Tíminn - 15.04.1956, Page 1

Tíminn - 15.04.1956, Page 1
lliðstjcrnarfundur Framsóknar- manna á morgun kl. 5. Fundur í Framsóknarfélagi Hafn- arfjarðar kl. 3 í dag. Almennur stjórnmálafundur á Sel- fossi kl. 2 í dag. £3. árg. Reykjavík, sunnudaginn 15. apríl 1956. 12 siður Skrifað og skrafað, bls. 7. íslenzkuþáttur Halldórs Halldórs- sonar, bls. 5. Rithöfundtirinn Arthur Köstler, bls. 7. Munir og minjar, bls. 5. 86. blað. Austur af Kaidadal og norður að Skjaldbreið er uppi i Geitlandsjökli hinn alkunni Þórisdalur, jöklum luktur á alla vegu. Dalurinn er hömróttur og hrjóstrugur og gróðurlaus með öllu, segir Þorvaidur Thoroddsen i Islands- lýsingu. Lengi spunnust útilegumannasögur um dal þennan, og árið 1664 gengu tveir prestar á jökla til að leita hans og til að kristna útilegumenn í dalnum. Þeir fundu dalinn, en enga útilegumenn. Björn Gunnlaugs- son kannaði hann sumarið 1835 og ritaði lýsingu á honum, en „síðan hefir þar enginn komið, svo vér vitum," segir Þ. Th. í íslandslýsingunni, sem út kom 1911. Nú eru tímar breyttir, margir menn koma árlega í Þórisdal og flugvélaf fara þar yfir. Myndin er tekin úr flugvél og sér til dalsins. Aburðarverksmiðjan iiefir þegar sparað þjóð- inni 47 milljónir króna í erlendum gjaldeyri Framíeiðsluafköst hafa farið fram úr á- ætlunum. - Engir erlendir verkfræðingar við verksmiðjuna lengur Starfsemi Áburðarverksmiðjunnar gekk vel á s. I. ári. Skilaði verksmiðjan rúmlega þeim afköstum, sem henni er setlað. Hún hefir nú þegar sparað þjóðinni gjaldeyri, sem nemur 47 milj. kr. Nauðsyn að hefja framleiðslu fleiri á- burðartegunda, en hætta á orkuskorti, ef ekki verður haf- izt handa um virkjanir bráðlega. ! Áburðarverksmiðjan h. f. hélt aðalfund sinn fyrir árið 1955 í Gufunesi, þann 10. apríl s. 1. Fund arstjóri var formaður verksmiðju- Stjórnarinnar, Vilhjálmur Þór, og fundarritari Pétur Gunnarsson, til- raunastjóri. Var fundurinn vel sótt Ur af hluthöfum, og mætti land- búnaðarráðherra, Steingrímur Steinþórsson, fyrir hönd ríkis- sjóðs. Fprpiað.ur flutti vtarlega skýrslu stjórnarinnar um störf fyrirtækis- ins í upphafi fundarins,- Skýrði hann frá því, að rekstur verksmíðj unnar hefði gengið vel til þessa. Á fyrstu 9 mánuðum ársins 1954, meðan tilraunarekstur verksmið- unnar stóð yfir, voru afköst henn- ar um 91% miðað við þau 18.000 smálesta ársafköst, sem skipuleggj- endur verksmiðjunnar höfðu gert ráð fyrir, en á fyrsta raunverulega rekstursárinu, sem var árið 1955. voru ársafköstin 18.340 sniálestir eða rúmlega það, sem verksmiðjan Árnesingar, fjölsækið síjórn máiafondifiii á Selfossi í dag Frsmsóknar/bkkurinn og Alþýðuflokkurirsn boða sam- eigirdega fi! almenns stjórnmálafundar að SeSfossi í dag. Er þetta fyrsfi sameiginlegi fundur þessara flokka fyrir kosn- ingarnar, en þeir munu vænfanlega verða fleiri, þar sem um kosningasamstarf milli þessara flokka er að ræða. Fumíurinn á Selfossi hefst kl. 2 e. h. Aðalræðumenn verða Eysfeinn Jónsson, ráðherra, og Haraldur Guðmunds- son, aiþsngismaður. Fundurinn er haldinn í Selfossbíói. Árnesingar, fjölmennið á þennan fund og ræðið stjórn- málin fyrir þessar þýðingarmiklu kosningar, sem nú fara hönd« er gerð fyrir. Eftir ýmsar smálag- færingar, sem gerðar voru fyrri hluta ársins 1955, framleiddi verk- smiðjan 10.000 smálestir síðari helming ársins, eða um 11% meira en uppgefin meðalafköst. Gat formaður þess, að algengast Vilhjálmur Þór, form. stjórnar Áburðarverk- smiðiunnar. væri, að það tæki efnaverksmiðj- ur nokkur ár að ná fullum afköst- um. Hefði því tekizt hér vonum framar með góð afköst, og þakkaði hann það fyrst og fremst vel unnu starfi hins bandaríska verkfræð- ingafyrirtækis, sem skipulagði verksmiðjuna, og góðu starfi unnu í fyrirtækinu sjálfu. Engir erlendir verkfræðingar lengur. Þá skýrði forrnaður frá því, að frá því um síðustu áramót væru engir erlendir mee»r starfandi við (Framhaid á 2. sfffuj Friðjón Skarphéðinsson bæj- arfógeti í framboði á Akureyri Framsóknarflokkurinn styður framboð hans - Alþýðuflokksmenn styðja Fram- sóknarflokkinn í Eyjafjarðarsýslu Nú í vikunni var samþykkt í Fulltrúaráði Framsóknar- félaganna á Akureyri, með öllum atkvæðum, að Framsókn- armenn skjddu styðja framboð Alþýðuflokksins í kaupstaðn- um. Áður höfðu Alþýðuflokksmenn í Eyjafjarðarsýslu lýst stuðningi við framboðslista Framsóknarmanna. í fyrrakvöld afréð fulltrúaráðs- fundur Alþýðuflokksfélaganna á Akureyri, að Friðjón Skarpliéðins son bæjarfógeti á Akureyri og sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu, yrði í framboði fyrir flokkinn. Ríkir mikil ánægja á Akureyri og í Eyjafirði með þessa samvinnu flokkanna, enda má telja miklar líkur fyrir, að sigur vinnist í báð um kjördæmunum. í kosningummi 1953 hlaut Fram sóknarflokkurinn 877 atkvæði og Alþýðufiokkurinn 518 atkvæði, en Sjálfstæðisflokkuriun 1400 at kvæði. Fundur Framsóknar- manna í Hafnarfirði Framsóknarfélag Hafnarfjarð- ar heldur félagsfund í Góðtempl- arahúsinu kl. 3 í dag. Nauðsyn- legt að félagsmenn fjölmenni, því að mjög áríðandi mál er á dagskrá. Þakkarskeyti frá konungshjónunum Forseta íslands barst í gær eftir farandi skeyti frá dönsku konungs hjónunum: Eftir góða heimkomu færum vér yður, frú yðar og allri íslenzku þjóðinni hjartanlegustu og inni- legustu þakkir fyrir þessa ljóm andi daga í Reykjavík. Vér mun um ætíð minnast með þakkiæti þeirrar alúðar, sem vér nutum þar, og sendum yður innilegustu óskir vorar um bjarta og ham- ingjusama framtíð íslands og ís- lenzku þjóðarinnar. Ingrid. Friðrik. (Frá skrifstofu forseta íslands.) Brezkur togari dreginn á flot Frá fréttaritara Tímans á Kirkjubæjarklaustri í gær. í gærkvöldi tókst að ná brezka togaranum St. Crispin, sem strandaði á Meðallandsfjöru fyrir nokkru, út. Að undanförnu hafa menn frá landhelgisgæziunni og úr Meðallandi unnið að undir- búningi björgunarinnar. Fvrir nokkrum dögum tókst að lireinsa úr skrúfu togarans vörpuslitur og sand frá henni,*og nú um stór- straumsfjöruna fór Þór austur. — Norðanátt var, stillt við sandinn og góð aðstaða. Tókst greiðlega að tengja streng milli Þórs og togarans, og á háflóði í fyrra- kvöld fór togarinn á flot. Vél skipsins var látin vinna og Þór tók í taugina. Var þegar lagt af stað með skipið til Vestmanna- eyja og Reykjavíkur. — VV. Friðjón Skarphéðinsson ■j uæ'j''rstj./rnal.^snifrgunum í árs óyrjun 1954, jók Framsóknarflokk urinn fylgi sitt verulega. Vinsæll borgari. Það styrkir mjög aðstöðu banda lagsflokkanna að Friðjón bæjar- fógeti er mikilsvirtur og mjög vin- sæll borgari, þaulreyndur í félags- og framkvæmdamálum. Áður en hann fluttist til Akureyrar hafði m. a. gengt störfum bæjarstjóra í Hafnarfirði, en nyrðra hefur hann, auk umfangsmikilla embætt- i isstarfa, m. a. átt sæti í bæjarstjórn og margvíslegum öðrum trúnaðar stöðum fyrir bæ og sýslu. Framboð í Eyjafirði. Áður er frá því skýrt hér í blað inu, að þeir Bernharð Stefánsson og Jón Jónsson á Böggvisstöðum skipa efstu sæti á lista Framsóknar flokksins í héraðinu. Hefur því svo skipast, að líklegt má telja, að tvö þingsæti verði endurheimt frá íhaldinu í Eyjafirði í sumar og er vel. Munið miðstjórnar- fundinn á morgun Fundur verður haldinn í mið- stjórn Framsóknarflokksins á morgun, mánudag kl. 5 e. h. Verð ur fundurinn í flokksherbergi Framsóknarflokksins í Alþingis- húsiiiu. Pétur Jónsson óperusöngvari iátinn ! í gærkveldi lézt hér í Reykja- vík Pétur Jónsson, óperusöngvari. Hann var sem kunnugt er meðal frægustu söngvara landsins un langt skeið. Hann var rúmlega sjS- tugor að aldri, ‘ ■ j

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.