát. Sýnilegt
var, að við stýrið á bifreið hers-
höfðingjans sat þaulvanur maður.
Bifreiðarstjórinn á seinni bílnum
var ekki eins vanur og í skarpri
öeygju rann b:ll hans til hliðar,
lenti í ruðningi á vegbrúninni með
þeim afleiðingum að hjólbarði
sprakk. Þegar lokið var við að
skipta um hjól, var farið að skyggja
Dg biíreið hershöfðingjans var nátt
úriega longu horfin sjónum þeirra
4 seinni bifreiðinni.
Handsprengjur í rangan bíl.
Eftir að þeir í seinni bílnum
höfðu ekið nokkra stund, komu þeir
að vegamótum, og lá annar vegur-
inn til Versala, en hinn beint til
Parísar. Krökkt var af herlögreglu
á þessum vegamótum, en lengra og
tii hliðar mátti sjá stríðsmálaða
fólksbifreið liggja á hliðinni, utan
vegar og var framhluti hennar sund
urtættur eftir sprengingu. Mönn-
unum í seinni bílnum varð mjög
illt við, þar sem þeir sáu ekki bet-
ur en þetta' væri bifreið hershöfð-
ingjans. Þeir ýttu sér í gegnum
mannþröngina, og sáu þá sér til
hugarléttis, að bíllinn var ekki
Kadillak. Tvö lík höfðu verið lögð
i snjóinn skammt frá bílnum, voru
þau af herfóringja og undirlið-
bjálfa.
Tebnir fastir.
Þær skýringar fengust hjá ein-
um lögreglumannanna, að tveir
'hermenn í éppa hefðu rennt upp
að hlið fólksbifreiðarinnar og varp
að þremur handsprengjum inn í
hana. Meira fengu þeir ekki að
íífvorpíð
iötvarpið í dagi
Fastir liðir eins og venjulega.
Í'í0,20 Synoduserindi: Reynsla í sál
gæzlustarfi (Séra Bjarni Jóns
son vígslubiskup).
20,55 Tónleikar (plötur).
21.10 Frá norrænni stefnu í Rvik
14. þ. m. Fimm norrænir hag
íræðingar ræða um sameigin
lega mynt fyrir Norðurlönd:
| Útdráttur úr ræðam þeirra
og ennfremur tónleikar (Bene
dikt Gröndal ritstjóri býr til
útvarpsflutnings).
21,40 Einsöngur: Isobel Baillie
‘syngur (plötur).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 „Með báli og brandi“. XVII.
22.30 Sinfónískir tónleikar (plötur)
23.20 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Útvarpssagan.
21,00 Tónleikar (plötur).
21.20 Úr ýmsum áttum. — Ævar
Kvaran leikari velur efnið
og flytur.
21,45 Náttúrlegir hlutir.
22,Oo Fréttir og veðurfregnir.
>2,10 „Með báli og brandi". XVIII.
22.30 Daps- og dægurlög (plötur).
23,00 Dagskrárlok.
vita og var þeim sagt að hypja sig
í burtu, hvað þcir og gerðu. Þeir
stigu þá aftur upp í bíl sinn, en
komust ekki lanrt, því að innan
tiðar voru þeir umkringdir af iög-
reglumönnum, sem spurðu þá, hverj
ir þeir væru. Þeim var ekki trúað,
er þeir scgðust vera í slarfsiiði
Eisenhowers hershöfðingja og var
farið með þá til yfirheyrslu. Þegar
hafð'i verið komið þangað með
fjölda hcrmanna til yfirheyrsiu.
Reynt var að komast að raun um,
hvort þrememning arnir væru dui-
búnir Þjóðverjar, en þeir báðu
þess að hringt væri til Versala, en
þar myndi verða borið vitni meö
þeim.
Hundrað Þjóðvcrjar í París.
Þeir voru settir í fangageymslu
á meðan hringt var til Versala. Þeir
tóku eftir því, að í næsta kiefa við
þá voru tveir stóryaxriir menn í
éinkennisklæðum kapteina í banda
riska hernum. Annar þeirra var
með stórt og ljótt ör i and'itinu.
Báðir þessir menn hrópuðu á verð
ina að láta sig lausa, eins og fleíri,
er þarna voru og hafði verið stung
ið inn sem grunsamlegum persón-
um. Eftir nokkra stund voru þeir
á ný leiddir fyrir majórinn, sem
hafðf með yíirheyrslurnar að gera.
Majórinn hafði hringt til Versala
og þar hafði verið kannazt við þre-
menningana. Þeir voru beðnir af-
sökunar, en áður en þeir fóru,
spurðu þeir, hverju þessi gaura-
gangur sætti. Sagði majórinn þeim,
að allt væri orðið snarvitlaust. Eitt
hvað um hundrað Þjóðverjar væru
komnir til Parísar í einkennisklæð
um bandariskra hermanna og einn
hópurinn væri í bil eins og þeim,
sem þremenningarnir höfðu, þess
vegna hefðu þeir verið teknir fastir.
Þeir spurðu majórinn, hvort Eisen
hower væri kominn til Versala, en
hann sagði, að það væri einmitt
áhyggjuefnið, hann hefði ekki kom
ið þar enn. Eisenhower var orð-
inn klukkutíma á eftir áætlun og
majórinn skýrði frá því, að hann
byggist við að Þjöðverjarnir væru
á ferðinni til að koma hershöfð-
ingjanum fyrir ætternisstapa. Það
var því mikil ástæða til að óttast
um Eisenhower. Majórinn sagði
ennfremur, að Þjóðverjarnir hefðu
að líkindum feiltekið sig á bílnum
við gatnamótin og haldið að sá,
sem þeir sprengdu, hefði verið bíll
hershöfðingjans. Virtust Þjóðverj-
arnir hafa fulla vitneskju um ferð-
ir Eisenhowers þennan dag. Strax
í upphafi grunaði majórinn, sem
sá um yfirheyrslurnar, að maður-
inn með örið væri stjórnandi að-
fararinnar að Eisenhower.
Skipulajðar aðgerðir.
Seinna kom 1 liós, að hér hafði
verið um skipulagðar aðgerðir Þjóð
verja að ræða til að iáða Eisen-
hower af dögum eða ræna honum.
Átti með því að rugla herstjórn
Bandamanna jafnhliða gagnárás
Þjóðverja um þetta leyti. Maður-
inn með örið hét réttu nafni Otto
Skorzeny, deildarforingi, og það
var hann, sem náði Mussolini og
ætlaði með hann til Þýzkalands, þó
að örlögin tækju í taumana í það
sinn, eins og í þetta skípti.
Þeir félagar héldu nú áfram i
bifreið sinni til Versala og bar ekk
ert til tíðinda á leiðinni, nema hvað
þeir voru stöðvaðir við fimm vegar-
tálmanir á leiðinni. Hins vegar töfð
ust þeir ekkert, þar sem majórinn
hafði látið' þá íá vegabréf til að
Dwight D. Eisennower
hjálpsemi eða handsprengjur
koma þeim hindranalaust í gegn.
Þegar þeir komu til höfuðstöðva
Eisenhowers, voru lögreglusveitir
þar fyrir, en ekkert bólaði á hers
höfðingjanum eða bílstjóra hans.
Ike og hans miklu dyggðir.
Eisenhower birtist svo allt í einu
i miðju þessu öngþveiti, ásamt bíl
stjóra sínum og fagnaði starfsliðið
komu hans. Vissi hershöfðinginn
ekki hvaðan á sig stóS veðrið. Þeg-
ar hann var farinn til herbergja
sinna, fóru þremenningarnir á fund
bifreiðarstjcrans, þar sem hann
sat í eldhúsinu og hámaði 1 sig
kvöldverð sinn, eins og ekkert væri.
Með'an hann borðaði hafði hann
eftirfarandi sögu að segja um það,
hvað hafði tafið hershöfðingjann
og hann. Er þeir voru staddir t;m
fimmtán mílur fyrir utan París,
óku þeir fram á konu og mann, er
sátu við veginn og var konan að
gráta. Eisenhower bað að stöðva
bílinn til að vita, hvað gengi að
hjá fólkinu. Kom í ljós, að hjónin
voru að reyna að komast til dóttur
sinnar í París. Þau höfðu verið' á
gangi allan daginn í kuldanum
og snjónum og gamla konan treysti
sér ekki til að ganga lengra. Ekki
kom annað til mála hjá Eisenhower
en að tá'ka gömlu hjónin upp og
aka þeim til Parisar. Gekk bílstjór
anum erfiðlega að finna bústað
dótturinnar. Þegar bilstjörinn var
spurður að því, hvort þeir hefðu
farið um vegamótin, þar sem veg-
urinn sveifir til Versala, svaraði
bilsljórinn, sem auðsjáanlega var
ekkert hrifriin af þeim útúrkrók-
um, sem hann hafði orðið að fara
samkvæmt boði Eisenhowers: „Nei,
við beygðum af aðalleiðinni löngu
áður til að fara með þetta gamla
fólk beinustu leið til Parísar". Svo
stóð hann upp frá mat sínum,
skellti á sig húfunni og tautaði:
„Ike og hans miklu dyggðir“.
(Framhaid af 1. síðu).
sr. Páll Þorleifsson," Sigur-
björn Einarsson, prófessor,
sr. Pétur Sigurge'rsson, sr.
Gísli Brynjólfsson, sr. Sigurö
ur Stefánsson og sr. Einar
Guðnason.
Kveðjur bárust.
Kveðja barst tU Presta-
stefnunnar frá hinu evanel-
íska-lútherska kirkjufélagi í
Vesturheimi og svaraði
Prestastefnan með kveðju.
E'nnig sendi Prestastefnan
kveðju til forseta íslands og
kirkjumálaráðherra. Rúml.
90 prestar sitja Prestastefn-
una að þessu sinni. Umræð-
um um málefni stefnunnar
verður haldið áfram í dag.
tttssssssssasssssaaasaœssssssssssssssssssssœsss&sssssssssMsscsasýscssa
AÐALFUNDUR
Reykjavíkurdeildar Rauða Kross íslands
verður haldinn í Naustmu, mánudaginn 27. júní n. k.
kl. 8,30 síðdegis.
Dagskrá samkvœmt félagslögum.
STJÓRNIN.
Tilboð óskast
í 2 tengivagna, burðarmagn 14—20 tonn. — Vagnarnir
eru til sýnis hjá Sæmundi Jónssyni, Keflavík, sími 466.
Tilboð verða opnuð í skrifstofu vorri föstudaginn
24. þ. m. klukkan 11 f. h.
Sala setuliðseigna ríkisins.
JSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS
M.s. Fjallfoss
fer héðan föstudaginn 24. þ.
m. til Norðurlands.
Viðkomustaðir:
Akureyri,
Húsavík.
M.s. Dettifoss
fer héðan mánudaginn 27.
þ. m. til Vestur- og Norður-
lands.
Viðkomustaðir:
Patreksfjörður,
Flateyri,
ísafjörður,
Siglufjörður.
■iiiuuuiiiinuiiuuiunuuiiununiiinnuniniiiiNwiin
I Bændur athugiÖ |
f ÖXLAR undir heyvagna |
I til sölu á
Bústaðavegi 89,
sími 6572. I
WmARimtítotsscH
LOGGILTUR SJUALARtOANOI
• 06 OÖMTÚLK.UR IENSHU •
S1KSJUB70LI - sioi 81655
Rnuuiuunmumiiiiuiiimii«miiiimuiiiuiiinuiuii3iis
Þakpappi
Mótavír
Bindilykkjur
Múrhúðunarnet
Steinsteypuþéttiefni f
Loftblendi
Steinmálning
Ryðvarnarmálning |
Almcnna bygg- I
ingafélagið h. f., |
Borgartúni 7,
Sími 7490.
■mnunmnuiiiininuui
S K l-PAUTGCItik
RIKISINS
n
vestur til Isafjarðar hinn 27.
þ. m. Teki'ð á móti flutningi
til Snæfellsnesshafna, Flat-
r-yjar og Vestfjarðahafna í
dag. Farseðlar seldir árdegis
á laugardag.
Skaftfelfingur
fer til Vestmannaeyja á morg
un. Vörumóttaka 1 dag.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall
mannsms míns
KONRÁÐS DIOMEDESSONAR
kaupmanns á Blönduósi.
Sigríður Þorsteinsdóttir.
Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð við andlát og :
jarðarftH-
GUÐRÚNAR SVEINSDÓTTUR,
Hlégerði 14, Kópavogi.
Ilannlbal Hálfdansson,
börn, barnabörn og tengdabörn