Tíminn - 15.04.1956, Blaðsíða 12

Tíminn - 15.04.1956, Blaðsíða 12
«-■ £ VeSurspá. Faxaflói: Norðaustan kaldi, léttskýjað. 40. árg. Sunnudagur 15. aprít. Hiti á nokkrum stöSum kL 18: 1 Reykjavík 2 stig, Akureyri • stig, London 6 stig, París 2Q stig, Kaupmannahöfn 4 stig j „Að meta menn að verðleikum - líka Stalín” Svipmynd frá oskuhaugum Reykjavíkur í fyrradag Þa3 mundi vart hafa þótt trúlegur spádómur fyrir nokkrum árum, a3 sá dagur væri nærri, a3 öskuhaugarnir í Reykjavík væru skreyttir flekkjum af stórum myndum af félaga Stalin — og það rétt fyrir kosningar. Veg- faranda, sem leið átti um Grandann í fyrradag mundi helzt hafa getað dottið í hug, að þetta væri nýtt kosn- ingabragð hjá kommúnistum að breiða myndirnar þarna og þá tilgangurinn helzt sá að reyna að snúa Pétri Hoffmann til réttrar trúar, þegar hann færi að leita sér að fálkaorðum. En svona voru nú öskuhaugarnir í Reykjavík útlitandi í fyrradag. Norðankaldinn feykti þar þessum glæsilegu myndum til og frá .Einhver hafði borið þær út, og varla er hugsandi, að slikt öndvegismyndasafn hafi verið annars staðar til, en í höfuðstöðv- um kommúnista að Þórsgötu 1 eða í nýja flokkshúsinu. Það rennir og stoðum undir þá skoðun, að þarna var einnig nokkurt upplag af merkilegu fræðsluriti um kommúnisma eftir Sverri Kristjánsson og fleiri slík rit. Óneitanlega hefði borið minna á því að brenna þetta safn, en kannske kommar hafi verið smeykir við eldhætt- una. En hvernig sem þessu er öllu saman varið er sjón sögu ríkari og hér sést nú hvernig öskuhaugarnir í Reykjavík voru skreyttir tii heiðurs íhaldinu i Reykjavík fyrir þessar kosningar. Stalin er fallinn engill víðar en i Moskvu, og íslenzkir kommúnistar eru fljótir að læra af rússneskum lærifeðrum að „meta menn að verð- leikum — lika Stalín". Nýja stjórnin á Ceyion: Afþakka orður og titla drottoiogar. - Ekki vín í veizlum Strandferðaskipin anna varla vöruflutningunum Nær upppantað í Norðurlandaferíir Heklu í sumar. — Þyrill í lýsisflutningum til útlanda London, 13. apríl. — Hið nýja ráðuneyti Bandarnaike ákvað á fyrsta fundi sínum í dag, að gera engar tillögur til Elísabetar drottningar varðandi nafnbóta eða orðuveitingar til íbúa Ceylon, en skv. venju heiðrar drottning skv. tilnefningu ýmsa menn í Bretlandi og samveldislöndunuin í tilefni af afmælisdegi sínum. Jafnframt var þeim tilmælum beint til drottningar, að hún léti vera yfirleitt, að sæma Ceýlon- búa nokkrum heiðursmerkjum eða nafnbótum yfirleittt. Hefir brekza útvarpið eftir fréttaritara sínum þar eystra, að þessi afstaða forsætisráðherra og stjórnar hans sé í samrænii við þá stefnu hans, að Ceylon segi sig úr brezka sam- veldinu. — Þá var og samþykkt á ráðuneytisfundinum, að ráð- herrum og starfsmönnum utan ríkisþjónustunnar skyldi bannað að veita áfenga drykki við opin berar móttökur eða í veizlum. Sumarfagnaður Stúdentaféiagsins Stúdentafélag Reykjavíkur efnir til sumarfagnaðar næsta miðviku- dag í Sjálfstæðishúsinu. Verður þar góður fagnaður eins og vant er á hinum vinsælu kvöldvökum félagsins. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, mun skemmta og Lárus Pálsson, leikari, lesa upp. Ktukkan 12 á miðnætti verður sumri fagnað, og flytur Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, þá ávarp. Síðar í þessum mánuði efnir fé- lagið til umræðufundar, og í þetta sinn er umræðuefnið: Viðhorf ís- lendinga til framandi stjórnarhátta Er séra Sigurbjörn Einarsson, pró- fessor, framsögumaður í því máii. Tíðindamaður blaðsins átti í gær tal við Guðjón Teitsson, forstjóra Skipaútgerðar ríkisins um strandsiglingarnar og utanlandssiglingar ríkisskipanna í sumar. — Er Esja komin úr viðgerð- inni? — Nei, en hún er nú senn til- búin að hefja ferðir á ný. Á henni hefir nú farið fram 15 ára flokk- unarviðgerð, og er hún mjög gagn gerð og er langmesta viðgerð, er hér hefir farið fram á jafnstóru skipi. Ráðgert var í upphafi, að við gerðinni lyki á mánuði, en hún tók tvo mánuði, og varð því að haga strandferðum öðru vísi en ætlað var vegna þess. Nú standa vonir til, að skipið geti farið í strandferð 24. apríl. Miklir flutningar. Um áramótin voru fólksflutn- ingar geysimiklir, með strand- ferðaskipunum, eins og áður hef- ir verið frá skýrt, en nú þegar landleiðir ílestar hafa verið opn- ar í góðviðrunum, er minna um fólksflutninga með skipunum. — En eru vöruflutningarnir miklir? — Já, þeir eru alltaf mjög mikl ir, og eru skipin jafnan íullfermd vörum, einkum frá Reykjavík. Ilekla verður nú til dæmis að fara inn til Sauðárkróks með 100 lest ir af vörum, sem Skjaldbreið gat elcki tekið. Svo er það bftar, að skipin geta ekki annað öllum vöru flutningum frá eða aö öllum við- komuhöfnum sínum. Utanlandssiglingarnar. — En hvað er að frétta af utan- landssiglingunum? — Eins og undanfarin sumur mun Skipaútgerðin halda uppi ferðum til Norðurlanda þrjá mán uði sumarsins, og verður H,ekla í þeim förum og ferðaáætlun- svip uð og áður. Fer hún í fyrstu för ina 2. júní, og síðan annan hvern laugardag, svo að skipaferðir verða héðan með íslenzkum skip- um hvern laugardag til Norður- landa. Mjög mikil aðsókn er að þessum sumarferðum, og er þeg- ar fullpantað í sumar ferðirnar en nær fullt í aðrar. Virðast þess- ar ferðir mjög vinsælar. Þyrill í lýsisflutningum. — En í hvaða flutningum er olískipið Þyrill núna? — Hann hefir verið í utanlands siglingum síðan í haust, aðallega flutt lýsi til Evrópuhafna og er búinn að fara 9 slíkar ferðir. vær ferðir enn eru ákveðnar. Einnig hefir hann farið tvær ferðir með olíu milli Oslóar og Hamborgar. Nú sem stendur er hann að fara með hvallýsi til Bremerhaven. Áð- ur hafa erlend skip ætíð verið í þessum lýsisflutningum, og er þetta því í þá átt, að þessir flutn ingar færist á íslenzkar hendur. Þyrill er mjög heppilegt skip til þessara flutninga. Skólabörn á Kýpur Bretum erfið Nicosia, 13. apríl. Talsverðar óeirð ir og hópgöngur voru á Kýpur í dag, einkum láta börn og unglingar mikið til sín taka. Lokað var fjór um skólum í Nicosíu í dag vegna óspekta skólabarnanna. í Limsoll kvað mikið að því, að börnin yfir gæfu kennslustundir og "færu í hópum um göturnar. Sumstaðar var þeim dreift af herinönnum, sem beittu kylfum. Synjað hefir verið um náðun tvítugs Kýpurbúa, sem dæmdur var fyrir nokkru til dauða fyrir að hafa skotið lögreglu þjón til bana. Búizt viö að vinna hefjist víðast í Danmörku á morgun En verkföl! og átök héldu áfram í gærdag Kaupmannahöfn, 13. apríl. — Eins og áður hefir verið frá skýrt, brugðust danskir verkamenn fremur illa við þeirri ráðstöfun ríkisstjórnarinnar og þingsins að lögfesta miðl- unartillögu þá, sem sáttasemjari hafði borið fram í vinnu- deilunni. Hafði henni áður verið hafnað í verkalýðsfélögun- um við atkvæðagreiðslu með nokkrum meirihluta. í gær og dag hefir verkfallið haldið áfram í mörgum borgum og bæjum landsins, en sums staðar komið til átaka. í Álaborg var einn lögreglumaður drepinn í ryskingum mijli lögreglu og verkfallsmanna. í þeim átökunm meiddust marg ir og sumir talsvert alvarlega. í dag hefir yfírleitt verið kyrrlátara, þótt sumstaðar hafi komið til smá árekstra. Danska listsýningin Danska listsýningin í Listasafni rík- isins í Þjóðminjasafninu er opin dag lega til kl. 10 á kvöidin og ‘ er að- gangur ókeypis. Þarna er úrval mál- verka og höggmynda og einstakt tækifæri til að kynnast listaverkum ágætrar menningarþjóðar. Meðal höggmynda er þessi fallega stúlku- mynd eftir Astrid Noack, sem er mjög kunn listakona (lézt 1954). Blöð koma víðast ekki út. Verkalýðsfélögin hafa yfirleitt ákveðið, að hefja vinnu á mánu dag, en halda verkföllunum áfram þangað til í mótmælaskyni við lögþvingunaraðgerðir þingsins. Prentarar eru í verkfalli í mörg um prentsmiðjum og koma mörg blöð ekki út í dag. Bitnar verk fallið nú ýafnt á blöðum jafnaðar manna sem annarra. Sjómannafélagið er einna ó- ánægðast allra fagfélaga með kjörin skv. hinni lögboðnu tillögu. Samþykktu þeir að halda verkfall inu áfram, en nú mun unnið að því að semja við félagið um lag færingar á þeim atriðum, sem sjó mönnum þótti verst. Allsherjar verkfallið, sem efnt var til í Es bjerg, er kunnugt varð um lögfest inguna, hélt áfram .í dag. Þá hafa flugvallarstarfsmenn gert verkfall og hafa flugsamgöngur að mestu lagzt niður. Af þessum sökum eru engar samgöngur hvorki á sjó né í iofti við Borgundarhólm og nokkra aðra staði í Danmörku. Bókauppboð Sigurð- ar Benediktssonar Sigurður Benediktsson efnir til bókauppboðs í Sjálfstæðishúsinu á morgun, mánudag, kl. 5 síðdeg. is. Bækurnar verða til sýnis í dag: kl. 2—7 síðdegis og á morgun kl. 10—4 síðd. Er þarna á boðstólum allmikið safn fágætra erlendra ferðabóka. um ísland, auk fágætra og ganx alla íslenzkra bóka. Lélegur afli hjá | Sandgerðisbátum Frá fréttaritara Tímans í Sandgerði. Afli hefir verið heldur tregur hjá Sandgerðisbátum að undan- förnu, en virtist þá með bezta móti í gær. Þá var vitað um báta, sem voru með 8—10 lestir, eu algengastur afli að undanförnu hefir verið 5—8 lestir. Allir Sand gerðisbátar róa með línu. Konurnar „sungu piltinn tii dauða“ fyrir brot á siðalögum Asiralícnegri dauðvoaa á sjúkrahúsi í Darwin London, 13. apríl. í útvarpsfregn uin frá Ástralíu er skýrt frá því, að 19 ára gamail piltur, svertingi úr hópi innborinna Ástralíunegra liggi hættulega veikur á sjúkra húsi í borginni Darwin í Ástralíu. Að því er vitað er, þá er orsök veikinda hans sú, að ættflokkur haus framdi yfir honum fyrir viku síðan magnaða formælinga- og útskúfunarathöfn, sein er hefð bundin refsing meðal þessa fólks fyrir brot á lögum og siðaboðum ættbálksins. Fórmælingaathöfn þessi nefnist á máli Ástralíunegra ,,að syngja sákbormnginn dauða“. Frömdu konur þessa at höfn og segir Ástralíuútvarpið, aði slík sé trú hinna innfæddu svert ingja á mátt formælinganna,' atS hinu seki ráfi á brott, veslist upjn og deyi á skömmum tíma. Líðan unglings þessa, sem lig í ur á sjúkrahúsinu í Darwin, e - mjög slæm og líf hans virði ý, hanga á þræði. Læknar s< 5j ,j að honum hraki stöðugt, en sar . ' geta þeir ekki fimdið að r^’i sérstakt sé að honum. Hann . ekki til að neyta matar né dryi j ar og læknisaðgerðir virðast eaj in áhrif hafa á huuu,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.