Tíminn - 23.03.1956, Blaðsíða 8

Tíminn - 23.03.1956, Blaðsíða 8
8 T í M I N N, föstudaginn 23. marz 1956 Nokkrar samþykktir ársþings iðnrekenda Vörusmygl og tolleftirlit. Ársþing iðnrekenda leggur enn sem fyrr ríka áherzlu á, að lög- gjafar- og framkvæmdavald ís- lenzka ríkisins búi svo um hnút- ana, að tolleftirlit sé virkara en verið hefir, og komið verði með öllu í veg fyrir ólöglegn innflutn ing og vörusmygl. Þá telur ársþingið nauðsynlegt að samræmis gæti í túlkun toll- skrárinnar hjá öllum tollyfirvöld- um, hvar sem er á landinu. Ennfremur telur ársþingið var liugavert, að einstökum mönum séu veittar undanbágur til inn- flutnings á vóruíegundum, þó að í smáum mæli sé, sem almennt er bannaður innflutningur á, því að slíkt hlýtur að torvelda eftirlit með smyglvarningi í sölubúðum. Gjald af innlendum tollvörutegundum. Ársþingið mótmælir alvarlega þeim miklu tollahækkunum, sem Alþingi það er nú situr, lagði á íslenzka tollvöruframleiðslu, sem nemur nálega 60%. Iðnaðarmálastofnun íslands. Ársþingið lætur í ljós á- nægju yfir því, að Iðnaðarmála- stofnun íslands hefir eflzt með ári hverju frá því að hún hóf störf á árinu 1953, og að stofn- uninni skuli vera tryggður fjár- liagsgrundvöllur með árlegu framlagi frá Alþingi. Þingið fagnar sérstaklega opn- un tæknibókasafns stofnunarinn- ar, og leggur áherzlu á, að hrað- að verði eftir því sem föng eru á, undirbúningi að gerð staðla (standarda) og uppbyggingu í þágu iðnaðar. Hvetur ársþingið iðnrekendur til að auka enn meir samstarf við stofnunina og notfæra sér þá margvíslegu þjónustu, sem hún liefir upp á að bjóða. b) Ársþingið skorar á IMSÍ að koma hið fyrsta á fót námskeið- um og annarri fræðslustarfsemi fyrir verkstjóra og iðnvcrkafólk. Gjaldeyrissparnaður iðnaðarins. Ársþingið skorar eindregið á nefnd þá, er skipuð var af ríkis- stjórn íslands 27. des. 1955, að ósk stjórnar FÍI til að rannsaka gjaldeyrissparnað íslenzks neyzlu- vöruiðnaðar, að hefja nú þegar stöx-f og skila áliti liið allra fyrsta. Rannsóknir á náttúruauðæfum. Ársþing iðnrekenda 1956 skor- ar á Alþingi og ríkisstjórn að stuðla að því að ítarleg rannsókn á íslenzum náttúruauðæfum verði látin fara fram með stofn- un nýrra atvinnugreina fyrir augum. Rannsóknarstofnanir. Ársþingði álítur vel farið, ef fundin er grundvöllur til þess að tryggja samstarf rannsóknastofr.- ana og starfandi atvinnufyrirtækja í landinu, t. d. með þeim hætti. að málið sé rætt sameiginlega af nefnd manna er skipuð sé fulltrú um frá FÍI og öðrum samtökum atvinnuveganna og forstöðumönn- um rannsóknarstofnana. Fólksfækkunin (Framhald af 5. síðu.) Grýtubakkahreppur 34,7% Hálshreppur 35,5% Reykjahreppur 33,3% Skriðdalshreppur 31,5% Fáskrúðsfjarðarhreppur 36,4% Skaftártuguhreppur 39,7% LeiSvallahreppur 35,8% Álftavershreppur 36,1% Austur-Eyjafjallahreppur 37,9% Vestur-Eyjafjailahreppur 31,9% Vestur-Landeyjarhreppur 33,9% Ásahreppur 35,5% Stokkseyrarhreppur 39,7% Hraungerðishreppur 32,9% Laugardalshreppur 30,2% Þingvallahreppur 36,8% Ölfushreppur 30,3% Selvogshreppur 30,1%. Skólaútvarp.... (Framhald af 7. síðu.) Helgi Valtýsson bréf frá skrifstofu stjóra Skólaútvarpsins, sem skýrir þar frá, að bréf hans hafi verið sent viðkomandi skólastjóra, sem nú sé sóknarprestur í N. (þar er sennilega að finna ráðning gát- unnar um sagnfræði-þekkingu skólastjórans!), og hafi hann síð- an sent Skólaútvarpinu bréfið til athugunar og leiðréttingar, áður en erindið væri flutt, og var þetta þegar gert. Skrifar skrifstofustjór- inn m. a. á þessa leið 10. marz: „Það sem þér segið um text- ann í dagskrárheftinu er vissu- lega allt rétt, og þykir oss fyrir, að þar skuli ekki hafa komið skýrt fram, að Grænland var bæði fundið og nurnið af íslend- ingum “ „Vér munum sjá um, að verið sé betur á verði framvegis." Iþróttir (Framhald af 4. síðu.) — í 50 m. bringusundi telpna og 50 m skriðsundi drengja, en með al unga fólksins í sundinu liefir í vetur verið mikið og fjörugt líf. Tveir fyrstu dagar mótsins þ.e. dagarnir þegar keppt er í Reykja- vík er stigakeppni milli félaganna. Eru stig reiknuð þannig, að fyrsti maður í hverri grein hlýtur 7 stig, annar rnaður 5 stig, þriðji maður 3 stig og fjórði maður 1 stig. Það félag er þannig fær hæsta stiga- tölu hlýtur að verðlaunum bikar, sem Ármann vann síðast er um hann var keppt. Bikar þennan geymir sá sundmaður viðkomandi félags, er flest stig leggur til bik- arsins af sínum félagsmönnum. Pétur Kristjánsson geymdi bikar- inn s.l. ár. Loftleiðir opna nýja skrifstofu í Chicago Fyrir nokkru opnuðu Loftleiðir nýja skrifstofu í Chicago og er það þriðja skrifstofa félagsins í Banda ríkjunum, en hinar eru í New York og San Francisco. Chicago skrifstofan er við 37 South Wabash Street, sem er á næsta horni við Palmer House, en það er eitt víðfrægasta gistihús borgarinnar. í þessu hverfi eru skrifstofur flestra stóru flugfélag- anna, og hefir því vel tekizt til um val á húsnæði þessu. Um næstu mánaðamót munu Loftleiðir auka ferðir sínar til Bandaríkjanna úr þrem upp í fjór ar í viku hverri. Sumaráætlunin hefst 20. maí, og verða ferðirnar þá a. m. k. 5 í viku hverri milli Bandaríkjanna og meginlands Evrópu, með viðkomu í R«ykjavík. ASalfundur (Framhald af 4. síðu.) að sjá um Íslandsglímuna 1953, og fór hún fram í íþróttahúsi ÍBR að Hálogalandi, og varð sigurvegari Ármann Lárusson (UMFR), en keppendur voru tíu. Landsflokksglíman féll niður, en flokkaglíma Reykjavíkur, fórst fyrir vegna mænuveikisfaraldurs. Gjaldkeri las upp reikninga GRR, sem voru samþykktirl^Kjörin var ný stjórn GRR, og er formaður Baldur Kristinsson (Á), og með- stjórnendur. Ólafur Jóhannesson (UMFR) ritari og Rögnvaldur Gunnlaugsson (KR) og til vara: Sigfús Ingimundarson (Á). Loks var kjörin fimm manna nefnd til að endurskoða starfsreglur GRR, er formaður þeirrar nefndar Hjört ur Elíasson (Á). Ýmis glímumál- efni voru rædd af fjöri á fundin- um fram yfir miðnætti og var ein- dreginn áhugi fundarmanna að efla gengi ísl. glímunnar. Fundarstjóri var Ben. G. Waage, forseti ÍSÍ og fundarritari Hörður Gunnarsson (Á). Butterick snið Nýjasta, amerísk tízka. Hagstætt verð. Skoðið sýnis- hornabækur í öllum kaupfélögum og pantið sniðin þar BUTTERICK Það eru nú aðeins þrjú félög í höfuðstaðnum sem iðka glimu: Ár- mann, KR og UMFR. Ungir menn ættu að ganga í þessi félög og læra og iðka þessa fornu þjóðaríþrótt vora. W.W.W.V/.W.W.V.WAV.V.V.V.V.W.V.’.VA'AVU Gerist áskrifendur að TÍMANUM Áskriftasími 2323 af óllu þvottadufti seiii framleitt erílandinu.eruMSffog tMkt’ .V.V.V.V.V.V.VA Hjartanlegar þakkir til hinna mörgu vina minna, innlendra og erlendra, sendiráða og fá- lagasamtaka fyrir heiðurssamsa?ti, góðvild, vin- áttu, gjafir og margvíslega sæmd, sem ég mun aldrei gleyma, mér og konu minni auðsýnd á 75

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.