Tíminn - 26.04.1956, Page 6

Tíminn - 26.04.1956, Page 6
6 T í M IN N, fimmtudaginn 26. apríl 1958. Ctgefaadi: Fmnaótaiarflokkuriim.. Riíat;{órar: Haukur Snorrasor* Þórarinn Þórarinssoa Skrifstofur ! Edduhúsi við Lindargötu. Simar: 81300. 81301, 81302 (ritstj. og blaðamena), auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Preatsmiðjan Edda h.f. Eigin! idgsmimir íyrst - bráðabirgða- írr^ði eítir bráSabirgðaórræSi - aí* sal sjáKsákvörðimarréitariiis ERLENT YFIRLIT: LEIKSÝNING sú, sem Sjálístæðisflokkurinn iíndi til um seinustu helgi og kölluð var landsfundur, hefur gert það stórum gleggra eftir en áður hver stefna flokksins er. Þótt leiksýningin væri fyrst og fremst haldin til að leyna stefnunni og láta menn álíta hana allt aðra en hún er, hef ur útkoman eigi að síður orðið á þessa leið. Leiksýningin hefur því í raun og veru heppnast vel — þótt ætlun sýningarstjór- anna hafi verið að láta hana heppnast á annan veg. EFTIR leiksýninguna er það ljóst, að stefna Sjálfstæðis flokksins í aðalmálum þj'öar- innar, efnahagsmálunum og itanríkismálunum, er nú þessi: 1 efnaliagsmálunum verður að beita ,,bráðabirgSaúræði eftir bráðabirgðarúrræði“ sam kvæmt orðum varaformaims flokksins, Bjarna Benedikts- sonar eða ín. ö. o. að fylgja áfram sömu verðbólgustefnu- unni og að undanförnu, sem óhjákvæmiíega hiýtur aS5 enda með stöðvun og hruni þá og þegar. Ftokkurinn er þaanig stefsiuiaus og úrræðalaus í stærsta vandamáli þjóðarinn ar. í uíanríkis-og varnamtálum verður fariff eftir því, sem Bandaríkin og Atlantshafs ráffiff leggja til eða m. ö, o. sjálfsákvörðunarrétturiun verffur látinn af hendi og ialinn erlendum aðilum. Það má vera ölium augljóst, hvert þessi stefna úrræðisleys- is og réttarafsals muni leiða. Hún getur ekki haft annað en uppgjöf frelsisins í för með sér. ÞESSI UPPGJÖF þióðar- innar þarf hinsvegar ekki að leiða til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn geti ekki fram- fylgt meginstefnuatriði sínu, sem í setningarræðu flokks- formannsins var mörkuð þann- ig á leiksýningunni: „Við berjumst fyrir hags- munum okkar sjálfra, flokks okkar og þjóðar“. Forkólfar Sjálfstæðisflokks ins geta haldið áfrara að tryggja hagsmuni sína og gæð inga sinna, þótt sjálfsákvörð- unarrétturinn og frelsið sé farið, ef amerískt gull heldur áfram að streyma inn í landið á þann hátt, að hæfilegur hiuti þess lendi hjá réttum aðilum, þ. e. forkóifum og gæðing- um þeirra. EFTIR leiksýninguna er þannig augljóst, hver stefna Sjálfstæðisflokksins er: Hags- munir forkólfanna og gæðir.g- anna framar öllu öðru, úrræða leysi í efnahagsmálunum, rétt- arafsal og uppgjöf í utanríkis- málunum. Hversu margir verða þeir, sem bregðast þjóð sinni með því að efla slíkan flokk til braut argengis, annaðhvort með því að styðja hann beint eða 6prengiflokkana, sem eru hon- um til hjálpar? Hverjii svarar varaíormaðar Alfiýðiabaedalagsks? ,AÐ ER kunnara en frá þurfi að segja, að ínginn hérlendur maður hef ar meira lofsungið Stalin og stjómarfar hans en núverandi /áraformaður Alþýðubandalags ins, Einar Olgeirsson. Aðalmálgagn Einar, Þjóðvtlj inn, hefur nú játað, að hinir Shugnanlegustu réttarglæpir hafi veri'ð framdir undir hand- léiðslu Stalins, — menn hafa verið dæmdir til dauða sak- lausir eftir að hafa verið píndir til að játa á sig hina verstu gíæpi. Þetta er að vísu ekki nema pað, sem öllum mönnum vestan .jalds, er ekki vildu loka aug im og eyrum, hefur verið lengi runnugt um. Allstórati hóp tnanna tókst þó að blekkja, til að trúa þessu ekki. Meðal beirra, sem mest og bezt stundr aðu þessa blekkingaiðju hér á andi, var Einar Olgeirsson. Þaff er skýlaus krafa kjós- enda til Einars Olgeirssonar sem varaformánns hins ný- stofnaffa Alþýffubandalags, aff hann geri hreint fyrir dyrum sinum í þessum efnum: Var hann sjálfur blekktur og hvers vegna lét hann þá blekkjast? Eða hélt hann þessum áróffri uppi gegn betri viíund? Trúir hann jafneindregiff og áður á ágæti hins rússneska skipulags eftir þær upplýsingar, sem nú eru komnar í dagsljósiff? Hef ur traust hans til hinna rússn esku ráðamanna ekkert bilað viff þaff, sem nú er komiff á daginn? Það er áreiðanlega beðið eft ir fáu meira en að Einar Olgeirs son svari þessum spurningum. Og þeir verða vissulega margir, sem munu dæma Alþýðubanda lagið eftir því, hvernig hann svarar þeim eða hvort hann læt ur það ógert. Af því verður bezt ráðið hvort Alþý'ðubandalagið er aðeins felubandalag kommún ista eða eitthvað annað slcárra. Óiafur og glókollarnir hans IEAFI THORS varð það orð á munni, þeg ar hann sá Frjálsa þjóð me'ð .uyndum af frambjóðendum Þjóðvarnar í Barðastrandasýslu, Borgarfjarðarsýslu og á Akur- eyri, að þetta væru „blessaðir glókollarnir mínir“. Eftir þetta gaf hann jafnframt þau fyrir mæli, að helst engin styggðar- yrði yrðu sögð urn Þjóðvarnar menn í blöðum Sjálfstæðis- flokksins, en í munnlegum á- róðri skyldu áróðursmenn flokksins láta mikið af fylgi Þjóðvarnar. Öllu hefur þessu verið dyggilega framfylgt síðan. Jafnhliða þessu er Mbl. nú Ný viðhorf í Þýzkalandsmálunum VerlSur Rússum bofiiS, atS Vestur-Þýzkaland fari úr Atlantshafsbandalaginu, ef þeir fallast á sameiningu Þýzkalands á grundvelli frjálsra kosninga? UM LANGT skeið hefir ekki annað viðtal vakið meiri athygli en það, sem ameríska vikuritið „U. S. News & World Report“ birti S. þ. m. við Gay Mollet, forsætisráðherra Frakka. í viðtali þessu lýsti Mollett sig eindregið fylgjandi vestrænu samstarfi og eflingu Atlantshafs- bandalagsins á þeim grundvelli, að það láti fleiri mál til sín taka en hernaðarmál. Jafnframt gagnrýndi hann svo þá stefnu Vesturveldanna á síðari Genfarfundinum í fyrra, að hafa sett sameittingu Þýzka- lands fram í'yrir afvopnunarmálin. Móliet taldi, að afvopnunarmálin ættu að koma í fyrstu röð og sam- eining Þýzkalands ekki fyrr en á eftir. Þessi gagnrýni Mollet vakti mikla athygli, þar sem hann tók hér hér undir tillögu Rússa um það, hvernig þessi mál skyldu rædd. í Vestur-Þýzkalandi vakti þessi tillaga Mollet þó mesta athygli og gagnrýni. Óhætt má segja, að hún hafi verið harðlega gagnrýnd af öllum þýzku flokkunum, nema kommúnistum. Þótt þýzku flokk ana greini á um margt, eru þeir þó sammála um, að sameining Þýzka- lands sé mál málanna og eigi að setja fyrir öllu öðru. Tillaga Moll- et vakti því þá tortryggni, að Vest- urveldin — a. m. k. Frakkar — væru eitthvað að bila i þeirri við- leitni að vinna að sameiningu Þýzkalands, eða væru fús til að draga það mál á frest. Ef Þjóð- verjar kæmust almennt á þá skoð- un, myndi það áreiðanlega verða til þess að torvelda mjög sambúð þeirra og Vesturveldanna. FLJÓTLEGA eftir að þetta viðtal við Mollet birtist, lét þýzki utanríkisráðherra, von Bretano, skýra frá því, að í undirbúningi væri, að vestur-þýzka stjórnin sendi nýja orðsendingu til rússn- esku stjórnarinnar um Þýzkalands- málin. Ekkert var gert upskátt um hvert efni hennar væri, en það þó tekið fram, að viðhorf stjórnarinn- ar væri í meginatriðum óbreytt. Af mörgum blaðamönnum hefir þetta verið túlkað á þann veg, að vestur- þýzka stjórnin væri með þessu að aðvara Vesturveldin um að hvika ekki neitt frá baráttu sinni fyrir sameiningu Þýzkalands, eins og ætla mátti af tillögu Mollet. Gerðu Vesturveltiin það, niyttdi vestuv- þýzka stjórnin taka til sinna ráða og hefja beina samninga við rússn esku stjórnina um þessi mál. Það er vafalaust þróun, sem Vest urveldin óska ekki eftir. Af hálfu Breta og Bandaríkjamanna er það líka mjög eindregið áréttað eftir að viðtalið birtist við Mollet, að þeir telji sameiningu Þýzkalands eitt aðalmál heimsmálanna, er ekki megi leggja á minni áherzlu en sjálf afvopnunarmálin. í samræmi við þetta var það eitt af þeim mál- um, er Eden og Selwyn-Lloyd ræddu um við Bulganin og Krusts- joff. ÞESS SJÁST nú ýmis merki, að Vestur-Þjóðverjar eru að gerast ó- rólegir vegna þess, að ekkert ger- ist í sameiningarmálunum. Skoð- farið að tala vinsamlega um Hannibal og Ólafur Thors lét mikið af fylgi hans í landsfund- arræðu sinni. Hannibal hefði um þriðjung Alþýðuflokksins á sínu bandi! Á ísafjarðarfundin um voru Sjálfstæðismenn líka bezta klapplið Hannibals. Allt er þetta ofurskiljanlegt. Ólafur Thors veit manna bezt, að Sjálfstæðisflokkurinn eykur ekki fylgi sitt í kosningunum. Allar vonir hans eru bundnar við klofningsstarf Þjóðvarnar og Hannibals. En öllu frjálslyndu og vinstri sinnuðu fólki er þetta líka ljóst. Því mun árangurinn af sundrungarstarfi glókollanna reynast margfallt minna en Ólaf ur gerir sér nú vonir um. ÐE H LE R, formaður frjálsra demokrata anakannanir leiða í Ijús, að per- sónulegt fylgi Adenauers fer mjög minnkandi. Við nýlokna skoðana- könnun lýstu 41% sig honum fylgj andi í stað 56% fyrir ári síðan. Fylgistap hans er fyrst og fremst talið stafa af því, að minnkandi trú sé á stefnu hans í utanríkismál Adenauer tókst í vetur aff íá sam þykkt þingsins fyrir því að mega stofna 750 þús. manna þýzkan her, en til þess þurfti % hluta þings- ins, en þánn þirigmeirihluta hafði hann ekki eftir að flokkur frjálsra demókrata sagði skilið við stjórn- ina. Jafnaðarmenn féliu frá bar- áttu sinn gegn hernum á seinustu stundu, því að þeir vildu ekki bera ábyrgð á að stjórnin gæti ekki staðið við samninga sína við At- lantshafsbandaiagið, þótt þeir hefðu verið á móti þeim. Jafn- framt tryggðu þeir í leiðinni meiri íhlutun þingsins um yfirstjórn hers ins, svo að hann gæti síður orðið ríki í ríkinu, eins og oft hefir átt sér stað í Þýzkalandi. En þótt Adenauer kæmi þessu fram, er deilunni um herinn ekki iokið. Adenauer vildi byggja her- inn á almennri 18 mánaða her- skyldu.Jafnaðarmenn.frjálsir demo kratar og flóttamannaflokkurinn hafa; risiö upp gegn þessu og geta þeir í sameiningu hindrað herskyld una, því að hún þarf að samþykkj- ast með 2/3 meirihluta atkvæða. Þessir flokkar segjast heldur vilja hafa atvinnumenn í hernum. Al- menn herskylda geti ýtt undir hernaðaranda. Ástandið í alþjóða- málum sé jafnframt þannig, að það geti styrkt samningsaðstöðu Þjóð- verja, ef þeir fara sér rólega í hermálunum. FRJÁLSIR demókratar, sem eru þriðji stærsti stjórnmálaflokk- ur Vestur-Þýzkalands.héldu flokks- þing sitt í seinustu viku. Flokkur- inn rauf samvinnu við Adenauer í vetur, en ráðherrar hans sátu þó eftir í stjórninni og örfáir þing- menn flokksins fylgdu þeim. Á flokksþinginu var Thomas Dehler endurkosinn formaður flokksins, enhanner talinn harðskeyttasti and stæðingur Adenauers og réði mestu um samvinnuslitin í vetur. Ilann deildi mjög hart á Adenau- er og hafnaði öllu samstarfi við hann. Hins vegar hafnaði hann ekki samstarfi við flokk Adenauers kristilega demókrata, og fór viöur- kenningarorðum um ýmsa forustu- menn hans, m.a. von Bretano utan- ríkisráðherra. Flokkðrinn mótaði stefnu sína þannig, að hann getur hvort held- ur sem er unnið með kristilegum demókrötum eða jafnaðarmönnum eftir næstu þingkosningar, er fara fram á næsta ári. Málefnin eiga að ráða því, hvort samstarfið verður heldur valið. Flokksþingið tók svipaða afstöðu til utanríkismála og Dehier hefir áður markað. Stefna Dehlers er í stuttu má-li sú, að Vesur-Þýzkaiand verði eins og ástatt er að vera í Atlantshafsbandalaginu, en í sam- vinnu við Vesturveldin þurfi að vera hægt að finna form fyrir því, að því fyrirkomulagi verði breytt, ef það gæti auðveldað samkomu- lag um sameiningu Vestur-Þvzka- lands. Þá sé rétt að hefja nánari samskrpti við Rússa. f STUTTU máli má segja, að stefna frjálsra demókrata nálgist nú mjög sjónarmið jafnaðarmanna, er voru á móti þátttöku í Atlants- hafsbandalaginu með þeirri for- sendu, að áður en hún væri affráð- in þyrfti að gera víðtækari tilraun ir til að sameina Þýzkaland. Jafn- aðarmenn berjist nú ekki fyrir brottgöngu úr Atlantshafsbandalag inu, en vilja hins vegar fá meira svigrúm til athafna en þáttakan í bandalaginu leyfir nú. Áreiðanlega eiga þessar skoðanir - hljómgrunn í flokki kristilegra demokrata, þótt Adenauer standi einn á móti þeim. Ýmsir af yngri leiðtogum flokksins, eins og von Bretano, eru sagðir gera sér Ijóst, að flokknum sé nauðsynlegt að hafa frumkvæði um eitthvað nýtt í þessum málum, ef hann eigl að halda velli í kosningunum ’á næsta ári. MEÐAL vestrænna blaða- manna, sem hafa ritað um þessi mál, gætir nú þeirrar skoðunar í vaxandi mæli, að Vesturveldin megi ekki halda of einstrengings- lega við fyrri stefnu sína í þessum málum. Þau verði að taka tillit til þess, að tímarnir breytist og al- menningsálitið breytist. Rússum hafi tekist að ná frumkvæðinu á ýmsum sviðum að undanförnu og það sé jafnan sigurvænlegast. E£ Vesturveldin vilji halda velvilja Þjóðverja.þurfi þau að sýna saman- ingavilja í þessum málum og láta ekki Rússa ná frumkvæðinu í þeim. Ýmsir blaðamannanna tala um það sem einn bezta leikinn í þessum efnum, að Rússum sé boðið upp á, að Þýzkaland fari úr Atlantshafsbandalaginu, ef þeir vilji fallast á sameiningu Þýzka- lands á grundvelli frjálsra kosn- inga. Ef Rússar höfnuðu slíku til- boði, gætu þeir ekki lengur haldið því fram, a'ð þátttakan í Atlants- hafsbandalaginu hindraði samein- ingu Þýzkalands. Það yrði þá enn augljósara en áður, að sameining Þýzkalands strandaði á Rússum. MARGT BENDIR til, að Vest- urveldin hafi þessi mál nú til gaum gæfilegrar athugunar og frá þeim megi því vænta nýs frumkvæðis og verulegar stefnubreytingar á þessu sviði. Slíkt er líka óhjákvæmilegt. f þeirri samkeppni, sem nú á sér stað á sviði alþjóðamála, getur það jafngilt ósigri að fylgjast ekki með breyttum viðhorfum og haga sér í samræmi við það. Þetta gildir ekki sízt jafn örlagaríkt og viðkvæmt mál og Þýzkalandsmálin eru. E£ Vesturveldin sýna þar ekki næga sveigju, geta þau vel misst Þýzka- land úr fylkingu vestrænna ríkja. — Þ.Þ, Þrymur í Húsavík vakti hrifningu áheyrenda Ilúsavík, 24. apríl: Karlakórinn Þrymur hélt söngskemmtun í Sam komuhúsinu á laugardagskvöld við húsfylli og framúrskarandi góðar viðtökur áheyrenda. Söngstjóri er Sigurður Sigurjónsson, en píanó- leikari Björg Friðriksdóttir. Kór- inn varð að endurtaka mörg lög og syngja aukalög.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.