Tíminn - 03.02.1956, Síða 1
ariístofur f Edtíuhúai.
Fréttasimar:
E1302 og 81303
Afgreiðslusíml 2323
Auglýslngasiml 81300
Frentsmiðjan Etítía
Eitstjóri:
Þórarmn Þórarinssoa
Dtgeíandi:
FTamsóknarr.okiurina
40. árg.
Reykjavík, föstudagiun 3. febrúar 1956.
28. bla?*
iii — . , — |
ir af óveðri hér á
Flóö gera usla - Hey, þök og heil hús fjúka - Bátar hrotna, sökkva
og stranda - Fé drukknar on ferst í fjárl isum - „Allt fauk sem fokið
gaf, viðkvæöi fréttaritara N O R Ð U R L A N D
Ofsaveður það, sem skall á hér á landi í fyrrakvöid og
náði um mestallf land og stóð fram eftir nóttu, hefir vafdtð
geysimiklu tjóni í flestum héruðum, og mun tjónið metra,
þegar saman kemur, en orðið hefir í óveðri hér á landi hin
síðustu ár. Telja margir, að þetta sé mesta veður, sem komið
hefir í áratugi. Alls staðar höfðu fréttaritarar blaðsins sömu
fregnir að flytja í gœr, tjón og aftur tjón. Mun heytjón til
dæmis vera geysimikið, og ekki víst að það verði léttbært
alls staðar. Hér fara á eftir frásagnir fréttaritara víða um
land af tjóni því, sem orðið hefir, en að sjálfsögðu mun vanta
mikið á, að þar sé ailt talið.
50 kindur drukknuðu
í fjárhúsi í Flókadal
Frá fréttaritara Tímans í Borgarnesi.
í fárviðrinu síðdegis í fyrradag varð sá skaði, að um
fimmtíu kindur drápust í fjárhúsi að Brennistöðum í Flóka-
dal, er vatnsflóð skall á fjárhúsið.
Gegningamaður hafði gengið
frá fjárhúsunum klukkan fjögur
um daginn og var þá allt í bezta
lagi, en um kvöldið fór hann aftur
til húsa til að gæta að kindunum,
enda var þá komið fárviðri með
mikilli úrkomu.
Hagar svo til við fjárhúsin á
Brennistöðum, að þau standa við
gil eitt, sem fullt var af snjó. Fjár-
húsin eru nýbyggð og ekki komin
í þau grind, sem hækkar gólfflöt-
inn frá því sem nú er.
Ljóf aðkojna.
Þegar koniið var að húsunum
um kvöldið, sást, að flóð hafði
fallið úr gilinu og runnið inn í
fjárhúsið vatn og krap, Voru all-
ar kindurnar að kalla á kafi í
flóðinu og fimmtíu þeirra dauð-
ar eða dauðvona, er að var kom-
ið, höfðu aðallega króknað úr
kulda í vatninu.
Hins vegar tókst að bjarga 20
kindum lifandi úr flóðinu.
Bóndinn á Brennistöðum,
Theódór Sigurgeirsson, liggur á
sjúkrahúsi um þetta leyti og var
því fjarri, þegar þennan mikla
skaða bar dð á heimilinu.
Flæðir yfir vegÍEfi
hjá Hvítárvöífiim
Borgarnesi í gær.
Mikil spjöll urðu á vegum í fár-
viðrinu í fyrradag og fyrrinótt.
Rann viða yfir vegina, svo að úr
þeim tók möl og jafnvel vegkanta.
Hvítá í Borgarfirði flæddi yfir
bakka sína hjá Hvítárvöllum og
fór yfir veginn þar á nokkrum
kafla. Flóðið sjatnaði síðdegis í
gær og komust bílar þá þar yfir,
eftir að viðgerð hafði farið fram.
Þök luku af hlöthi og Ijósi
Mosfellssveit í gær.
I óveðrinu í fyrrinótt fuku þök
af hlöðu og fjósi á Saurbæ á Kjal-
arnesi. Kýrnar sakaði ekki, en
einhver heyskaði varð. Segist Ól-
afur Eyjólfsson, bóndi í Saurbæ
ekki muna annað eins óveður og
var um tíma um kvöldið.
Ekki varð teljandi tjón í Mos-
fellssveitinni, þó fuku rúður úr
gróðurhúsum og vegir spilltust.
— AÞ.
Fólkið varð að flýja í útihús
Tungusveit í Skagafirði.
í óveðrinu í fyrrinótt urðu þær
skemmdir á íbúðarhúsinu á Ytri-
Mælifellsá, að fólk varð að flýja
í útihús og hafast þar við um
nóttina.
Þak fauk af hlöðu í Villinga-
nesi og í Breklcukoti fauk braggi,
sem notaður var til heygeymslu,
og týndist eitthvað af heyinu.
Sums staðar brotnuðu rúður í í-
búðarhúsum og hey fauk á nokkr-
um stöðum, en ekki teljandi. Hús-
ið á Ytri-Mælifellsá er ekki íbúð-
arhæft ef.tir óveðrið, en allar rúð
ur brotnuðu og fleiri skemmdir
urðu á því.
I þrjá daga, 22.—24. janúar var
frostið tuttugu stig hér í sveitinni
c-n 27. jan. gerði þýðviðri. Að-
faranótt 29. jan. kom mikill jaka
burður í Svartá og sk^mmdist
göngubrúin hjá Gilhaga, svo hún
er nú ekki fær yfirferðar. Tam-
inn hestur frá Hóli fórst í jaka-
ruðningnum. Allmikill snjór var
kominn hér áður en brá til þýð-
viðrisins. — BE.
Fjárhúsbrak hraut glugga
Hofsós í gær.
Ýmsar skemmdir urðu á bæjum
hér í kring. Á Fjöllum í Fells-
hreppi fauk þak af 600 hesta
hlöðu. Á Marbæli í Hofshreppi
fauk hluti af hlöðuþaki og á Sand
felli fauk hálft hlöðuþak. Járn-
plötur. rifnuðu af íbúðarhúsinu í
Hólakoti og þar fauk útihey um
koll, en ekki mun hafa fokið mik-
ið af því. Á Þrastarstöðum í Hofs
hreppi fauk þak af hesthúsi og
stóð aðeins áreftið eftir um morg-
uninn. — ÓÞ.
Vélbátur flytur sjúkling
i rarvidri ytir riunailoa
Frá fréttaritara Tímans á Hvammstanga.
í gærkveldi koni hingað mótorbátur frá Hólmavík með
sjúkling úr Steingrímsfirði. Þrátt fyrir veðurofsann, sem var
aftaka mikill, tókst ferð bátsins slysalaust. Var strax náð i
héraðslækninn á Blönduósi til að framkvæma uppskurð á
sjúklingnum, þar eð aðgerðin þoldi enga bið.
Þak tók af barnaskólahúsi í Trékylíisvík
Trékyllisvík í gær.
Hér var hið mesta fárviðri, sem
komið hefir síðan ég kom hingað
fyrir 28 árum. Tjónið er mikið
og margvíslegt, og sums staðar
stórfellt. Hálft þakið fauk af
barnaskólahúsinu, sem er nýlegt,
tvílyft steinhús og er þar heima-
vist. Voru nokkur börn þar og
tveir kennarar. Fólkið hélzt þó við
í húsinu á neðri hæð, enda var ó-
fært ut.
Á Finnbogastöffum varð mik-
ið íjón. Hluti af þaki íbúðar-
hússins fauk, og einnig fauk
þak af fjárhúsi og híöðu og vot-
heysgryfju. Gluggar brotmiðu.
Bátar brotna.
í Bæ fauk allstórt geymsluhús
af grunni í heilu lagi og barst 50,
metra leið. Var þaða-imburhús vel
fast. Tveir írillubátar skemmdust
mjög. Tók annan á loft og skfellti
honum niður á hinn, svo að þeir
brotnuðu báðir allmikið. í Stóru-
Vík brotnaði trilla í spón. Víðar
urðu heyskaðar og minni skemmd
ir. — GPV.
Svo illa vildi til, að héraðslækn-
irinn á Hvammstanga var í, sjúkra
vitjun fram í sveit. Héraðslæknir-
inn á Blönduósi skar sjúklinginn
upp ásamt héraðslækninum á
Hólmavík, sem kom með sjúklingn
um.
Tókst aðgerðin vel og líður
sjúklingnum nú eftir vonum vel.
Úrkoma mikil fylgdi suðvestan rok
inu. Ekki er kunnugt um stórfclld
ar skemmdir eða tjón hér í hérað
inu. Þó urðu nokkrir skaðar á
bæjum á norðanverðu Vatnsnesi.
Bóndinn á Illugastöðum Guðmund
ur Arason hreppstjóri mun hafa
misst um 80 hestburði af heyi, er
þak fauk af hlöðu. Einnig íauk
eitthvað af heyi á Þorgrímsstöð-
um, Svalbarði og Ásbjarnarstöð-
um. Miklar skemmdir ui'ðu á síma
línunni milíi Blönduóss og
Hvammstanga. Bbo't'núðu 13 sírna-
staurar í röð nálægt bænum.
Ekki einfært miíli íj-óss
og bæjar
Varmahlíð í gær.
Á Vatnsskarði fauk fjárhús og
lþnti brak úr því á íbúðarhúsinu
og braut rúður í þvi. Enn frennir
slitnaði- símalínan heim að húsinu
af sömu ástæðu og raflínan frá
rafstöð jarðarinnar. Þak fauk af
fjárhúsi á Fjálli. í Sæmundarhlíð.
Skepriur þær, sem í húsunum
vor,u, mun ekki hgfa .sakaö. — FJ.
Gemíingarnir
drukknnðn
Svartárdal í gær
Þetta er eitthvert það mestá
rok, sem hér hefir komið. Á Bolia
stöðum fauk jeppi niður í gil við
Blöndu og 23 gemlingar drukkn
uðu á Skeggstöðum í Svartárdal.
Jeppinn, sem fauk á Bollastöð-
um, stóð í túninu. Bendir það
nokkuð til veðurhæðarinnar, að
svo þungt stykki skyldi fjúks
nokkurn veg og niður í gil, sen)
liggur að Blöndu.
Samfara veðurofsanum urðú
flóð með þeim aflciðingum að
tuttugu og þrjá gemlinga flæddi
(Framhald á 2. síðu.)
Mikið tjóíi í Eyjaíiiði
Akureyri i gær:
í öllum sveitum hér í héraðinw
berast fregnir um tjón af völdum
óveðursins óg sums staðar allstór-
fellt. Á Flögu í Hörgárdal' fauk
fjárhúsþak, að Syðrabakka óg Ás-:
gerðarstöðum fauk allmikið hey;
Á Þelamörk fauk víða mikiþ hey
og fleiri skemmdir urðu, Svo og
í Krælingahlíð. í Öngulsstaða:
hreppi fauk á flestum bæjúnr
meira eða minna. Hluti af fjós-
þaki fór á Ytri-Hóli.
í Fnjóskadal urðu miklir skað,-
ar. í Böðvarsnesi fuku braggar
með h'eyi, einnig fauk þak og.hey
á Illugastöðum. Á Birningsstöðunv,
fauk hlöðuþak.
Flokksþing Framsóknarm.
íiefst í Rvík 8. marz n.k.
Miðstiórnarfundur Framsóknarmanna, sem haídinm
var í gær, samþykkti samhijóða á fundi sínum að kalla
satrian flokksþing 8. marz n. k. Eins og Hermann Jónas-
son, formaður Framsóknarfiokksins, skýrði frá á Aiþingii
við umræður uro vantrAust á ríkisst[órnma hefir að
undanförnu verið unnið að undirbúningi þess að kalla
sasnan flokksþjng, en þessi dagur endanlega ákveðinn
með fjiíliti til samgangna utan af íandi.
Þess er óskað, að formenn flokksfélaganna vtðs vegar
um land fari nú þegar að undirbúa fundi, þar serrn
fram fer kosning fulltrúa á flokksþtngið.
Þessir menn voru kosnir í undirbúningsnefnd vegna
ffcskksþingsms: Borgþór Björnsson, Guðbrandur Magn-
ússon, Guðmundur Kr. Guðtnundsson, Gunnar Þórðar-
son, Gunnlaugur Ólafsson, Jón Snæbjörnsson, Kristján
Benediktsson, Kristján Friðriksson, Sigurjón Guðmunds-
son, Stefán Jónsson, Víthjálmur Árnason og VilhjálmuK'
Jónsson.