Tíminn - 18.04.1956, Qupperneq 11
TÍ M.INN, miðvikudagian 18. apríl 1956.
FerSaféJag fslarsdS
fer göngu- og skíðaferð á Esju á sum
ardaginn fyrsta. Lagt af stað kl. 0
um morguninn frá Austurvelii og ek-
ið að Mógilsá, gengið þaðan á fjallið.
Farmiöar seldir við bíla.na.
Fríkirkjen í Hafnarfirði
' Messa á sumardaginn fyrsta kl. 2
e. h. Ferming, séra Kristinn Stefáns-
son.
Reynivallaprestakat!
Messað sumardaginn fyrsta að
Reynivöllum kl. 2 e. h. Séra Kristján
Bjarnason.
Langholfsprestakatl
Messa i Dómkirkjunni kl. 5 e. h.
fyrsta suinardag. Sr. Árelius Níelsson
Ungmennastúkan Háiogaland
Guðsþjónustan, sem ákvéðin var í
Laugarneskirkju fyrsta sumardag,
verður í Dómkirkjunni kl. 5 sama
dag. Sr. Árelíus Níelsson.
1!
Félag Diúpmanna
I Reykjayík heidur sumarfagnað í
Tjarnarkaffi niðri n. k. föstudag kl.
8.30.
Getraunaúrslit
„ — Eg hefi aðeins nefnt hér þrjá
af þeim eldnm;,sem predikarinn verð
ur að vaða, kferuleysi, efasemdir,
ýmiss konar aðkast. Afstöðu hans til
þverúðugra áheyrenda mætti vel lýsa
í enn færi orðum. Honum finnst
hann vera að vqða eld, en hann hætt-
ir sér út í það vegna málefnisins.
Þeir hoifa á hgnn álengdar, og þeim
sýnist hann bara vera að vaða reyk.1'
Prót Sigurður Nordal.
Ktiðvikudagur 18. aprí! SumarfagnatJur
109. dagur ársins. Eieulherius.
Tungl í suSri ki. 19,26. Ár-
degisfiæði ki. 11,27. SíSdegis-
fiæði ki. 23,55.
SLYSAVARÐSTOFA RBY KJAVlKUR
í nýju Heilsuverndarstöðinni,
er opin allan sólarhringinn. Næt-
urlæknir Lækr.afélags Reykja-
víkur er á sama stað kl. 18—8
Sími Slysavarðsíofunnar er 5030.
LYFJABOÐIR: Næturvörður er i
| í Reykjavíkur Ap.óteki, sími 1760
Holts apótek og Apótek Austur-
bæjar eru opin daglega til kl. 8,
nema á sunnudögum til kl. 4. —
Hafnarfjarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helgidaga frá kl. 13—16
verður í Góðtemplarahúsinu í kvöld
kl. 9 á vegum stúkunnar Eingingar-
. innar nr. 14. Verður fyrst spiiuð fé-
i lagsvist. Þá syngja þær tvísöngva
frúrnar Hulda Emilsdóttir og Sigríð-
ur Guðmundsdóttir. Þá sýna tvær
unggar stúlkur Charleston-dans og
loks fer fram spurningaþáttur undir
stjórn Freymóðs Jóhannssonar. Öll-
um er heimill aðgangur meðan hús-
rúm leyfir.
Nú standa skriftir stórir helgir bræður
og Stalíns-grómið skefur hver af sér,
því andi Lenins enn í Sovét ræður
— þá einnig syndir játa hljótumcvér.
Þó margan liarm í hamars nafni liðum
í hita dags, og beittum vorri sigð
þá er hér flest svo ósköp smátt 'í sniðirai
vér engin dómsmorð frömdum hér í byggð,
Af fylgisleysi Bjarna Ben ei flengdum
—. þó blíður nafni sæi vel hans leik
og fyrir vanmátt Ólaf ekki hengdum
— því eru nú vor hjörtu bljúg ög smeik.
Ó, máttki Krútsjeff! Miskunn þii oss sýndu
vér munum nýrri línu fylgja vel.
Hve ægilega ílialdsfólin píndu
við okkar trúboð, þinni náð ég fel.
Ó! Send oss kraft að sigra í lífsins stríði
— því sjá! Nú standa fyrir kosningar
sem ei þú veizt hve ama þínunf lýði
þá ekki hjálpar Sovét-réttarfar.
Útvarpið í dag:
8.00 Morgunútvarp.
10.10 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
12.50 Við vinnuna: Tónleikar af pl.
15.30 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir.
18.00 íslenzkukennsla, I. fl.
18.30 Þýzkukennsla, III. fl.
18.55 Framburðarkennsla í ensku.
19.10 Tónleikar: Óperulög (plötur).
19.25 Veðurfregnir.
20.00 Fréttir.
20.30 Dagskrá háskólastudenta:
a) Áyarp, Björgvin Guðmunds-
son stud. ökon, formaður stúd-
entaráðs. b) Erindi um læknis-
fræði. Jón Þ. Hallgrímsson stud.
med. c) Erindi um Mensa aca-
demiea (Einar Magnúss. mennta
skólaltennari). d) Smórakvartett
inn í Reykjavík syngur stúdenta
lög. e) Úr fórum stúdenta: 1.
Kristján Baldvinsson stud, med.
les frumsamda smásögu. 2. Er-
lingur Gíslason stud mag. les
kvæði eftir Hannes Pétursson
stud. mag. 3. Jón M. Samsonar
stud. mag. talar um „Elivoga“,
kvæði Einars Benediktssonar.
Enníremur tónleikar af plötum.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Tónleikar: Björn R. Einarsson
kynnir djassplötur.
22.45 Dsnslög (plötur).
23.45 Dagskrárlok.
MuníS
barnaspítalann og litlu hvltu rúm-
In. — Kauplð happdrættismiða
HRINGSINS.
Útvarpið sumardaginn fyrsta:
8.00 Heilsað sumri: a) Ávarp Vil-
hjálmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri. b) Úpplestur (Lárus Páls-
son leikarj). c) Sumarlög plötur.
9.00 Morgunfréttir.
9.10 Morguntónleikar (plötur): a)
Vorsónatan eftir Beethoven. b)
Vorsinfónían eftir Schumann.
10.10 Veðurfregnir.
11.00 Skátamessa í Dómkirkjunni, sr.
Bjarni Jónsson vígslubiskup.
12,00 Hádegisútvarp.
13.30 Útvarp frá útihátíð barna í
Reykjavík: Sungin sumarlög og
flutt sumarkvæði.
15.00 Miðdegistónleikar: Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur.
15.30 Endurtekið leikritið „Drauma-
stúlkan“ eftir Elmer Rice.
17.00 Veðurfregnir.
18.30 Barnatimí (Stefán Jónsson).
19.25 Veöurfregnir.
19.30 Tónleikar- (plötur): Lítil svíta
fyrir strengjasveit eftir Árna
Björnsson.
20.00 Fréttir.
20.20 Sumarvaka: a) Einsöngur og
samsöngur: Þuríður Pálsdóttir og
Kristinn Hallsson syngia b) Upp
lestur: Þórbergur Þórðarson rit
höfundur les úr bók sinni: Sálm
urinn um blómið: c) Tónleikar
(plötur): Sónata fyrir klarinettu
og pítanó eftir Jón Þórarinsson.
d) Erindi Á sumardaginn fyrsta
1887 (Oscar Clausen rithöf.).
22:00 Fréttir og veöurfregnir.
22.05 Danslög þ. á m. leikur dans-
hljómsveit Kristjáns Kristjáns-
sonar. Söngkona: Sigrún Jó.nsd.
01.00 Ðagskrárlok.
iilillill
Háskólafyrirlestur
Prófessor dr. Einar Haugen flytur
7. fyrirlestur sinn í dag, miðvikudag
inn 18. apríl kl. 8,15 síðdegis í 1.
kennslustofu háskólans. Efni fyrir-
lestursins er: Skáldlegt táknmál Ib-
sens (fluttur á norssku). Öllum er
heimill aðgangur.
752 krónur fyrir 10 rétta.
Úrslit getraunanna um helgina urðu:
ÍR 25 — Afturelding 18.......... 1
KR 14 — FH 14 .................. x
Soktland - — England 1 ......... x
Arsenal 1 — Birmingham 0 ....... 1
Aston Villa 3 — Sheff. Utd. 2 .. 1
Blackpool 0 — Totenham 2 ....... 2
Bolton 3 — Newcastle 2 ......... 1
Cardiff 2 — Luton 0 ............ 1
Huddersfield 4 — Charlton 0 .... 1
Manch. ity 1 — Barnley 3........ 2
Portsmouth 1 — WBA 1 ........... x
Sunderland 2 — Manch. Utd. 2 .. x
Bezti árangur var 10 réttir leikir,
og reyndust 4 með svo marga rétta.
Fyrir 2 af þeim koma kr. 702,00 og
hina 2 kr. 264.00, en vinningar skipt
ust annars þannig: 1 vinningur 2S4
kr. fyrir 10 rétta (4). 2. vinningur 73
kr. fyrir 9 rétta (29).
Vegna lokunar umboðsstaða sum-
ardaginn fyrsta, verður skilafrestur
lengdur til hádegis föstudaginn 20.
apríl.
Þjóðminjasafnið
er opið á sunnudögum kl. 1—4 og á
þriðjudögum og fimmtudögum og
laugardögum kl. 1—3.
Listasafn ríkisins
í Þjóðminjasafnshúsinu er opið á
sama tíma og Þjóðminjasafnið.
ÞÍóðskialasafníS:
Á virkum dögum kl. 10—12 og
14—19.
Náttúrugripasafnið:
Kl. 13.30—15 á sunnudögum, 14—
15 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Tæknibókasafnið
í Iðnskólahúsinu á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum kl.
16.00—19.00.
Landsbókasafnið:
Kl. 10—12, 13—19 og 20—22 alla
virka daga nema laugardaga kl. 10
—12 og 13—19.
Listasafn Einars Jónssonar
verður opið frá 15. þ. m. fyrst um
sinn á sunnudögum og miðvikudög-
um kl. 1,30—3,30.
Nr. 51
Lárétt: 1. ríki í Asíu, 6. hamingja, 8-
sjá um uppeldi, 9. stórfljót, 10. bæjar
nafn í Flóanum, 11. að refsa, 12.
klaka, 13. samband, 15. lamin.
Lóðrétt: 2. fylki í Bandaríkjunum, 3.
viðurnefni, 4. annir, 5. fræg frönsk
leikkona, 7. glitrar, 14. vopn.
Lausn á krossgátu nr. 50.
Lárétt: 1. domra, 6. róa, 8. raf, 10.
nár, 12. ár, 13. rá, 14. kaf, 16. sin, 17.
æli, 19. fróði.
Lóðrétt: 2. orf, 3. r-ó, 4. man, 5. bráka
7. fránn, 9. Ara, 11. ári, 15. fær, 16.
sið, 18. ló.
— Vertu ekki að æsa þig upp þó að ég spori dálítið. Veiztu ekki að
að það er rigning?"
Skipadeild SÍS
Hvassafeli er í Haugasundi, fer
þaðan i dag til Rostock. Arnarfell er
í Óskarshöín, Jökulfell fer í dag frá
Vestmannaeyjum til Breiðafjarðar-
hafna. Dísarfell fór 14. þ. m. frá Þor-
lákshöfn áleiöis til Rauma. Litlafell
losar á Austurlandshöfnum. Helgafell
er á ísafirði.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla var á ísafirði í gærkvöldi á
norðurleið. Esja er í Reykjavík.
Herðubreið fer frá Reykjavík kl. 21 í
kvöld austur um land til Vopnafjarð
ar. Skjaldbreið fer frá Reykjavik á
föstudaginn til Breiðafjarðar. Þyrill
er í Þýzkalandi.
H.t. Eimskipafélag íslands
Brúarfoss fór frá Vestmannaeyjum
14.4. til Newcastle, Grimsby og Ham-
borgar. Dettifoss kom til Ventspils í
gær, fer þaðan til Helsingfors. Fjall-
foss fór frá Akureyri í gær til Húsa-
vxkur, ísafjarðar og Faxaflóahafna.
Goðafoss fer frá Reykjavík á hádegi
í dag til New York. Gullíoss fór frá
ó
11
inn
Hamborg í gær til Kaupmannahafnar
Lagarfoss fór frá Reyðarfirði í gær
til Reykjavíkur. Reykjafoss fór frá
Hull 13.4. kom til Reykjavíkur í gær-
kvöldi. Tröllafoss fór frá New York
16.4. til Reykjavíkur. Tungufoss fór
frá Rotterdam 16.4. til Seyðisfjarðar,
Akureyrar og Reykjavíkur. Birgitte
Skou fór frá I-Iamborg 13.4. til Rvík-
ur. Gudrid kom til Reykjavíkur 16.4.
frá Rotterdam.
Loftieiðir h.f.
Saga er væntanleg kl. 11 frá New
York, flugvélin fer kl. 12,30 áleiðis
til Stavangurs og Luxemborgar. Einn
ig er Hekla væntanleg kl. 19 frá Ham
borg, Kaupmannahöfn og Gautaborg,
flugvélin fer kl. 20,30 til New York.
Flugfélag íslands h.f.
Gullfaxi er væntanlegur til Reykja
víkur kl. 17,30 í dag frá London og
Glasgow. í dag er ráðgert að fljúga
til Akureyrar, ísafjarðar, Sands og
Vestmannaeyja. Á morgun er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar, Egils-
staða, Kópaskers og Vestmannaeyja.