Tíminn - 11.02.1956, Page 7
35. blað.
TÍMINN, laugardagiim 11. febrúar 1956.
Hvar eru skipin
Sambandsskip.
Hvassafell fór 7. þ.m. frá Amst-
erdam áleiðis til Rvíkur. Arnar-
fell fór 3. þ.m. frá New York áleið-
is til Rvíkur. Jökulfell er í Boiílo-
gne. Fer þaðan til Ventspils. Dís-
arfell er í Piracus. Litlafell er í
olíuflutningum á Faxaflóa. Helga-
feU á að losa í Þorlákshöfn og
Vestmannaey j um.
Eimskip.
Brúarfoss kom til Rvíkur 9.2.
frá Hull. Dettifoss fór frá Rotter-
dam 9.2. til Rvíkur. Fjallfoss fer
frá Rotterdam 11.2. til Álaborgar,
Gautaborgar og Reykjavíkur.
Goðfoss kom til Ventspls 7.2. Fer
þaðan til Ilangö, Gautaborgar og
Rvíkur. Gullfoss fór frá Rvík 8.2.
til Leith og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá New York 8.2.
til Rvíkur. Reykjafoss fór frá Rvík
9.2. til Akraness, Kefiavíkur, Hafn
arfjarðar, Akureyrar, Seyðisfjarð-
ar, Norðfjarðar, Djúpavogs og það
an til Rotterdam og Hamborgar.
Selfoss kom til Ghent 9.2. frá Rvík.
Tröllafoss fór frá Rvík 6.2. til New
York. Tunguíoss fór frá Rotter-
dgm 8.2. til Fáskrúðsfjarðar.
Þjóíhátííardagur Indverja
FlugferNr
Loftleiðir.
Hekla er væntanleg kl. 0700 frá
New York, flugvélin fer kl. 0800
áleiois til Bergen — Stavanggr og
Luxemborgar. Edda er væntanleg |
á morgun kl. 18,30 frá Hamborg |
— Kaupmannahöfn og Osló, flug-.
vélin fer kl. 20.00 áleiðis til New
York.
Flugfélag fslands.
Gullfaxi fór til Kaupmannahafn
ar og Hamborgar í inorgun. Flug-
vélin er væntanleg aítur tii Rvíkur
kl. 16:45 á morgun.
Millilandaflug.
Innanlandsflug: .
í dag: Akureyri, Blönduós, Eg-
iisstaöir, Sauðárkrókur, Vest-
mannaeyjar, Þórshöfn. Á morgun:
Akureyri, Vestmannaeyjar.
Messur a morgun
Háteigsprestakall.
Messa í hátíðasal Sjómannaskól
ans kl. 2. Að messu lokinni hefst
framhajds- aðalsafnaðarfundur.
Barnasamkoma kl. 10,30. Séra Jón
Þorvarðsson.
Reynivallakirkja.
Messa kl. 2 s.h. Sóknarprestur.
Nesprestakall.
Messað í Mýrarhúsaskóla kl. 2,
30. Séra Jón Thorarensen.
Kaþólska-kirkjan.
Lágmessa kl. 8,30 árd. og Há-
messa og prédikun kl. 10 árd.
Dómkirkjan.
Messa kl. 11. Séra Árelíus Níels-
son. Síðdegismessa kl. 5. Séra Ósk
ar J. Þorláksson. (altarisganga).
EUiheimilið.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra Jón
Guðnason þjóðskjalavörður. (ath.
breyttan messutíma). Sigurbjörn
Gíslason.
Ilallgrímskirkja.
Messa kl. 11 f.h. Séra Sigurjón
Þ. Árnason. Messa kk 2 e.h. Séra
Jakob Jójisson.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messað kl. 2. Séra Garðar Þor-
steinsson.
Bústaðaprestakall.
Messað í Kópavogsskóla, klukk-
an 3. Barnasamkoma kl. 10,30 árd.
sama stað. Séra Gunnar Árnason.
Um 40 bátar á sjó
frá Keflavík í gær
Um 40 bátar voru á sjó frá
Keflavík í gær og sóttu margir
þeirra mjög langt og komu seint
að landi. Þeir, sem komnir voru
að um áttaleytið í gærkvöldi voru
með 6—11 lestir af góðum fiski.
Nokkrir bátanna reru seint í
fyrradag og komu því seinna að
landi í gær, vegna þess.
Bandarískir stúdent-
ar í heimsókn
í gær kom í stutta heimsókn í
bæinn flokkur bandarískra háskóla
stúdenta, sem hefir skemmt á
Keflavíkurflugvelli undanfarið.
! Eru þeir frá háskólanum í Mary-
land og ferðast á milli og skemmta
bandarískum hermönnum. Kom
leikflokkurinn frá Azoreyjum, en
flýgur til New York á morgun, en
þaðan fer flokkurinn til Bermuda.
Stúdentarnir skoðuðu m. a. Þjóð-
leikhúsið og Háskólann og voru
mjög hrifnir af byggingum þess-
um. Blaðamaður Tímans átti tal
við nokkra háskólastúdentanna og
létu þeir mjög vel yfir förinni til
íslands.
Akurnesingar sækja
r 1 • r •
a djupmio
Um 20 Akranesbátar voru á sjó
í gær og fóru margir þeirra langt,
eða út fyrir venjulegar slóðir Ak-
urnesinga. Sumir þeirra, sem
skemmra fóru voru komnir að um
átta leytið í gærkvöldi og voru
með 5—8 lestir. Vitað var að hinir,
sem lengra fóru og ekki voru
væntanlegir heim fyrr en undir
I miðnætti höfðu aflað mun betur.
Er heldur gott útlit um aflabrögð
hjá Faxaflóabátum, eins og sakir
standa, ef gæftir haldast.
Hver dropi af ESSO
smurningsolíu tryggir yður
hámarks afköst og lágmarks
viðhaldskostnað
Olíufélagið h.f.
Sírni 8 16 00
í inciland: er mikið um aS vera á þjóðhátíðinni og hafa flestir ættbálkar
eitthvaS til skemmtunarinnar aö leggja. Á myndinni er flokkur höfða-
vei'ðimanna í veizlubúningum.
atröm átök kirkju
og ríkisvaids á Möltu
Kosi'ð í dag um hvort eyjan skuli innlimu'S
í Breiland. — Kaþólskir mjög andvígir því
Valetta, Möltu, 10. febr. — Þjóðaratkvæði fer fram á
Möltu á morgun um það, hvort eyjarskeggjar vilji að eyj-
an verði hlúti af Bretlandi og kjósi 3 þingmenn, sem taka
eiga sæti i neðri málsstofunni brezku. Eru viðsjár miklar
með mönnum á eynni ekki þó svo mjög vegna þess megin-
atriðis, sem um er kosið, heldur vegna harðvítugra átaka
um málið milli ríkisstjórnarihnar á eynni annars vegar og
kaþólsku kirkjunnar hins vegar.
Flestir eyjarskeggjar eru kat-
ólskir. Erkiblskupinn, Gronzis, seg
ir að ríkisstjðrnin hafi sagt kirkj-
unni stríð á hendur. Er hann and-
stæðingur innlimunar í Bretland
og óttast um hag kirkjunnar.
Ríkisstjórain á funði.
Biskupinn hélt útvarpsræðu í
kvöid og réðst á ríkisstjórnina. Að
henni lokinni boðaði forsætisráð-
herrann Mihtoff til ráðuneytis-
fundar og stóð hann í marga
klukkutíma. Stiórn nýlendunnar
er í höndum verkamannaflokksins.
Það sauð úpp. úr milli stjórnarinn
ar og kirkjunnar um daginn, þegar
forsætisráðherrann neitaði að
fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni
að beiðni biskups, sem vildi semja
um stöðu kirkjunnar, ef til inn-
limunar kæmi. En áður hafði Pont
iff samið um sameininguna við
brezku stjórnina.
Þriggja tíma messa.
Biskupinn söng messu í höfuð-
borginni í dag. Stóð hún ekki
skemur en 3 tíma. Biskup var á-
kaft hylltur af miklum manngrúa.
Samt er talið, að margir katólikk-
ar muni kjósa innlimun í Bret-
land í von um að lífskjör eyjar-
skeggja batni við það. — Lausa-
fregnir herma, að Mintoff hafi
fengið nafnlaust bréf, þar sem
honum er faótað dauða, ef hann
blandi sér í mál kirkjunnar.
Nasser heldur vel á
Kairó, 10. febr. — Rússneskir
sérfræðingar munu veita Egyptum
vísindalega og tæknilega aðstoð
við að koma upp vísindalegri kjarn
orkuti’lraunastöð í Kairó, sem
koma á upp á næstunni. Egypzkir
sérfræðingar munu einnig fara. til
náms í Rússlandi. Þetta var íil-
kynnt í Kairó í dag, en í gær var
gengið frá 200 miljón dala láni,
sem Egyptar fá hjá alþjóðabank-
anum til að reisa hina miklu As-
wan-stífþi í Nílardalnum.
Hússein konungur
reynir málamiðlon
Kairó, 10. febr. — Nasser for-
sætisráðherra Egypta. tók í dag á
móti forsætisráðherra Jordaníu,
en hann er með orðsendingu frá
Hussein konungi. Hefir hann áð-
ur sent svipaða orðsendingu til
ríkisstjóra íraks, Sýrlands og Li-
banon. Vill konungur að efnt verði
til ráðstefnu til að vinna að auk-
inni samvinnu Arabaríkjanna, en
nokkurrar togstreitu gætir, eink-
um í sambandi við afstöðuna til
Bagdad-bandalagsins, sem írak er
aðili að.
Fyrstu samtök békbind
ara fimmtíu ára í dag
Þann 11. febrúar árið 1906 komu nokkrir bókbindarar
saman til fundar á Laugavegi 18 í Reykjavík, heimili Péturs
G. Guðmundssonar, og stofnuðu með sér félag, er hlaut nafn
ið Hið íslenzka bókbindarafélag. Aðaihvatamenn að stofn-
un félagsins munu hafa verið þeir Pétur G. Guðmundsson
og Lúðvík Jakobsson, en fyrstu stjórn þess skipuðu eftir-
taldir menn: Form. Lúðvík Jakobsson, skrifari Gísli Guð-
mundsson og gjaldkeri Þórður Magnússon. Þeir Gísli og
Þórður starfa enn í bókbandsstofu ísafoldarprentsmiðju.
Félag þetta starfaði þó ekki
nema til ársins 1911, en var endur
rcist árið 1915 undir nafninu Bóþ-
bandssveinafélag Reykjavíkur. Ár
ið 1922 var þeim félagsskap slitið
og lá öll félagsstarfsemi bókbind-
ara niðri til ársins 1934, en þá var
það enn endurvakið og nefnt Bók-
bindarafélag Reykjavíkur. Hefur
það starfað óslitið síðan en heitir
nú Bókbindarafélag íslands.
Núverandi stjórn.
Núverandi stjórn þess skipa.
Form. Guðgeir Jónsson, varaform.
Einar Helgason, ritari Tryggvi
Mikil aðsókn að
kjarnorkusýningu
Hór um bil 5000 manns hafa nú
séð sýninguna í Listamannaskál-
anum um kjarnorkuna í þjónustu
mannkynsins, síðan hún var opn-
uð s. 1. laugardag og hefir hún
vakið almenna ánægju og athygli
sýningargesta.
Sýningin vei'ður aðeins opin
fram yfir helgi og verður henni
lokað á þriðjudagskvöld. Ekki mun
hægt að framlengja sýnignuna,
sem er opin frá kl. 2 til kl. 10 e.h.
Sveinbjörnsson, gjaldkeri Guð-
mundur Gíslason og meðstj. Jóna
Einarsdóttir form. kvennadeildar
félagsins.
Afmælisins verður minnst með
hófi, sem haldið verður að Röðli
11. febrúar, og hefst það með sam-
eiginlegu borðhaldi kl. 7.00 síðd.
Óeirttr
(Framhald af 8. síðu.)
um varðandi ástandið í Alsír. —
90% allra verzlana í Alsírborg
voru lokaðar í dag að tilmælum
Frakka í borginni.
Mollet heim á morgun.
Mollet heimsótti í dag Aurez-
fjöll, þar sem 200 þús. manna
franskt herlið berzt við skæru-
liða. Á morgun mun hann senni-
lega halda heim. Enda krefst nú
þingið skýrslu af stjórninni um
ástandið í Alsír, samninga for-
sætisráðherrans og fyrirætlanir
stjórnarinnar. Mun Mollet ekki
hafa orðið neitt ágengt í því að
fá frönsku borgarana í Alsír til
að fallast á sjónarmið sín um
aukna sjálfsstjórn nýlendunnar.
MS5SS«S5S«SS*5«Í3«5«5SSS«SS«S«SS«S«!«5«S«S«55««5SSSS«S«W5SS!«!SSS«SS
Trésmiður
óskast að Bifröst í Borgarfirði. Upplýsingar á staðnum
og hjá undirrituðum.
Teiknistofa SÍS
•SSSSSSSSSSSSSSSSSsssssssssaasdssggaaftgssssssssffi&eaaaacgeetg^pp^TSmw
KHflKI