Tíminn - 25.01.1956, Blaðsíða 1
20. blað.
Mikill afli fyrsta róðrardaginn yið Faxaflóa
Sandgerðisbátar raeð 12-20
lestir, raisjafnt annars staðar
Frá fréttariturum Tímans.
í gær voru margir bátar frá Faxaflóahöfnum á sjó í fyrsta
róðri vertíðarinnar. Eftir þennan fyrsta róður virðast aíla-
horfur mjög góðar. Má telja, að í öllum verstöðvum við Faxa
flóa hafi afli veið ágætur og landburður hjá nokkrum bát-
um í Sandgerði.
trillubátur stundað veiðar á grunn
miðum Grindvíkinga undanfarið
og aflað heldur illa. Um 20 bátar
verða gerðir út frá Grindavík í
vetur og eru nokkrir þeirra að-
komubátar. Aðeins einn þeirra,
Sæljón frá Reykjavík, er kominn
í verið og fór í fyrsta róður sinn
í gærkvöldi.
Góður afli sySst.
Fréttaritari Tímans í Keflavík
símaði í gær, að 25 bátar hefðu
verið þaðan á sjó í gær og hefði
afli þeirra verið mjög misjafn.
Þeir sem fóru lengst suður með
Reykjanesi á mið Sandgerðinga
öfluðu mjög vel, eða allt að 15
lestum, en aðrir fengu minni afla,
allt niður í fjórar lestir. Margt
Aflahæstu bátarnir í Sandgerði
komu að landi með 20 lestir úr
fyrsta róðri vertíðarinnar, og
margir voru með 12—20 lestir,
svo ekki verður annað sagt en
vertíðin fari vel af stað þar. Þar
voru 7 bátar á sjó og reru stutt,
30 til 40 minútur frá Sandgerði.
Afli Sandgerðisbáta var nær
eingöngu þorskur, svo ýsa fékkst
varla í soðið. En ýsa þykir ekki
eins eftirsóttur fiskur til útflutn-
ings nú og oft áður.
Bátum fjölgar.
Alls verða um 20 bátar gerðir
út frá Sandgerði í vetur. Fæstir
aðkomubátanna eru komnir í ver-
ið. Tveir þeirra, Þorsteinn og Hann
es Hafstein frá Dalvík, komu í
gær að norðan.
Margt aðkomufólk kom til ver-
tíðarstarfa til Sandgerðis í gær
og fyrradag og hefja frystihúsin
vinnslu í dag. Mun búið að ráða
nægan mannafla til starfa hjá
flestum fiskverkunarstöðvunum.
Misjafnt í Grindavík.
Fréttaritari Tímans í Grindavík,
sagði í gær, að þaðan hefðu fimm
bátar verið á sjó og afli liefði
verið misjafn, þó ekki minni en
5 lestir. Bátarnir reru nokkuð
djúpt til hafs frá Grindavík og
var mikill hluti aflans ýsa. Hafði
r
Tómas Arnason tek-
ur sæti á Alþingi
Bernharð Stefánsson, fyrsti þing
maður Eyfirðinga, situr nú á fund-
um Norðurlandaráðs og tekur vr-ra
fólk hefir komið til Keflavíkur í
verið síðustu dagana, enda þarf
margt aðkomufólk þar til vertíð-
arstarfa. Fiskvinnsla hefst í frysti-
húsunum í Keflavík í dag og verð
Framhald á 2. síðu.
Framsóknarvist
Framsóknarfélögin í Reykjavík
gangast fyrir skemintisanikomu
að Hótel Borg 1. febrúar. Þar
verður spiiuð framsóknarvist,
sungið og dansað og verður ugg
laust fjörugt og skemmtilegt eins
og vanalega á Framsóknarvist-
um.
Gott væri að fólk, sem ákveð-
ið er í að sækja samkomuna,
panti aðgöngumiða sem fyrst
m. a. til þess að vísbending fá-
ist um hvort muni þurfa að fá
alla sali Borgarinnar fyrir sam-
komuna. — Pöntunum er veitt
viðtuka í símum 6066 og 5564.
Börnin á Akureyri nota skíftafæriÖ
Þrátt fyrir mikið frost nota unglingarnir á Akureyri skíðafærið í
um þessa dagana. Mynd þessi var tekin fyrir nokkrum dögum af
skíðafólki í gilinu norðan Oddagötu.
Fundur Framsóknarmanna um útvegs-
málin var fjölsóttur og ánægjulegur
r ö1
maður hans, Tómas Árnason deild
arstjóri í varnarmáladeild, sæti
lians á þingi. Tómas hefir aldrei
setið á þingi áður, en mun nú
gegna þingstörfum í tvær vikur.
Kristinn Gunnarsson forstjóri, tók
einnig sæti á þingi í gær sem vara
inaður Emils Jónssonar.
Umræður stóðu fram yfir miðnætti - vanda-
mál útvegsins rædd frá ýmsum hiiðum-
í fyrrakvöld var haldinn mjög fjölmennur fundur Fram-
sóknarmanna um sjávarútvegsmálin í Tjarnarkaffi. Fram-
sögumenn voru Finnbogi Guðmundsson, útgerðannaður í
Gerðum og Stefán Jónsson, skrifstofustjóri. Hjörtur Hjartar,
formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur, setti fundinn og
skipaði Sigurvin Einarsson fundarstjóra, en Bjarna V. Magn-
ússon fundarritara. í snjöllu ávarpi rakti Hjörtur tilgang
fundarins og minntist á hlutverk Framsóknarflokksins í mál-
um útvegsins.
Finnbogi í Gerðum tók síðan til
máls og þakkaði boðið á fundinn
og víðsýni stjórnarinnar. Taldi
hann sig tvímælalaust túlka ein-
dreginn vilja mikils meiri hluta
útgerðarmanna um allt land úr
öllum flokkum. Ræddi hann fyrst
hinar almennu hliðar útvegsmál-
anna og nauðsyn þess, að útgerð-
inni væri ekki of þröngur efna-
hagslegur stakkur skorinn. Að því
loknu sneri hann sér að sögu út-
gerðarinnar í landinu, allt aftur
til 1920. Hann kvað góð lífskjör
landsmanna stafa af því, að fiski-
miðin hafa verið nýtt, en þó langt
frá því sem skyldi. Ennfremur að
afkoma útvegsins væri mjög ná-
tengd allri afkomu þjóðarinnar.
Hann kenndi rangri gengisskrán-
ingu um þá miklu kyrrstöðu, sem
ríkti í framkvæmdamálum útgerð-
arinnar á árunum eftir 1930 þ. e.
a. s. of hárri skráningu og röng-
um verzlunarviðskiptum.
Á stríðsárunum taldi hann hið
mikla blómaskeið útgerðarinnar.
Kom Finnbogi víða við sögu, svo
sem um breytingu á fislcverkun-
um, misheppnaða nýsköpun, unz
halla tók undan fæti, þannig að
kaupgjald og verðlag fór stór-
hækkandi og dollaraeign fór hrað
minnkandi. Voru allir gömlu tog-
ararnir i'eknir með tapi. Taldi
hann, að stefnan í viðskiptamálum
hefði verið röng sem áður á þeim
tíma, því að mest hefði verið verzl
að við lönd með hinum frjálsa
gjaldeyri í stað þess að leita meiri
markaða í klíringlöndunum. Vildi
hann einkum láta auka leit að
nýjum markaði og í því sambandi
deildi hann hart á stærstu fisk-
útflytjendur fyrir að hafa aðeins
opnar skrifstofur í löndum með
frjálsan gjaldeyri.
Framleiðsluaukning. -
Hann sagði að minnka þyrfti
skrifstofu- og verzlunarbáknið,
stytta skólaskyldutímabilið og
auka þannig velmeguii meðal þjóð
arinnar. Nauðsynlegt væri að sem
flestir ynnu að fratnleiðslunni.
Taldi liann, að höfuðborgin væri
allt of stór og það myndi öðrum
landshlutum til mestra hagsbóta,
ef vald höfuðborgarinnar væri
minnkað og aðrir fengju að sitja
að þeim afrakstri, sem þeir sköp-
uðu með framleiðslu sinni. Reykja
vik skapaði ekki mikla framleiðslu
og byggi hún því við óeðlilega
stóran hlut.
Bátagjaldeyririnn til góðs.
Hann fullyrti, að bátagjaldeyris-
fyrirkomulagið hefði orðið til góðs
en hefði þó ekki verið nóg, þar
sem mikill hluti flotans hefði þrátt
fyrir það verið rekinn með tapi.
Togarana kvað hann rekna und-
antekningarlaust með tapi og færi
það stöðugt versnandi. Hann taldi
þróunina í viðskiptamálum mjög
varhugaverða. Einnig kvað hann
það slæma þróun málanna, að þeir
sem njóta þeirra forréttinda að
fá að höndla gjaldeyrinn græði á
tá og fingri, en þeir, sem skapi
hann fái ekki sinn hlut. Hann á-
leit engu minni síldargöngur við
ísland heldur en Noreg og þyrfti
því að stórauka síldarleit með full
komnum rannsóknartækjum eins
og Norðmenn hafa gert.
Leiðjn til úrbóta.
Fínnbqgi taldi heppilegustu leið
irnar til. úrbóta vera stórauknar
bætur við útgerðina. # Frjálsan
gjaldeyri og afnám allra þeirra
sérréttinda, er ætti sér stað í gjald
eyrisveitingum. Reglurnar ættu að
koma jafnt niður á öllum. Ilann
deildi á vanþekkingu ýmissa þing
manna og nefndi þar sem dæmi
þingmann Sjálfstæðisflokksins á
Heimdallarfundi.
Finnbogi . lauk máli sínu með
þeirri kröfu, að allir milliliðir svo
sem hagfræðingar og aðrir lang-
skólamenn yrðu fjarlægðir úr
ráðuneytum stjórnarinnar, og þar
skyldu settir menn, sem gjör-
þekktu málefni framleiðslunnar,
lærðir í lífsins skóla.
Þá tók Stefán Jónsson, skrif-
stofustjóri, annar frummælandi til
máls. Leit hann sýnilega öðrutn
augum á málið og kvað það t. d.
fullkomið vantraust á ríkisstjórn-
(Framhald á 7. síðu).
Framsóknarvist
í Hafnarfirði
Framsóknarfélag Hafnarfjarð-
ar heldur skemmtun með fram-
sóknarvist næst komandi fimmtu
dag kl.'8,30 síðd. í Alþýðuhúsinu,
Á eftir verður dansað. Fjölmenn
ið á þessa skemmtun.
Færð greiðist !
í Eyjafirði
Frá fréttaritara Tímans
á Akureyri í gær.
Hér mældist 19 stiga frost í dag
og er það hið mesta í þessum
frostakafla. Mjólkurbílar komust
til bæjarins í gær með harðræð-
um og fluttu, ásamt bátum, í bæ-
inn 40 þús. lítra, en annars er
daglegt mjólkurmagn oftast 25—26
þús. lítrar. í dag er verið að ýta
snjó af vegum og umferðin að
greiðast. Heiðskírt veður er.