Tíminn - 03.02.1956, Blaðsíða 5
88. blað.
TÍMIXN, föstudaginn 3. febrúar 1956.
Fös£ud. 3. íebrúar
Vantrauststillagan
og Morgunblaðið
Yíirlýsing sú, sem I-Iermann
Jónasson gaf fyrir hönd Fram-
sóknarílokksins við atkvæðagreiðsl
una um. vantrauststillögu Þjóðvarn
ármanna, er svo glögg, þótt fáorð
só, að htin þarfnast elcki skýringa.
Yfirlýsingln hljóðaði á þessa leið:
„Framsóknarflokkurinn hefir
þegar gert samkonmlag um af-
. greiðslu þeirra mála, sem nú
liggja fyrir Alþingi varðandi
bráðabirgðastuðning við fram-
leiðshma. Núverandi ríkisstjórn
. beitir sér fyrír þessum bráða-
birgðasíuðningi samkvæmt samn
ingi, sem ríkisstjórnin hefir gert
við sámtök framleiðenda. Fram-
sóknarflokkurihn mun því ekki
efna til stjórnarslita á þessu
stigi. Á'liinn bóginn skapast ný
, viðhorf að lokinni afgreiðslu
þessara umsömdu mála. Þess
vegna hefir verið unnið að und
irbúningi flokksþings Framsókn-
armanna, er taki ákvörðun um af
stöðu flokksins til hinna nýju
viðhorfa.“
Það liggur í hlutarins eðli, að úti
lokað var fyrir Framsóknarflokk-
inn að rjúfa stjórnarsamstarfið
meðan verið var að afgreiða fjár-
lögin og lögin um bráðabirgða-
stuðning, sem samið hefir verið
tim milli iitvegsmanna og ríkis-
stjórnarinnar með samþykki Fram
sóknarflokksins.
Stjórnarslit á því stigi hefðu í
fyrsta lagi verið vanefndir af hálfu
■Framsóknarflokksins og í öðru
lagi teflt því í fulla tvísýnu, hvort
nokkuð hefði orðið úr vetrarver-
tíðinni, og.mun öllum ljóst, hvað
af því myndi hafa hlotist.
Með þeim fyrirvara. sem Fram-
sóknarflokkurinn hafði, batt
hann hins vegar ekki hendur sín-
ar neitt til frambúðar, heldur að-
eins .meðan verið var að koma fjár
lögunum og hinum óhjákvæmilega
bráðahirgSastuðningi við útgerð-
•ina fram. Þvert á móti er sagt,
að framgangur þessara umsömdu
mála muni skapa ný viðhorf, sem
flokkurinn múni taka afstöðu til
á flokksþingi, sem haldið verði síð
ar í vetur.
. Morgunblaðið gerir framan-
greinda yfirlýsingu Framsóknar-
flokksins að sérstöku umtalsefni í
forustugrein í gær og tekur henni
lieldur illa. Það varpar m. a. íram
þeirri spurningu, hvort þetta
merki það, að Framsóknarflokk-
urinn ætli að rjúfa stjórnarsam-
vinnuna um framkvæmd hinna
•miklu og mörgu framtíðarmála,
sem riú sé unnið að.
Hér er í raún réttri komið að
því atriði, seni er kjarni þessa
ináls. Hið nýja viðhorf, sem
' skapast eftir samþykkt um-
ræddra bráðabirgðaráðstafana,
1 er fyrst og fremst fólgið í því,
að athuga verður gaumgæfilega,
Iivernig áframhald frariifaraiiiía
verður bezt tryggt. Grunnurinn,
liaflega, er alveg liruninn. T. d.
sem þær voru reistar á upp-
er rafvæðiugaráætluiiin miðuð
við allt annað kaupgjald og verð
Iag en nú er orðið. Til þess að
tryggja franifarirnar þarf því
ekki aðeins nýtt átak, heldur
þarf, ef mögulegt er, að skapa
alveg nýjan varanlegan efnahags
grundvöll, ef ekki á að verða
verulegt lát eða stöðvun á fram-
farasókn undangenginna ára.
Það verður höfuðverkefni flokks
þingsins að gera sér grein fyrir
því, hvernig bezt verði snúist við
þessum vanda og framhald um-
bótanna örugglegast tryggt. Hér
er um svo stórt, nýtt verkefni að
ræða, að eðlilegt er, að flokks-
þing fjalli um það.
• Þau hrigsl ættu annars ekki að
amvinna umbótaaflanna getur ein leyst
þann vanda, sem nú er fengist við
Kaflar úr ræðum Eysíeins Jónssonar fjármálaráðherra
síðara kvöld eldhúsdagsumræðnanna
Tillögur Þjóðvarnar um hrað-
frystingu athafnalífsins.
Manni hefir skilizt, að Þjóð-
varnarmönnum væri mikið í mun
að fá skrúfað frá útvarpinu þessa
dagana, til þess að geta látið ljós
sitt skína. Það væri því ekki ó-
fyrirsynju þó á þá væri minnzt,
svona í allri vinsemd og þess, sem
þeir hafa til lausnar vandamálun-
um að leggja. Þeir lögðu fram í
haust tillögur um vandamál fram
leiðslunnar og þær eru óbreyttar
ennþá. Var þeim lýst með nokkru
yfirlæti á mánudaginn.
Þeir virðast nokkuð grobbnir af
þessum tillögum og buðu m. a.
upp á, að þær ættu að vera grund-
völlur að samstarfi um lausn vand
ans.
Tillögur þeirra eru í sem allra
stytztu máli þær, að afnema sölu-
skattinn og vera á móti allri nýrri
tekjuöflun, en það myndi þýða
hátt á annað hundrað milljón
króna greiðsluhalla á fjárlögum.
Þá er þó ótalið aðalpúðrið. En
það er að afnema á einu bretti
bátagjaldeyrishlunnindin, reksturs
framlag til togaranna og yfirleitt
allan beinan stuðning við útgerð-
ina. Þetta mundi jafngilda því að
svipta sjávarútveginn hátt á
þriðja hundrað milljónum af þeim
tekjum, sem menn meta nú, að
honum sé alveg óhjákvæmilegt að
fá minnst, ef sæmileg eigi að
verða afkomuvonin.
Þessi bjargráð Þjóðvarnar
muridu jafngilda algeru rothöggi
á sjávarútveginn og kippa gjör-
samlega fótunum undan afkomu
manna, ekki aðeins í sjávarpláss
unum, lieldur að vörmu spori
allra annarra. Þá Ieggja þeir til,
að þegar svona liefir verið bú-
ið í haginn fyrir framleiðsluna
við sjóinn séu fiskiðjuverin af-
lient útgerðarmönnum og fiski-
mönnum og þeim sagt að sigla
sinn sjó, við algerlega vonlaus,
bókstaflega glórulaus reksturs-
skilyrði.
Það er ekki að furða, þótt þeim
væri mál á að komast í útvarpið
með þessa'speki. Þetta mundi jafn
gilda fullkominni hraðfrystingu
alls athafnalifs í landinu, ef nokk
ur tæki tillögu þeirra alvarlega.
Vantrausfstillaga ÞjóS-
vamarmanna.
En nú hefir einnig komið í ljós
að þeir áttu fleiri erindi í lónið.
Þeir höfðu vantrauststillögu i poka
horninu, sem þeir lögðu fram og
kröfðust, að til atkvæða kæmi,
áður en náest væri skrúfað frá
útvárpinu. Auðvitað fengu menn-
irnir vilja sínum framgengt í því
efni, sem sjálfsagt var.
Þessi* vantraustsskrípaleikur
þeirra Þjóðvamármanna mun
lengi í minnum hafður á Alþingi.
Þeir vita, að ríkisstjórnin er
með samþykki stuðningsflokka
sinna nýbúin að gera samninga
við framleiðendur um stuðning,
sem þarf að lögfesta. Engum nema
fávitum gæti dottið í hug, að ann-1 Þeirra verkalýðspólitík
ar hvor stjórnarflokkurinn efndi verkalýðnum ekkert í aðra
til stjórnarslita í iniðju kafi, þeg-
ar verið er að lögfesta samning-
inn. Þó að Þjóðvarnarmenn komi
skríiilega fram í mörgu, þá eru
þeir ekki fávitar. Þess vegna
vissu þeir þetta. Þessa vegna var
gefur
hönd,
enda er hún byggð á allt öðrum
starfsaðferðum og allt annarri
stefnu cn annars staðar þekkist,
þar sem umbótasinnað alþýðufólk
ræður verkalýðssamtökunum.
Kommúnistar vita að fleiri og
vantraust þeirra broslegur skrípa flciri sjá þetta. Þeir eru því hrædd
leikur, en það sem á bak við ligg ir j,ag er auðheyrt á tali þeirra.
ur er alvarlegra. Margir álíta sem X,'óik skilur, að leiðin til kjara-
só að þessi vantraustsflutningur bóta cr ekki sú að láta kommún-
eigi að verða þeirra skálkaskjol ista hækka kauptaxta í stórum
við áframhaldandi klofningsstarf-' stökkum, sem svo kemur að engu
semi forustuliðs flokksins í þágu gagni. Menn vita, að það sem á
íhaldsins og kommúnistanna. Það ag gera er að hækka í áföngum
á eftir að koma betur í ljós, hvort og eiga at þatt f ábyrgu þjóð
þetta er rétt eða ekki. En vita1 málastarfi, til þess að tryggja að
mega himr svoköiluðu fyrirmenn kauphækkanir komi að því gagni,
sem þjóðfélagsástæður frekast
leyfa.
Kommúnistum er ljóst, að
fleiri og fleiri skilja, að kjarabar-
áttan er svo skyld stjórnmálabar-
áttunni, að alþýðustéttirnar þurfa
að eiga sem mestan beinan þátt
í stjórn landsins, til þess að
tryggja sinn hag.
Kominúnistar vita Iíka, að
fleiri og fleiri sjá, að það er
þeim talsmönnum alþjóðakonim-
únismans að kenna, að alþýðu-
stéttirnar við sjávarsíðuna á fs-
landi eiga ekki jafnríkan þátt í
stjórn landsins og þær ættu og
þyrftu að eiga.
Þess vegna er nú rétt einu
sinni sunginn samfylkingarsöng-
urinn og svo á milli, að það
standi á hinuin. Nákvæmlega
eins og þegar sá, sem stal reyndi
að draga frá sér athyglina, með
því að skora sem fastast á aðra
að grípa þjófinn.
í þessu liði, að slíkt verður ekki
vinsælt.
Öll er framkoma þcirra Þjóð-
varnarforkólfanna með slíkum
endemum um þessar mundir, að
minnisstæð verður. Viðrcisnar-
planið, yfirlætið, sleggjudómarnir
og svo þar innanum þetta vísinda-
lega útreiknaða slóttuga vantrausts
plan eða hitt þó heldur, sem sýn-
ir hvernig fer, þegar menn vilja
leika refsins list, eiga fláttskap-
inn, en vantar klókindin.
Og um hinn sléttmála fyrirliða
Þjóðvarnarmanna á Alþingi, háttv.
8. þingmann Reykjavíkur, hefir
það eftirminnilega komið í ljós
við þessi viðbrögð öll, að honum
lætur betur að flytja fræðilegar
vangaveltur um heimspeki varnar-
leysisins en að fást við refskák
þá, sem félagar hans vilja láta
hann leika hér. Hann ætti að
halda sér við hina áferðargóðu
vangaveltur áfram.
Annars hefir Þjóðvarnarflokk-
urinn ýmsum baráttumálum
hreyft. Það má minna á skúrmálið,
söluskattsmál flokksformannsins,
brotajárnsmálið og nú loks málið
um að leggja niður tveggjeyringa,
sem útaf fyrir sig er skynsamlegt.
En það finnst bara mjög mörgum,
að það væri mjög skynsamlegt að
leggja niður tveggeyringinn i póli
tíkinni lí'ka.
Læt ég svo útrætt um Þjóðvarn
armenn að sinni.
Sundrungarstarf
kommúnista.
Ég kem þá örlítið að kommún-
istum.
Kommúnistar töldu sig víst
leggja vel í ofninn í vor. Þeir
vissu nákvæmlega hvað á eftir
hlaut að koma og telja nú víst
komið mál til þess að blása í'glæð-
urnar og hella olíu í eldinn, sem
þeir undirbjuggu þá.
Þeir tala mikið um braskarana,
en sarinleikurinn er sá, að sú póli-
tík, sem þeir reka, er fyrst og
fremst vatn á myllu braskara og
milliliða. Enginn græðir á verð-
bólguástandi eins og einmitt
braskarar og blóðsugur. Koinm-
únistar gætu ekki þjónað þeim
betur en þeir gera, þótt þeir
væru beinlínis í þeirra þjónustu
upp á hlut.
þurfa að vera svaraverð, að Fram-
sóknarflokkurinn hafi í huga að
bregðast framkvæmd rafvæðing-
aráætlunarinnar, byggingarlöggjaf
arinnar eða stuðningnum við upp
byggingu sveita og sjávarþorpa,
þar sem hann hefir haft aðalfor-
göngu um þessi mál á undanförn-
um árum. Framsóknarflokkurinn
mun alveg eins og að undanförnu
setja það á oddinn í samningum
við aðra flokka, að framganga
þessara mála sé tryggð. Það hafa
verið og eru skilyrði hans fyrir
stjórnarþátttöku.
Ræða Ólafs Thors í eldhúsdags
umræðunum sannaði það bezt,
hvaða flokki er bezt treystandi
til að standa vörð um framfar-
irnar. Ólafur nefndi þar nokk-
ur umbótamál, sem núverandi
stjórn hefir komið fram og beitt
sér fyrir. Öll þessi mál hcyrðu
undir ráðuneyti, sem Framsókn-
armenn veita forustn. Annað
var aftur á móti uppi á tcningn
um, þegar Ólafur fór að lýsa
ástandi þeirra mála, sem lieyra
undir ráðherra Sjálfstæðisflokks
ins, eins og sjávarútvegsmál-
anna og viðskiptamálanna.
Þetta ætti að vera Mbl. holl lex-
ía um það, að vera ekki að bera
Framsóknarflokknum það á brýn,
að hann sé líklegur til að bregð-
ast framförunum.
Kommúnistar misnota allan
þann trúnað, sem þeim er sýnd-
ur, með því að einangra verka-
lýðinn pólitískt honum til stór-
tjóns og landinu til mikils skaða.
Og enn eru þeir við sama hey-
garðshornið og þó mest þegar þeir
hrópa hæst um samfylkingu og
samstarf.
Til vandamálanna hafa þeir ekki
annað að leggja en marklaus yfir-
boð og sjónhverfingatillögur, en
höfuðstefna þeirra er sú, svo sem
aldrei hefir greinilegar komið
fram en í ræðu Br. Bj. á mánu-
dagskvöldið, að Island eigi að
reka sömu pólitík og leppríki Sov-
étlýðveldanna í Austur-Evrópu.
Þeir vilja flytja ísland austur
fyrir járntjald.
Á þessum mönnum að haldast
uppi áfram að leika sundrungar-
og klofningsleik sinn. En hann
munu þcir leika og sundrunginni
munu þeir viðhalda, nema alþýða
landsins taki í taumana og styðji
önnur öfl til valda.
Kommúnistar vita, að þetta skýr i
ist og þess vegna eru þeir nú
liræddir, enda er það ekki að á-
(stæðulausu.
!
I Eyðileggingarstarf sérahags-
munamanna og kommúnista.
Allir skyni bornir menn ættu að
sjá að við búum við hættulegt á-
stand. Það er óhugsandi, að þjóð-
félag okkar þoli til lengdar þann
stórí'ellda öldugang í framleiðslu-
og eínahagsmálum, sem við höfum
búið við undanfarið. Átökin verða
alvarlegri og alvarlegri. Stéttirn-
ar nota í aj ríkara mæli stöðvunar-
vopnið, hver gegn annarri og gegn
ríkinu — þjóðfélaginu sjálfu. —
Framleiðslan minnkar við þessi á-
tök og þar með þjóðartekjurnar
og lífskjörin verða rýrari en þau
gætu verið. Fjármagn þrýtur,
framfarir stöðvast og þjóðin verð-
ur þurfandi og ósjálfstæð.
Hvað veldur þessu? Tvennt að-
allega.
Sérhagsmunaöflin í landiuu
eru of sterk, ráða of miklu. Sum
part vegna þess, að þeim hefir
tekizt að afla sér of mikils fylgis
með þjóðinni og þó sérstaklega
vegna sundrungar annara.
Þessi öfl hreiðra um sig alls
staðar, þar sem þau fá við kom-
ið og reyna að koma f veg fyr-
ir uppbyggingu þjóðfélagsins á
sannvírðis- og réttlætisgrund-
velli. Þeim verður auðvitað mik
ið ágengt í þessu á meðan þau
liafa eins konar stöðvunarvald í
þjóðmálum landsins í skjóli
sundrungar. Verðbólguþróun og
upplausnarástand í fjármálum
styrkir að ýmsu leyti þessi öfl.
Slíkt skapar jarðveg fyrir fjár-
plógmennsku og verðbólgugróða.
Þar falla saman áhugamál sér-
hagsmunaaflanna hinna þröngsýn-
ustu annars vegar og niðurrifs-
manna hins vegar, sem kalla sig til
vinstri en eiga stöðu fyrir utan og
neðan. Sérhagsmunaöflin eru of
sterk og ráð of miklu, það er ann-
að höfuðmeinið. Kommúnistar eru
einnig sterkir. Það er hitt höfuð-
meinið.
Þeir vinna í þágu alþjóðakommún
ismans og miða allt við það. Þeim
tíefir tekist að ná yfirtökum í sum-
um sterkustu verkalýðsfélögum
landsins og ráða kaupgjaldspólitík
inni. Miða hana ekki við hagsmuni
verkalýðsins, heldur hitt að hnýta
óleysanlega hnúta í atvinnu- og
fjárhagslífi landsmanna. Einangra
verkalýðinn frá þjóðmálastarfi, eu
margsýnt er, að farsæld í þjóð-
málum fer mjög eftir því, hvort
verkamenn almennt, eiga þar já-
kvæðan hlut að eða ekki. Störf
kommúnista verða vatn á myllu
upplausnar og gróðaaflanna í land
inu.
Það horfir ekki vel meS við-
reisn liér, cf forráðamönmim al-
þjóðakommúnismans á ísianái
verða fengin áfram slík völd í
félags- og þjóðmálum og þeir
hafa nú. Og heldur ekki ef sér-
hagsmunaöfl landsins verða
styrkt frá því sem nú er, eða
halda aðstöðu sinni vegna sundr
ungar.
Þriðja aflið, sem þarf '
að koma til sögunnar.
Það er blindur maður, sem ekki
sér, að þörf er á nýju viðhorfi í
þjóðmálum íslendinga.
Það þarf að kveða niður sundr-
ungarstarfsemi alþjóða kommún-'
ismans og hnekkja sérhagsmuna-
öflunum. Það þarf að byggja upp
volduga fylkingu umbótaaflanna í
landinu og gera hans svo sterka,
að hún geti haft forustuna í við-
reisnarstarfinu.
Það þarf að styrkja þriðja aflið
í íslenzkum þjóðmálum — fylk-
ingu umbótamanna til sjávar og
sveita. Fyrir þeirri nauðsyn verð-
ur allur ágreiningur um smærri
mál og íjarlægari verkefni að
vílcja.
Slíkt samstarf umbótaaflanna
og efling þeirra af hendi almenn
ings í landinu, er eina farsæla
leiðin út úr þeim vanda, sem
þjóðin er stödd í vegna samtaká-
leysis alþýðunnar í stjórnmálum
og félagsniálum.
Allir sannir umbótamenn um
allt land þurfa að vinna að því
alls staðar að efla og styrkja þriðja
aflið í íslenzkum stjórnmálum,
eyða sundrungu og klofningi, sem
reynt er að viðhalda og rótfesta.
Allir sannir umbótamenn hvar
sem er á landinu þurfa að leggja
sig alla fram til þess að byggja
upp volduga fylkingu, sem stend-
ur saman og orðið geti fær um
þegar þar að kemur, að stjórna
því viðreisnarstarfi, sem hér þarf
að vinna á næstu árum, ef vel á
að fara.
Á þessu vex nú skilningur óð'-
fluga, sem betur fer.
(Framhaid á 6. síðu.)