Tíminn - 09.02.1956, Blaðsíða 8
Fjölmennasía skák-
mót hérlendis
í fyrrakvöld var fyrita umferö'
á skákþingi Reykjavíkur tefld, en
fleiri þátttakendur teíla á mótinu
en nokkru sinni áður á skákmóti"
hérlendis. Teflt er i fjórum flokk-
um og eru þátttakehdur 22 í
meistaraflokki, 14 í 1. flokki, 38
í 2. flokki og 48 i unglingaflokki,
en það er í fyrsta skipti, sem
teflt er í slikum flokki hér. í
meistaraflokki verða íefldar níu
og er umhugsunartími 2 klst. fyrir
40 leiki, en umhugsunartími ung-
lingafl. er 75 mínútur íyrir alla
skákina. •
Teflt er að Þórskaffi fimm daga
í viku hverri. Meistara- og 1. fl.
tefla sama kvöldið. Þótt þátttaka
sé þetta mikii í mótinu, eru þó
fáir af beztu skákmönnum Reykja
víkur meðal þátttakenda.
Fulikomin útgerðaraðstaða ogfjór
ir nýir fiskibátar á Fáskrúðsfirði
SamvinnuTneinn hafa þar Jiaft fonistn iim aí
byggja upp tii aíi skapa öniggari aíkomu
Um helgina kom nýr og vandaður stálbátur crá Hollandi
heim til Fáskrúðsfjarðar, eftir gifturíka för :t fárviðri yfir
úthafið. Er hann um 70 lestir að stærð og heitir Búðarfell.
Á síðustu fimm til sex árum,
hefir orðið mikil breyting á at-
vinnulífi og lífsskilyrðum á Fá-
skrúðsfirði. Hafa samvinnumenn
haft þar forustu um að koma á fót
fiskvinnslustöðvum og útgerðar-
aðstöðu, sem jafnast á við það
bezta, sem völ er á í landinu.
Fjórir nýir bátar.
Nú þegar hin ágæta útgerðar-
aðstaða er fengin fjölgar bátunum
og eru komnir þangað á rúmu ári
fjórir nýir bátar. Tvo þeirra hefir
Kaupfélagið keypt og gerir þá út,
en einstaklingar hafa keypt hina
tvo með stuðningi samvinnufélag-
anna.
Þegar Guðlaugur Eyjólfsson tók
við stjórn kaupfélags Fáskrdðs-
fjarðar fyrir sex árum lagði hann
áherzlu á að byggja upp á vegum
samvinnumanr.a framtíðaraðstöðu
til útgerðar og fullkomna fisk-
vinnsluaðstöðu með nútíma nýt-
ingu aflans og afla síðan nýrra og
góðra báta, sem sótt gætu sjó frá
Fáskrúðsfirði allan ársins hring.
Eru allir hinir nýju bátar stórir
og vel búnir siglingatækjum og
veiðarfærum.
Hin myndarlega uppbygging at-
Mb. Sigurbjörg leggur af stað tii íslands.
Mb. Búðarfell leggur af stað heim tjl Fáskrúðsfjarðar.
vinnulífsins á Fáskrúðsfirði hófst
með því, að kaupfélagið byggði
fullkomið hraðfrystihús, upp úr
gömlu og ófullkomnu, sem til var
og rekið af félaginu. Ennfremur
! byggði félagið síldar- og fiski-
mjölsverksmiðju, sem er nauðsyn-
legur þáttur í nútímanýtingu
sjávarafla. Þá byggðu samvinnu-
félögin þar stóran olíugeymi fyrir
afgreiðslu á þyngstu tegund
brennsluoiíu, sem hagkvæmast er
fyrir togara að nota. Með þessum
framkvæmdum höfðu skapazt á
Fáskrúðsfirði ein fullkomnustu út-
gerðarskilyrði í landinu.
Hefir það líka komið sér vel.
Fjöldi togara hefir notfært sér
þessa aðstöðu. Kaupfélagið er að
koma upp einnig fullkominni ís-
framleiðslu í sambandi við þenn-
an rekstur".
Að undanförnu hafa margir tog
arar lagt upp aflá til vinnslu á
Fáskrúðsfirði, auk heimatogarans
Austfirðings.
Stálbátarnir um 70 lestir að stærö.
Fyrsti báturinn af hinum fjóru
(Framhald á 7. síðu.)
Erleodar fréttir
í fáum orðnm
□ Stjórn Kekkonens í Finniandi mun
sitja áfram, unz forsetakjör hefir
fariö fram um miöjan þennan
mánuð.
□ Sagt er, að Pineau utanríkisráð-
herra Frakka muni fara í heimsókn
til Moskvu í næsta mánuði.
□ Ný kuldabylgja er að skella yfir
Skandinavíu. Mun frostið víða kom
ast upp í 39—40 stig.
□ Eisenhower hefir lofað Mayer for-
manni kola- og stálsamsteypu Ev-
rópu stuðningi Bandaríkjanna við
starf samtakanna.
segist þreyttur
IVashington, 8. febr. — Eins og
venjulega á blaðamannafundum
var ’spumiogum ausið yfir Eisen-
hower um hvort hann hyggist
fara fram við næsta íorsetakjör.
Kvaðst hann ekki enn hafa tekið
ákvörðun. Nákvæm rannsókn ætti
að fara fram á heilsufari sínu um
miðjan mánuðinn. Sér væri Ijóst,
að hann gæti ekki dregið það
endalaust að taka ákvörðun um
framboðið. Aðrar fregnir herma að
forsetinn segist vera mjög þreytt-
ur, enda hefir hann haft mikið að
gera undanfarið. Læknar segja þó
að bati hans sé mjög góður hing-
að til og hann mjög hraustur að
öðru leyti.
Æðisgengið kapphlaup um
smíði fjarstýrðra eldflauga
Washington, 8. febr. — Bandaríkin og önnur ríki geta
jafnvel' nú þegar gjöreytt hvert öðru með kjarnorkuknún-
um eldflaugum, ef ekki finnast áhrifarík varnarvopn gegn
þeim, sag&i Eisenhower forseti blaðamönnum í dag. Hann
tók fram, að framleiðsla og fullkomnun fjarstýrðra eldflauga
væri nú látin ganga fyrir öllum öðrum íramkvæmdun^ í
þágu landvarna Bandáríkjanna.
Forsetinn sagðist álíta, að Banda
ríkin væru á sumum sviðum lengra
komnir í smíði eldfluga en Rúss-
ar. Á öðrum væru Rússar hins-
vegar betur á veg komnir.
Ægilegt kapplilaup.
Það er vitað, að ægilegt kapp
hlaup er nú háð milli þessara
tveggja stórvelda um fullkomnun
kjarnorkuknúinna eldflauga. Það
var ekki fyrr en fyrir tveim árum
eða svo að Bandaríkjamenn fóru
að gefa málinu verulegan gaum.
Öllum var að vísu Ijóst, að nýr
þáttur í hernaðartækni hófst með
eldflaugasendingum Þjóðverja á
London í lok styrjaldarinnar. En
ekki reyndist auðvelt, að full-
komna þau flugskeyti svo mjög og
hernaðarsérfræðingar töldu að
ekki svaraði kostnaði að eyða fé
og tíma í framleiðslu þeirra.
800 mílur innan árs,
En þetta breyttist.. Kapphlaup-
ið hófst. Rússar hafa gefið í skyn,
að þeir eigi tilbúnar eldflaugar,
sem geta farið 800 mílur og hitt
hárnákvæmt í mark, en þetta er-
talið vafasamt. Bandaríkin eru tal-
in geta hafið tilraunir með fjar-
stýrðar eldflauga á þessari vega,
lengd eftir ár eða svo. Hin fræð'h
legu vandkvæði við smíði eld-
flauga, er geti hitt mark í 1500
mílna fjarláegð eru talin hafa ver-
ið leyzt og eftir er aðeins að yfir-
stíga tæknilega erfiðleika. Marfc
miðið er að búa til eldflauga, sem
geta farið 5000 mílna vegalengd,
eða á milli meginlanda, á aðeins
30 mínútum. Það mun taka nokk-
urn tíma að framleiða slíka eld-
flauga, en sérfræðingar telja ekki
útilokað að það geti orðið 1962
eða þar um bil.
Varnir engar.
Engar varnir þekkjast enn gega
eldflaugum af þessu tagi. Svo erf-
itt sem það er að gera þær, eink-
um rafeindakerfið, sem stýrir
þeim í mark, þá verður það þó
barna le'ikur hjá hinu að finna
varnir að nokkru gagni gegn þeim.
Sérfræðingarnir halda þó að einn-
ig það muni takast.
Mollet virðist fangi
Frakka í Alsírborg
Niustað er á öll simasamtöl hans. Alsír-
málið komið í enn meira óefni en fyrr
París, 8. febr. — Margt virðist benda til að Mollet for-
sætisráðherra Frakka sé hálfgildings fangi eða gísl í hönd-
um Frakka búsettra í Alsír. Óttast stjórnmálamenn í París,
að þeir muni nota aðstöðu sína til að neyða forsætisráðherr
ann til að hætta við áform sitt að veita 9 miljónum múham-
eðstrúarmanna 1 Alsír jafnrétti við hvíta menn þar.
Það er flestra álit, að möguleik-
ar á lausn Alsírvandamálsins hafi
versnað en ekki batnað við för
forsætisráðherrans. Einlcum hafi
það gert illt verra, er hann lét
hótanir og óeirðir Frakka í Alsír-
borg hræða sig til að fallast strax
á lausnarbeiðni Catroux hershöfð-
ingja.
Þorir ekki að tala í síma.
í kvöld kom franska stjórnin
saman til fundar í París og lilýddi
á skýrslu Mollet um förina. Hafði
hann sent hana gegnum loft-
skeytasíma. Var það fyrsta sam-
bandið, sem hann hefir við félaga
sína í stjórninni. Hefir hann ekki
þorað að tala í síma við þá, þar
eð hann telur víst, að 'hlustað sé á.
öll samtöl sín. Ekki er kunnugt um
efni skýrslunnar, en öllum ber
saman um, að það hafi hin ofsa-
lega andstaða Frakka í Alsír, hafi
komið Mollet óþægilega á óvart.
Onglingar og börn skæðustu
antístæðingar Breta á Kýpur
Nicosía og London, 8. febr. — í gær drápu Bretar 18
ára skólapilt í Famagústa á Kýpur. í dag hafa unglingar x
framhaldsskólum og börn um gjörvalla eyna farið í fylking-
um um götur bæjanna, grýtt brezka hermenn og æpt að
þeim ókvæðisorðum. Þá hafa þau rifið niður brezka fána
og brennt þá. Virðist sem börn og unglingar séu nú skæð-
ustu andstæðingar Breta á eynni.
Framhaldsskólum í Famagústa
hafði verið lokað um vikuskeið
vegna óeirða nemenda. Er skip-
un var gefin um opnun þeirra neit
uðu nemendur að mæta, en söfn-
uðust saman og grýttu brezka her-
menn og brezkar verzlanir. Beittu
Bretarnir loks skotvupnum og beið
einn piltur bana. Lögðu þá verka-
menn hvarvetna í borginni niður
vinnu í mótmælaskyni í gær.
Bretar í vandræðum.
Blöðin á Kýpur bera það á Breta
í dag, að þeir hafi beitt skotvopn
(Framhald. á 7. síðu.)