Tíminn - 05.08.1955, Síða 1
Skrifstofur i Edduhúai
Fréttasímaj::
61302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími81300
Prentsmiðjan Edda
drS'.&m
*9, krgangur.
Reykjavík, föstudaginn 5. ágúst 1955.
173. bláð.
Norsku síldarskipin
afla vel
Frá fréttaritara Tímans,
á Seyðisfirði.
Norsk síldarskip hafa kom
ið hér inn síðustu daga. Hafa
þau mjög verið að veiðum á
Digranesflaki síðustu daga
og hafa aflað vel. Snurpu-
nótaskipin eru mörg farin
heim með aflann, en rek-
netaskipin eru flest enn a?
veiðum. — ÁV.
Nýr yfirraaðnr varn
arliðsins
A laugardaginn tekur nýr
yfirhershöfðingi við stöi'fum
á Keflavíkurflugvel'i. Heitir
sá John W. White, sem tekur
við störfum Donalds R. Hutch
insonar miverandi yfirmanns
varnarliðsins.
Hinn nýi yfirhers'höfðingi er
flugliersmaður eins og fyrir-
rennari hans og er af sömu
gráðu í hernum, brigadier
general. Starfaði White áður
1 hernum í Washington.
HutcWnson hverfur aftur
th fym starfa sinna í þjón-
ustu flughersins í Washing-
ton. Hinn nýi yfirhershöfðingi
kom til Keflavíkur í gær og
tóku á móti honum yfhmenn
varnarliðsins og sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi.
Loftleiðir athuga möguíeika á
að hef ja innaniandsflug aftur
Aðalfuuclur félagsins lýsti vilja sínurn um
þctía og vill afla lccppilegi*a flugvéla
Aðalfundur flugfélagsins Loftleiða var haldinn s. 1. mið-
vikuda í veitingastofu félagsins á Reykjavíkurflugvelli. —
Kristján Guðlaugsson, formaður félagsstjórnar, setti fund-
inn, en fundarstjóri var Jón P. Emils og fundarritari Jóu
Góður reknetaafli
Bolungarvíkurbáta
Frá fréttaritara Timans
í Bolungarvík.
Þrír bátar stunda nú rek-
netaveiðar héðan inni í Djúpi,
leggja inn á móts við Álfta-
fjörð og láta reka út á móts
við Bolungarvík. Dröfn, skip-
stjóri Salmann Sigurðsson,
hóf fyi'st veiðarnar og síðan
bættust við Stígandi, skip-
•stjóri Gunnar Egilsson, og
Jökull, skipstjóri Guðmund-
ur Rósmundsson. í fyrrinótt
öfluðu bátarnir 35—55 tunn-
ur og var Jökull afiahæstur.
Síld hefir ekki veiðzt í reknet
að ráði inni i Djúpi síðan 1935.
Síldin er heldur smá en ^eit
og talin betri en Faxaflóasíld.
Bátarnir eru htlir -og hafa
16-20.net. ÞH.
Mynd þessi er frá þjóðhátíð í Herjólfsdal í VTestmaniiayjum.
Tjaldborg og skreyting í dainum.
Um 1500 aðkomufóiks ætiar
á Þjóðhátíðina í Eyjum
Mikiil viibánaSIur í Herjólfsdal. - Brcnn-
cir. dæns, tjaldborgir og auslurl. laallir
í Vestmannaeyjum er nú mikill undirbúningur undir þjóð-
hátíð og er búizt við meira fjölmenni til Eyja á þjóðhátíð
að þessu sinni en nokkru sinni fyrr. Er líkiegt, að þangað
sæki mikið á annað þúsund aðkomufólks.
Mikdl undirbúningur í
Herjólfsdai.
I Herjólfsdal, þar sem þjóð-
hátíðín er ha*din, fer nu fram
mikill undirbúningur. Iþrótta
félagið Týr sér um hátíðahöld
in að þessu sinni. Félögin
skiptast á um það og er mikil
og holl samkeppni miili þeirra
um að gera hátíðina, sem eft
irminnilegasta. Árangurinn er
sá, að hátíðahöldin verða veg
legri með hverju árinu sem
iíður.
Að þessu sinni verður til
dæmis margs konar skreyt-
ing í dalnum. Verið er að
byggja þar eftiriikingar af
austurlenzkum höllum. Auk
þess verður komið fyrh skraut
lýsingu í dalnum að kvcidlagi
og eitt kvöldið verður efnt til
mikil'ar brennu.
íþróttir, dans og söngur.
Skemmtiatri'ðin sjálf verða
annars með svipuðu sr.iði ug
undanfarið. Þar verða ræðu-
Héraðshátíð Framsókn-
armanna í A-Skaf taf .sýslu
Framsóknarmenn í Austur-Skaftafellssýslu halda hér-
aðshátíö sína að félagsheimilinu Mánagarði iaugardaginn 13.
ágúst næstkomandi og hefst hún kl. 8,30 síðdegis.
Meðal ræðumanna verður
Páll Þorsteinsson, alþingis-
maður. Sigurður Ólafsson
syngur einsöng. Hjálmar Gísla
son synur gamanvísur, Hösk-
uldur Skagfjörð les upp og
Skúli Halldórsson tónskáld
leikur einleilc á píanó.
Er mjög til þessarar sam-
komu vandaö og er varla að
efa, að hún verður hin á-
nægjulegasta og mjög fjöl-
sótt.
m-
höld, hljófæraleikur, íþróttir,
söngur og dans.
Margir burtfluttjr Vest-
mannaeyingar koma t‘l Eyja
um þjóðhátíðina og dvelja þá
oft nokkrá daga fyrir eða eft-
ir hátíð. Er sagt, að Vest-
mannaeyingum verði oft hugs
að heijn til Eyja meðan á þjóð
hátið stendur, komist þeir
ekki þangað.
Fletst aðkomulfóikið býr í
tjöldum og margt Eyjafólk
einnig. Skipta tjöídin þúsund
um og eru þau reist skipulega
við götur og númeruð eftir
fullkomnu bæjaskipulagi.
Vhja skipta á páskum
og þjóðhátíð.
Þjóðhátíðadagarnir i Eyj-
(Framhald á 2. síðu).
Allmikil sító sást á
Héraðsflóa í gær
Frá fréttaritara Tímans
á Seyðisfirð'i.
Hingað kom í dag fyrsta
síldin á þessu sumri. Voru
það þrjú skip, sem komu með
síld til söltunar, Sjöstjarnan
með 600 tunnur, Von frá
Grenivík með 400 tunnur og
Sleipnir með 300 tunnur. Var
sildin söltuð í þrem söltun-
arstöðvum, en þær eru fimm
hér. Sleipnir sá allmikla síld
á Héraðsflóa á leið suður og
kastaði einu sinni en fékk
íítið og gaf sér ekki tíma til
að reyna frekar. — Á.V.
Magnússon.
Á fundinum mættu fulltrú
ar íyrir 1,2 millj. hlutafjár,
en hlutafé er ails tæpar 2
millj. kr.
Formaður og varaformaö-
ur fluttu siöan skýrslu um
störf félagsstjórnar og Alfreð
Elíasson, framkvæmdastjórli
futti skýrslu um rekstur fé-
lagsins á árinu. Veltan nam
rúmum 28. millj. kr. og var
það rúml. 60% aukning frá
árinu 1953. Fluttir voru 11
þús. farþegar og farnar 115
ferðir milli landa.
Félagið er nú stærsti ísl.
auglýsandinn erlendis og í
ferðafjölda yfir Atlantshaf
er það komið fram úr flug-
féiögum ýmissa stærri þjóða,
svo sem Spánverja og nálg-
ast önnur, svo sem ísraels-
menn og ítala.
Hjá íélaginu starfa nú alls
um 150 manns, þar af 85 í
Reykjavik. í fyrra opnaði fé-
lagið veitingastofu við flug-
stöð sína á Reykjavíkurflug-
velli, og er þar hægt að veita
flugfarþegum beina og fram
reiða mat þann, sem veittur
er í flugvélunum.
Þrjár 7nillilandavélar.
Félagið keypti skymaster-
vél á þessu ári og hefir nú
til umráða þrjár millilanda-
flugvélar, sem fljúga milli
Evrópu og Ameríku með við-
komu hér. Frá áramótum til
júlíloka var farþegafjöldinn
8528 og er það 54% aukning
fi’á í fyrra. Farnar voru 94
ferðir fram og til baka yfir
Atlantshaf á móti 58 í fyrra.
Oþnuð var ný flugleið til
Luxemborgar.
Stiórn félassins var endur-
kjörin og skipa hana Krist-
ján Guðlaugsson, form., Sig-
urður Helgason, varform., og
meðstjórnendur Alfreð Elí-
asson, Kristinn Olsen og Ól-
■'fur Bjarnason. Varastjórn
skipa Einar Árnason og
Sveinn Benediktsson.
Ýmsar ályktanir voru gerð
ar, svo sem að félaghð reyni
Vaxandi síldarafli í
; ísafjarðardjúpi
Frá fréttaritara Timans
á ísafirði.
Reknetaaílinn i ísafjarð-
ardjúpi yirðist fara vaxandi.
| í gær var afli vélbátsins Vers
| 150 tunnur eftir nóttina en
| Andvari fékk tuttugu og'fimm
tunnur. — GS.
að hefja aftur innanlands-
flug og afla sér hentugra
véla tU þess. Einnig var skor-
að á stjórnina að athuga
möguleika á að fjölga við-
komustöðum erlendis svo sem
i Bretlandi. Þá ályktaði fund
urinn, að ríkisvaldmu bæri
að styrkja flugstarfsemina
með bví að veita félögunum
skattfrelsi og benþ á, að
mörg erlend flugfélög njóta
opinberra styrkja.
Síldarskipin leituðu
í landvar í gærkvöldi
Frá fréttaritara Tímans
á Raufarhöfn.
Lítil síldveiði var í gær og
ve‘ðiveður ekk* gott. Fáe«n
skip fengu líti>sháttar ve‘ði
í gærmo’gun, en engin veiði
var í gærdag. Veið'horfur
voru mjög slæmar I gær-
kveldi og far'ð að rigna og
sjór að þyngjast, enda le‘t-
uðu skipin þá í landvar.
Á Raufarhöfn er búið að
salta samtals um 50 þúsund
tunnur.
Eldur í flugskýli á
Keflavíkurflugvelli
Frá fréttaritara Tímans
á Keflavíkurflugvelli.
Um klukkan tíu í fyrrakvöld
kom upp eldur í stóru flug-
vélaskýli á vellinum, þar sem
viðgerðir flugvéla fara fram.
Var aldurinn magnaður um
skeið og leit út fyrir, að mikið
tjón mundi verða, en slökkvi
liðinu tókst að ráða niðurlög-
um eldsins og var tjónið von
um mlnna.
P
Ogæftir tefja hnmar
veiðar
Frá fréttaritara Tímans
á Stokkseyri.
Þrír bátar hafa stundað
humarveiðar héðan, en þær
veiðar haf gengið treglega
vegna ógæfta, þvi humar er
ekki hægt að veiða nema í
afbragðsgóðu veðri. Hafa bát
arnir ekki komizt á sjó lang-
tímum saman. Þeir hafa þó
röið síðan um síðustu helgi,
ng hefír aflinn verið sæmi-
legur. Hér er mikil atvinna,
einkum þegar humarinn afl-
ast. BT.