Tíminn - 17.01.1956, Side 5

Tíminn - 17.01.1956, Side 5
XS. blað. TÍMIN'N, þriðjudaginn 17. janúar 1956. I 5 [ Þriðjud. 17. jan. Sundrungin til vinstri ’ í þættinum „Skrifað og skraf- aS“, sem birtist í seinasta blaði Tímans, var svo að orði komizt, að menn myndu sætta sig betur Við þær álögur, sem leggja verð- Ur á til að tryggja rekstur útgerð- arinnar, ef þeir gætu treyst því, að þær bæru tilætlaðan árangur til framþúðar. Því færi hins vegar ver, að slíku væri ekki að heilsa, heldur myndi það vera skoðun flestra, að þessar ráðstafanir myndu aðeins duga til bráða- jbirgða. Svo var einnig að orði komizt l sama þætti, að svipuð myndu verða örlög hverra annarra ráð- Stafana, er gerðar kynnu að verða í þessu skyni, að óbreyttu stjórn- málaástandi. Meðan flokkur stór- gróðamanna og milliliða hefði mik il ítök í stjórn landsins, og verka- lýðssamtökin öll stæðu utan við, myndi hér ríkja áfram sú skálm- öld og ringulreið í efnahagsmál- um landsins, að sérhverjar slíkar fáðstafanir myndu reynast bráða- birgðaráðstafanir eða réttar sagt neyðarráðstafanir til þess að firra hruni um stundarsakir. Aðeins stórbreytt stjórnmálaástand gæti Bkapað þann grundvöll, sem hægt væri að byggja á varanlegar við- feisnarráðstafanir. f Það þarf ekki langt mál til að rekja orsakir þess óheiHavæn- lega stjórnmálaástands, sem nú er ríkjandi og er raunar búið að ríkja hér um nær tuttugu ára skeið. Upphaf þess má rekja til þess, er hin pólitísku samtök verkamanna klofnuðu og komm- únistum tókst að ná fótfestu á Alþingi og í verkalýðshreyfing- unni með ötulli hjálp Sjálfstæðis- manna. Þessi klofningur hefir gert það að verkum að seinustu 15 árin hefir ekki verið hægt að mynda hér starfhæfa vinstri stjórn. Þessi klofningur jókst enn meira við seinustu þingkosn- jngar, þegar Þjóðvarnarflokkur- inn kom til sögunnar, og fjölg- aði enn liinum sundurleitu klofn ingshópum til vinstri. Afleiðingin af þessum klofningi vinstri aflanna hefir orðið sú, að Framsóknarmenn hafa að undan- förnu ekki haft nema um tvennt að velja: Samstjórn með Sjálfstæð- isflokknum eða stjórnleysi og glundroða. Af þessu tvennu, hafa Framsóknarínenn heldur valið fyrri kostinn, því að hann hefir skapað þeim möguleika til að koma fram ýmsum mikilsverðum Umbótamálum. Á hinn bóginn hef- ir svo hlotizt af þessu, að ekki hefir verið auðið að hafa neitt taumhald á efnahagsmálunum, því að milliliðirnir og braskararnir, sem hafa stjórnað Sjálfstæðis- flokknum, hafa gert sér vel ljóst, að ofþensla og verðbólga tryggðu þeim mesta gróðamöguleika. Þannig hefir sundrung vinstri aflanna orðið til þess að skapa Sjálfstæðisfiokknum óeðlilega mik- il völd, þar sem ekki hefir verið hægt að mynda stjórn án hans. Ef Framsóknarflokksins hefði ekki notið við, lnyndi og þessi sundr- ung vera búin að tryggja honum hreinan meirihluta á þingi. Þetta sést t. d. á því, að í kaupstöðunum, þar sem hin sundruðu flokksbrot til vinstri eiga að hafa forustuna gegn honum, hefir hann nú öll þingsætin (nema í Reykjavík), þótt hann sé í minnihluta í þeim öllum. Það er að þakka hinum örugga styrk Framsóknarflokks- ins í dreifbýliskjördæmunum, að Sjálfstæðisflokkurinn hefir enn ekki náð völdum. Það er gleggsta sönnun þess, að hann er öflugasti og áhrifamesti andstæðingur i- haldsins. Af þvi, sem hér er rakið, má það vera ljóst, hver sú breyting er, sem þarf að verða á stjórn- málaástandinu, ef koma á efna- Fyrirkomulag á atvinnurekstri Raeða Skúia Guðmundssonar viS 1. umræiu s sameinuSii pingi um Sjáifstæliismanna um hiuideiidar og arSskipiifyrirkomufag. Fyrir Alþingi liggur nú til- laga Framsóknarmanna um und irbúning löggjafar um fram- leiðslusamvinnufélög, eins og áð- ur hefir verið skýrt frá liér í blaðinu. Þrír þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa lagt fram tillögu í þinginu um athugun á lilut- deildar- og arðsskiptifyrirkomu- lagi í atvinnurekstri. Fyrri umræða um tillögu Sjálfstæðismanna hófst í sam- einuðu Alþingi 11. þ. m. — Þá flutti Skúli Guðmundsson þing- maður Vestur-Húnvetninga ræðu þá, er liér fer á eftir: Eins og fram er tekið í grein- argerð, sem fylgir þessari þings- ályktunartillögu, hefir þetta mál áður legið fyrir Alþingi.Það var á síðara þinginu 1937, sem tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins báru fram tillögu til þingsályktun ar um hlutdeildar- og arðskipti- fyrirkomulag á atvinnurekstri landsmanna,- Tillögu þessari var vel tekið á þingi, en það urðu litlar umræður um hana þar. Eft- ir að annar af flutningsmönnum málsins hafði gert grein fyrir því í stuttri framsöguræðu sagði hátt- virtur þáverandi þingmaður Barða strandarsýslu (Bergur Jónsson) nokkur orð um tillöguna. Hann lýsti ánægju sinni yfir því, að til- lagan var fram komin, en hann benti á að það væri dálítið ein- kennilegt að koma með þetta úr- ræði á þeim tíma, þegar útgerð- armenn hafa lýst því yfir, að ekki væri hægt að reka útgerð með neinum hagnaði hér á landi, held- ur með 110 þús. kr. tapi á hverj- um einasta togara, og hann spurði flutningsmann tillögunnar að því, hvað sjómenn mundu fá mikinn arð með þessu fyrirkomulagi, ef það væri rétt að árlegt tap á hverjum togara sé 110 þúsund krónur og hér um bil hlutfalls- lega það sama á hverjum mótor- bát, sem gerður er út. Framsögu- maður svaraði ekki þessari spurn- ingu, en sagði að þó að togaraút- gerð hefði um thna verið rekin með tapi, kæmi vonandi það ár- ferði, að útgerð skili rekstrar- ágóða, og þá mundi þetta fyrir- komulag geta notið sín, ef því yrði á komið. Fleiri töluðu ekki um málið, og tillagan var samþykkt í sameinuðu Alþingi 21. desember 1937. Á fundi í sameinuðu Alþingi næsta dag, 22. desember 1937, var nefndin kosin. Kosnir voru tveir menn af lista Sjálfstæðismanna, sjálfir flutningsmenn tillögunnar; ennfremur voru kosnir í nefndina tveir Framsóknarmenn og einn Alþýðuflokksmaður. Nefndin var kölluð saman til fundar skömmu síðar. Eg hygg að það sé rétt munað að það hafi verið í janúar- mánuði 1938, eða nú fyrir um það bil 18 árum. Á þessum fundi var kjörinn formaður nefndarinnar og varð fyrir valinu annar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem var jafn framt flutningsmaður tillögunnar, eins og ég hefi áður vikið að. En fulltrúi Alþýðuflokksins í nefnd- inni var kjörinn ritari. Nefndar- menn munu að sjálfsögðu hafa gert ráð fyrir því, að formaður mundi innan skamms boða til ann ars fundar í nefndinni, en það hef- Skúli GuSmundsson ir nú ekki orðið. Bendlr það ekki til þess, að það hafi verið mjög brennandi áhugi fyrir málinu hjá upphafsmönnum þess. — Þeir tím ar komu nokkru eftir að þessi til- laga var samþykkt á þingi og nefndin kosin, að ýmiss atvinnu- rekstur hér á landi varð arðvæn- legri heldur en verið hafði um skeið áður, og t. d. útgerðin, sem nokkuð var minnst á í umræðun- um um tillöguna 1937, var þó nokkur ár rekinn með hagnaði, en þá var ekkert á þetta úrræði minnst af upphafsmönnum máls- ins. I Mér skilst að það sé m. a. til- gangurinn með flutningi þessa máls, að bæta sambúð atvinnu- rekenda og verkamanna. Oft hafa risið deilur milli þessar aðila, og víst væri það gott, ef finna mætti nýjar aðferðir við rekstur atvinnu fyrirtækja, sem hefðu í för með sér hagkvæmari rekstur og bætta sambúð allra þeirra aðila, sem þar starfa. í sambandi við þetta mál vil ég leyfa mér að minna á það að fyrir þinginu liggur einnig önnur til- laga, áður fram borin, á þingskjali 46, um undirbúning löggjafar um framleiðslusamvinnufélög. Sú til- laga er til athugunar í þingnefnd. Þar er bent á fyrirkomulag við framleiðslustörf, sem margir munu telja einna vænlegast til þess að setja niður deilur, því að í slíkum félögum eru sömu mennirnir at- vinnurekendur og verkamenn. Þar gerist það, að í stað þess að ganga í þjónustu einstakra atvinnurek- enda, stofna verkamenn, fleiri eða færri saman, sjálfir atvinnufyrir- tæki, sem þeir reka í félagi, vinna við og skipta með sér arð- inum af rekstrinum eftir reglum, sem þeir hafa samþykkt. Samvinnufélögin hér á landi hafa verið áhrifamest á verzlunar sviðinu, þó að þau hafi látið mörg fleiri viðfangsefni til sín taka. — Víða um landið hafa menn eð mestu leyti tekið ómökin af kaup- mönnunum. Menn hafa stofnað samvinnufélög um viðskiptin og á þann hátt tekið í sínar eigin hend ur útvegun á vörum, er þeir þurfa að kaupa, og sölu á þeim fram- leiðsluvörum, er þeir þurfa að selja. Með þessu fyrirkomulagi hafa þeir tryggt sér betri útkomu á viðskiptunum en þeir hefðu get að fengið með öðru móti. hagsmálunum í heilbrigt horf. Gróðamennirnir og milliliðirnir verða að missa þá óeðlilegu valda stöðu, sem sundrungin til vinstri skapar þeim nú. Þetta getur að- eins orðið með þeim hætti, að Framsóknarflokkurinn eflist og aukin samstaða náist með hin- um lýðræðissinnuðu flokksbrot- um til vinstri. Sú fylking, sem þannig yrði mynduð, væri líkleg til að geta haft gott samstarf við samtök hinna vinnandi stétta til lands og sjávar. Hún ætti og að geta hlotið skilning margra þeirra, sem að undanförnu hafa skipað sér í sveit með millilið- unum og Moskvuvaldinu af hrein um misskilningi. Til þess hlýtur að koma mjög fljótlega, að úr því verði skorið, hvort slík samstaða næst. Tilraun- um, sem gerðar verða í þá átt, mun mikil athygli veitt. Þeir for- ingjar eða flokksbrot, sem skerast úr leik, sýna með því og sanna, að þeir vilja halda áfram glund- roðanum, sem nú er, þótt þeir tali á aðra leið. En kjósendur munu gera sér grein fyrir slíkum lodd- araskap og fella dóm sinn í sam- ræmi við það. Vafalaust má telja að það væri lieppilegt að úrræðum samvinn- unnar yrði beitt við framleiðslu- starfsemina meira hér eftir cn hingað til. Ef verkamenn, sem vinna við ákveðna framleiðslu- grein, taka síg saman og stofna sitt eigið framleiðslufélag, eru þeir um leið sjálfir orðnir atvinnu rekendur. Þeir hafa þá eignaum- ráð og alla stjórn þeirra íyrir- tækja, er þeir starfa við, og ráð- stafa hagnaðinum af þeirn, þegar um hann er að ræða. Með þessu geta þeir bezt tryggt sér sann- virði vinnu sinnar. Með þessu létta þeir einnig fyrirhöfn og á- hyggjum af mörgum einstökum atvinnurekendum, sem bera sig oft illa yfir ýmis konar örðugleik- um, er að þeim steðja. Margt bendir til að þetta muni vera heppilegasta fyrirkomulagið og að það muni verða upp tekið í ýmsurn greinum atvinnulíísins. Vera má að einhverjir atvinnu- rekendur og verkamenn hafi trú á því hlutdeildar- og arðskiptifyrir- komulagi, sem um getur í þings- ályktunartillögunni og vilji koma því á. Ef svo er, á það rétt á sér, og mæli ég því ekki gegn tillög- unni, þó að ég líti svo á, að hægt muni að finna fyrirkomulag i at- vinnurekstri, er muni vera heppi- legra heldur en það, sem um get- ur í þessari tillögu. En það vil ég segja að síðustu, að verði slíkt fyrirkomulag upp tekið, þá ætti það ekki við aðeins á þeim tím- um, þegar sérstaklega gengur erf iðlega fyrir atvinnurekstrinum, heldur ætti það einnig að gilda þegar betur árar. Getraunlrnar í þrioju umferð bikarkeppn- innar urðu aðeins fjórir leikir jafntefli, þrem varð ekki lokið og einum var frestað alveg. í síðast- liðinni viku tókst að ljúka öllum þessum leikjum og er það venju fremur fljótt. Leikir þessir fóru þannig: Bedford-Arsenal 1-2 (eft- ir framlengdan leik), Bury-Burn- ley 0-1, Bolton-Huddersfield 3-0, Exeter-Stoke 0-3, Hull-Aston Villa 1-2, Luton-Leicester 0-4, Manch. City-Blackpool, 2-1 og Scunhorpe- Rotherham 4-2. Á 1. deildar lið- unum 22 eru þá 7 fallin út úr bikarkeppninni, þar af féllu þrjú, Luton, Manch. Utd. og Preston fyr ir 2. deildar liðum. Um þessar mundir eru vellirnir yfirleitt lík- astir drullupollum og í vikunni var svo mikil rigning og vatn á mörgum þeirra, að segja má, að eðlilegra hefði verið að leika þar sundknattleik. Spáin fyrir næstu viku: Aston Villa-Chelsea ....... lx Burnley - W. B. A...........1x2 Charlton-Newcastle ......... 12 Luton - Birmingham ........ 1 Manch. City- Huddersfield ..12 Portsmouth-Arsenal ........ 1 Freston - Manch. Utd......... 2 Sheff. Utd.-Cardiff ....... 1 Sunderland - Bolton ....... x Tottenham - Everton ........ 12 Wolves - Blackpool ........ 1 Swansea - Sheff. Wedn........ 2 Fjárhagsáætlnn Vestmannaeyja afgreidd Bæjarstjórn Vestmannaeyja af- greiddi nýlega fjárhagsáætlun kaupstaðarins fyrir yfirstandandi ár. Ileildartekjur eru áætlaðar 8 milljónir 225 þúsund krónur, þar af eru útsvör áætluð sjö og hálf milljón. Helztu gjaldaliðir eru: Væntanlegt framlag í atvinnuleys istryggingasjóð 1 millj. 210 þús. krónur, tií menntamála 1 millj. 250 þús. krónur og til verklegra íramkvæmda 1 millj. 700 þús. kr. Róðrastöðvunin Sú gæfa féll útgerðarmönnum og sjómönnum í Vestmannaeyjum í skaut um þessi áramót, að vinnu íriður rofnaði ekki, og eru nú í gildi kjara- og fiskverðssamning- ar í Vestmannaeyjum fyrir yfir- standandi ár. Mætti ætla eftir hina dýrkeyptu reynslu, sem fékkst af róðrabann- inu í fyrra, að útgerðarmenn myndu hugsa sig tvisvar um, úð- ur en þeir tækju aftur að vega í sama knérunn. En svo hefir ekki oroið, heldur hafa útgerðarmenn í Eyjum aftur komið á róðrabanni vegna glímu um útgerðargrund- völl við ríkisvaldið. Um það verður ekki deilt, að ekki er hægt að reka útgerð með fjórhagslegu öryggi með óbreytt- um aðstæðum, en það er auðvelt fyrir útgerðarmenn að ná fram viðhlítandi samningum um út- gerðargrundvöll við ríkisvaldið, með öðrum hætti heldur en þeim sem nú hefir verið farinn, þ. e. með því að stöðva sjósókn Ef harð ræðum þarf að beita, og ef harð- ræðum er beitt, þá væri ósköp ein föld sú leið fyrir samtök útgerð- arinnar að stöðva afskipun á sjáv- arafurðum, þar til lausn á deilu- málunum fæst. En með því að hindra, að afli geti borizt á land, þar sem kjarasamningar eru í gildi, er ekki annað gert, en að fyrirbyggja að verðmætaöflun verði framkvæmd, og sá afli, sem missist nú og síðar við það að sjó- sókn stöðvast, rýrir afkomumögu leika þjóðarinnar allrar og þar með útgeröarmannanna sjálíra. Það er vondur siður að bíða alltaf með samninga fram á síð- ustu stundu. Allir aðilar vita og hafa lengi vitað, að nýja samninga þurfti til þess að útgerð væri rek- in með fjárhagslegum árangri á árinu 1956. En í útgerðarmálunum sannast málshátlurinn gamli, að þegar jat an er tóm, þá bítast hestarnir. — Viðskiptin við útgerðina og af- urðavinnslufyrirkomulaginu er þann veg háttað, að það er ekki nóg til skipta á miili útgerðar- manna og sjómanna, og þess vegna er þessum aðilum alltaf att sam- an, þrátt fyrir það, að þeir eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta, og þurfa báðir að fá rétt verð fyr- ir framleiðslu sína, en því verður ekki á móti mælt, að það eru fisk kaupa- og fiskverkunar- og fisk- söluhagsmunirnir, sem eru alls ráð andi í samtökum útgerðarmanna. Staðfesting á þessari fullyrð- ingu liggur glöggt fyrir í þeirri staðreynd, að fiskimjölsverksmiðja ein í nágrenni Reykjavíkur er nú að kaupa upp togara í stærri stíl en áður hefir þekkst hérlendis og telur sig i skjóli fiskimjölsvinnsl- unnar og annarrar nýtingar afl- ans hafa góða möguleika til arð- bærs reksturs, sem ckki er til stað ar hjá þeim, sem vantar slíka að- stöðu og verða að selja aflann upp úr sjó. í stórum dráttum hefir alltaf mátt flokka útgcrð á íslandi í tvennt, þá útgerð, sem selur afla upp úr sjó, og berst í bökkum og þaðan af verra, og svo útgerð- ina, sem hefir aðstöðu til vinnslu og nýtjngar aí'lans og yfirleítt vegnar vel. Gera má ráð fyrir, að tiltölu- lega íljótlega verði með einhverj- um hætti gert eitthvert bráða- birgðafyrirkomulag til þess að veiðar hefjist, en það verður að- eins tjaldað til einnar nætur. Til þess að varanleg lausn fáist á vandamálum útgerðarinnar þá verður útg. að taka vinnslu aflans í sínar hendur, og mun það verða aðalviðfangsefni löggjafa- og ríkis valdsins að finna leiðir til þess að koma þeim málum í fram- kvæmd, þannig að sjómenn og út geðarmenn geti búið við sann- virðisgrundvöll. (Framsókn, Vestmannaeyjum)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.