Tíminn - 24.12.1955, Page 12

Tíminn - 24.12.1955, Page 12
V>' TÍMINN, langaráagina 24. ðesem-ber 195S. 294. bla5. Það er ekki nóg að framleiða góð matvæli, ef ekki er hægt að koma þeim óskemmdum og heilum til neytenda. Þess vegna skiptir dreifing matvæla, geymsla þeirra, flutningur og umbúðir, jafn miklu máli og varan sjálf. Eitt af höfuðhlutverkum samvinnu- félaganna hefur frá upphafi verið dreif- ing matvæla, aðallega úr sveitum lands- ins. Þau hafa selt meira af kjöti, smjöri, ostum og fleiri slíkum vörum, en nokk- ur annar aðili í landinu, og eru í dag langstærstu samtök á þessu sviði. Kaupfélögin og Samband íslenzlcra samvinnufélaga hafa á margan hátt reynt að gegna þessu hlutverki eftir fremstu kröfum tímans. Þau voru brautryðjendur í byggingu kjötfrystihúsa og sendu menn alla leið til Astralíu til að kynnast fullkomnum aðferðum í meðferð kjöts. kjötgeymslur og tæki til kjötmeðferðar, sem til eru í landinu. SÍS hefur einnig komið upp fullkomnu reykhúsi, og nýtur hangikjötið þaðan hinna mestu vinsælda. Með kjörbúðunum hefur SÍS stigið stórt skref í áttina til fullkomnari kjötdreifingar og hreinlegri meðlerðar kjöts í búðunum. Hvers konar kjöt er nú hægt að fá innpakkað í cellophane, þannig að húsmæður geta valið kjötið og þreifað á því án þess að misbjóða hreinlætis- kröfum. Þessi cellophaneinnpökkun má einnig heita bylt- ing í meðferð á áleggi. Reykjavík er nú langstærsti markaður íslenzkra mat- væla og því er það höfuðhlutverk að skipuleggja kjötsölu til höfuðstaðarins á sem fullkomnastan hátt. Þetta hefur SIS viljað gera með byggingu fullkominnar og mikillar kjötmiðstöðvar, þar sem verið gæti skoðun og flokkun á kjöti eftir kröfum tímans, fyrsta flokks kæligeymslur, aðstaða-til kjötvinnslu og önnur tæki til geymslu og inn- pöldcunar kjöts og annara afurða. Útflutningsdeild SÍS, sem stjórnar sölu kjöts og ann- ara innlendra afurða, mun halda áfram að sækja fram á braut tækninnar og finna fleiri og fleiri nýjungar til þess að gera dreifingu og meðferð kjöts og annara inn- lendra afurða sem bezta, hreinlegasta og fullkomnasta. SIS hefur átt við ótrúlega örðugleika og andstöðu að etja í þessii efni, en hefur þó tekizt að koma upp Afurða- söíu sinni við Kirkjusand, sem þó er aðeins hluti af hin- um fyrirhuguðu mannvirkjum. Eru þar fullkomnustu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.