Tíminn - 03.02.1956, Blaðsíða 8

Tíminn - 03.02.1956, Blaðsíða 8
40. árg. Reykjavík, 3. febrúar 1956. 28 bla3. Hvítá brýst úr farvegi hjá Brúna- stöðum og flæðir ytir Flóann Mikil kíakastífla i ánni, hætt við að ffóðið teppi vegi í Flóanum í dag Eftir hádegið í gær brauzt Hvítá í Árnessýslu úr farvegi sínum hjá Brúnastöðum og flóði yfir lönd næstu jarða. Blaðið átti tal við Ágúst á Brúnastöðum í gær. Sagði hann. að búast mætti við, að áin færi yfir lönd margra jarða næstu dægur og teppti vegi í Flóanum. Oskaplegir kuldar í 12 manns krókna í Frakklandi London, 2. febr. — Óskaplegir kuldar ganga nú um mikinn hluta Evrópu, allt frá Skandinavíu til Tékkóslóvakíu, Frakk- lands og Bretlands í suðri. Frost er nú meira í Tékkóslóvakíu en mælzt hefir þar í landi síðast liðin* 120 ár. 38 gráðu frost var í Þýzkalandi, þar sem mest var í dag og hefir aldrei mælzt þar svo mikill kuldi fyrr. í Frakklandi hafa 12 mamis króknað. í gærmorgun var áin orðin mjög mikil eftir rigninguna. Bar hún fram jakahröngl, og þar sem þrengsli urðu við svonefndan Kríu tanga á móts við Brúnastaði, rak hún það saman í stíflu og flæddi síðan upp á Brúnastaðaflatir. Mun meirihluti vatnsmagnsins renna þar upp, og flæddi hún brátt yfir breitt svæði og hafði í gærkveldi lagt undir sig land nokkurra jarða. Teppir vegi. Nú sem stendur, sagði Ágúst, fellur mestur vatnsþunginn eftir aðalskurði Flóaáveitunnar og mun því dreifast víða. Er hætt við, að flóðið teppi bráðlega vegi, svo sem við Skeggjastaði og víðar. Taldi Ágúst litlar líkur til, að áin ryddi stíflunni frá og kæmist i farveg sinn næstu dægur. Erlendar fréttir □ James Griffith var í gær kjör- ínn varaformaður þingflokks brezka Verkamannaflokksins. — Hlaut hann 140 atkvæði, en Be- van 111. □ Vetrarsíldveiðar Norðmanna ganga mjög vel. í gær og fyrra- dag bárust yfir 150 þús. hl. á land hvorn daginn. □ Arabaríkin 9 hafa sent Eisen- hower yfiriýsingu þar sem þau telja sig ekki bundin af sam- komulagi, sem hann og Eden kunni að hafa gert um málefni þessara ríkja. □ Eisenhower og Eden hafa boðið Frökkum til ráðstefnu um vanda mál ríkjanna fyrir botni Mið- jarðarhafs og hafa Frakkar þeg- ið það. ■ Forseti bæjarstjórnar og vara- íorseti voru endurkjörnir frú Auð- Auðuns og Sigurður Sigurðsson knir. í bæjarráð hlutu kosningu sem aðalmenn þeir Geir Hallgrímsson, Auður Auðuns, Guðmundur H. Guðmundsson, Guðmundur Vig- fússon og Alfreð Gíslason. Framsóknarvist á miðvíkudagskvöídið Framsóknarfélögin í Reykja- vík efna til skemmtisamkomu að Hótel Borg næstkomandi mið- vikudagskvöld. Hefir Vigfús Guð mundsson lofað að stjórna sam- komunni. Má því búast við, að hún verði fjölsótt, eins og allar þær samkomur, sem Vigfús hef- ir stjórnað í Reykjavík síðustu áratugina. Samkoman hefst með Fram-1 sóknarvist kl. 8,30. Eftir vistina verður sungið og dansað o. s. frv. Vissara er fyrir þá, sem eru ákveðnir að sækja þessa sam- komu, að panta aðgöngumiða sem fyrst í síma 6066 eða 5564. Vélbáturinn Frosti var í róðri ásamt um 30 öðrum Eyjabátum, sem allir komust heilu og höldnu heim til Eyja, en margir þó við illan leik. Voru á heimleið úr róðri. Skipstjórinn á Frosta, Ingólfur Matthíasson, er einn af yngstu og duglegustu formönnum í Eyjum og skipshöfn hans einnig vaskir sjómenn. Voru þeir á heimleið af miðunum, þegar fárviðrið skall á. Var sjógangur óskaplegur -og dimmviðri, þegar líða tók á dag- inn og gekk ferðin seint og hefir bátinn rekið af leið upp undir sandinn, en stutt er til lands af sjóleið bátanna og má því ekki mjög miklu muna í fárviðri og dimmviðri sem þessu. Það mun hafa verið um klukkan álta í fyrrakvöld, að báturinn íók (Framhald á 8. síðu.) Varamenn í bæjarráð voru kjörnir: Gunnar Thoroddsen, Ein- ar Thoroddsen, Sveinbjörn Hannes son, Ingi R. Helgason og Þórður Björnsson. Hefir orðið að sam- komulagi milli Alfreðs og Þórðar að þeir skipti með sér setu í bæj- arráði, svo að þeir geti báðir tekið virkan þátt í störfum ráðsins. NorSmenn taka enn tvö skip í landhelgi NTB-Osló, 2. febr. — í dag hafa norsk varðskip tekið 2 síldar- skip Rússa við vesturströnd No- regs, sem farið höfðu inn í land- helgi. Ei'u þá skipin, sem Norð- menn hafa tekið að ólöglegum veiðum orðin 16. Utanríkisráðu- neytið norska hefir svarað orð- sendingu Rússa, þar sem þeir töldu töku skipanna misskilning og kröfðust þess að þau yrðu lát in Iaus sem fyrst. í svarinu seg- ir, að norskir dómstólar muni fjalla um niál lögbrjótanna og þeir sæta sömu meðferð og aðr- ir, sem gerzt hafa sekir um sömu afbrot. Tilkynnt var í Moskvu í dag, að sendinefndin, sem fara átti til Noregs á morgun og kynna sér þar síldveiðar Norð- manna, tnundi ekki fara að svo stöddu. Var áin enn að hækka í gær- kveldi, en ekki talin nein hætta á skemrndum vegna vatnsflóða í Þykkvabæjarþorpinu, en allar horf ur á því, að einangrun vegna vax andi vatnsflóða gséti haldizt um sinn. í gær komust engir bílar ofan í Þykkvabæ og engir komust það- an landveg til „meginlandsins“. Orsök flóðsins er að klakastífla kom í ána. Hiti er lítill og getur hún því staðið um sinn og valdið vaxandi flóðum. Varnargarður er við árbakkann, en áin færir sig og rennur nú fyr- ir enda varnargarðsins. Hlöftuþakið og gaílarnir Hvolsvelli í gær. í ofviðrinu urðu víða tjón nokk urt á húsum og heyjum, plötur fuku af þökum og fleira lauslegt. í Ey í Vestur-Landeyjum fauk þak af hlöðu og gaflar hennar með hjá Iiunólfi Jónssyni bónda þar. Vopnafirði í gær. Aftakaveður af sunnan suðaust- an gerði hér nokkru fyrir lág- nættið og stóð fram undir morgun. Mestur mun ofsinn hafa orðið undir fjöllum og í Hraunfellsdal. Tjón var allvíða á heyjum og hús- um á Síreksstöðum í Hraunfells- dal. Tók framhlið þaksins af íbúð- arhúsi Hjálmars Jósefssonar bónda þar og á Hraunfelli fauk hlaða með heyi, sem Georg Jósefsson átti, er líka býr á Síreksstöðum. Hjá Sæmundi Grímssyni á Egils- stöðum fauk þak af hlöðu og skall annar helmingur þess á fjárhúsi og braut það nokkuð. Ekki sakaði þó féð. Á Skjaldþingsstöðum tók upp 50 hesta hey og sást þar að- eins eftir lítil botnbeðja. f kauptúninu urðu líka heyskað- ar og víða fauk járn af húsum. Járn fauk af austurhlið á íbúðar- húsinu Grund og einnig nokkuð í Tékkóslóvakíu hefir heldur dregið úr.kuldanum. í gær var 21 gráðu frost í Pi'ag, en var komið niður í 19,4 í dag. Veðurstofur í Þýzkalandi spá l\ins yegar áfram haldandi kuldum þar næstu daga. í Hollandi og Belgíu eru meiri kuldar en komið hafa í áratugi. Hafa orðið þar mörg umferðaslys vegna hálku á vegum. Flækingslýður Parísar. Kunnugt er um 12 manns, sem króknað hafa í Frakklandi. Lands hornaflækingar og gamahnenni hafa frosið í hel á vegum úti. Betl arar og flækingslýður Parísar, sem Surheysturninn fauk alveg Gunnarsholti í gær. Hér fauk votheysturn úr timbri alveg, svo að ekki var tangur né tetur eftir. Var þetta fyi-sti íui'n- inn sem hér var byggður. Heystál ið i turninum var 4 metrar, og stendur það eftir en.hallast, eins og veðrið hafi ætlað að taka hey- stabbann líka. Aðrar skemmdir urðu ekki hér svo teljandi sé, en um tíma voru menn hræddir um þak á nýrri hlöðu. Á bæjum hér í nágrenninu mun víða hafa oi'ðið nokkurt tjón á húsum og heyi en ekki stórfellt. Ný hla§a fauk Skeiðum í gær i Hér var sunnan fárviðri og varð; tjón af á mörgum stöðum í sveit- af heyi. Allt járn og nokkuð af þaki fauk á Sigurðarstöðum og eru það mestu tjónin hjá einstakl ingum í kauptúninu. Á Hauksstöð um í Vesturdal tók hálf þök af hlöðu og geymslu. Talið cr, að þetta sé hvassasta veður, sem hér hefir komið lengi. Má vera, að meira tjón hafi orðið, þó að ekki séu enn fréttir af. — Kjartan. Kirkjan skemmdist á F áskrúðsf irði Fáskrúðsfirði í gær. Mikið tjón var af völdum fár- viðrisins á Fáskrúðsfirði. Mest varð tjónið á Búðakirkju, sem skemmdist mikið í veðrinu. Þak fauk af kirkjunni og einnig pappi. Auk þess urðu miklar skenund- ir á kirkjunni að innan, bæði af vaíni og stormi. Nokkuð af járn- hvergi hefir húsaskjól, er hörmu- lega á sig kominn. Borgaryfirvöld- in tóku sig til í gærkvcldi og smðl uðu þeim saman í bráðabirgðaskýli og þar voru fleslir þeirra í nótt. ' Reif af sér neðri vörina. Lögregluþjónn í Strassbourg varð illa úti. Ilann hafði sett lög- regluflautuna upp í sig, en hún fraus föst við varir hans áður en hann varði. Fylgdi biti úr vörinni, þegar hann kippti flautunni út lír sér. Líkt fór fyrir blaðaljösmynd- ara í Hollandi, sem var að myndá strandað skip. Varir hans frus'u íastar við myndavélina. inni. Á Framnesi fauk ný hlaðk og á Fjalli fauk fjárhúshlaða. Járn lötur fuku víðs vegar í sveitinni en heyskaðar urðu ekki ,svo að teljandi sé. Telja menn að þctta sé eitt hið versta veður, sem kom ið hefir um árabil. um tíma var veðurhæðin svo mikil,- að vaiTa var hægt að ganga á milli húsa. HlöSuþök brotnu^u og fuku , Selfossi í gær. I ofviðrinu í gærkvöldi x'irðis't tjónið hér í sýslu hafa oi'ðið einna mesta og almennast í Hruná mannahreppi. í Syðrascli fauk hálft hlöðuþak og. brotnuðu viðir, í Skipholli fuku þakplötur af fjósi og hlöðu. í Syðra-Langholti fuku plötur af þakTíbúðarhúss og gömlum bæ og braggar skemmd- ust. Að Bjargi og Bryðjuholti fuku hey. Að Arnarstöðum í Hraungerðis- hreppi fauk járn af hálfri hlöðu og einnig skemmdist þak í Bár. Á Selfossi fuku grindur, flagg- stengur brotnuðu og fleira smá- legt hreyfðist. Það er mikil bót, að í dag er ágætt veður, og menn hafa næði til að vinna að viðgerðum. — ÁG. A N D inu hefir náð'st, eftir að veður gekk niður í gær. Járn fauk af íbúðarhúsi í kaup- staðnum og margir smáskrúrar og geymslur fuku, eða skemmdust. Húsið fauk, kindurn- ar stóðu i tóftinni Stöðvárfirði í gær. í fárviðrinu í fyrrinótt urðú talsverð spjöll í Stöðvarfirði. Á Háteigi, sem er sveitabýli í firð- inum fuku fjái'hús og'hlaða. MÍssti bóndinn þar talsvert af heyi og varð fyrir tilfinnanlegu tjóni. Það verður þó að teljast mikil heppni, að kindur, sem voru í fjárhúsinú sakaði ckki. Stóðu þær allar eítir lifandi í fjárhústóftunum, þegar húsin sjálf höfðu fokið ofan af þeim. í stöðvarfirði var veðrahamur- inn mestur eftir hádegi í fyrrá- dag og lengi nætur í fyrrinótt. , í Fáskrúðsfirði fauk smíðahús bóndans á Eyri, og inissti hanri þar mikið af tækjum og efni, sení ýmist fauk, eða eyðilagðist. Reynt að bjarga nýjum vélbát, sem strandaði í fyrrakvöld strandaði einn af nýjustu og beztu fiskibátum Vestmannaeyinga, vélbáturinn Frosti, við Landeyjasand, skammt frá bænum Sigluvík. Var fárviðri mikið og dimm- viðri, þegar báturinn strandaði og vissu skipverjar ekki fyrr en báturinn tók niðri á sandinum. ] Kosið í bæjarráð og fasía- nefndir Reykjavíkurbæjar í gær var á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur kosið í ýmsar fastanefndir bæjarins. Var samvinna í kosningunum milli allra bæjarfulltrúa minnihlutaflokkanna, nema Magnúsar Ástmarssonar. SUÐURLAND Þykkvibærinn umfíotinn vatni í gærdag Frá fréttarifara Tímans í Þykkvabæ. Þykkvibærinn var allur umflotinn og einangruð byggð x gær. Flóð kom í Hólsá. í fyrrinótt og flæddi hún yfir veginn á löngum kafla og víðáttumikil landsvæði. A U S T U R L Stórfellt tjón á húsum og heyi í Vopnafirði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.