Tíminn - 17.01.1956, Page 4

Tíminn - 17.01.1956, Page 4
TÍMINN, þriðjudaginn 17. janúar 1956. 13. blaSJ Jón Kristgeirsson, kennari: Úr námsför vestur 1954-55 Skólahús — skólastofur • komustaðir — móttökur skólaborð — skemmtilcg tilviljuii — við ■ heiMarbragur — skólavist fullorðiuna f Niðurlag. Æska Norður-Ameríku er í mörgu lík hinni íslenzku æsku. Hún er djörf og frjáls- mannleg, bein í baki, hrein- skilin og fer lítt í manngrein arálit, gerir sér ekki manna- mun. Hún er óþústuð og sæl- leg og ber það með sér að hún er yfirleitt alin upp við allsnægtir eins og æska þessa lands. Hún er stórt númer á heimilum sínum, og betra er að hafa fylgi hennar en 10 annarra, eins og þar stendur. Enda þótt fræðslumál séu sér mál ríkja eða fylkja, er áber- andi hve blær, yfirbragð og hættir skóla eru svipaðir á allri þessari viðáttu, og kerfi er hið sama. Á umferð innan skóla skrafar námsfólkið saman, en er ekki mjög há- vært. Það virðist líka tízka í landi að tala lágt. Sennilega veldur því þörf fjölbýlis. Kennarar eru líka lágmæltir og heyrast sjaldan eða aldrei brýna rödd. Átök drengja á göngum má heita að aldrei sjáist. Og furöa er hve þeir geta hemlað hraða, er þeir eiga leið enda skóla í milli, því að freistandi er að taka sprett í löngum skólagangi. Verið getur að hér sé einnig um þjóðarsið að ræða, áhrif frá vélamenningu. Því að sá, sem stýrir vél, er oftast í kyr-rð og er þögull. Reglur eru um umferð í skóla. í barnaskólum fer bekkur í sína röð oftast á leiksvæði áður en gengið er inn undir leiðsögn kennara. Á hann venjulega afmarkaðan blett fyrir röð sína. í framhalds- skólum er þetta fjölbreyti- legra. Þar er bæði um röðun á leikvelli að ræða, einkum í yngri bekkjum, eða þá að nem endur skipa sér einhvern veg in í tvöfalda röð um leið og komið er inn úr útidyrum, og rekja sig þannig eftir göng- um, þar til nemandi er kom- inn að stofu sinni, þá víkur hann úr röð. Þröng og troðn- ingar við inngang eiga sér ekki stað. Aðrar reglur gilda þar sem vetrarríki er mikið og kalt er í veðri. Þar þurfa nem endur að komast í húsaskjól sem fyrst. Þeir ganga þá beint í stofu sína, er þá ber að garði, enda eiga kennarar að vera mættir í öllum skólum allt að hálfri stund áður en kennsla byrjar. Ekkert flaustur virð- ist vera. Hringingar úr tíma eru tvennar með 5 mín. milli- bili. Sú fyrri er til aðvörunar svo að tóm fáist til að slíta starfi og komast af stað um leið og aðrir. Leiksvæði eru oftast rækilega afgirt og lok uð. Eitthvað er í fari nem- enda, er bendir á að þeim finnist að þeir séu heima, og að þeir viti vel af því að skól- inn er fyrst og fremst þeirra. Mér virðist þeim líða betur í skólum þar en nemendum hér í okkar skólum, og hafi þar fastara land undir fæti. Kemur þar sennilega margt til greina. Nefna má, að nem- andi er lengur daglega í skóla þar. Fyrir því gefst færi á fjölþættara starfi en við get- um í té látið Margar náms- greinar eru gjörgreinar, sem nemendur velja sjálfir. Vert er að drepa á það hér er vel séð fyrir skólanámi full orðinna, sem oft þurfa að setj ast á skólabekk. Er það fólk á öllum aldri, sem ekki hefur áður sótt skóla, eða þeir, sem vilja skipta um starf og vinna sig upp í nýrri grein, eða iðka framhaldsnám. Eru þar bæði, auk bréfaskóla, dag- skólar og kvöldskólar, eftir vild. Þar ljúka menn prófi, er þeir hafa hlotið viðeigandi kunnáttu og þekkingu. Virð- ist mér slíkar skólastofnanir mjög fullkomnar í Vancouv- er og Seattle. Enda eru þær borgir systur um margt, loft- slag, landslag, atvinnuvegi, þótt önnur sé í Kanada en hin í USA. Hér heima höfum við Bréfaskóla og Námsflokkana, sem ef til vill má nefna í þessu sambandi. En þar vanta á- byrg próf, er veita það sem við á að éta og gefa aðalbak- fiskinn. Það er ginnandi að drepa á eitthvað fleira en skólamál af því, sem fyrir augu og eyru bar í þessu Gósenlandi vest- urs. En hér er þröngur stakk ur skorinn, og komið að enda. Ég leit eftir í blöðum og víðar, sem vænta má auglýsinga o. fl., hvort nokkuð væri að sjá frá Fróni. Uppskera varð rýr. Auglýsing frá Loftleiðum bar fyrir augu í blaði í Los Ang- eles, og nöfn íslenzku fisk- sölufirmanna vestra skarta í símaskrá New York-borgar, hógvær og mjög lítil fyrirferð ar. Kunnugir tjá að nær aldrei sjáist orð frá okkur á vestrænni grund. Við erum ekki menn auglýsinga. Oft var einkennileg tilvilj- un eða ótrúlegt atvik því vald andi, að ýmis konar fólk bar að garði, er hafði áhuga á landi íssins. Skólanemar eru auglýsingartæki. Eitt sinn drápu á dyr atorkumenn í síld armálum. Höfðu oft rennt girndarhug til íslenzkrar síld- ar án aðgerða. Nú fundu þeir lykt af íslending og færðust 1 auka. Þeir létu standa hend- ur fram úr ermum. Enda kom- ið í eindaga, síðustu dagar apríl. Samið var kauptilboð um 50 þús. tunnur, helming Faxa- og helming norðansíld. Verð á höfn hér 25 dalir tunna Faxa og 32 dalir hin. Banka- trygging fyrir viððskiptum. Bögull sá fylgdi, að einkaleyfi á vörunni til US fengist í 3— 5 ár. En forlög eru óhagstæð. Þegar til kom upplýstist, að þá þegar hefði verið samið um einkaleyfi á sölu síldar til þess lands við aðra það árið. Þessir karlar virtust alt vita um síld og fisk, og tróðu alla vasa, ytra og innra, fulla af fróðleik um verzlun með þá hluti vestur frá. Verður þeim kapítula sleppt hér í þetta sinn. En góð hlýtur upplýs- ingaþjónusta um viðskipti að vera þar í landi. íslenzk síld er æðsta nafn síldar á mark- aði þar í landi. Undir þtví merki hefur hún verið seld þar í mörg ár frá öllum Norð- urlöndum, nema gamla Fróni. Norðmenn nefna sína síld að vísu norsk-íslenzka, og var nokkuð af henni á markaði í vor ásamt ofurlitlum slatta frá Danmörku.Var brennimerkt á botn þeirra tunna dularfullt merki: Faxa-síld, var sagt. Verð tunnu í útsölu $31,75. Tímanum þakka ég einlæg- lega fyrir varanlegt langlund- argeð að birta greinar mínar nú um nokkurt skeið, enda þótt ég hafi þjappað efni full- mikið saman, svo að einungis er að mestu um beinagrind að ræða. Orlofskennurum hef- ur oft verið legið á hálsi fyr- ir þagmælsku yfir því, sem þeir hafa heyrt og séð erlend- is. Þó er þeim það nokkur af- sökun, hversu erfitt er um vett vang fyrir slíkt. Því að þrátt fyrir mikinn blaða og ritkost okkar, er mikið af rúmi þeirra bundið föstu efni og margir þurfa að láta ljós skína. Sama máli skiptir um útvarp. Þegar það hefur lokið föstum liðum hljómlist og sögum, er dagskrá öll.-----Að leiðar lokum er ég ánægður. Að vísu eyddist talsvert fé í ferðinni og skuldir söfnuðust. Að lokum vil ég eindregið skora á kennara, sem hafa tök á, að fara í Vesturveg, ef þeir ætla að lyfta sér upp og hressa í starfi. Það er áreiðanlega betur farið en heima setið, 10. — 1. — 1956. Jón Kristgeirsson. Leiðrétting við Jcafla 7. þ.m.: Um heimavinnu átti aö standa meðal annars: Heima- vinna er aðaltengiliður heim-’ ila og skóla. Hún gefur nem- anda tækifæri og hvöt til að vinna sjálfstætt. — Leið er villa af því tagi fyrir: af þvi tæi. — Viðvíkjandi ferð nem enda milli bekkja á daginn féll niður: Er furða hve á- rekstralítið það tókst. Við annað brengl verður að sitja — J. Kr. JHDRARínnJbrtsscít I IOGGÍLTUR SÍUALARYÐANDI | • OG DOMTOUAJR l ÍNSRU • 1 KUJVK70&1 - áau SISSS Refur bóndi er kominn og hef- ir kvatt sér hljóðs: Heill og sæll Starkaður! Ýmislegt í óði og sögu enn þá hef ég geymt í muna. Loksins eftir langa þögn lít ég inn í baðstofuna. Þar sem mjög langt er síðan ég hefi heimsótt ykkur í baðstofuna, datt mér í liug að líta inn til ykk- ar og rabba við ykkur litla stund, bæði í bundnu og óbundnu máli, og segja eitthvað af því, sem á daga rnína hefir drifið. Næstliðinn vetur var ég á Stað- arstað, sem áður hét Staður á Ölduhrygg og vann þar að skepnu hirðingu. Reisti ég mér þar veg- legan varða, sem þó mun nú kom inn veg allrar veraldar. Varðanum lýsti ég á eftirfar- andi hátt: Víða hér á voru landi, varla held ég gruni að minnisvarða úr mykju og hlandi mér ég hefi reist á Stað. Annars þannig í því liggur, — augum það ég rétturn lit. Þetta er annar ölduhryggur útbúinn úr kúaskít. Á Staðarstað voru 10 náms- menn síðastliðinn vetur, flestir úr Reykjavík og fóru 9 þeirra fyrir jólin til heimila sinna. Þá kvað ég: Lífsins vegur liggi beinn, lærisveinum tíu. Nú er hérna heima einn Hvar eru hinir níu? Síðastliðið vor lagðist ég veik- ur og var all þungt haldinn, með háan hita og kvað þá: Mannalega ég mig ber margt þó reyni slarkið. Meðan hitinn ekki er yfir suðumarkið. eftirfarandi hend- Ennfremur ingar: Hjartað er á fleygi ferð, í framan er ég hálfrauður. Það endar með því að ég verð einhverntíma — sjálf-dauður. — Næstliðinn vetur var sem' kunn- ugt er góður og hægviðrasamur og kvað ég þessa vísu á þorráþræl: Logn og blíða landi í lýða efldi gengi. Minnisstæður þessi því þorri verður lengi. Eftirfarandi vísa er kveðin á nýársnótt: Nóttin hún er dökk og dimm, dróttir söngva kyrja, 1955 farið er að byrja. í júní síðastliðnum fór ég svo norður í land, og kom m. a. til Siglufjarðar. Þar þótti mér fall- egt, og fólkið sérstaklega alúðlegt. Frá Siglufirði fór ég með póst- bátnum „Drang“ til Akureyrar. (Framhald á 6. síðu.) 555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555553 Næturafgreiðsla r I Að fengnu samþykki heilbrigðisyfirvalda verður næturafgreiðslu í apótekum framvegis hagað þannig: Eftir kl. 24 (kl. 12 að kvöldi) verða aðeins afgreidd lyf og annað samkvæmt nýjum lyfseðlum (frá kvöld- og næturlækni og öðrum læknum, enda séu lyfseölarn- ir sérstaklega auðkenndir) svo og nauðsynjar vegna fæðinga samkvæmt ávísun ljósmóður. APÓTEKARAFÉLAG ÍSLANDS. WSSS5555S5555S55555555555555555555555555555S5555555553 5 Skíði með skíðaböndum — fyrir börn og fuilorðna Skíði 2—3 ára frá kr. 75.00 3_4------------ 85.00 4—6--------—165.00 6—8--------— 172.00 8- -10 ára frá kr. 195.00 10- -12 — 210.00 12- -14 — 250.00 14- -16 — 260.00 Allt með góðum skíðaböndum Ennfremur: áföstum Skíðastafir barna frá kr. 34.75 unglinga — — 38.00 fullorðins — — 48.00 Smásala Sendi gegn póstkröfu U llER urn land allt. 555555555555555555555555555555555555555555555555555555 555555555555555555555555555555555555555555555555555555) 1

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.