Tíminn - 03.02.1956, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.02.1956, Blaðsíða 2
TÍMINN, föstudaginn 3. febrúar 1956. 2 28. bla'ð. Fimm trillubátar sukku - tvo rak á land Húsavík í gær. í aftakaveðrinu síðari hluta dags í gær og nótt urðu allmiklar skemmdir í Húsavík. Sjógangur var mikill í höfninni sukku fimm trillubátar, sem þar lágu. Einn trillubát rak upp í fjöru og sömu- leiðis dekkbátinn Sæborgu. Bátar þessir munu þó ekki skemmdir. Þak fauk af hlöðu í Hjarðarholti Við Húsavík og eins hluti af þaki íbúðarhúss í kaupstaðnum. Hey fuku víða, smáskúrar þeyttust brott og fleiri skemmdir urðu. í Bærsveitum hafa víða orðið nokkr ar skemmdir, einkum á heyjum. — ÞF. Hús og hey fuku í S-Þing. Fosshóli I gær. Allmikið tjón varð í fárviðrinu hér um sveitir. í Mývatnssveit fuku þök, hey og fleira. í Baldur- heimi fuku þrjú hey. Á Litlu- Strönd fauk braggi. Þak fauk af hluta af íbúðarhúsinu á Borg. Einn ig varð talsvert tjón í Haganesi. Á flestum bæjum varð eitthvert tjón, einkum á heyi. í Bárðardal varð víða tjón, einkum á Heyi svo sem á Lundar- brekku, Halldórsstöðum og Svart- árkoti. Þakplötur fuku af íbúðar- húsi á Fosshóli. í Ljósavatns- hreppi varð lítið tjón. í Reykja- dal varð víða tjón. Þak fauk að hluta af íbúðarhúsi í Stafni og einnig hlöðu. Einnig varð tjón á skólahúsinu á Laugum og ýmsum bæjum. í Aðaldal varð minna tjón. Hlaða með heyi fauk á Daða- Stöðum. — SLV. Gemlingar ' (Framhald af 1. síðu.) inni í fjárhúsi á Skeggstöðum og voru þeir drukknaðir, þegar að var komið. I Þverárdal fauk um einn þriðji af þaki íbúðarhússins. Auk þessa fuku hey á stöku stað, þótt ekki hafi það verið mikið. Ekki fór að draga úr veðurhæðinni hér fyrr en klukkan að ganga tvö um nótt- ina. — GH. Ukvarpib Útvarptð I dag: Fastir liðir eins og venjulega. 18.00 íslenzkukennsla; I. fl. 18.30 Þýzkukennsla; II. fl. 18.55 Framburðarkennsla í frönsku. 20.30 Daglegt mál. 20.35 Kvöldvaka: a) Sigfús Haukur Andrésson kand. mag. talar um galdraöldina á íslandi. b) í Norðlenzkir kórar syngja. c) Andrés Björnsson les kvæði eftir HalJgrím Jónsson fyrrum i skólastjóra. d) Benedikt Gísla- son frá Hofteigi talar um Pál Ólafsson skáld. 22.20 „Lögin okkar“. 23.15 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: Fastir liðir eins og venjulega. 12.50 Óskalög sjúklinga. 13.45 Hjúkrun í heimahúsum. 16.30 Skákþáttur. 17.00 Tónleikar (plötur). 17.40 Bridgeþáttur. 18.00 Útvarpssaga barnanna; XIV. 18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga. 18.55 Tónleikar. Vinsæl hljómsveit- arlög. 20.20 Ávarp frá Hinu íslenzka bibl- íufélagi. 20.30 Upplestur: Þórarinn Guðnason læknir les kafla úr ferðabók Vigfúsar Guðmundssonar: Um hverfis jörðina. 20.55 Tónleikar: Sígaunalög. 21.20 Leikrit: Byrðin eilífa eftir Leck Fischer, í þýðingu Þor- steins Ö. Stephensén. 22.20 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. Hey- og húsatjón í Skagafiríi Sauðárkróki í gær. Hér hvessti um miðjan dag í fyrradag og fór vcðurhæðin stöð- ugt vaxandi fram eftir kvöldinu. Veðurhæðin mun hafa verið mest í Blönduhlíð, en hey fauk á ein- um átta bæjum allt upp í fjöru- tíu hestar í stað. í Djúpadal fauk braggi og fjöru tíu hestar af heyi og gömul hlaða brotnaði. Á Syðri-Brekkum fauk fjárhús ofan af sextíu kindum, en þær sakaði ekki. Þrjátíu hestar af heyi fuku á Hrólfsstöðum. Óstætt ve'ður. Tjónið varð aðallega í Akra- hreppi. Segir Björn á Ökrum, að veðurhæðin hafi verið slík um mjaltatíma um kvöldið, að hann og annar maður til hafi átt fullt í fangi með að hafa sig til bæjar eftir mjaltir. Sagðist hann telja vafasamt að einn maður hefði kom ist, enda þurftu þeir að aðstoða hvor annan. — GÓ. Svarfaðardal í gær. Hér var suðaustan rok í dag og urðu miklar skemmdir í sveitinni. Á Melum fauk þak af votheys- gryfju. Fárviðrið braut 4 staura og tætti rafmagnslínur í sundur. Auk þess skemmdist fjósþak. Á Búrfelli urðu smávegis skemmdir á húsum. Á Atlastöðum fauk hey og fjós skemmdist. Á Sandá fauk hey og hluti af fjós- þaki og hey fauk einnig á Göngu- stöðum, þar sem járn fauk einnig af íbúðarhúsi. Jeppi fauk og skemmdist húsið mikið. Á Heiðarsstaðarkoti fauk partur af fjósþaki. Rafmagnslína slitnaði og einn staur brotnaði. Á flest- um öðrum bæjum urðu einhverj- ar smávægilegar skemmdir. Á Hreiðarsstöðum fauk þak af vot- heysgryfju. í kvöld voru 7—12 vindstig af suðaustri. Menn muna varla annan eins veðurofsa. — FZ. Eden ávarpar Bandaríkjaþing Washington, 2. febrúar. — Sir Anthony Eden ávarpaði báðar deildir Bandaríkjaþings í kvöld. Á morgun mun hann flytja ræðu, sem sjónvarpað verður um Banda- ríkin. í yfirlýsingu þeirra Eisen- howers og hans er sagt m. a., að Arabar og ísraelsmenn verði að jafna ágreining sinn með því að gera tilslakanir af beggja hálfu. Sagt er, að friðurinn í Evrópu verði ekki tryggður nema Þýzka- land verði sameinað og Bonnstjórn in sé sú eina ríkisstjórn, sem hægt sé að viðurkenna lögmætan full- trúa allrar þýzku þjóðarinnar. Ambassadorar Þar sem ríkisstjórnir íslands og Frakklands óska að efla þau bönd vináttu, sem tengja saman lönd þeirra, hafa ríkisstjórnirnar á- kveðið að hækka sendiherra sína í París og Reykjavík í ambassa- dora. (Frá utanríkisráðuneytinu). Asbestklæ<$ningin brotn- a$i Dalvík í gær. Ofsarok af suðri gerði hér síð- degis í gær. Rokið hélzt fram á seinni hluta nætur. Skaðar urðu mjög víða. Á hlíð í Skíðadal fauk hey. Á Másstöðum fuku járnplöt- ur af ibúðarhúsi og asbestklæðn- ing brotnaði á fjósi. Einnig fauk töluvert af heyi á Steindyrum og hlöðuþak fauk á Bakka, ennfrem- ur þak af haughúsi á sama bæ. Víðar varð minniháttar heyfok og aðrar skemmdir. Á vélbátnum Freyju laskaðist borðstokkur, þar sem hún lá við hafnargarðinn. Snjó hefir mjög tekið upp og er nú orðið akfært jeppum og trukkum um sveitina og einnig til Akureyrar. — PJ. Brúna á Skálm tók alveg af Vík í Mýrdal í gær. Tjón varð ekki tilfinnanlegt hér í Mýrdal í ofviðrinu. Hins vegar hljóp mikill vöxtur í ár, og brúna á Skálm tók alveg af. Var þetta trébrú á járnbitum, sett í sumar og allgóð. Allmiklir garðar voru báðum megin við brúna og vegur- inn hærri en hún, og beindi þetta vatninu mjög í farveginn og á brúna. Mun það hafa valdið miklu um að hún fór. Stenzt það á endum, að þegar Múlakvíslarbrúin er orðin fær, fer brúin á Skálm, svo að erfitt er um ferðir austur yfir sand. Þó má aka yfir Skálm á stórum bílum, sé lítið í henni, en verra verður þegar frost eru langvinn, því að þá bólgnar allt upp. — ÓJ. Mikill vöxtur í Skaftá Kirkjubæjarklaustri í gær. Hér var veðurofsi og rigning í gær og fram eftir kvöldi. Þak fauk af hlöðu í Sandaseli í Meðallandi og víða fuku þakplötur og annað smávegis. Mikill vöxtur kom í Skaftá, en hún var áður búin að ryðja ís af sér og varð því ekki tjón að. Flugvöllurinn er að verða fær, og kemur það sér vel, þar sem ófært er vestur á bóginn á landi eftir að brúin á Skálm er farin. — VV. Makarios felfst á til- lögur Breta? Nicosia, 2. febrúar. — Makarios erkibiskup afhenti Sir John Hard- ing landstjóra í dag svar sitt og grískumælandi manna á eynni við tillögum Breta varðandi framtíðar stjórnskipun eyjarinnar. Ekki hef- ir svarið verið birt, en sagt er, að biskupinn hafi^fallizt á tillögurn- ar að einhverju leyti og tjáð sig reiðubúinn til frekari viðræðna. Bæjartogarar Siglfiríinga komu bá<Sir meí fullfermi Frá fréttaritara Tímans í Siglufirði. Hafliði, annar bæjartogari Sigl- firðinga kom til heimahafnar í fyrradag með fullfermi af fiski, sem fór til vinnslu í hraðfrysti- húsum. Hinn bæjartogarinn, Ell- iði, er væntanlegur heim í dag af veiðum einnig með fullfermi. Talsvert er um skipakomur í Siglufirði um þessar mundir. — Helgafell er með um 300 lestir af kolum til kaupfélagsins og Goða- foss tekur freðfisk til útflutnings. Jeppinn fauk um og hús hans brotnaði Sýning í Listafflannaskálanum: Kjarnorka í þjónustu mannkynsins Sýningin verður opnuð laugardaginn 4. febrúar kl. 5,30 e. h. Framvegis opin daglega kl. 14—22. Aðgangur ókeypis. Aðalsafnaðarfundur HÁTEIGSSÓKNAR í REYKJAVÍK verður haldinn sunnudaginn 5. febrúar 1956 kl. 2 e.h. í hátíðasal Sjómannaskólans. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning þriggja manna í sóknarnefnd. 3. Önnur mál. SÓKNARNEFNDIN Jörðin Mjóanes í Þingvallasveit er til leigu frá næstu fardögum. Nánari upplýsingar hjá Sigurþór Jónssyni, Hafnarstræti 4, Reykjavík. *SSS$SS$$$SS$SSSSSSSSS$SSSSSSSSS5SSSSSSS$SS$S$$SSSSSS$$SSSSSSS$S$SrS3SS3 Höfum flutt SKRIFSTOFUR vorar og varahlutaafgreiðslu að Hverfisgötu 50. GÍSLI HALLDÓHSSQH H.F. Hverfisgötu 50 — sími 7000. »SSS5«SS5S455S«SSS5SSSSSS5SSÍ«S«55«S5S5SS555555SS55555S55SS555555$SS5S« SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS* Verzlun okkar, að Laugavegi 37, verður lokuð fyrst um sinn vegna flutninga. — Verður opnuð aftur seinni hluta febrúarmánaðar að Laugavegi 39 Viðskiptavinir okkar eru vinsamlega beðnir að snúa sér til verzlunar okkar, að Vesturgötu 17 Andersen&Lauth hf. »SS9SSSSSSSSSSSSSSS$SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS3SSSS5SSSSSSSSSSSSSSSSSSSaSSSS* Myndasaga barnanna: Æfintýri í Afríku

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.