Tíminn - 09.02.1956, Page 4

Tíminn - 09.02.1956, Page 4
TÍMINN, fimmtudaginn 9. febrúar 1956. 33. biaai Jens Bjarnason Ásgarði í Dölum Með ljósvaka dagsins 20. des. barst mér andlátsfregn hans. Ég trúði vart mínum eigin eyrum, þar eð ég talaði við hann tveim dögum áður, glaðan og hressan. Mér var hugsað til sveitarinnar og héraðsins, þar sem hann var í mörgum trúnaðarstöðum, svo sem gjaldkeri sparisjóðs Dala- sýslu, við póst- og síma, hrepps- stjóri o. fl. Ég finn hjá mér hvöt til að minnast hans, þar sem við í mörg . ár störfuðum saman og þekktumst frá æsku. Mér verður þá helzt á að minnast atriða sem einkenndu starf hans og líf. Jens var fæddur í Ásgarði 3. júní 1892, sonur hjónanna Sal- bjargar Ásgeirsdóttur frá Kýrunn arstöðum og Bjarna Jenssonar hreppstjóra frá Hóli í Hvamms- sveit. Þau voru stórmerk hjón og höfðingjar sveitar sinnar. Þau eignuðust 17 börn og ólu upp tvö. Heimili þeirra var stórt og eitt hið gestkvæmasta, sem sögur fara af í sveit. Þar var öllum veitt af rausn og miklum myndar- skap. Salbjörg var ljósmóðir og leysti það af hendi með stakri prýði og skyldurækni, enda þótt hún væri ekki alltaf heil heilsu, eins og nærri má geta. Aldrei misheppnaðist neitt hjá henni alla hennar ljósmóðurtíð, sem hún hafði með höndum til æviloka. Um leið og ég minnist Salbjarg ar, detur mér í hug saga, sem einn núverandi bóndi í Hvamms- sveit sagði mér, sem ólst upp í nágrenni við hana; að hann hefði aldrei komið svo að Ásgarði, að hann mætti ekki hlýleika hennar og, ef'hann ekki mátti koma inn, lét hún ævinlega köku og sæl- gæti í vasa hans, svo hann gæti borðað á leiðinni. Bjarni var stórbrotinn bóndi. Hann ræktaði mikið og gerði það vel. Aflaði mikilla heyja, bæði á ræktuðu og óræktuðu landi, enda hjálpaði hann öðrum sem í hey- þröng voru. Bjarni hafði á hendi í lengri eða skemmri tíma flest þau trúnaðarstörf fyrir sveit sína og hérað sem um er að ræða. Hann var með afbrigðum áreiðan- legur og skyldurækinn og sérstak- lega hjálpfús, enda gaf hann ekki sjaldan stórgjafir fátækum til að forða þeim frá að þurfa að þiggja af sveit. Hann var oft hrjúfur fyrst er maður kom til hans, en skilnaðurinn var ævinlega góður, jafnvel þótt í harðbakka slægi, enda sveimar mikill hlýhugur um minningu hans í Dölum. Af því, sem að ofan er skráð um foreldra Jens, er ekki að furða* þótt hann líktist þeim og ætti stóra mannkosti og dugnað. Ég man fyrst eftir Jens, sem Utill drengur, er hann var með föður sínum í hestamarkaðsferð- um, og hreifst ég af þeim dugn- aði, er hann sýndi, að drífa áfram stóran hóp af ótömdum hestum og sýndist það erilssamt. Jens var tvo vetur við nám á Hvann- eyri og að því loknu má segja, að hann hafi að mestu verið fyrir vinna heimilisins. Gekk hann þá að öllum störfum, en þó sérstak- lega til fjárgæzlu. Hann var af- burðaglöggur fjármaður, bæði á mörk og svip fjárins og því fljót- ur að sjá, ef kindur vantaði. Sem dæmi um nákvæmni hans, læt ég eftirfarandi: Það var venja að gefa fénu síld að vetrinum og var hún þá brytjuð niður í fötu og gekk hann með hana á garðann og rétti hverri kind bita. Ég spurði hann einu sinni við svona tækifæri, hvort ekki vildi verða kind og kind útundan. Hann kvað nei við, ef einhver kind verður útundan, gef ég henni á eftir. Vilji einhver kind seilast yfir garða- bandið, gef ég henni ekki fyrr en á eftir, því ég vil ekki venja hana á að klifra. Hann var með líf og sál við kindurnar og var honum hugleikið að ræða um þær. Jens ,átti oft góða hesta, sérstaklega á síðari árum. Það var venja í Ás- garði að hafa á járnum —10 hesta að vetrinum og kom það sér oft vel, þegar vitja þurfti læknis fyrir nærliggjandi hreppa, þ. e. Fells- strönd, Skarðsströnd, Saurbæ og Hvammshreppa. Þá var sjálfsagt að hringja í Ásgarð og biðja að vitja læknis í Búðardal, sem er 17 km frá Ásgarði. Voru þá teknir 2—3 hestar. Þegar í Ásgarð kom aftur, þá teknir aðrir hestar ó- þreyttir og farið með lækni á á- fangastað og skilað aftur heim. í þessar ferðir fór Jens oft, sérstak- lega fyrst, en síðar frekar Andrés og Ásgeir bræður hans. Árið 1942 dó Bjarni faðir hans, tók Jens þá við sparisjóðnum, pósti og síma o. fl. og voru það mikil straumhvörf fyrir hann, þar sem hann allan sinn aldur hafði fengizt við erfiðisstörf og heilsan tekin að bila. Þetta tókst samt vel. Hann sýndi hina mestu skyldu rækni og samvizkusemi í þessum störfum sem öðrum. Hann var ekki strangur í kröfum og virt- ist alltaf hafa tíma. Hann vildi engan rengja og sýndi það t. d., ef maður bað um lán úr sjóðnum, en hafði ekki að- stöðu til að ganga frá tryggingu strax, lét hann eigi að síður pen- ingana af hendi og tók ábyrgðina á sig til næstu samfunda, er geng- ið var frá tryggingu. Sama máli gegndi með öll viðskipti viðvíkj- andi pósti og síma. Hann tók á móti pósti og afgreiddi á hvaða tíma sem var og svaraði í síma, hvort heldur var að nóttu eða degi, ef á lá. Jens var eftirgefanlegur og mildur, vildi engan styggja, hafði létta lund. Var gamansamur og oft fyndinn. Hann var góður dreng ur og hefir áreiðanlega engan ó- vin átt. Ég var oft á mannmörg- um samkomum og meðal gesta í Ásgarði og tók oft eftir því að menn sóttu til hans í herbergið hans til að spjalla. Það var hvíld að vera í návist hans og hjá honum virtist öllum líða vel. Það sást þegar hann var jarð- aður, hve vinsæll hann var, þrátt fyrir kulda og hríð kom fólk hvað- anæfa og mun það hafa verið að hálfu öðru hundraði. Að síðustu votta ég honum hjartans þakkir fyrir margra ára samstarf og ánægjulegar stundir. Ég veit, að sá sem er góðgjarn, verður blessaður, því hann gefur hinum fátæka af brauði sínu. Óskar Kristjánsson, frá Hóli. Getraunirnar Vegna illviðranna, sem gengið hafa að undanförnu, hafa knatt- spyrnuvellirnir í Englandi verið í mjög slæmu ástandi að undan- förnu, stundum eins og ísvellir en þess á milli sem forarpollar. Við slíkar aðstæður ráða heppni og til- viljun venjulega meira en raun- veruleg knattspyrnugeta liðanna. í vikunni fóru fram nokkrir um- leikir frá 4. umferð bikarkeppn- innar. Á mánudag vann Stoke Leicester 2-1, á þriðjudag Doncast- er Bristol Rovers 1-0, á miðviku- dag Sunderland York 2-1 og Chelsea Burnley 1-1 og verða þau að leika aftur á mánudag. Á fimmtudag áttu svo Sounthorp-Liv erpool að leika, en leiknum var frestað til mánudags vegna þess hve Sounthorpe-völlurinn var í slæmu ástandi. Aston Villa-Arsenal x Burnley-Sheff. Utd. 1 Cardiff-Blackpool x 2 Charlton-W.B.A. 1 Everton-Newcastle 1 Luton-Manch. Utd. 1x2 Manch. City-Chelsea 1 Preston-Huddersfield 1 Sunderland-Portsmouth 1 x Tottenham-Birmingham 1 2 Wolves-Bolton 1 Notts County-Nottm. For. 1 2 liir/It/sið í TIMANUM V öruhappdrætti S. í. B. S. Skrá um vinninga í Vöruhapp- drætti S. í. B. S. í 2. flokki 1956. Kr. 100.000.00 8174 Kr. 50.000.00 37476 Kr. 20.000.00 25929 Kr. 10.000.00 18658 Kr. 2.000.00 4218 tS83S«SSCg33SSSSSSS3SS8S5SS33SS3SS3«S3SSSS3S3SSS$S$SSSSSS{aS3CSæa«SMi Svanhvít Egilsdóttir heldur .SMíiUXxk.'i, ' itiss Nií * 1147 13432 13711 17633 27411 35752 38425 39105 Kr 1.000.00 1693 1720 3164 3799 5036 15152 32212 32382 41937 43332 47551 49667 Kr. 500.00 2024 8764 9125 9923 10802 17123 26605 34192 35815 36240 39891 41054 42968 43786 43930 45847 48928 49470 Kr. 150.00 223 355 420 651 915 926 946 1084 1179 1296 1506 1777 1843 1965 2314 2394 3068 3166 3255 3350 3456 3829 4134 3203 4458 4529 4863 4939 5413 5585 6385 6410 6857 7175 7344 7485 8253 8424 8628 8843 9215 9259 9322 9379 9519 9559 9944 10033 11275- 11522 11686 11773 12018 12275 12313 12427 12677 12743 13085 13468 13904 14298 14551 14695 14851 14857 14905 15285 15997 16068 16349 16435 16555 16740 17211 17215 17840 18081 18211 18472 18843 19255 19543 19634 19884 19888 20003 20276 20906 20929 20727 21139 21257 21663 21925 22193 22865 23020 23427 23743 23890 23951 24226 24333 24510 24892 25201 25503 25914 25920 26045 26120 26276 26618 26806 27016 27116 27153 27393 27412 28126 28411 28686 29120 29250 29574 30419 30559 30920 30947 31285 31298 31752 32192 32363 32375 33422 33530 33557 33669 33824 33830 33914 33936 34501 34652 34840 34880 34991 35083 35298 35313 35607 35745 36397 36410 36574 36945 37275 37442 37667 37918 37954 38387 38648 38988 39141 39400 39941 40074 40700 40749 41192 41413 41508 41623 42059 42333 42563 43284 43546 43659 44500 44806 44065 44991 45473 45579 45949 46125 46238 47130 47179 48195 48240 48918 49255 49681 49708 49803 814 1Í14 1783 2780 3424 4295 5182 6623 8087 9128 9512 11266 11797 12481 13560 14710 15725 16536 17699 18684 19721 30540 21254 22528 23870 24419 25639 26147 27042 27605 29189 30705 31734 32500 33743 34078 34934 35332 36415 37658 38608 39661 40813 41908 43371 44937 45771 47148 49007 49909 (Birt án ábyrgðar). í Gamla bíó föstudaginn 10. febrúar kl. 9 síðdegis. Við hljóðfærið: Fritz Weisshappel. AðgÖngumlðar Bókaverzlun Sigfúsar Evmundssonar, Austurstræti. íSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍlSSSSSSSSSSSÍSSÍSÍSSSSSSSSÍSSSÍSSSSSSSSSSSSj Verðlaun 1000,oo kr. Félag íslenzkra atvinnuflugmanna hefir ákveðið að efna til samkeppni um uppdrátt að fyrirhuguðu merki félagsins. Merkið skal vera táknrænt fyrir flug eða flugmenn. Æskilegt er að nota skammstöfun á nafni félagsins í merkinu. Skammstöfunin er F. í. A. Uppdrætti að merkinu skal senda til Dagfinns Stefánssonar, Box 476, Reykjavík, ásamt nafni og heim- ilísfangi teiknara fyrir 10. apríl 1956. Valið verður um merkið á félagsfundi F. í. A. og mun það merki hljóta verðlaunin, er flest atkvæði hlýtur.. , F. h. Félags íslenzkra atvinnuflugmanna. Dagfinnur Stefánsson. ■ - - ■ :: "-áv;____________________________•...... 8 CSSSSSSSSSSSS5S5SSS5SSSSSSSSSSSSSS5SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS5SSSSSSSS31 Aldrei búnar til úr öðru en glænýrri ýsu fMATBORQJ 11 mtfic MARGFÖLD ENDING MEÐ MANSION BÓNI Umboösmenn:—KRISTJAN Ó. SKAGFJÖRD h/f REYKJAVÚC

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.