Tíminn - 16.11.1955, Blaðsíða 2
TÍMINN, míðvikudagínn 16- nóvember 1955.
261. blað.
Er nýtt flóð af fölskum dollara-
seðlum að koma á heimsmarkaðinn?
Dramurimi um líf í makindum, þar sem ekk> þarf annað
3n styðja á hnapp til að miljónir króna berist manni í hend
jr, hefir frá því peningar urðu tU frezstað margra til að
gerast peningaframle'ðendur. Nýlega hefir orðið vart við
nýja send»ngu af fölskum dollaraseðlum á heimsmarkað-
inum, en dollarinn og sterlingspundið verða oftast fyrir
barðinu á myntfölsurum.
Umfangsmesta og kunnasta
myntfölsun, sem hefir átt sér
stað, fór fram á striðsárunum
samkvæmt ósk Hitlers. í
Þýzkaland1 voru þá prentaöir
pundsseð'lar með þeim ágæt
um, að lengi vel grunaði eng
an neitt, en þessum seðlum
i;ar að sjálfsögðu komið í hend
ur Bandamanna. Att1 með
’pessu að grafa undan fjár-
hagskerfi Breta og hafði nærri
tek'zt, þótt ölíklegt sé.
Efri hlutinn er ófalsaður, en
neðan við strikið er um fals-
aðan seðil að ræða.
Sérleg löggæzla.
Mörg lönd hafa á að skipa
sérlegri lögreglu, sem er vakin
og sofin yfir því að myntföls-
un eigi sér ekki stað. Innan
ieyniþjónustu Bandaríkjanna
er t. d. stór og vel búin deild,
sem hefir þann ema starfa að
koma upp um myntfölsun. Og
þessa dagana er bandaríska
Leyniþjónustan að gefa út bæk
íing, sem nefnist „Þekktu þína
peninga". Bæklmgi þessum er
dreift til banka víðs vegar um
heim, en honum er ætlað það
hlutverk að auðvelda grein-
ingu á fölskum seðlum.
Kampavíns-klæðskerinn.
Athyglisverðasta myntföls-
unarmál, sem upp hefir komið
í Danmörku, er mál kampa-
vínsklæóskerans, sagan af
handverksmanninum. sem
einn dag fór að gefa tiukrónu
seðla í allar áttir, yfirgaf iðn
sína og fór að halda stórfeng
Ie,gar kampavínsveizlur- Það
leið þó ekki á löngu þar til
snurða hljóp á þráð klæðsker
ans. í fyrstu var trúað sög-
unni um „stóra vinninginn í
þýzka happdrættinu‘‘, en þeg
ar tengdasonur klæðskerans,
sem var ljósprentari og fjöl-
skylduvinur, sem var stein-
prentari, fóru einnig að strá
um sig tíu krónuseölum, þótti
nóg komið. Þessi kampavíns-
gleði klæðskerans endaði með
þyí, að hann játaði myntföls
un með aðstoð ljósprentarans
og steinprentarans. Fyrsta
„upplagið“ hafði numið tutt
ugu og fimm þúsund krónum
dönskum og því hafði næst-
um verið eytt, þegar handtök
ur fóru fram.
Klakksvík
(Pramhald af 1. síðu).
fengu fjcgurra mánaða fang
elsi óskilorðsbundið, tól'f hlutu
skilorðsbimdna fangelsisdóma
og aorir tólf voru dæmdir í
tveggja mánaða óskilorðsbund
ið fangelsi.
Eimíarliðíii
(Framhald af 1. síðu).
síldarverksmiðjur ríkisins. Er
breytingin í því fólgin, að
gjald verksmiðjunnar á Rauf
ai’höfn tú hreppssjóðs Rauf-
arhafnarhrepps verð1 aldrei
minna en 50 þús. kr. Þegar
Raufarhöfn var gerð að sér-
stökum hreppi, var gert ráð
fyrir, að framleiðslugjald
verksmiðjunnar stæði undir
verulegum hluta af útgjöld-
unum. Síldarbræðsla hefir
verið mjög lítil hin síðari ár
og tekjur hreppsins hafa þar
af leiðandi farið mjög minnk-
andi.
ÚtvarpLð
Útvarpið í day.
Pastir liðir eins og venjulega.
32.50—14.00 Tónleikar fyrir vinnu-
staði (plötur).
20.30 Daglegt mál (Eiríkur Hreinn
Finnbogason cand. mag.).
20.35 Smfóníuhljómsveitin; dr. Vict-
or Urbancic stjómar.
21.00 Guðspekifélagið 80 ára.
22.10 Vökulestur (Broddi Jóhannes-
son).
22.10 Létt lög (plötur).
23.10 Dag-skráriok.
Útvarpið á morgun.
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Kórsöngur: Barnakórinn í
Bielefeld syngur (plötur).
20.50 Biblíulestur: Séra Bjarni Jóns-
son vígslubiskup les og skýrir
Postul-asöguna; IV. lestur.
21.15 Tónleikar: Dinu Lipatti leikur
á píanó valsa eftir Chopin
(plötur).
21.30 Útvarpssagan: „Á bökkum
Bola<fljóts“ eftir Guðmund
Daníelsson; XI. (Höfundur les)
22.10 Náttúi-legir hiutir (Ingimar
Óskarsson grasaíneðingnr).
22.25 Sirtfóniskir tónleik&r (plötutý.
23.10 Dagskrártok.
og kersnslybók í békbandi
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins, hefir
sent á bókamarkaðinn tvær nýjar aukafélagsbækur, Heims
bókmenntasögu, fyrri hluta, eft'r Kristmann Guðmundsson
rithöfund og Kennslubók í bókbandi og smíðum, eft'r Guð-
mund Frímann. Eru þetta hinar gagnlegustu og fróðlegustu
bækur, hvor á sínu sviði.
Heimsbókmenntasagan er
alger nýjung í íslenkri
bókaútgáfu. Má furðulegt
teljas-t, að hjá jafn mikilli
bókaþjóð skuli slík bók ekki
hafa verið gefin út fyrr en
nú, að Bókaútgáfa Menning-
arsjóðs og Þjóðvinafélagsíns
ræðst í þetta, og fær Krist-
mann Guðmundsson til að
vinna þetta verk. Má ætla
að mikill fengur þyki í þessari
bók, sem gefur öllum almenn
ingi tækifæri til að víkka
sj óndeildarhring sinn í heimi
bókmenntanna og kynnast
öndvegisskáldum annarra
þjóða og bókmenntastefnum.
Heimsbókmenntasagan verð-
ur í tveim bindum, og er þetta
fyrra bindi 272 bls. að stærð
í Skírnisbroti og prýtt mörg
um myndum af frægustu rit-
höfundum og skáldum heims
ins. |
Kennslwbók í bókbfíííd'
og smíöum
er hin gagnlegasta bók og
mun koma mörgum að góðum
notum. Hér hefir verið tilfinn
ar.legur skortur á handbók-
um í flestum iðngreinum og
mikil eftirspurn eftir slíkum
bókum á erlendum málum.
Bók Guðmundar Frímanns,
bætír því hér úr brýnni þörf.
Höfundurinn er reyndur fag
maður í báðum þeim greinum
er bókin fjallar um, og hefir
jafnframt haft á höndum
kennslu í þeim um langt
skeið.
Fjölmargir hafa áhuga á að
binda bækur sínar sjálfir, en
skortir tilsögn og leiðbeining-
ar. Hið sama má segja um
smíðar. Með hjálp þessarar
bókar ætti hver sæmiléga lag
hentur mað'ur að geta lært að
bittda insa bækur og snaíða
ýmsa nauðsynlega og gagn-
lega muni fyrir heimili sitt,
auk þess er bókin tilvalin
kennsiubók við handavinnu í
skólum. í bókinni eru um 100
teikningar til skýringar efiii
hennar, sem sett er fram á
auðskilin hátt en þó af ná-
kvæmni.
Ætti kennslubók í bókbáhdi'
og smíðum að verð'a hin gagn
iegasta bók, bæði fyrir þá. er
eru að nema þessar iðngrein
ar, og eins hina, er vilja fást
við bókband og smiðar sem
heimiUsvinnu. Bókin er rösk
lega 200 bls. að stærð og
vönduð að öllum frágangi.
Sjo bækur.
Með þessum bókum hefir
Bókaúitgáfa Menningarsjóðs
og Þjóðvinafélagsins sent á
markaðinn fjórar af sjö auka
félagsbókum sínum á þessu
ári. Þær sem áður voru komn
ar eru Saga íslendinga, 8.
bindi, 1. eftir Jónas Jónsson
og Tryggvi Gunnairsson, 1.
bindi, eftir dr. Þorkel Jóhann
esson.
Auk félagsbókanna koma
út í bessum mánuði bækurn-
ar; Frásagnir eftir Árna Óla
ritstjóra, íslenzkar dulsagnir
2. bindi, eftir Oscar Clausen
og Undraheimur dýranna, eft
ir Maurice Burton, í þýðingu
þeirra dr. Brodda Jóhannes-
sonar og Guðmundar Þorláks
sonar magisters.
Tii sölu
e'karborðsíofuhúsgögn og pianó.
Söluskálinn
KZfíppfírstíg 11.
UNGLINGA
vantar til að bera blaðið út til kaupenda á
Tómasarhaga
Afgreiösia TÍMANS
SÍMI 2323.
«5««SSSSSSSSSSSSSSS«ÍSSSSSÍSSSSSSSSSSS«SSÍSSSSSSÍÍSSSSSSSSS4SSS*ÍÍSS»3
Hugheilar þakkir fyrir hlýhug og hluttekningu við
andlát og jarðarför.
SIGMUNDAR JÓNSSONAR
frá Hamraendum.
Margrét Jónsdóttir og cðrir vandamenn.
ÞÓRA ÞORVARÐSDÓTTIR
frá Borgargerði í Stöðvarfirði
lést mánudaginn 14. nóvember að heimili dóttur sinn-
ar Vesturbraut 7, Keflavik.
Börn hinnar látnu.
ÞÖKKUM INNILEGA auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
JÓNS HALLDÓRSSONAR bóndfí
Framnesi, Ásahreppi.
Sérstaklega viljum við þakka Áshreppingum fyrir
alla þeirra hjálp, er þeir létu okkur í té. Og einnig
þeim sem heimsóttu hann og styttu honum stundir á
banalegunni. — Biðjum algóðan guð að blessa ykkur
og varðveita um ókomna tíma.
Jónína Jónsdóttir, börn,
tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
Bílarsiir
(Framhald af 1. síðu).
an á vélarhúsi og aftan á bíl
unum.
Ein nýjungin er sú, aö hægt
er nú að fá báðar þe'ssar bíla
tegmidir með fjórum dyrum,
en án gluggapósts og ínilli-
gerðar ofan hurða, og gefur
þetta bílunum nýjan svip
þegar rúður eru niðurdregn-
ar. Verða bílarnir lengri og
lægri í útliti, þegar glugga-
pósturinn er horfinn- Sérstak
ar styrkingar eru gerðar á
byggingu hússins og hurða-
pósta með það fyrir augum að
þola aukinn þunga.
Vélaorka amerísku bílanna
er nokkuð aukin enn frá því
sem var á síðasta ári. en am-
erískir bíleigendur sækj ast nú
mjög eftir sem aflmestum bíl-
um. Þykir afhð handhægt og
þægilegt meðan verið er að
koma farartækjimum á ferð
og til þess að komast nógu
fljótt fram úr öðrum farar-
tækj um á þröngum vegum í
mótiítnferð.
Þannig er nú Supergerð af
Buick komin með 255 hest-
afla vél.
Chevroletbíla af gerðinni
1956 er nú hægt að fá af 19
mismunandi gerðum hvað út-
lit og byggingu snertir og
hefir úrval þeirra bíla aldrei
áður verið jafn fjöibreytt.
Gerltardsen
(Framhald af 8. síðu.)
á daginn leið fjölgaði þeim,,
sem lögðu niður vinnu. Kröfu
göngur voru víða farnar og
kom th óeirða. Hafa allmargir
verið handteknir. Þátttaka f
verkfallinu var mest í borg-
um og bæjum utan höfuðborg
arinnar. í næst stærstu borg
landsins, Rosario, lögðu um
80% verkamanna og iðnað-
armanna niður vinnu. Stjórn
Aramburu forseta, sem seúð
hefir tvo dága að völdum,,
hafði hvarvetna herlið tií
taks, ef skakka þyrfti.leikinn.
Sagt er, að Lonardi, sem stóð
fyrir uppreisninni gegn Per-
on og tók vi$ af honum, sé
nú í stofufangetei.