Tíminn - 31.01.1956, Page 2
z
TÍMINN, þriðjudaginn 31. janúar 1956.
25. blað.
Finninn Hakulinen reyndist enn
ósigrandi í 30 km. skíðagöngu
Fyrsta grein frá Vetrar-ÖIympíuIeikunum í Ítalíu
Finnland og Þýzkaland hlutu fyrstu gullverSlaunin á sjö-
fmdu Vetrar-Ólympíuleikunum, sem nú standa yfir í Cortína
í Ítalíu, í 30 km. skíðagöngu karla og stórsvigi kvenna. Silfur-
verðlaun hlutu Svíþjóð og Austurríki, sem einnig hlaut bronz-
verðlaun ásamt Rússlandi. Eftir fyrsta keppnisdaginn hafa
Fínnland, Þýzkaland og Rússland flest stig, 10 hver þjóð.
Finnski skíðakóngurinn Veikko
Hakulinen — en sagt er, að hann
æfi jafnvel enn meir en sjálfur
Zatopek — greiddi Rússum þungt
högg með því að sigra örugglega í
30 km. skíðagöngunni. Tími Haku-
linens var 1:44,06 — 24 sekúndum
betri árangur, en næsti maður
gekk á, en það var Svíinn Sixten
Jernberg. Fyrst í þriðja sæti kom
Rússi í mark, nefnilega Pavel Kolt
sjin, sem gekk á 1:45,45, en hins
vegar tókst Rússum að tryggja sér
þrjú næstu sætin. Rússar höfðu
sjálfir reiknað með, að þeir myndu
að minnsta kosti hljóta tvenn
verðlaun í þessari grein, og eink-
um og sér í lagi bjuggust þeir við,
að heimsmeistarinn Vladimir Kuz-
in myndi verða fyrstur, en hann
varð að láta sér nægja fimmta sæt
ið, tveimur mínútum og þremur
sekúndum á eftir finnska sigurveg
aranum.
30 km. skíðagangan var mjög
spennandi. Hin snjólétta braut var
afar hál, því nýfallinn snjór hafði
bráðnað, og úrslit í göngunni voru
eins mikið undir því komin, að
réttur skíðaáburður væri notaður,
eins og þoli og styrkleika kepp-
enda.
Svíi fyrstur framan af.
Von Svíanna, hinn 26 ára gamli
skógarhöggsmaður Jernberg, var
örugglega fyrstur fyrri helming
leiðarinnar, en þá fór Hakulinen
að draga mjög á hann og gekk af-
ar hratt, en hann hafði þá náð lé-
legum skíðaáburði af og borið rétt
á. Rússarnir drógu einnig á Jern-
berg.
. Hakulinen komst síðan fram
fyrir Svíann og einkum dró í sund
ur með þeim síðasta kílómeterinn.
UtvarpLð
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
18.00 Dönskukennsla; II. fl.
18.30 Enskukennsla; I. fl.
18.55 Tónleikar íplötur): „Escales",
hljómsveitarverk eftir Ibert.
20.30 Erindi: Um Bagdad (Guðni
Þórðarson, blaðamaður).
21.05 Dagskrá Sambands bindindis-
félaga í skólum.
22.10 Lestur passíusálma hefst (Séra
Eiríkur Helgason prófastur í
• Bjarnanesi las sálmana á seg-
j ulband skömmu fyrir andlát
sitt).
22.20 Vökuiestur (Broddi Jóhanness.)
22.35 „Eitthvað fyrir alla“.
23.15 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
12.50—14.00 Við vinnuna.
18.00 íslenzkukennsla; I. fl.
18.30 Þýzkukennsla; II. fl.
18.55 Framburðarkennsla í ensku.
20.00 Útvarp frá Alþingi.
Árnað heilla
Trúlofun.
■ S. 1. laugardag opinberuðu trúlof-
un sna ungfrú Guðrún Gísladóttir
frá Fossi, Suðurfirði og Einar Ein-
arsson, Laugur í Hrunamannahreppi.
Á tímabili höfðu Rússarnir einnig
náð Jernberg, en honum tókst að
hrista þá af sér og komst í mark
einni mínútu og 15 sékúndum -á
undan næsta Rússa.
Svartur dagur fyrir Norðmenn.
Árangurinn í göngunni var
slæmur fyrir Norðmenn, en þeir
höfðu reiknað með, að Hallgeir
Brenden yrði framarlega. (Hann
bætti þó fyrir í gær með að sigra
í 15 km. göngu eins og á Olympíu-
leikunum í Osló 1952). Svo varð
þó ekki og Norðmaður kom fyrst í
mark í fjórtánda sæti.
Fyrstu 10 menn í 30 km. göng-
unni urðu þessir: 1. Hakulinen, 2.
Jernberg, 3. Koltchin, 4. Schelju-
kin 1:45,46, 5. Kuzin 1:46,09, 6.
Terentje 1:46,43, 7. Per Erik Lars
son, Svíþjóð, 1:46,51, 8. Lennart
Larsson, Svíþjóð, 1:46,56, 9. Latsa,
Finnlandi, 1:47,30 og 10. Matous,
Tékkóslóvakíu, 1:48,12.
Stórsvig kvenna.
í stórsvigi kvenna voru bæði
Andrea Mead Lawrence frá Banda
ríkjunum, ólympíumeistari 1952,
og Madeleine Berthod frá Sviss,
sem talinn var örugg með sigur
fyrir leikana, sigraðar af 29 ára
gamalli þýzkri stúlku, Ossi Reie-
hert, sem er dóttir auðugs hótel-
eiganda. Andrea Mead og Mada-
lene urðu jafnar í fjórða sæti, en
árangur svissnesku mjaltastúlk-
unnar var frábær, því stuttu eftir
viðbragðið varð hún fyrir óhappi,
sem kostuðu að minnsta kosti 5
dýrmætar sekúndur.
Madaleine Berthod var án sam-
jafnaðar fljótust og öllum kepp-
endunum, en á erfiðum stað
missti hún augnablik jafnvægi,
sem varð til þess, að hún fór fram
hjá hliði nr. 13 í stað þess að fara
í gegnum það. Hún stanzaði strax
og hélt upp fyrir hliðið aftur til
að verða ekki dæmd úr leik.
Andrea Mead Lawrence, sem
varði sinn ólympíska titil, sýndi
mjög góðan stíl, en náði þó ekki
betri tíma en 1:58,3 mín., en sig-
urvegarinn fékk tímann 1:56,5
mín.
Tvær Ijóshærðar, austurískar
stúlkur, hlutu silfur- og bronzverð-
laun. Það voru Puzzi Frandel og
Thea Hochleiter, sem runnu skeið
ið á 1:57,0 og 1:58,2.
Ossi Reichert, sem á Olympíu-
leikunum 1952 varð í þriðja sæti
í svigi, fékk rásnúmer eitt. Braut-
in var rúmur einn og hálfur kíló-
meter að lengd. Fyrri umferðina
fór hún mjög glæsilega og það
varð þegar greinilegt, að Madalene
Berthod var sú eina af keppend-
unum sem hún þurfti að óttast. En
óhapp Madaleine var nákvæm eft-
irlíking á óheppni hennar á úr-
tökumóti í Grindelwald, þar sem
hún fór einnig fram hjá hliði og
varð nr. fjögur.
Rússneska stúlkan Eugeniya
Sidorava, sem fyrir keppnina var
talin bezti þátttakandinn frá Rúss-
landi, varð fyrir sömu óhpppni og
Madaleine. Hún fór framhjá hliði,
HAKULINEN
en varð ekki eins fjót og hin að
átta sig og komast af stað aftur
og varð því mjög aftarlega.
Fyrstu 10 í stórsviginu urðu sem
hér segir: Ossi Reickert, Þýzkal.
1:56,5 mín. 2. Puzzi Frandl, Aust-
urríki, 1:57,8 mín. 3. Thea Hoch-
leitner, Austurríki 1:58,2 mín. 4.
—5. A.M. Lawrence og M. Bert-
hod 1:58,3 mín. 6. Lucille Wheel-
er, Kanada, 1:58,6 mín. 7. Borghild
Niskin, Noregi, 1:59,0. 8. Mary-
sette Annelæ, Frakklandi, 1:59,4
mín. 9. Regina Schöpf, Austurríki
2:000,6 mín. og 10. Josette Nevi-
ere, Frakklandi, 2:00,8 mín.
Rannsóknir
CFramhald aí 1. e15u) .
lokið liggja yfirheyrslur — eðli
málanna samkvæmt — að mestu
niðri.
Skákin
(Framhald af 1. síðu).
kvöld og hefir Larsen þá hvítt.
Eftir þessar skákir er staðan
þannig, að Larsen hefir 3 Vi vinn
ing, en Friðrik 2%.
AfurtSasalan
(Framhald af 1. síðu).
sem hafa verið mestu ráðandi í
liinu óheppilega fyrirkomulagi af-
urðasölunnar — það væri djúp-
stæður ágreiningur um þetta inn-
an stjórnarflokkanna.
Þess væri ekki að vænta úr her-
búðum Sjálfstæðisflokksins, að
hann myndi ganga inn á stefnu
Framsóknarmanna í viðskiptamál-
um og fengjust því engar gagn-
gerar breytingar á málum þessum,
nema skipt væri um forustu, en
mjög þýðingarmikið væri að
breyta til hins betra í þessum efn-
um.
Nauðsyn frumvarpsins.
Skúli Guðmundsson kvað það
lífsspursmál fyrir þjóðina, að út
gerð fiskiskipa héldi áfram og
koma í veg fyrir, að vörusala til
annarra landa félli niður. Til
þess að svo megi verða, hefði frv.
þetta um Framleiðslusjóð verið
Iagt fyrir þingið.
Ræða Skúla verður birt í heild
í blaðinu á morgun.
Nú er rcíti tímiiin
lil að panta fyrir vorið
„ALKATHENE“ plast-vatnspípur springa ekki í frosti
og tærast ekki. Eru léttar í meðförum og koma í allt
að 500 feta rúllum. Endast endalaust. Hagstætt verð.
Auðvelt er að leggja þessar pípur, t. d. er liægt að
draga þær í með kílplóg í grjótlausu landi. Bændur og
sumarbústaðaeigendur! Það er óráð að nota annað í
vatnsleiðslu.
Það er eins ljóst og dags-
ljósið að ,,PERSPEX“
báru-plastplötur eru það
albezta, sem þér getið
fengið í glugga á verk-
smiðjur og útihús.
Nií er rcffi tíminn
til að panta fyrir vorið
UMBOÐSMENN:
KRISTJÁNSSONH. F.
Borgartúni 8. — Sími 2800.
Vifinið ötullega að útbreiðslu T I M A IV S
för
Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samúð við andláf og jarðar-
Ingigerðar Árdísar Björnsdóttur,
Bjarkargötu 12.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúðj við andlát og iarð-
arför föður okkar, afa og tengdaföður
Jónasar Jónassonar,
Múla, Vestur-Húnavatnssýslu,
Börn, barnabörn og iengdabörn.
Myndasaga
barnanna:
Æfintyri
í Afríku